Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 172. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 306 — 172. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um húsaleigubætur.
1. Hver hafa árleg heildarútgjöld sveitarfélaga vegna húsaleigubóta verið árin 1998– 2004? Óskað er eftir sundurliðun á árlegum útgjöldum stærstu sveitarfélaganna.
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflum.
2. Hvernig hefur kostnaðarskipting vegna húsaleigubóta verið milli sveitarfélaga og ríkisins árlega á sama tímabili, bæði hlutfallslega og í krónum? Hefur framkvæmdin verið í samræmi við lög og reglur og samninga milli ríkis og sveitarfélaga um kostnaðarskiptingu?
Framlag frá ríki í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum var skilgreint sérstaklega á fjárlögum allt til ársins 2002. Kveðið var á um hlutfallslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði í lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, er tóku gildi í janúar 1998 og í 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 37/1998, og síðar nr. 4/1999. Á grundvelli 3. mgr. 9. gr. reglugerðanna var kveðið á um að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skyldi sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga færu fram úr áætlunum þeirra. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga skyldi síðan fara fram í janúar ár hvert á grundvelli framlagsins frá ríkinu.
Á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá því í desember 2002 var gerð breyting á framsetningu á tekjum Jöfnunarsjóðs úr ríkissjóði frá 1. janúar 2003, sbr. breytingu á lögum um tekjustofna, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Með breytingunni nemur ráðstöfunarfé Jöfnunarsjóðs til greiðslu á framlögum til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum nú allt að 11,5% af tekjum sjóðsins skv. a-lið 8. gr. sömu laga.
Á grundvelli 2. mgr. 2. gr. reglugerðar um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003, er ráðgjafarnefnd sjóðsins ætlað í upphafi hvers fjárhagsárs að gera tillögu til félagsmálaráðherra um áætlað greiðsluhlutfall sjóðsins til sveitarfélaga á árinu vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum. Til grundvallar að tillögu ráðgjafarnefndar eru lagðar áætlanir sveitarfélaga um heildargreiðslur húsaleigubóta á árinu og fjármagn það sem til ráðstöfunar er, sbr. e-lið 11. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
Ákvæðinu um að halda eftir 5% af hverri ársfjórðungslegri greiðslu, nú sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 122/2003, hefur verið beitt frá árinu 1998. Geymsluféð var greitt út til sveitarfélaganna við endanlegt uppgjör vegna áranna 1998–2000. Árin 2001–2003 fóru greiðslur sveitarfélaga á húsaleigubótum fram úr áætlunum þeirra og því varð að halda geymslufénu eftir til að brúa það bil. Hvað árið 2004 varðar eru líkur á að unnt verði að greiða geymsluféð út að einhverju leyti í janúar 2005 þegar uppgjör vegna ársins 2004 fer fram.
Hvað kostnaðarskiptingu milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga vegna greiðslu á húsaleigubótum árin 1998–2004 varðar er vísað til eftirfarandi töflu.
Ákvæði í lögum og reglugerðum samkvæmt samningum um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga á tímabilinu 1998–2004 hafa verið eftirfarandi:
Lög um húsaleigubætur, nr. 138/1997, er tóku gildi 1. janúar 1998.
3. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, hljóðaði svo:
„Ríkissjóður greiðir árlega 280 millj. kr. í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem renna til sveitarfélaga vegna greiðslna húsaleigubóta. Fjárhæð þessi miðast við verðlag í janúar 1998 og breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs.“
Með lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, var þannig lögfest samkomulag ríkis og sveitarfélaga að ríkissjóður skyldi árlega greiða 280 millj. kr. í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem renna skyldu til greiðslu húsaleigubóta.
Reglugerð um húsaleigubætur, nr. 37/1998 (brottfallin).
Í 2. mgr. 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 37/1998, sagði að sveitarfélög skyldu leggja út fé til greiðslu húsaleigubóta en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga reiknaði þeim ársfjórðungslega 50% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu, sbr. þó 3. mgr.
Í 3. mgr. kom síðan fram að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 7. gr., skyldi sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu, sbr. 2. mgr. til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga færu fram úr áætlun þeirra. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga skyldi síðan fara fram í janúar ár hvert á grundvelli framlags ríkisins skv. 3. gr. laga um húsaleigubætur.
