Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 408. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 516  —  408. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um samráð við sérsambönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hefur verið haldinn samráðsfundur með forsvarsmönnum sérsambanda ÍSÍ eins og ráðherra boðaði að yrði árlega í munnlegu svari við fyrirspurn á þskj. 1218 (803. mál á 130. löggjafarþingi) 31. mars sl.?
     2.      Ef sá fundur hefur verið haldinn, skilaði hann einhverjum árangri?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknum fjárveitingum til sérsambanda ÍSÍ við fjárlagagerð fyrir árið 2006?


Skriflegt svar óskast.