Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 165. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 296  —  165. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um greiðslur fjármagnstekjuskatts.

     1.      Hversu margir einstaklingar annars vegar og lögaðilar hins vegar greiddu fjármagnstekjuskatt árin 2002 og 2003 og hvað er áætlað að þeir verði margir í ár?

Tekjuár Einstaklingar Lögaðilar
2002 74.346 83
2003 76.924 75
Unnið upp úr upplýsingum frá RSK.


    Einungis lögaðilar, þ.m.t. félög og félagasamtök, sjóðir og stofnanir sem undanþegnir eru greiðslu tekjuskatts greiða fjármagnstekjuskatt. Aðrir lögaðilar greiða tekjuskatt af fjármagnstekjum. Einnig greiðir ríkissjóður fjármagnstekjuskatt.
    Í raun greiða flestir framteljendur einhvern fjármagnstekjuskatt, þar sem greitt er af öllum innstæðum í innlánsstofnunum. Það eru þó ekki allir sem gefa upp þessar upplýsingar á skattframtölum sínum og því erfitt að fá réttan fjölda þeirra sem greiða fjármagnstekjuskatt.

     2.      Hversu margir af þessum gjaldendum greiða fjármagnstekjuskatt sem er:
              a.      undir 100 þús. kr.,
              b.      100–199 þús. kr.,
              c.      200–399 þús. kr.,
              d.      400–999 þús. kr.,
              e.      1.000–1.499 þús. kr.,
              f.      yfir 1.500 þús. kr.
        og hve há er meðalgreiðslan í hverjum þessara flokka?


Tekjuár 2002 Tekjuár 2003
Þús. kr. Fjöldi Meðalgreiðsla
fjármagnstekjuskatts
Fjöldi Meðalgreiðsla fjármagnstekjuskatts
Undir 100 69.101 11.775 70.260 12.501
100–199 2.524 138.002 3.089 137.476
200–399 1.339 276.718 1.697 275.887
400–999 901 614.427 1.138 600.610
1.000–1.499 179 1.206.466 244 1.220.899
Yfir 1.500 392 5.983.834 496 7.568.976
Unnið upp úr upplýsingum frá RSK.