Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 246  —  126. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um veiði í vötnum á afréttum.

     1.      Hversu mörg vötn á afréttum og hálendi Íslands eru nytjuð til veiða?
    Á Íslandi eru yfir 500 stöðuvötn, þar af um 110 á því svæði sem talist getur til hálendis Íslands (sjá mynd). Á hálendinu eru starfandi veiðifélög sem ná til stórs hluta þeirra vatna sem á svæðinu eru.
    Eftirfarandi veiðifélög hafa lögformlegar samþykktir:
     –      Veiðifélag Síðumannaafréttar
     –      Veiðifélag Eilífsvatna
     –      Veiðifélag Hvítárvatns
     –      Veiðifélag Efri-Þjórsár
     –      Veiðifélag Holtamannaafréttar
     –      Veiðifélag Landmannaafréttar
     –      Veiðifélag Rangárvallaafréttar
     –      Veiðifélag Skaftártungumanna
     –      Veiðifélag Arnarvatnsheiðar og Tvídægru
     –      Veiðifélag Arnarvatnsheiðar
     –      Veiðifélag Langavatns
     –      Veiðifélag Víðidalstunguheiðar
     –      Veiðifélag Grímstunguheiðar
    Í flestum þeim vötnum sem undir þessi veiðifélög heyra er stunduð veiði ýmist útleigð stangaveiði eða netaveiði. Ekki hafa verið mynduð veiðifélög um öll vötn á hálendinu en veiðinýting tilheyrir samkvæmt lax- og silungsveiðilögum landeiganda og/eða þeim lögbýlum sem upprekstur eiga á svæðið.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hverjir hafa veiðirétt í þeim og hvernig er veiðirétturinn tilkominn?
    Umrædd veiðifélög fara með veiðirétt í þessum vötnum í samræmi við 1. mgr. 45. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum, sem hljóðar svo:
    „Félagssvæði veiðifélags getur tekið yfir:
     a.      Heilt fiskihverfi.
     b.      Einstakt veiðivatn í fiskihverfi.
     c.      Hluta af veiðivatni, þar sem sérstaklega hagar til um veiði eða vatnskosti.
     d.      Veiðivötn á afrétti, sem eru hluti af einu eða fleiri fiskihverfum og eru á sama landssvæði.“
    Einnig 3. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 57. gr. sömu laga, sem hljóða svo:
    „Nú er stofnað veiðifélag, sem einungis tekur til veiðivatna á afréttum, og skal koma eitt atkvæði fyrir hvert lögbýli við gildistöku laga þessara, sem á veiðirétt á þeim afréttum eða rétt á til upprekstrar á þá.“ (48. gr.)
    „Þá er veiðifélag hefur verið stofnað með löglegum hætti, skal hverjum manni óheimilt að veiða í vatni á félagssvæðinu, nema hann hafi samþykki félagsstjórnar.“ (57. gr.)

     3.      Er almenningi veittur aðgangur að vötnunum?
    Umferð almennings við umrædd vötn er ekki takmörkuð en veiði er að sjálfsögðu óheimil nema viðkomandi aðili hafa aflað sér veiðileyfis hjá viðkomandi landeiganda, veiðifélagi eða leigutaka.

     4.      Hvað liggur til grundvallar gjaldtöku fyrir veiðileyfi?

    Verð á veiðileyfum er að sjálfsögðu mjög breytilegt eftir vötnum og líkum veiðimanna á því að fá veiði. Megináhrifin á verð koma hins vegar í gegnum framboð og eftirspurn. Vinsæl veiðisvæði eru því dýrari en einnig eru dæmi um mjög ódýr veiðileyfi. Vatnaveiði er hins vegar almennt ódýrari heldur en veiði í straumvötnum.