Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 278. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 300  —  278. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um vöruverð og rekstrar- og samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni.

Flm.: Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Jóhann Ársælsson,


Þórunn Sveinbjarnardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson,
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Einar Már Sigurðarson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sem hafi það hlutverk að kanna þróun vöruverðs og rekstrar- og samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni sl. 10 ár og bera saman við þróunina á höfuðborgarsvæðinu á sama tímabili. Nefndin kanni jafnframt hvaða þættir hafa helst áhrif á vöruverð og rekstrar- og samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni annars vegar og á höfuðborgarsvæðinu hins vegar og hvar skilur á milli.
    Nefndin kanni sérstaklega og meti:
     a.      áhrif þungaskatts á vöruverð og hvaða áhrif breytingar undanfarinna ára á þungaskatti hafa haft á vöruverð á landsbyggðinni,
     b.      áhrif þungaskatts á rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni og hvaða áhrif breytingar undanfarinna ára á þungaskatti hafa haft á rekstrarskilyrði þeirra,
     c.      áhrif upptöku olíugjalds á flutningskostnað, sbr. lög nr. 87/2004 sem taka gildi 1. júlí 2005,
     d.      áhrif niðurlagningar strandsiglinga 1. desember nk. bæði á flutningskostnað og aukna umferð flutningabíla um þjóðvegi landsins. Enn fremur verði könnuð áhrif þessa á fiskflutninga og á tekjur hafna. Nefndin móti tillögur sem gætu leitt til áframhaldandi strandsiglinga til ákveðinna hafna, t.d. með ríkisstyrkjum og almennu útboði líkt og gert hefur verið með innanlandsflug til nokkurra áfangastaða á landsbyggðinni.
    Nefndin móti tillögur sem hafi að markmiði að draga úr áhrifum þungaskatts og annarra skatta á vöruverð og jafni rekstrarskilyrði atvinnufyrirtækja í sambandi við flutningskostnað milli landsvæða. Nefndin kanni sérstaklega hvernig breyta megi skattkerfinu til að ná þessu marki.
    Nefndina skipi fulltrúar tilnefndir af stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á Alþingi. Auk þess tilnefni forsætisráðherra einn fulltrúa sem verði formaður nefndarinnar. Nefndin skili áliti sínu og tillögum ekki síðar en 1. apríl 2005.

Greinargerð.


    Verðlagskannanir hafa sýnt að verðlag á landsbyggðinni er yfirleitt hærra en á höfuðborgarsvæðinu og munar oft talsverðu. Þá hafa kannanir sýnt að fólk telur óhagstætt verðlag á meðal helstu ókosta þess að búa á landsbyggðinni.
    Orsakir hærra verðlags á landsbyggðinni eru margvíslegar, þó verður að telja að hár flutningskostnaður og hátt innkaupsverð frá heildsölum, sem oft má rekja til óhagstæðra rekstrareininga, skipti þar mestu sem og lítil samkeppni í mörgum tilvikum.


Rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni.          Nefndinni er m.a. ætlað að kanna þróun rekstrar- og samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni, hvaða áhrif þungaskattur hefur á rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni þeirra og hvort þungaskattskerfið mismuni fyrirtækjum eftir því hvar þau eru á landinu. Flutningsmenn telja að samkeppnisstaða atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni versni jafnt og þétt og nægir þar að nefna ákvörðun Eimskipa um að hætta strandsiglingum 1. desember nk. Nefndinni er m.a. ætlað að kanna áhrif þess á flutningskostnað og á samkeppnisfærni iðnfyrirtækja á landsbyggðinni gagnvart fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Meðal fjölmargra forsvarsmanna iðnfyrirtækja á landsbyggðinni hefur komið fram mikill ótti vegna þessa og á það einkum við um þau iðnfyrirtæki sem nota þunga vöru, svo sem vélsmiðjur, og einnig þau iðnfyrirtæki sem framleiða rúmfreka vöru, t.d. fyrirtæki sem framleiða fiskikör. Ljóst er að flutningskostnaður þessara fyrirtækja mun stórhækka þegar strandsiglingar hætta. Nefndinni er einnig ætlað að kanna áhrif þessa á fiskvinnsluna og á tekjur hafna sem að óbreyttu munu tapa miklum tekjum vegna þessara breytinga. Benda má á þá hættu að flutningsfyrirtæki muni í auknum mæli reyna að hafa áhrif á landanir frystitogara um allt land og reyna að beina þeim öllum að einni eða tveimur útflutningshöfnum á höfuðborgarsvæðinu, með alls konar gylliboðum um fríar landanir og flutninga á mannskap. Gangi það eftir er ljóst að umferð um þjóðvegi landsins muni aukast stórlega með tilheyrandi vegsliti og aukinni hættu á umferðarslysum. Einnig má benda á að á nokkrum stöðum á landinu eru vegir þannig að þeir munu ekki bera aukna umferð.
    Það er ljóst að samkeppnisfærni fyrirtækja á landsbyggðinni mun stórminnka á næstu missirum verði ekki gripið til aðgerða til að jafna skilyrði fyrirtækja á landsbyggð og höfuðborgarsvæði, sem búa við miklu betri rekstrarskilyrði vegna nálægðar við helstu uppskipunarhafnir landsins.

