Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 132. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 399 — 132. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um gjaldskrá leikskóla.
1. Er ráðherra þeirrar skoðunar að giftir foreldrar og foreldrar í sambúð standi undir niðurgreiðslum til þeirra sem greiða lægri leikskólagjöld og um sé að ræða ólögmæta gjaldtöku?
Leikskólagjöld standa einungis undir hluta kostnaðar sveitarfélaga við rekstur leikskóla. Að öðru leyti er reksturinn fjármagnaður af útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélags og má því segja að allir foreldrar njóti niðurgreiðslu á leikskólagjöldum. Engin rök hníga að því að sveitarfélögum sé óheimilt að veita til dæmis einstæðum foreldrum og námsmönnum meiri afslátt samkvæmt gjaldskrá en öðrum foreldrum. Jafnframt er afar hæpið að fullyrða að slík niðurgreiðsla bitni á foreldrum annarra leikskólabarna, eða að hjón eða sambúðarfólk standi undir niðurgreiðslum til barna einstæðra foreldra, þótt niðurgreiðsla til annarra hópa sé minni en til þeirra sem mestrar niðurgreiðslu njóta, vegna félagslegra aðstæðna.
2. Er ráðherra sammála þeim sjónarmiðum að gjaldskráin verði leiðrétt og sama gjald verði fyrir öll börn, en niðurgreiðslan komi af skattfé?
Vekja má athygli á að í skýrslu forsætisráðuneytis um fátækt hér á landi, sem birt var vorið 2004, kemur fram að einstæðir foreldrar hafa umtalsvert lægri tekjur en hjón og sambúðarfólk. Má hér nefna að tekjur einstæðra foreldra árið 2002 voru meira en helmingi lægri en tekjur hjóna og sambúðarfólks í öllum tekjuflokkum. Einstæðir foreldrar hafa enn fremur lægri tekjur en einhleypir. Gera má ráð fyrir að sveitarfélögin bjóði börnum einstæðra foreldra leikskóladvöl gegn lægra gjaldi í ljósi þess að foreldrar þeirra hafa almennt minna fé til ráðstöfunar en börn hjóna og sambúðarfólks. Þarna er því leitast við að tryggja að öll börn eigi kost á að sækja leikskóla án tillits til hjúskaparstöðu foreldra. Erfitt er að koma auga á einfaldari leið í framkvæmd til að tryggja þetta miðað við rekstrarumhverfi leikskólanna.
Þó mætti hugsa sér að veita tekjulágum foreldrum afslátt á leikskólagjöld þannig að litið sé til tekna, ekki hjúskaparstöðu. Tekjulágum hjónum kann líkt og tekjulágum einstæðum foreldrum að reynast erfitt að greiða leikskólagjöld, ekki síst þegar fleiri en eitt barn er á leikskóla. Rétt er að benda á að mörg sveitarfélög veita systkinaafslátt.
3. Er sambærilegur mismunur hjá stærstu sveitarfélögum á gjaldskrá eftir tekju- eða hjúskaparstöðu? Ef svo er ekki, er óskað samanburðar á gjaldskrám stærstu sveitarfélaganna.
Tafla 1 sýnir gjald það sem greitt er fyrir mánaðardvöl barns á leikskóla. Miðað er við átta tíma á dag og er morgunverður, hádegisverður og síðdegishressing innifalin í gjaldinu. Upplýsinga var aflað frá sveitarfélögum með fimm þúsund íbúa og fleiri. Eins og sést er alls staðar munur á því gjaldi sem hjón og sambúðarfólk greiða annars vegar og því sem einstæðir foreldrar greiða. Í Reykjavík er munurinn mestur, þar greiða einstæðir 52% af því gjaldi sem hjón og sambúðarfólk greiðir. Í Reykjanesbæ er munurinn minnstur, þar greiða einstæðir foreldrar 81% af því gjaldi sem hjón greiða.
Tafla 1. Gjald fyrir mánaðardvöl barns á leikskóla.
4. Hversu mikil er niðurgreiðsla leikskólagjalda árlega, annars vegar fyrir þá sem njóta hennar og hins vegar miðað við útgjöld stærstu sveitarfélaganna?
Tafla 2 sýnir útgjöld til reksturs leikskóla umfram tekjur árin 2002 og 2003 ásamt hlutfalli þeirra af heildarútgjöldum sveitarfélaga, annars vegar á landinu öllu og hins vegar hjá sveitarfélögum með yfir fimm þúsund íbúa.
Tafla 2. Útgjöld til reksturs leikskóla að frádregnum tekjum.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 399 — 132. mál.
Svar

| Sveitarfélag | Einstæðir foreldrar | Námsmenn | Hjón/sambúð |
| Reykjavíkurborg | 14.400 kr. | 21.100 kr. | 27.900 kr. |
| Kópavogsbær | 19.264 kr. | 19.264 kr. | 27.488 kr. |
| Garðabær | 19.250 kr. | 19.250 kr. | 26.172 kr. |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | 16.384 kr. | 16.384 kr. | 25.032 kr. |
| Mosfellsbær | 17.680 kr. | 17.680 kr. | 26.800 kr. |
| Reykjanesbær | 21.800 kr. | 21.800 kr. | 27.000 kr. |
| Akraneskaupstaður | 17.009 kr. | 17.009 kr. | 22.553 kr. |
| Akureyrarkaupstaður | 16.107 kr. | 21.661 kr. | 27.215 kr. |
| Sveitarfélagið Árborg | 17.487 kr. | 17.487 kr. | 24.935 kr. |
4. Hversu mikil er niðurgreiðsla leikskólagjalda árlega, annars vegar fyrir þá sem njóta hennar og hins vegar miðað við útgjöld stærstu sveitarfélaganna?
Tafla 2 sýnir útgjöld til reksturs leikskóla umfram tekjur árin 2002 og 2003 ásamt hlutfalli þeirra af heildarútgjöldum sveitarfélaga, annars vegar á landinu öllu og hins vegar hjá sveitarfélögum með yfir fimm þúsund íbúa.
Tafla 2. Útgjöld til reksturs leikskóla að frádregnum tekjum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.