Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 286. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 309 — 286. mál.
um háhraðanettengingar í dreifbýli og á smærri þéttbýlisstöðum.
Einar Már Sigurðarson, Anna Kristín Gunnarsdóttir,
Össur Skarphéðinsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem tryggi að allir landsmenn eigi kost á háhraðanettengingu óháð búsetu. Til að ná þessu markmiði skal áskilja að Símanum beri að tryggja öllum landsmönnum slíka þjónustu. Málið verði afgreitt fyrir þinglok í vor.
Háhraðanettenging flokkast sem grunnþjónusta í nútímasamfélagi að mati flutningsmanna þessarar tillögu, rétt eins orkuveita og símaþjónusta. Í skriflegu svari við fyrirspurn á síðasta löggjafarþingi til samgönguráðherra um háhraðatengingar kemur fram að yfir 22.000 Íslendingar hafa ekki slíka tengingu (sjá fylgiskjal). Síminn metur það svo að ekki sé arðvænlegt að leggja ADSL-tengingar í byggðarlögum þar sem íbúar eru færri en 150. Þarna ráða gróðasjónarmiðin för en inntak þessarar tillögu er hins vegar að það sé skylda samfélagsins að tryggja öllum Íslendingum háhraðanettengingu óháð búsetu. Án þess er ekki um að ræða jafnstöðu við aðra um þátttöku í nútímasamfélagi. Því eiga stjórnvöld að skylda Símann til að veita, eða hafa milligöngu um að veita, slíka þjónustu.
Á meðan svo háttar til að mikill fjöldi Íslendinga býr ekki við háhraðatengingar og góðan aðgang að upplýsingahraðbrautinni eru heimabyggðir þeirra ósamkeppnishæfar þegar kemur að vali fólks og fyrirtækja til búsetu. Byggðirnar eru annars flokks í þessu tilliti og íbúum þeirra er mismunað af hálfu samfélagsins.
Þjóðin á Símann sem er eitt öflugasta fyrirtæki landsins. Hann á að sjálfsögðu að beita afli sínu og þrótti til að tryggja öllum landsmönnum möguleika á háhraðanettengingu í stað þess t.d. að fara með fjármuni sína í vafasamar áhættufjárfestingar í fjölmiðlarekstri, svo að dæmi sé tekið.
Sprottið hafa upp nokkur öflug fyrirtæki sem veita háhraðatengingar í dreifbýli í gegnum örbylgju. Þau hafa veitt þessa þjónustu í mörgum byggðarlögum, m.a. Grímsnesi, uppsveitum Árnessýslu að hluta og víðar, og gefst íbúum þar þá í raun og veru í fyrsta sinn kostur á að kaupa sér ágæta háhraðatengingu. Þó að það jafnist ekki á við ADSL-tenginguna og þá sítengingu sem hún býður upp á er þetta samt, má segja, að einhverju leyti „á pari“ við það. Þjónustu þessara fyrirtækja á að nýta við að tryggja öllum heimilum landsins möguleika á háhraðanettengingu enda mikil þekking og færni til hjá þessum fyrirtækjum.
Kostur á háhraðanettengingu snýst að miklu leyti um sanngirni. Með því er verið að veita íbúum dreifbýlisins og smærri þéttbýlisstaða jafnstöðu, jöfn tækifæri á við aðra íbúa Íslands til að nýta sér þá ótal möguleika sem samskiptabyltingin hefur fært okkur nútímamönnum til menntunar, jöfn tækifæri til að afla upplýsinga, skapa atvinnutækifæri og eiginlega vinna við hvað sem er, að heiman að hluta. Fjarvinnsla, fjarnám og aðrir slíkir möguleikar nýtast ekki þeim sem ekki hafa öfluga nettengingu.
Þá er það stór þáttur í menntun, uppeldi og þátttöku barna og unglinga í nútímasamfélagi að hafa fyrsta flokks tengingu við netið til að þau megi nýta það til góðra hluta sér til afþreyingar, upplýsingaöflunar og sjálfsmenntunar hvers konar. Internetið býður upp á ótal leiðir til símenntunar með býsna einföldum hætti. Í þessari byltingu og þróun þurfa allir landsmenn að geta tekið þátt. Því er brýnt að stjórnvöld hafi forustu um að tryggja að allir eigi þess kost að hafa háhraðanettengingu, óháð búsetu.
