Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 276. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 427  —  276. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Bjarkeyjar Gunnarsdóttur um tilraunarekstur almenningssamgangna í Eyjafirði.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Telur ráðherra koma til greina að fela Byggðastofnun að gera tilraun með rekstur almenningssamgöngukerfis sem tengi saman Ólafsfjörð, Dalvík, Akureyri, Kristnes og Grenivík?

    Samkvæmt 2. gr. laga nr. 73/2001 fer samgönguráðuneytið með málefni almenningssamgangna. Af þessum sökum hefur ráðuneytið umsjón með ýmsum samgönguleiðum þar sem ekki er mögulegt út frá viðskiptalegum forsendum að halda uppi almenningssamgöngum. Má þar nefna flug til Bíldudals, Gjögurs og Grímseyjar. Jafnframt hefur ráðuneytið umsjón með ferjuleiðum, t.d. í Breiðafirði, Ísafjarðardjúpi og til Vestmannaeyja. Þá hefur það umsjón með nokkrum leiðum áætlunarbifreiða. Ekki munu þó vera dæmi um að samgönguráðuneytið hafi umsjón með almenningssamgöngum innan sveitarfélags. Við framkvæmd stuðningsaðgerða á þessu sviði er stuðst við reglur EES-samningsins. Í því felst m.a. að verkefni sem ná tiltekinni krónutölu þarf að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Á vegum samgönguráðuneytisins er starfandi nefnd sem falið var að móta stefnu um málefni almenningssamgangna hér á landi til næstu framtíðar. Nefndinni er ætlað að líta á almenningssamgöngur út frá heildarhagsmunum, þ.m.t. notendahagsmunum. Henni er ætlað að finna þau sérstöku vandamál sem nauðsynlegt er að leysa og koma með tillögur til úrbóta. Nefndinni er einnig ætlað koma með tillögu að heildarstefnumótun undir því meginmarkmiði að auka hagkvæmni og skilvirkni almenningssamgangna á landi.
    Af framangreindu er ljóst að Byggðastofnun kemur ekki til með að eiga þátt í rekstri almenningssamgangnakerfis þar sem slíkur rekstur er alfarið á ábyrgð samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar í umboði þess. Aðkoma Byggðastofnunar að slíku verkefni gæti hins vegar verið með almennum hætti.