Reglugerð um húsaleigubætur, nr. 4/1999 (brottfallin).
Reglugerðin hækkaði endurgreiðsluhlutfall skv. 2. mgr. 9. gr. þannig að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skyldi reikna sveitarfélögum ársfjórðungslega 55% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu.
Reglugerð nr. 9/2000 er breytti 2. mgr. 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 4/1999.
Reglugerð nr. 9/2000 hækkaði endurgreiðsluhlutfall 2. mgr. 9. gr. þannig að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skyldi reikna sveitarfélögum ársfjórðungslega 58% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu.
Breyting á lögum nr. 168/2002 á lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997.
Í árslok 2002 áttu fulltrúar ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga í viðræðum um breytingar á fjárhagslegum samskiptum aðilanna. Þar voru til umfjöllunar málefni sem tiltekin voru í yfirlýsingu félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga, m.a. varðandi húsaleigubótakerfið. Með lögum nr. 168/2002 var 3. gr. laga um húsaleigubætur felld brott og var sú breyting í samræmi við efni viðræðna ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Samhliða brottfalli 3. gr. laga um húsaleigubætur var gerð breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, þar sem framlag úr ríkissjóði skv. a-lið 8. gr. þeirra laga var hækkað. Eftir setningu laga nr. 167/2002, um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, urðu tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs. En skv. e-lið 11. gr. er allt að 11,5% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. til ráðstöfunar til sveitarfélaga vegna húsaleigubóta.
Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003.
Í 2. gr. kemur fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta geta numið allt að 11,5% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, sbr. e-lið 11. gr. sömu laga.
Í 3. gr. reglugerðarinnar kemur fram að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skal sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga fara fram úr áætlunum þeirra eða heildarfjármagn reynist minna en áætlað var í upphafi árs.
Samantekt.
Við endurgreiðslu húsaleigubóta til sveitarfélaga hefur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fylgt fyrrnefndum ákvæðum laga og reglugerða um húsaleigubætur og fyrirliggjandi samningum um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Auk þess sem Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur gætt þess að vera innan þess fjárhagsramma sem sjóðnum hefur verið settur.
3. Hefur verið haft samráð við sveitarfélögin um breytingar á lögum um húsaleigubætur sem leitt hafa til hærri útgjalda?
Samráðsnefnd um húsaleigubætur.
Starfandi er samráðsnefnd um húsaleigubætur en um hana segir í 10. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, að félagsmálaráðherra skipi til fjögurra ára í senn þriggja manna samráðsnefnd sem skuli fylgjast með framkvæmd laga um húsaleigubætur og reglugerðar um húsaleigubætur. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir tvo fulltrúa í nefndina og félagsmálaráðherra einn, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Hlutverk samráðsnefndar er að vera samráðsvettvangur ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um lög um húsaleigubætur og reglugerð um húsaleigubætur, og fylgjast með framkvæmd og þróun húsaleigubótakerfisins. Nefndin fjallar um tillögur um breytingar á lögum um húsaleigubætur og reglugerð um húsaleigubætur, metur kostnað slíkra breytinga og önnur áhrif. Einnig miðlar samráðsnefnd upplýsingum til sveitarfélaga. Samráðsnefndin hefur hist reglulega frá árinu 1998.
Beint samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Allar breytingar á lögum eða reglugerðum um húsaleigubætur hafa verið gerðar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Fyrirhugaðar breytingar hafa því verið sendar sambandinu til umsagnar. Þar hefur erindið verið kynnt fyrir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Um slíkt samráð segir til dæmis í 2. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, að félagsmálaráðherra taki að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélag ákvörðun um breytingar á grunnfjárhæðum bóta. Sambærilegt ákvæði var í eldri reglugerðum.
Með vísan til framanritaðs er ljóst að haft hefur verið samráð við fulltrúa sveitarfélaga um breytingar á lögum um húsaleigubætur sem leitt hafa til hækkun útgjalda.
