Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 540 — 262. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um eftirlit tollgæslunnar með innflutningi í gámum.
Eftirfarandi er byggt á upplýsingum frá tollstjóranum í Reykjavík. Skipuleg skráning þeirra upplýsinga sem fyrirspurnin lýtur að fer ekki fram hjá öðrum tollstjórum. Hins vegar stendur fyrir dyrum að efla söfnun tölfræðilegra upplýsinga á landsvísu, sbr. svar við 5. lið fyrirspurnarinnar.
1. Hve margar vörugámaeiningar voru fluttar inn til landsins:
a. árið 2003,
b. árið 2004?
Eftirfarandi tölur byggjast á upplýsingum sem hefur verið aflað frá farmflytjendum með skip í reglulegum siglingum:
Árið 2003 voru fluttar inn 141.281 vörugámaeiningar til landsins (TEU).
Árið 2004 voru fluttar inn 146.903 vörugámaeiningar til landsins (TEU).
2. Hve stórt hlutfall heildarinnflutnings vöru í gámum var skoðað fyrrnefnd ár?
Innlögð tollskjöl vegna sendinga annarra en hraðsendinga í Reykjavík árið 2003 voru 242.669 talsins. Áætlað er að skoðaðar hafi verið um 1.100 sendingar.
Innlögð tollskjöl vegna sendinga annarra en hraðsendinga í Reykjavík árið 2004 (til og með 31. október sl.) voru 206.726 talsins. Áætlað er að skoðaðar hafi verið um 1.550 sendingar.
3. Hversu oft á árunum 2003 og 2004 komu upp mál í tengslum við vöruinnflutning í gámum sem má rekja til:
a. rangrar tollflokkunar sem leiddi til of lágra eða hárra tollgreiðslna,
b. fíkniefnainnflutnings,
c. þess að innsigli var rofið af lokunarbúnaði gáms,
d. þess að innsigli var rofið áður en til tollskoðunar kom?
a. Röng tollflokkun.
Árið 2003 voru skoðaðar um 1.100 sendingar. Þar af voru gerðar athugasemdir við u.þ.b. 240 sendingar. Af þeim reyndust 147 vera vegna rangrar tollflokkunar.
Árið 2004 (til og með 31. október sl.) voru skoðaðar um 1.584 sendingar. Þar af voru gerðar athugasemdir við u.þ.b. 346 sendingar. Af þeim reyndust 193 vera vegna rangrar tollflokkunar.
b. Fíkniefnainnflutningur.
Árið 2003 komu upp 72 fíkniefnamál hjá tollgæslunni í Reykjavík. Þar af voru sjö mál sem komu upp í tengslum við vöruinnflutning í gámum.
Árið 2004 (til og með 31. október sl.) kom upp 61 fíkniefnamál hjá tollgæslunni í Reykjavík. Þar af voru fjögur mál sem komu upp í tengslum við vöruinnflutning í gámum.
c. Innsigli rofið af lokunarbúnaði.
Engin mál hafa komið árin 2003 og 2004, svo vitað sé, þar sem tollinnsigli var rofið af lokunarbúnaði gáms.
d. Innsigli rofið fyrir tollskoðun.
Engin mál hafa komið upp árin 2003 og 2004, svo vitað sé, þar sem tollinnsigli var rofið áður en til tollskoðunar kom.
4. Hve margir tollverðir starfa að eftirliti með vöruinnflutningi í gámum?
Í Reykjavík eru starfandi 49 tollverðir. Í upplýsinga- og áhættugreiningardeild eru nú starfandi fimm tollverðir en frá og með 1. janúar verða þeir níu talsins.
Við vöruskoðun og almennt tolleftirlit, þ.e.í vöruskoðunar- og afgreiðsludeild og eftirlitsdeild, eru nú starfandi 34 tollverðir. Þar af eru tveir hundaþjálfarar sem eingöngu sinna fíkniefnamálum.
Allir fyrrgreindir tollverðir koma með einum eða öðrum hætti að gámaeftirliti.
5. Er fyrirhugað aukið eftirlit með innflutningi varnings í gámum?
Um þessar mundir er embætti tollstjórans í Reykjavík að byggja upp og efla áhættugreiningu en söfnun upplýsinga af ýmsu tagi er forsenda slíkrar greiningar.
Mjög brýnt er að koma á miðlægum gagnagrunni á landsvísu, svipuðum og lögregluyfirvöld notast við. Með því verður hægt að fá heildstætt yfirlit, t.d. yfir haldlagðan varning, eftirlitsaðgerðir, skipakomur o.fl. á landsvísu. Stefnt er að því að vinna þarfagreiningu fyrir slíkan gagnagrunn á komandi ári.
Markmiðið með uppbyggingu áhættugreiningar er að eftirlitsaðgerðir verði markvissari og beinist að þeim stöðum þar sem áhættan er talin mest. Í því tilliti má segja að fyrirhugað sé að auka eftirlit með innflutningi varnings í gámum.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 540 — 262. mál.
Svar