Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 385. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 473  —  385. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um verðmæti og ráðstöfun losunarheimilda.

Frá Helga Hjörvar.



     1.      Sé miðað við verð losunarheimilda á hvert tonn af gróðurhúsalofttegundum (koltvísýringsígildi) í viðskiptum með þær heimildir í Evrópu undanfarið, hvert er þá áætlað markaðsverðmæti þeirra 417.000 tonna af koltvísýringi sem eftir eru af kvóta Íslands fyrir einstök verkefni samkvæmt yfirliti því sem ráðherra kynnti ríkisstjórn 16. nóvember sl.?
     2.      Hvert er áætlað markaðsvirði þeirra losunarheimilda sem ætlaðar eru stóriðju hér á landi og tilgreindar eru í sama minnisblaði, sundurliðað eftir fyrirtækjum?
     3.      Er gert ráð fyrir stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík í yfirliti ráðherra?
     4.      Hvernig verður staðið að ráðstöfun þeirra losunarheimilda sem eftir eru?