4. Hvernig hefði kostnaðarskiptingin orðið milli sveitarfélaga og ríkisins árlega sl. fimm ár ef hlutfall ríkisins í útgjöldunum hefði verið 60% en sveitarfélaganna 40%?
Hvað kostnaðarskiptingu milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga síðastliðin fimm ár varðar ef hlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í útgjöldum hefði verið 60% en sveitarfélaganna 40% er vísað til eftirfarandi töflu.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 306 — 172. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um húsaleigubætur.
1. Hver hafa árleg heildarútgjöld sveitarfélaga vegna húsaleigubóta verið árin 1998– 2004? Óskað er eftir sundurliðun á árlegum útgjöldum stærstu sveitarfélaganna.
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflum.
Heildargreiðslur sveitarfélaga á húsaleigubótum 1998–2004,
á verðlagi hvers árs.
| 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004* |
| 418.620.723 | 529.587.002 | 595.971.854 | 705.943.406 | 931.983.856 | 1.240.456.944 | 1.439.500.737 |
| * Á árinu 2004 er um rauntölur að ræða fyrir I. og II. ársfjórðung og áætlun fyrir III. og IV. ársfjórðung | ||||||
Greiðslur sveitarfélaga með fleiri en 2000 íbúa á húsaleigubótum 1998–2004,
á verðlagi hvers árs.
| Sveitarfélag | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004* |
| Reykjavíkurborg | 263.789.164 |
298.248.414 |
299.184.229 |
341.553.371 |
445.773.850 |
594.682.761 |
705.535.233 |
| Kópavogsbær | 18.599.697 | 37.083.785 | 39.057.824 | 44.405.958 | 57.858.460 | 75.551.247 | 84.265.436 |
| Seltjarnarneskaupstaður | 5.047.054 |
4.618.915 |
4.749.424 |
5.875.721 |
7.066.143 |
8.514.396 |
8.233.467 |
| Garðabær | 5.280.557 | 3.708.084 | 4.273.066 | 4.394.908 | 7.112.680 | 11.472.268 | 14.204.172 |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | 22.958.671 |
26.378.173 |
32.143.416 |
40.706.774 |
52.519.844 |
69.544.680 |
77.503.167 |
| Mosfellsbær | 4.073.582 | 6.222.171 | 7.093.414 | 8.075.415 | 10.389.372 | 13.950.812 | 15.575.322 |
| Reykjanesbær | 13.632.844 | 18.279.836 | 19.017.121 | 22.718.341 | 36.830.235 | 53.835.206 | 62.114.359 |
| Grindavíkurbær | 1.045.834 |
1.675.788 |
2.369.755 |
3.674.591 |
7.407.632 |
9.627.773 |
9.896.488 |
| Akraneskaupstaður | 6.798.595 |
7.615.063 |
8.049.718 |
9.269.424 |
13.289.094 |
18.303.483 |
20.364.463 |
| Borgarbyggð | 1.250.404 | 3.053.190 | 4.795.052 | 8.004.900 | 13.381.235 | 18.877.680 | 19.506.326 |
| Ísafjarðarbær | 3.637.454 | 6.847.180 | 10.292.418 | 14.720.496 | 19.321.204 | 24.826.562 | 27.443.240 |
| Sveitarfélagið Skagafjörður | 4.753.729 |
6.028.716 |
7.192.105 |
9.569.623 |
13.248.186 |
16.770.996 |
20.478.123 |
| Akureyrarkaupstaður | 18.722.116 |
22.380.301 |
44.671.944 |
52.828.541 |
68.133.691 |
86.495.358 |
100.146.159 |
| Húsavíkurbær | 1.194.844 | 3.152.549 | 7.509.483 | 9.795.591 | 13.532.042 | 18.486.805 | 25.645.487 |
| Dalvíkurbyggð | 4.202.484 |
5.538.000 |
7.749.758 |
8.526.835 |
9.467.272 |
12.086.969 |
12.481.840 |
| Fjarðabyggð | 1.075.605 | 4.902.517 | 5.556.329 | 7.432.461 | 10.166.181 | 11.407.656 | 13.634.326 |
| Austur-Hérað | 4.198.943 | 5.582.669 | 5.265.893 | 6.055.997 | 8.403.735 | 11.377.016 | 13.820.633 |
| Sveitarfélagið Hornafjörður | 2.700.010 |
3.440.180 |
5.566.533 |
7.695.342 |
8.830.103 |
10.249.607 |
11.014.643 |
| Vestmannaeyjabær | 2.899.513 |
6.447.721 |
11.019.943 |
11.582.188 |
14.599.756 |
16.273.347 |
16.995.280 |
| Sveitarfélagið Árborg | 4.374.554 |
11.526.271 |
12.809.888 |
13.099.561 |
18.921.398 |
24.241.137 |
26.197.929 |
| * Á árinu 2004 er um rauntölur að ræða fyrir I. og II. ársfjórðung og áætlun fyrir III. og IV. ársfjórðung | |||||||
2. Hvernig hefur kostnaðarskipting vegna húsaleigubóta verið milli sveitarfélaga og ríkisins árlega á sama tímabili, bæði hlutfallslega og í krónum? Hefur framkvæmdin verið í samræmi við lög og reglur og samninga milli ríkis og sveitarfélaga um kostnaðarskiptingu?
