Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 384. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 538  —  384. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvars um losun gróðurhúsalofttegunda.

     1.      Hver er staða heimilda fyrir losun annarra gróðurhúsalofttegunda en koltvísýrings samkvæmt Kyoto-samningnum?

    Kyoto-bókunin nær til losunar sex gróðurhúsalofttegunda: koltvíoxíðs (CO 2), metans (CH 4), köfnunarefnisoxíðs (N 2O), vetnisflúorkolefnis (HFC), perflúorkolefnis (PFC) og brennisteinshexaflúoríðs (SF 6).
    Losun fimm síðasttöldu lofttegundanna er umreiknuð í koltvíoxíðs-ígildi og miðast losunarheimildir Kyoto-bókunarinnar við þá einingu, en ekki eru sérstakar heimildir fyrir einstakar lofttegundir. Árið 2002 skiptist útstreymi Íslands þannig hlutfallslega eftir lofttegundum:

Koltvíoxíð (CO2) 74%
Metan (CH4) 15%
Köfnunarefnisoxíð (N2O) 8%
Vetnisflúorkolefni (HFC) 2%
Perflúorkolefni (PFC) og brennisteinshexaflúoríð (SF6) 1%

    Nú liggur fyrir að hluti losunar gróðurhúsalofttegunda frá nýjum stóriðjuverum sem nýta endurnýjanlega orkugjafa, vatnsorku eða jarðhita, mun ekki falla undir almennar losunarheimildir Íslands samkvæmt Kyoto-bókuninni. Hins vegar mun útstreymi annarra gróðurhúsalofttegunda, svo sem flúorkolefnis frá álverum, falla undir almennar heimildir Íslands. Útstreymi flúorkolefna er um 12–13% af heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda frá álverum. Verulegur árangur hefur náðst í að minnka útstreymi flúorkolefna frá álverinu í Straumsvík á undanförnum árum og gerð er krafa um að útstreymi flúorkolefna frá nýjum álverum sé í lágmarki. Í núverandi losunarspá hefur verið reiknað að með útstreymi flúorkolefna frá álverum rúmist innan almennra heimilda Íslands og er gert ráð fyrir að Ísland verði innan þeirra marka sem því er sett á árunum 2008–2012.

     2.      Hver verður heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi að meðtöldu stóriðjuákvæðinu í lok skuldbindingartímabils Kyoto-samningsins 2008–2012?

    Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að gefa nákvæmt svar við þessarri spurningu, þar sem það byggist á mörgum óvissuþáttum. Í stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands um ráðstafanir til að standa við skuldbindingar loftslagssamningsins og Kyoto-bókunarinnar frá 2002 er t.d. reiknað með að útstreymi koltvíoxíðs frá nýjum stóriðjuverum nemi 1.539 þús. tonnum á skuldbindingartímabilinu 2008–2012. Þar er m.a. reiknað með útstreymi frá verksmiðju Reyðaráls, sem var heldur meira en verður frá verksmiðju Fjarðaáls. Óvissa um hvort og hvenær verður af stækkun annarra stóriðjuvera og hvort til nýrra framkvæmda gæti komið fyrir 2012 auka svo enn á óvissuna.
    Það er þó að sjálfsögðu hægt að reikna hugsanlega losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi, að gefnum ákveðnum forsendum. T.d. mætti reikna út hver losunin gæti orðið ef heimildir Íslands væru fullnýttar. Samkvæmt útreikningum Umhverfisstofnunar var losun gróðurhúsalofttegunda um 3.300 þús. tonn árið 1990. Ef losunin ykist sem svarar heimild Íslands um 10% aukningu yrði hún um 3.600 þús. tonn árið 2012. Ef íslenska ákvæðið, sem nemur 1.600 þús. tonnum, væri að auki fullnýtt, væri heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi um 5,2 millj. tonna. Vonir standa þó til þess að hægt verði með aðgerðum og umhverfisvænni tækni að draga úr almennri losun gróðurhúsalofttegunda, þannig að losunin yrði væntanlega minni en þetta, auk þess sem áðurnefnd óvissa varðandi framkvæmdir við stóriðju gerir erfitt um vik að gefa nákvæma spá fyrir einstök ár.

     3.      Hver verður losun á hvern Íslending í lok sama tímabils?

    Til að reikna út slíkt þarf að gefa sér forsendur um losun, sbr. svarið hér að framan og spá fyrir að auki um mannfjöldaþróun næstu árin. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru Íslendingar rétt rúm 290.000 talsins um sl. áramót og fjölgaði um 0,73% á milli ára. Miðað við slíka fjölgun gætu Íslendingar verið um 310.000 talsins í lok skuldbindingartímabils Kyoto-bókunarinnar. Losun á hvert mannsbarn, ef allar heimildir Íslands væru fullnýttar, væri þá um 16,8 tonn á íbúa, að meðtaldri heimilaðri losun vegna nýrrar stóriðju (að því fráteknu væri hún um 11,6 tonn á íbúa). Til samanburðar má geta þess að meðaltalslosun Viðauka-II ríkja Kyoto-bókunarinnar árið 2000 var um 13,5 tonn á íbúa, en mest var hún í Ástralíu, eða um 26 tonn á íbúa.