Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 313. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 341  —  313. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um meðafla í flotvörpu.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hver er meðafli sem mælst hefur í afla kolmunna-, síldveiði- og loðnuskipa, greint eftir veiðitegundum uppsjávarafla og tegundum meðafla? Óskað er eftir að svör miðist við tímabilið frá síðustu áramótum svo langt sem gögn leyfa.
     2.      Hvernig skiptist þessi meðafli á milli veiðisvæða og tímabila?
     3.      Hversu mikið af meðaflanum hefur verið reiknað til aflamarks hjá viðkomandi skipum?
     4.      Hversu oft hefur komið til svæðalokana vegna meðafla uppsjávarveiðiskipa og þá hvar og hvenær?
     5.      Hve oft hefur Fiskistofa gert sérstaka athugun á þessum meðafla?
     6.      Hafa stjórnvöld gripið til annarra aðgerða til að reyna að draga úr meðaflanum?


Skriflegt svar óskast.