Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 228. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 234  —  228. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um eignir Tækniháskóla Íslands.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Voru eignir Tækniháskóla Íslands metnar í aðdraganda samningaviðræðna skólans og Háskólans í Reykjavík? Ef svo er, hver var niðurstaða þess mats?
     2.      Hvernig er áætlað að farið verði með eignir Tækniháskóla Íslands við sameiningu skólanna? Verða þær lagðar inn í einkahlutafélagið sem hlutaeign ríkisins eða verða þær seldar?





























Prentað upp.