Fylgiskjal.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða sveitarfélög á landinu hafa háhraðatengingar og hver ekki?
2. Hver er íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa háhraðatengingar, sundurgreint eftir sveitarfélögum?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi listum.
Sveitarfélög og byggðarkjarnar sem hafa möguleika til ADSL-tenginga.
Sveitarfélög (byggðarkjarnar) sem hafa möguleika til háhraðatenginga með örbylgju og ekki hafa verið talin áður.
Mannfjöldi eftir byggðarkjörnum, 2003.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 309 — 286. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um háhraðanettengingar í dreifbýli og á smærri þéttbýlisstöðum.
Flm.: Björgvin G. Sigurðsson, Kristján L. Möller, Jón Gunnarsson,
Einar Már Sigurðarson, Anna Kristín Gunnarsdóttir,
Össur Skarphéðinsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem tryggi að allir landsmenn eigi kost á háhraðanettengingu óháð búsetu. Til að ná þessu markmiði skal áskilja að Símanum beri að tryggja öllum landsmönnum slíka þjónustu. Málið verði afgreitt fyrir þinglok í vor.
Greinargerð.
Háhraðanettenging flokkast sem grunnþjónusta í nútímasamfélagi að mati flutningsmanna þessarar tillögu, rétt eins orkuveita og símaþjónusta. Í skriflegu svari við fyrirspurn á síðasta löggjafarþingi til samgönguráðherra um háhraðatengingar kemur fram að yfir 22.000 Íslendingar hafa ekki slíka tengingu (sjá fylgiskjal). Síminn metur það svo að ekki sé arðvænlegt að leggja ADSL-tengingar í byggðarlögum þar sem íbúar eru færri en 150. Þarna ráða gróðasjónarmiðin för en inntak þessarar tillögu er hins vegar að það sé skylda samfélagsins að tryggja öllum Íslendingum háhraðanettengingu óháð búsetu. Án þess er ekki um að ræða jafnstöðu við aðra um þátttöku í nútímasamfélagi. Því eiga stjórnvöld að skylda Símann til að veita, eða hafa milligöngu um að veita, slíka þjónustu.
Á meðan svo háttar til að mikill fjöldi Íslendinga býr ekki við háhraðatengingar og góðan aðgang að upplýsingahraðbrautinni eru heimabyggðir þeirra ósamkeppnishæfar þegar kemur að vali fólks og fyrirtækja til búsetu. Byggðirnar eru annars flokks í þessu tilliti og íbúum þeirra er mismunað af hálfu samfélagsins.
Þjóðin á Símann sem er eitt öflugasta fyrirtæki landsins. Hann á að sjálfsögðu að beita afli sínu og þrótti til að tryggja öllum landsmönnum möguleika á háhraðanettengingu í stað þess t.d. að fara með fjármuni sína í vafasamar áhættufjárfestingar í fjölmiðlarekstri, svo að dæmi sé tekið.
Sprottið hafa upp nokkur öflug fyrirtæki sem veita háhraðatengingar í dreifbýli í gegnum örbylgju. Þau hafa veitt þessa þjónustu í mörgum byggðarlögum, m.a. Grímsnesi, uppsveitum Árnessýslu að hluta og víðar, og gefst íbúum þar þá í raun og veru í fyrsta sinn kostur á að kaupa sér ágæta háhraðatengingu. Þó að það jafnist ekki á við ADSL-tenginguna og þá sítengingu sem hún býður upp á er þetta samt, má segja, að einhverju leyti „á pari“ við það. Þjónustu þessara fyrirtækja á að nýta við að tryggja öllum heimilum landsins möguleika á háhraðanettengingu enda mikil þekking og færni til hjá þessum fyrirtækjum.
