Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 294. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 317 — 294. mál.
um þjóðfána Íslendinga í þingsal Alþingis.
Alþingi ályktar að í þingsal Alþingis skuli vera þjóðfáni Íslendinga.
Við setningu Alþingis, 131. löggjafarþings, 1. október sl. vakti athygli alþingismanna hve vel hefur til tekist með lagfæringu, lýsingu og endurbætur á þingsal. Glæsilegt form og nálgun þess sem í upphafi var byggt er öllum þeim sem að komu til sóma.
En hvernig má það vera að innan veggja Alþingis, hvar rætt er um eflingu, vegsemd og gildi þingsins í íslensku þjóðlífi, skuli þjóðfáni vor ekki hafinn til vegs og virðingar?
„Fáninn er tákn fullveldis vors. Fáninn er ímynd þeirra hugsjóna sem þjóð vor á fegurstar. Hvert stórverk, sem unnið er af oss, eykur veg fánans, hvort sem það er unnið á höfunum, í baráttunni við brim og úfnar öldur eða á svæði framkvæmdanna eða í vísindum og fögrum listum. Því göfugri sem þjóð vor er því göfugri verður fáni vor. Vegur hans og frami er frægð þjóðar vorrar.“ (Úr ræðu Sigurðar Eggerz fjármálaráðherra sem gegndi störfum forsætisráðherra 1. desember 1918 þegar Ísland varð fullvalda ríki.)
Í tengslum við heimsóknir þjóðhöfðingja hingað til lands hafa birst fréttamyndir í sjónvarpi frá viðkomandi landi og þingi þar sem að öllu jöfnu er áberandi þjóðfáni landsins við forsæti eða ræðustól.
Með lögum nr. 67/1998, um breyting á lögum nr. 34 17. júní 1944, um þjóðfána Íslendinga, voru heimildir til að nýta þjóðfánann rýmkaðar. Var það m.a. gert til að aflétta ofverndun íslenska þjóðfánans og stuðla að því að gera hann sýnilegri.
Alla daga þá Alþingi starfar eru beinar útsendingar sjónvarps frá þingsal og verður ekki annað sagt en að mikil blæbrigði yrðu á sjónvarpsmynd og ásýnd önnur ef þjóðfáni Íslendinga væri sýnilegur við eða nærri forsetastól.
Flutningsmenn telja það mjög við hæfi að þjóðfáni Íslendinga skipi veglegan sess í þingsal Alþingis. Það yrði hinu háa Alþingi til sóma, sem og þjóðfána vorum til vegs og virðingar.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 317 — 294. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um þjóðfána Íslendinga í þingsal Alþingis.
Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Björgvin G. Sigurðsson,
Drífa Hjartardóttir, Guðjón Hjörleifsson, Gunnar Birgisson,
Jón Gunnarsson, Kjartan Ólafsson, Kristinn H. Gunnarsson,
Kristján L. Möller, Magnús Stefánsson, Mörður Árnason,
Pétur Bjarnason, Sigurður Kári Kristjánsson.
Alþingi ályktar að í þingsal Alþingis skuli vera þjóðfáni Íslendinga.
Greinargerð.