Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 210. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 264  —  210. mál.




Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar um aflahlutdeild.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Um hvaða fisktegundir gilda lagaákvæði um aflahlutdeild? Hvenær voru lög sett um hverja tegund, hvaða heildaraflamarki var þá úthlutað og hve miklu var úthlutað í hverri tegund fyrir yfirstandandi fiskveiðiár?

    Meðfylgjandi tafla sýnir hvenær til úthlutunar aflahlutdeildar kom í einstökum tegundum og hver heildaraflinn var þá og hver hann er á yfirstandandi fiskveiðiári. Til skýringar skal þess getið að fiskveiðiárið 1991/1991 var aðeins 8 mánuðir. Enn fremur að endanlegur heildarafli fyrir yfirstandandi loðnuvertíð hefur ekki verið ákveðinn. Þá er rétt að nefna að í tegundum sem veiðast innan og utan lögsögu er aðeins tilgreindur hlutur íslenskra skipa.
Aflamark
2004/2005
Hvenær í aflahlutdeild Aflamark
það ár
1 Þorskur 205.000 1991/1991 245.000
2 Ýsa 90.000 1991/1991 48.000
3 Ufsi 70.000 1991/1991 65.000
4 Steinbítur 13.000 1996/1997 13.000
5 Karfi 57.000 1991/1991 55.000
6 Grálúða 15.000 1991/1991 33.000
7 Sandkoli 5.000 1997/1998 7.000
8 Skrápflúra 5.000 1997/1998 5.000
9 Skarkoli 5.000 1991/1991 7.000
10 Þykkvalúra 1.600 1999/2000 1.400
11 Langlúra 2.000 1996/1997 1.200
12 Keila 3.500 2001/2002 4.500
13 Langa 4.000 2001/2002 3.000
14 Skötuselur 2.000 2001/2002 1.500
15 Síld 110.000 1991/1991 110.000
16 Úthafsrækja 20.000 1991/1991 25.000
17 Humar 1.500 1991/1991 2.100
18 Hörpudiskur 0 1991/1991 12.500
19 Innfjarðarrækja 0 1991/1991 6.900
Tegundir utan og innan lögsögu
1 Loðna 2004/2005 224.000 1991/1992 740.000
Almanaksárið 2004
2 Úthafskarfi 55.000 1997 45.000
3 Rækja Flæmska hattinum 13.644 1997 6.800
4 Kolmunni 713.000 2002 282.000
5 Norsk-íslensk síld 128.205 2002 132.080
6 Norðuríshafsafli 9.518 1999 7.231