Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 338. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 483  —  338. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Bryndísar Hlöðversdóttur, Margrétar Frímannsdóttur, Guðrúnar Ögmundsdóttur og Ágústs Ólafs Ágústssonar um afplánunaráætlun fanga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er gerð einstaklingsmiðuð afplánunaráætlun fyrir hvern fanga við upphaf refsivistar, um
     a.      þörf á meðferð,
     b.      áhættumat,
     c.      getu til náms og vinnu,
     d.      félagslegan eða sálfræðilegan stuðning?


    Ráðuneytið leitaði eftir upplýsingum frá fangelsismálastofnun vegna fyrirspurnarinnar og eru eftirfarandi upplýsingar byggðar á svörum hennar.
    a. Eins og málum er nú háttað er ekki gerð einstaklingsmiðuð afplánunaráætlun fyrir fanga við upphaf refsivistar. Fangelsismálastofnun hefur hins vegar frá 1998 tekið persónuskýrslu af öllum föngum við upphaf refsivistar þar sem þeir eru m.a. spurðir út í vímuefnavanda, þörf fyrir sálfræðiaðstoð eða annars konar aðstoð. Þá ber fangi oft fram sjálfur ósk um að fá að ljúka refsivist í vímuefnameðferð. Orðið er við þeirri beiðni að fengnu samþykki meðferðarheimilis og samkvæmt mati sálfræðings Fangelsismálastofnunar. Meðferðarúrræði skortir hins vegar fyrir þá fanga sem ekki eru hæfir vegna veikinda sinna til að vistast á almennum meðferðarheimilum eða fyrir þá sem neita innlögn en þyrftu á henni að halda að mati sérfræðinga. Eins og fram hefur komið í svari dómsmálaráðherra við annarri fyrirspurn á Alþingi um smíði nýs fangelsis er brýnt að við hönnun og skipulag þess verði hugað að sérhæfðri meðferðardeild fyrir fanga, þ.e. afeitrunardeild. Þannig mætti á markvissan hátt virkja fanga til að vinna bug á fíkn sinni á meðan á afplánuninni stendur.
    b. Ekki fer fram áhættumat við upphaf refsivistar. Áhættumat er tiltölulega ný aðferð sem hefur verið í þróun víða í erlendum fangelsum og reynst vel við meðferð á föngum. Sálfræðingar fangelsismálastofnunar hafa sérhæft sig við gerð áhættumats og eru því hæfir til að sinna því. Matið þjónar þó ekki tilgangi sínum sem skyldi við upphaf afplánunar, nema unnt sé að bregðast við niðurstöðum þess með hæfilegri meðferð. Sálfræðingar á vegum fangelsismálastofnunar hafa á hinn bóginn gert áhættumat á langtímaföngum sem eiga stutt eftir af afplánunartíma sínum og sækja um að laga sig að samfélaginu með því að komast í opnari vistun, svo sem á áfangaheimili Verndar eða Sólheimum í Grímsnesi.
    c. Eins og fram kemur í a-lið tekur starfsmaður fangelsismálastofnunar persónuskýrslu af fanga m.a. með tilliti til vinnugetu og námsvilja. Á grunni hennar er tekin ákvörðun um það í hvaða fangelsi fangi skuli vistast. Enn fremur er stuðst við hegðunarvottorð/starfsgetu frá varðstjóra fangelsis þar sem fangi mætir til afplánunar, í flestum tilvikum Hegningarhúsinu. Stofnunin vill að betur verði staðið að þessum málum. Að unnið verði markvissara með fanga í upphafi refsivistar, fyrst gegn vímuefnavanda ef hann er vandamál og síðan til að virkja fanga til að stunda vinnu eða nám á ábyrgan hátt í fangelsi. Á þann hátt væri stuðlað að því að fangi gæti frekar en ella síðar fengið tækifæri til að afplána refsingu sína í opnu fangelsi og verða þar með betur undir það búinn að fara út í lífið að nýju.
    d. Fangar fá almenna félags- og sálfræðiaðstoð í dag. Tveir sálfræðingar starfa í fangelsum landsins og fulltrúar fangelsismálastofnunar sinna eins og unnt er félagsaðstoð við fanga. Stofnunin hefur gert það að tillögu sinni að þessi þjónusta verði efld og henni breytt. Í því skyni er nauðsynlegt að bæta einu stöðugildi félagsráðgjafa við hjá fangelsismálastofnun en hann mundi sinna betur en nú er gert félagslegum þáttum fanga svo og taka að sér hluta af starfi sem sálfræðingar sinna í dag. Sálfræðingar hefðu þá svigrúm til að vinna meira að sérhæfðu meðferðarstarfi, m.a. að hópmeðferðarúrræðum fyrir ofbeldis- og kynferðisbrotamenn eða við annars konar sálfræðistuðning.
    Að öðru leyti er vísað til greinargerðar með 17. gr. frumvarps um fullnustu refsinga.