Framlag frá ríki í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum var skilgreint sérstaklega á fjárlögum allt til ársins 2002. Kveðið var á um hlutfallslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði í lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, er tóku gildi í janúar 1998 og í 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 37/1998, og síðar nr. 4/1999. Á grundvelli 3. mgr. 9. gr. reglugerðanna var kveðið á um að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skyldi sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga færu fram úr áætlunum þeirra. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga skyldi síðan fara fram í janúar ár hvert á grundvelli framlagsins frá ríkinu.
Á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá því í desember 2002 var gerð breyting á framsetningu á tekjum Jöfnunarsjóðs úr ríkissjóði frá 1. janúar 2003, sbr. breytingu á lögum um tekjustofna, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Með breytingunni nemur ráðstöfunarfé Jöfnunarsjóðs til greiðslu á framlögum til sveitarfélaga vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum nú allt að 11,5% af tekjum sjóðsins skv. a-lið 8. gr. sömu laga.
Á grundvelli 2. mgr. 2. gr. reglugerðar um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003, er ráðgjafarnefnd sjóðsins ætlað í upphafi hvers fjárhagsárs að gera tillögu til félagsmálaráðherra um áætlað greiðsluhlutfall sjóðsins til sveitarfélaga á árinu vegna greiðslu þeirra á húsaleigubótum. Til grundvallar að tillögu ráðgjafarnefndar eru lagðar áætlanir sveitarfélaga um heildargreiðslur húsaleigubóta á árinu og fjármagn það sem til ráðstöfunar er, sbr. e-lið 11. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
Ákvæðinu um að halda eftir 5% af hverri ársfjórðungslegri greiðslu, nú sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 122/2003, hefur verið beitt frá árinu 1998. Geymsluféð var greitt út til sveitarfélaganna við endanlegt uppgjör vegna áranna 1998–2000. Árin 2001–2003 fóru greiðslur sveitarfélaga á húsaleigubótum fram úr áætlunum þeirra og því varð að halda geymslufénu eftir til að brúa það bil. Hvað árið 2004 varðar eru líkur á að unnt verði að greiða geymsluféð út að einhverju leyti í janúar 2005 þegar uppgjör vegna ársins 2004 fer fram.
Hvað kostnaðarskiptingu milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga vegna greiðslu á húsaleigubótum árin 1998–2004 varðar er vísað til eftirfarandi töflu.
