Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 301. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 484 — 301. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur, Ágústs Ólafs Ágústssonar, Bryndísar Hlöðversdóttur og Margrétar Frímannsdóttur um konur í fangelsi.
1. Hafa konur, sem dæmdar hafa verið til fangavistar, möguleika á afplánun annars staðar en í fangelsinu í Kópavogi, t.d. á Kvíabryggju? Ef ekki, hver er ástæðan?
Konur í fangelsum njóta eins og málum er nú háttað ekki sömu fjölbreytni í vistun og karlar þar sem konur eru einvörðungu vistaðar í fangelsinu í Kópavogi. Konur eru miklu færri í hópi fanga en karlar, en á síðasta ári voru konur 4,5% af heildarfangafjölda landsins. Í fangelsinu í Kópavogi eru 11–12 fangarými og á síðasta ári var rúmlega helmingur fanga þar karlar. Rétt er að taka það fram að konur eiga sömu kosti við vistun utan fangelsa og karlmenn, þ.e. hjá Vernd, í Byrginu, Hlaðgerðarkoti, SÁÁ og á Sólheimum.
Að undanförnu hefur verið unnið að markmiðssetningu á sviði fangelsismála og hugmyndum að framtíðaruppbyggingu fangelsanna í tengslum við fyrirhugaða byggingu nýs fangelsis, svo og í tengslum við endurskoðun á frumvarpi til laga um fullnustu refsinga sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Í því sambandi er m.a. verið að skoða hvort unnt verði að bjóða vistun á Kvíabryggju fyrir konur með stækkun þar.
2. Er eitthvað um að konur séu með börn sín með sér í fangelsi?
Þess eru dæmi að konur séu með börn sín í fangelsum, sbr. heimild í lögum um fangelsi og fangavist. Í öllum tilvikum er um ungbörn að ræða.
3. Hvaða sértæka þjónusta er til staðar fyrir börn sem dvelja í fangelsi með móður sinni?
Sé ungbarn vistað í fangelsi er það ávallt gert að höfðu samráði við barnaverndaryfirvöld. Heimild til að hafa börn hjá móður í fangelsi er bundin við ungbörn. Börnin njóta hefðbundinnar ungbarnaþjónustu heilbrigðisyfirvalda undir umsjón hjúkrunarfræðings fangelsisins. Allur nauðsynlegur búnaður, þ.e. rúm, leikföng o.fl., hefur verið keyptur sérstaklega í samræmi við þarfir og óskir.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 484 — 301. mál.
Svar