Landsmenn sitji við sama borð.
    Flutningsmenn telja að ríkisvaldinu beri skylda til að tryggja að allir landsmenn sitji við sama borð þegar kemur að setningu laga og reglna. Fullyrða má að núverandi þungaskattskerfi sé þess eðlis að það komi harðar niður á landsbyggðarbúum en íbúum höfuðborgarsvæðisins. Sama gildir um önnur atriði sem nefnd eru í tillögunni, svo sem afnám strandsiglinga og upptöku olíugjalds sem munu koma hart niður á fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni. Nú er svo komið að langstærstum hluta innfluttra vara er skipað upp í Reykjavík eða nágrenni hennar og þaðan er vörunum dreift út um landið með vöruflutningabifreiðum. Þungaskattur leggst á þessa flutninga og því lengra sem ekið er með vöru þeim mun hærri verður skatturinn. Skatturinn kemur þannig fram í hærri flutningskostnaði sem aftur hækkar vöruverð til viðkomandi neytenda.
    Nauðsynlegt er að bregðast við þessu og því er lagt til að nefndin kanni sérstaklega áhrif þungaskatts á vöruverð og hvaða áhrif breytingar undanfarinna ára á þungaskatti hafa haft á vöruverð á landsbyggðinni en ætla má að áhrif hans hafi aukist síðari ár, sérstaklega eftir að afsláttarkerfi þungaskatts var lagt niður.
    Lagt er til að nefndinni verði falið að gera tillögur sem miði að því að draga úr áhrifum þungaskatts á vöruverð á landsbyggðinni. Benda má á að í núgildandi lögum um fjáröflun til vegagerðar er veittur afsláttur af þungaskatti af akstri almenningsvagna í áætlunarferðum og bændur njóta einnig afsláttar. Í lögunum er jafnframt kveðið á um að þeir sem nota innlenda orkugjafa í tilraunaskyni skuli greiða 50% lægri þungaskatt. Af þessu má sjá að þungaskatturinn er bæði notaður til jöfnunar og sem stýritæki.
    Á 130. löggjafarþingi voru samþykkt lög um upptöku olíugjalds í stað þungaskatts, í tillögunni er gerð tillaga um að nefndin kanni sérstaklega þessa breytingu með tilliti til áhrifa hennar á flutningskostnað í landinu.
    Í Noregi hafa menn farið þá leið að skipta landinu niður í svæði og er mismunandi skattheimta á milli svæðanna réttlætt út frá byggðasjónarmiðum. Rétt er að nefndin skoði ítarlega hvernig þetta er framkvæmt í Noregi.

Jöfnun lífskjara – mikilvægasta byggðamálið.
    Mikilvægt er að rannsaka ofan í kjölinn þær ástæður sem liggja að baki mismunandi vöruverði eftir landshlutum þannig að unnt sé grípa til viðeigandi ráðstafana til að jafna muninn. Sama á við um samkeppnisstöðu og rekstrarskilyrði atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni sem hafa versnað mikið á undanförnum árum.
    Jöfnun lífskjara, svo og jöfnun rekstrarskilyrða fyrirtækja án tillits til staðsetningar þeirra, verður að vera meðal forgangsverkefna ef árangur á að nást í byggðamálum. Þetta atriði hefur oft verið nefnt í ræðu og riti stjórnmálamanna á tyllidögum. Flutningsmenn telja að tími ákvarðana og framkvæmda í þessum málaflokki sé löngu kominn og tími skoðunar og skýrslugerðar sé liðinn. Flutningsmenn telja að nefndin verði að vinna hratt í þessum málum, og benda á að skýrsla var skrifuð af þremur ráðuneytum um þetta efni í aðdraganda síðustu alþingiskosninga, sbr. skýrslu nefndar um flutningskostnað sem samgönguráðuneytið gaf út í janúar 2003 og birt er á heimasíðu ráðuneytisins:
    (http://www.samgonguraduneyti.is/media/Skyrsla/skyrslaumflutnkostnad.pdf).
    Í framhaldi af þessari skýrslugerð ákváðu núverandi ríkisstjórnarflokkar að senda hana til Byggðastofnunar með ósk um tiltekna vinnu og gerð tillögu, sem skilað hefur verið til ríkisstjórnar. Einstakir þingmenn Samfylkingarinnar, svo og stjórn þingflokks Samfylkingarinnar, hafa einnig reynt að fá tillögur Byggðastofnunar, m.a. til að móta þessa þingsályktunartillögu, en ekki fengið. Flutningsmenn vænta þess að sú nefnd sem tillaga þessi gerir ráð fyrir að verði skipuð fái aðgang að þessum gögnum og geti nýtt þau við mótun tillagna á þeim stutta tíma sem henni er ætlaður til starfa. Flutningsmenn bera þá ósk í brjósti að skapa megi þverpólitíska samstöðu um skipan þessarar nefndar og jafnframt að sátt megi takast milli þingflokka um tillögur hennar þegar þar að kemur. Málið er afar þýðingarmikið og því nauðsynlegt að hratt sé unnið og tillögum til úrbóta hrundið í framkvæmd sem fyrst.