Kostnaðarskipting milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga
vegna húsaleigubóta 1998–2004, á verðlagi hvers árs.
|
Ár |
Heildar húsaleigubætur |
Hlutur Jöfnunarsjóðs |
Hlutur sveitarfélaga |
Hlutfall Jöfnunarsjóðs |
Hlutfall sveitarfélaga |
Skýringar. Greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs. |
| 1998 | 418.620.723 | 209.310.362 | 209.310.361 | 50,0% | 50,0% | Reglugerð nr. 37/1998. Greiðsluhlutfall 50%. Geymslufé greitt. |
| 1999 | 529.587.002 | 291.272.851 | 238.314.151 | 55,0% | 45,0% | Reglugerð nr. 4/1999. Greiðsluhlutfall 55%. Geymslufé greitt. |
| 2000 | 595.971.854 | 345.663.675 | 250.308.179 | 58,0% | 42,0% | Breyting nr. 9/2000 á rgl. nr. 4/1999. Greiðsluhlutf. 58%. Geymslufé greitt. |
| 2001 | 705.943.406 | 388.974.816 | 316.968.590 | 55,1% | 44,9% | Reglugerð nr. 4/1999 m.s.breyt. Greiðsluhlutfall 58%. Geymslufé haldið eftir. |
| 2002 | 931.983.856 | 513.523.104 | 418.460.752 | 55,1% | 44,9% | Reglugerð nr. 4/1999 m.s.breyt. Greiðsluhlutfall 58%. Geymslufé haldið eftir. |
| 2003 | 1.240.456.944 | 542.079.684 | 698.377.260 | 43,7% | 56,3% | Reglugerð nr. 122/2003. Greiðsluhlutfall 46%. Geymslufé haldið eftir. |
| 2004* | 1.439.500.737 | 575.800.295 | 863.700.442 | 40,0% | 60,0% | Reglugerð nr. 122/2003. Áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs. |
| * Á árinu 2004 er um rauntölur að ræða fyrir I. og II. ársfjórðung og áætlun fyrir III. og IV. ársfjórðung. | ||||||
Ákvæði í lögum og reglugerðum samkvæmt samningum um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga á tímabilinu 1998–2004 hafa verið eftirfarandi:
Lög um húsaleigubætur, nr. 138/1997, er tóku gildi 1. janúar 1998.
3. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, hljóðaði svo:
„Ríkissjóður greiðir árlega 280 millj. kr. í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem renna til sveitarfélaga vegna greiðslna húsaleigubóta. Fjárhæð þessi miðast við verðlag í janúar 1998 og breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs.“
Með lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, var þannig lögfest samkomulag ríkis og sveitarfélaga að ríkissjóður skyldi árlega greiða 280 millj. kr. í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem renna skyldu til greiðslu húsaleigubóta.
Reglugerð um húsaleigubætur, nr. 37/1998 (brottfallin).
Í 2. mgr. 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 37/1998, sagði að sveitarfélög skyldu leggja út fé til greiðslu húsaleigubóta en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga reiknaði þeim ársfjórðungslega 50% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu, sbr. þó 3. mgr.
Í 3. mgr. kom síðan fram að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 7. gr., skyldi sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu, sbr. 2. mgr. til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga færu fram úr áætlun þeirra. Endanlegt uppgjör Jöfnunarsjóðs á greiðslum til sveitarfélaga skyldi síðan fara fram í janúar ár hvert á grundvelli framlags ríkisins skv. 3. gr. laga um húsaleigubætur.
Reglugerð um húsaleigubætur, nr. 4/1999 (brottfallin).
Reglugerðin hækkaði endurgreiðsluhlutfall skv. 2. mgr. 9. gr. þannig að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skyldi reikna sveitarfélögum ársfjórðungslega 55% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu.
Reglugerð nr. 9/2000 er breytti 2. mgr. 9. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 4/1999.
Reglugerð nr. 9/2000 hækkaði endurgreiðsluhlutfall 2. mgr. 9. gr. þannig að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skyldi reikna sveitarfélögum ársfjórðungslega 58% af grunnfjárhæð greiddra bóta til greiðslu.
Breyting á lögum nr. 168/2002 á lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997.
Í árslok 2002 áttu fulltrúar ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga í viðræðum um breytingar á fjárhagslegum samskiptum aðilanna. Þar voru til umfjöllunar málefni sem tiltekin voru í yfirlýsingu félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga, m.a. varðandi húsaleigubótakerfið. Með lögum nr. 168/2002 var 3. gr. laga um húsaleigubætur felld brott og var sú breyting í samræmi við efni viðræðna ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Samhliða brottfalli 3. gr. laga um húsaleigubætur var gerð breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, þar sem framlag úr ríkissjóði skv. a-lið 8. gr. þeirra laga var hækkað. Eftir setningu laga nr. 167/2002, um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, urðu tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs. En skv. e-lið 11. gr. er allt að 11,5% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. til ráðstöfunar til sveitarfélaga vegna húsaleigubóta.
Reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003.
Í 2. gr. kemur fram að heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta geta numið allt að 11,5% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, sbr. e-lið 11. gr. sömu laga.
Í 3. gr. reglugerðarinnar kemur fram að við hverja ársfjórðungslega greiðslu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skal sjóðurinn halda eftir 5% af útreiknaðri greiðslu til að mæta því ef heildargreiðslur sveitarfélaga fara fram úr áætlunum þeirra eða heildarfjármagn reynist minna en áætlað var í upphafi árs.
Samantekt.
Við endurgreiðslu húsaleigubóta til sveitarfélaga hefur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fylgt fyrrnefndum ákvæðum laga og reglugerða um húsaleigubætur og fyrirliggjandi samningum um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Auk þess sem Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur gætt þess að vera innan þess fjárhagsramma sem sjóðnum hefur verið settur.
3. Hefur verið haft samráð við sveitarfélögin um breytingar á lögum um húsaleigubætur sem leitt hafa til hærri útgjalda?
Samráðsnefnd um húsaleigubætur.
Starfandi er samráðsnefnd um húsaleigubætur en um hana segir í 10. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, að félagsmálaráðherra skipi til fjögurra ára í senn þriggja manna samráðsnefnd sem skuli fylgjast með framkvæmd laga um húsaleigubætur og reglugerðar um húsaleigubætur. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir tvo fulltrúa í nefndina og félagsmálaráðherra einn, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Hlutverk samráðsnefndar er að vera samráðsvettvangur ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um lög um húsaleigubætur og reglugerð um húsaleigubætur, og fylgjast með framkvæmd og þróun húsaleigubótakerfisins. Nefndin fjallar um tillögur um breytingar á lögum um húsaleigubætur og reglugerð um húsaleigubætur, metur kostnað slíkra breytinga og önnur áhrif. Einnig miðlar samráðsnefnd upplýsingum til sveitarfélaga. Samráðsnefndin hefur hist reglulega frá árinu 1998.
Beint samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Allar breytingar á lögum eða reglugerðum um húsaleigubætur hafa verið gerðar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Fyrirhugaðar breytingar hafa því verið sendar sambandinu til umsagnar. Þar hefur erindið verið kynnt fyrir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Um slíkt samráð segir til dæmis í 2. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, að félagsmálaráðherra taki að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélag ákvörðun um breytingar á grunnfjárhæðum bóta. Sambærilegt ákvæði var í eldri reglugerðum.
Með vísan til framanritaðs er ljóst að haft hefur verið samráð við fulltrúa sveitarfélaga um breytingar á lögum um húsaleigubætur sem leitt hafa til hækkun útgjalda.
4. Hvernig hefði kostnaðarskiptingin orðið milli sveitarfélaga og ríkisins árlega sl. fimm ár ef hlutfall ríkisins í útgjöldunum hefði verið 60% en sveitarfélaganna 40%?
Hvað kostnaðarskiptingu milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga síðastliðin fimm ár varðar ef hlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í útgjöldum hefði verið 60% en sveitarfélaganna 40% er vísað til eftirfarandi töflu.
Kostnaðarskipting milli Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sveitarfélaga vegna húsaleigubóta ef hlutfall Jöfnunarsjóðs í útgjöldunum hefði verið 60%
en sveitarfélaganna 40%.
| Ár | Heildargreiðslur húsaleigubóta | Hlutur Jöfnunarsjóðs, 60% | Hlutur sveitarfélaga, 40% |
| 1999 | 529.587.002 | 317.752.201 | 211.834.801 |
| 2000 | 595.971.854 | 357.583.112 | 238.388.742 |
| 2001 | 705.943.406 | 423.566.044 | 282.377.362 |
| 2002 | 931.983.856 | 559.190.314 | 372.793.542 |
| 2003 | 1.240.456.944 | 744.274.166 | 496.182.778 |