Kostur á háhraðanettengingu snýst að miklu leyti um sanngirni. Með því er verið að veita íbúum dreifbýlisins og smærri þéttbýlisstaða jafnstöðu, jöfn tækifæri á við aðra íbúa Íslands til að nýta sér þá ótal möguleika sem samskiptabyltingin hefur fært okkur nútímamönnum til menntunar, jöfn tækifæri til að afla upplýsinga, skapa atvinnutækifæri og eiginlega vinna við hvað sem er, að heiman að hluta. Fjarvinnsla, fjarnám og aðrir slíkir möguleikar nýtast ekki þeim sem ekki hafa öfluga nettengingu.
Þá er það stór þáttur í menntun, uppeldi og þátttöku barna og unglinga í nútímasamfélagi að hafa fyrsta flokks tengingu við netið til að þau megi nýta það til góðra hluta sér til afþreyingar, upplýsingaöflunar og sjálfsmenntunar hvers konar. Internetið býður upp á ótal leiðir til símenntunar með býsna einföldum hætti. Í þessari byltingu og þróun þurfa allir landsmenn að geta tekið þátt. Því er brýnt að stjórnvöld hafi forustu um að tryggja að allir eigi þess kost að hafa háhraðanettengingu, óháð búsetu.
Fylgiskjal.
Svar samgönguráðherra við fyrirspurn
Björgvins G. Sigurðssonar um háhraðatengingar.
(592. mál á 130. löggjafarþingi.)
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða sveitarfélög á landinu hafa háhraðatengingar og hver ekki?
2. Hver er íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa háhraðatengingar, sundurgreint eftir sveitarfélögum?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi listum.
Sveitarfélög og byggðarkjarnar sem hafa möguleika til ADSL-tenginga.
| Akranes | Akureyri | Bessastaðahreppur | Blönduós |
| Bolungarvík | Borgarnes | Dalvík | Egilsstaðir |
| Eskifjörður | Eyrarbakki | Fáskrúðsfjörður | Garðabær |
| Garður | Grindavík | Grundarfjörður | Hafnarfjörður |
| Hella | Hellissandur | Húsavík | Hvammstangi |
| Hveragerði | Hvolsvöllur | Höfn | Ísafjörður |
| Keflavík | Kópavogur | Mosfellsbær | Neskaupstaður |
| Njarðvík, Innri og Ytri | Ólafsfjörður | Ólafsvík | Patreksfjörður |
| Reyðarfjörður | Reykjavík | Rif | Sandgerði |
| Sauðárkrókur | Selfoss | Seltjarnarnes | Seyðisfjörður |
| Siglufjörður | Skagaströnd | Stykkishólmur | Tálknafjörður |
| Vestmannaeyjar | Vogar | Vopnafjörður | Þorlákshöfn |
Sveitarfélög (byggðarkjarnar) sem hafa möguleika til háhraðatenginga með örbylgju og ekki hafa verið talin áður.
| Bifröst | Borðeyri | Drangsnes | Flateyri |
| Grímsnes- og Grafningshreppur | Hnífsdalur | Hólmavík | Hvanneyri |
| Stokkseyri | Suðureyri | Vík í Mýrdal (1.4.04) | Þingeyri |
| Hjalteyri | Kristnes | Hrafnagil |
Mannfjöldi eftir byggðarkjörnum, 2003.
