Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 85. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 480  —  85. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur, Ágústi Ólafi Ágústssyni,
Þuríði Backman og Guðrúnu Ögmundsdóttur.


    Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: 2. mgr. 10. gr. laganna orðast svo:
    Undanþegin gjaldinu eru börn innan 16 ára aldurs og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuárs. Einnig eru þeir undanþegnir gjaldinu sem hafa tekjuskattsstofn sem nemur fjárhæðum grunnlífeyris, tekjutryggingar og tekjutryggingarauka almannatrygginga árið 2004 eða lægri tekjum. Tekjuviðmiðun þessi skal breytast árlega í samræmi við þær breytingar sem verða á örorkulífeyri, tekjutryggingu og tekjutryggingarauka samkvæmt lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum. Skattstjóri skal fella gjald þetta niður af þeim elli- og örorkulífeyrisþegum, undir 70 ára aldri, sem dveljast á dvalar- og hjúkrunarheimilum.