Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 285. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 308 — 285. mál.
til sjávarútvegsráðherra um meðferð aflaheimilda.
1. Eru brögð að því að Fiskistofa færi aflaheimildir milli óskyldra aðila án þess að löglegur og númeraður reikningur fylgi varðandi þau viðskipti sem um ræðir hverju sinni? Í hvaða mæli er það gert?
2. Hvers konar verðmyndun liggur á bak við slík viðskipti milli óskyldra aðila?
3. Er heimilt samkvæmt gildandi bókhalds- og skattalögum að óskyldir aðilar ákvarði verð á aflaheimildum í sumum tilfellum?
4. Sé um að ræða færslur aflaheimilda milli óskyldra aðila án verðlagningar, samrýmast þá slík viðskipti gildandi bókhalds- og skattalögum?
Skriflegt svar óskast.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 308 — 285. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um meðferð aflaheimilda.
Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.