| ADSL | Alls | Alls | Byggðarlög án háhraðatenginga | ||
| * | Hafnarfjörður | 21.207 | |||
| * | Garðabær | 8.878 | |||
| * | Álftanes, Bessastaðahreppi | 1.886 | |||
| * | Kópavogur | 25.352 | |||
| * | Reykjavík | 112.490 | |||
| * | Seltjarnarnes | 4.577 | |||
| * | Mosfellsbær, meginbyggð | 6.376 | |||
| * | Mosfellsbær, Mosfellsdalur | 213 | |||
| * | Grundarhverfi, Reykjavík | 507 | |||
| Strjálbýli á höfuðborgarsvæði | 431 | ADSL/örbylgja | |||
| * | Grindavík | 2.434 | |||
| Hafnir, Reykjanesbæ | 120 | 120 | |||
| * | Sandgerði | 1.389 | |||
| * | Garður, Gerðahreppi | 1.290 | |||
| * | Keflavík, Reykjanesbæ | 7.963 | |||
| * | Njarðvík, Reykjanesbæ | 2.825 | |||
| * | Vogar, Vatnsleysustrandarhreppi | 833 | |||
| Strjálbýli á Suðurnesjum | 99 | 99 | ? | ||
| * | Akranes | 5.588 | |||
| *** | Hvanneyri, Borgarfjarðarsveit | 193 | e-max | ||
| Kleppjárnsreykir, Borgarfjarðarsveit | 45 | 45 | |||
| Reykholt, Borgarfjarðarsveit | 33 | 33 | |||
| * | Borgarnes, Borgarbyggð | 1.770 | |||
| *** | Bifröst, Borgarbyggð | 210 | e-max | ||
| * | Hellissandur, Snæfellsbæ | 412 | |||
| * | Rif, Snæfellsbæ | 144 | |||
| * | Ólafsvík, Snæfellsbæ | 1.025 | |||
| * | Grundarfjörður, Grundarfjarðarbæ | 843 | |||
| * | Stykkishólmur | 1.162 | |||
| Búðardalur, Dalabyggð | 246 | 246 | |||
| Strjálbýli á Vesturlandi | 2.767 | 2.767 | ? | ||
| Reykhólar, Reykhólahreppi | 121 | 121 | |||
| * | Patreksfjörður, Vesturbyggð | 701 | |||
| * | Tálknafjörður, Tálknafjarðarhreppi | 327 | |||
| Bíldudalur, Vesturbyggð | 233 | 233 | |||
| Krossholt, Vesturbyggð | 14 | 14 | |||
| *** | Þingeyri, Ísafjarðarbæ | 330 | Snerpa | ||
| *** | Flateyri, Ísafjarðarbæ | 307 | Snerpa | ||
| *** | Suðureyri, Ísafjarðarbæ | 331 | Snerpa | ||
| * | Bolungarvík | 944 | Snerpa | ||
| * | Ísafjörður | 2.596 | |||
| *** | Hnífsdalur | 419 | Snerpa | ||
| Súðavík, Súðavíkurhreppi | 191 | 191 | |||
| *** | Drangsnes, Kaldrananeshreppi | 88 | Snerpa | ||
| *** | Hólmavík, Hólmavíkurhreppi | 398 | Snerpa | ||
| *** | Borðeyri, Bæjarhreppi | 23 | e-max | ||
| Strjálbýli á Vestfjörðum | 814 | 814 | |||
| Laugabakki, Húnaþingi vestra | 82 | 82 | |||
| * | Hvammstangi, Húnaþingi vestra | 583 | |||
| * | Blönduós, Blönduóssbæ | 888 | |||
| * | Skagaströnd, Höfðahreppi | 582 | |||
| * | Sauðárkrókur, Sveitarfélaginu Skagafirði | 2.620 | |||
| Varmahlíð, Sveitarfélaginu Skagafirði | 133 | 133 | |||
| Hólar, Sveitarfélaginu Skagafirði | 92 | 92 | |||
| Hofsós, Sveitarfélaginu Skagafirði | 180 | 180 | |||
| * | Siglufjörður | 1.434 | |||
| Strjálbýli á Norðurlandi vestra | 2.551 | 2.551 | |||
| Grímsey, Grímseyjarhreppi | 93 | 93 | |||
| * | Ólafsfjörður, Ólafsfjarðarbæ | 994 | |||
| * | Dalvík, Dalvíkurbyggð | 1.461 | |||
| ** | Hrísey, Hríseyjarhreppi | 180 | Svar | ||
| Litli-Árskógssandur, Dalvíkurbyggð | 132 | 132 | |||
