Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 230. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 236  —  230. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um ráðuneyti lífeyris, almannatrygginga og vinnumarkaðsmála.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon.



     Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna hvort færa skuli undir eitt ráðuneyti málefni lífeyrissjóða og lífeyrissparnaðar, almannatrygginga, félagslegrar framfærslu og vinnumarkaðsmála, a.m.k. það sem lýtur að atvinnuleysisbótum og málefnum atvinnulausra. Sérstaklega verði hugað að kostum þess og göllum að gera slíka breytingu á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins með hliðsjón af þörfum fyrir samræmingu á þessu sviði.

Greinargerð.


    Tillaga þessi hefur verið flutt nokkrum sinnum áður en aldrei orðið útrædd. Nokkur umræða hefur orðið að undanförnu um þörfina á endurskoðun á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins og þykir því rétt að endurflytja tillöguna þannig að hún og þau sjónarmið sem að baki liggja komi til skoðunar ásamt öðrum hugmyndum um breytingar á viðkomandi sviði. Tillagan er endurflutt óbreytt ásamt þeirri greinargerð sem henni fylgdi síðast.
    „Ljóst er að veruleg skörun er á verksviði ráðuneyta í málum er snerta lífeyristryggingar, almannatryggingar, stuðning við atvinnulausa, framfærslustuðning sveitarfélaga o.fl. Samspil þessara þátta við skattkerfið og tekjutenging bótaliða innan og utan skattkerfisins er margþætt og flókið mál. Það er skoðun flutningsmanns að eitt af því sem hefur staðið löngu tímabærri endurskoðun og samræmingu á þessu sviði fyrir þrifum sé óheppileg verkaskipting eða öllu heldur dreifing þessa málaflokks innan Stjórnarráðsins.
    Til greina kemur að stofna nýtt ráðuneyti sem tæki við verkefnum á þessu sviði frá fjármálaráðuneyti, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og félagsmálaráðuneyti eða að færa þessi mál öll saman til eins af ráðuneytunum, t.d. félagsmálaráðuneytisins. Heilbrigðisráðuneytið er þegar fyrirferðarmikið og ekki er að öllu leyti heppilegt að almannatryggingar séu jafnframt vistaðar þar. Sama gildir um fjármálaráðuneytið.
    Sameining þessa mikilvæga en um leið vandasama málaflokks í eitt ráðuneyti ætti að auðvelda samræmingu löggjafar og stjórnsýslu á þessu sviði en á því er mikil þörf, ekki síst með tilliti til sívaxandi umfangs málaflokksins.“