Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 301. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 329  —  301. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um konur í fangelsi.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur, Ágústi Ólafi Ágústssyni,
Bryndísi Hlöðversdóttur og Margréti Frímannsdóttur.


     1.      Hafa konur, sem dæmdar hafa verið til fangavistar, möguleika á afplánun annars staðar en í fangelsinu í Kópavogi, t.d. á Kvíabryggju? Ef ekki, hver er ástæðan?
     2.      Er eitthvað um að konur séu með börn sín með sér í fangelsi?
     3.      Hvaða sértæka þjónusta er til staðar fyrir börn sem dvelja í fangelsi með móður sinni?


Skriflegt svar óskast.


























Prentað upp.