| Hauganes, Dalvíkurbyggð | 158 | 158 | |||
| *** | Hjalteyri, Arnarneshreppi | 45 | Tengir | ||
| * | Akureyri | 16.086 | |||
| *** | Kristnes, Eyjafjarðarsveit | 53 | Tengir | ||
| *** | Hrafnagil, Eyjafjarðarsveit | 136 | Tengir | ||
| Svalbarðseyri, Svalbarðsstrandarhreppi | 207 | 207 | |||
| Grenivík, Grýtubakkahreppi | 294 | 294 | |||
| Reykjahlíð, Skútustaðahreppi | 208 | ||||
| Laugar, Þingeyjarsveit | 94 | 94 | |||
| * | Húsavík, Húsavíkurbæ | 2.368 | |||
| Kópasker, Öxarfjarðarhreppi | 138 | 138 | |||
| ** | Raufarhöfn, Raufarhafnarhreppi | 252 | Svar | ||
| Þórshöfn, Þórshafnarhreppi | 370 | 370 | |||
| Strjálbýli á Norðurlandi eystra | 3.566 | 3.566 | |||
| Bakkafjörður, Skeggjastaðahreppi | 106 | 106 | |||
| * | Vopnafjörður, Vopnafjarðarhreppi | 569 | |||
| Fellabær, Fellahreppi | 373 | 373 | |||
| Borgarfjörður eystra, Borgarfjarðarhreppi | 97 | 97 | |||
| * | Seyðisfjörður | 730 | |||
| Hallormsstaður, Austur-Héraði | 59 | 59 | |||
| * | Egilsstaðir, Austur-Héraði | 1.721 | |||
| Eiðar, Austur-Héraði | 41 | 41 | |||
| * | Neskaupstaður, Fjarðabyggð | 1.400 | |||
| * | Eskifjörður, Fjarðabyggð | 972 | |||
| * | Reyðarfjörður, Fjarðabyggð | 671 | |||
| * | Fáskrúðsfjörður, Austurbyggð | 599 | |||
| Stöðvarfjörður, Austurbyggð | 262 | 262 | |||
| Breiðdalsvík, Breiðdalshreppi | 177 | 177 | |||
| Djúpivogur, Djúpavogshreppi | 385 | 385 | |||
| Nesjakauptún, Sveitarfélaginu Hornafirði | 85 | 85 | |||
| * | Höfn, Sveitarfélaginu Hornafirði | 1.740 | |||
| Strjálbýli á Austurlandi | 1.900 | 1.900 | |||
| Kirkjubæjarklaustur, Skaftárhreppi | 141 | 141 | |||
| *** | Vík í Mýrdal, Mýrdalshreppi | 296 | frá 1.4.04 | e-max | |
| * | Vestmannaeyjar | 4.344 | |||
| Skógar, Rangárþingi eystra | 26 | 26 | |||
| * | Hvolsvöllur, Rangárþingi eystra | 712 | |||
| * | Hella, Rangárþingi ytra | 635 | |||
| Rauðalækur, Rangárþingi ytra | 34 | 34 | |||
| *** | Stokkseyri, Sveitarfélaginu Árborg | 465 | e-max | ||
| * | Eyrarbakki, Sveitarfélaginu Árborg | 580 | |||
| * | Selfoss, Sveitarfélaginu Árborg | 5.068 | |||
| Flúðir, Hrunamannahreppi | 296 | 296 | |||
| Laugarás, Bláskógabyggð | 120 | 120 | |||
| Reykholt, Bláskógabyggð | 164 | 164 | |||
| Laugarvatn, Bláskógabyggð | 176 | 176 | |||
| *** | Sólheimar, Grímsnes- og Grafningshreppi | e-max | |||
| Árbæjarhverfi, Sveitarfélaginu Ölfusi | 58 | 58 | ? | ||
| * | Hveragerði | 1.902 | |||
| * | Þorlákshöfn, Sveitarfélaginu Ölfusi | 1.332 | |||
| Strjálbýli á Suðurlandi | 5.144 | 5.144 | ? | ||
| 290.505 | 22.417 | ||||
| * Með ADSL-möguleika. | |||||
| ** Með gervihnattasamband. | |||||
| *** Með örbylgjusamband. | |||||
| ? Óljós staðsetning, hugsanlega möguleikar til háhraðatenginga að hluta ADSL/örbylgja. Höfuðborgarsvæðið og nokkur önnur sveitarfélög eru einnig þjónustuð með örbylgju, t.d. Selfoss, Eyrarbakki og Bolungarvík, Borgarnes og Akureyri. | |||||
|
|
|||||