Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 192. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 547  —  192. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Auði Arnardóttur og Ingibjörgu Halldórsdóttur frá umhverfisráðuneyti. Umsagnir bárust nefndinni frá Samtökum atvinnulífsins, Félagi heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Alþýðusambandi Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að hollustuháttaráð verði lagt niður en umhverfisráðherra skipi í stað þess þriggja manna samstarfsnefnd fulltrúa ráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka atvinnulífsins sem taki við verkefnum þess.
    Í athugasemdum við frumvarpið kemur m.a. fram að hollustuháttaráð hafi starfað frá júní 1998 og reynslan af störfum ráðsins þyki ekki gefa tilefni til þess að halda því gangandi í núverandi mynd. Eru ástæður þess skilmerkilega raktar í frumvarpinu. Þá kemur fram að vinna ráðsins hafi fyrst og fremst tengst gjaldskrám sveitarfélaganna fyrir lögboðið eftirlit heilbrigðisnefndanna en að öðru leyti hafi ráðið lítið komið að málum enda hafi því ekki verið ætlað neitt frumkvæði heldur eingöngu að taka við aðsendum erindum.
    Nefndin tekur undir það sjónarmið að leggja skuli hollustuháttaráð niður en telur hins vegar ekki þörf á að koma á fót samstarfsnefnd þeirri sem frumvarpið mælir fyrir um í staðinn. Nefndin leggur þó áherslu á að markmið frumvarpsins um samráð milli hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífsins hvað varðar stefnumarkandi þætti sem undir lögin falla í tengslum við atvinnustarfsemi sé mjög mikilvægt en telur hægt að ná því með öðrum og einfaldari hætti. Þá telur nefndin það markmið í sjálfu sér að hafa stjórnsýsluna og stjórnkerfið eins einfalt og skilvirkt og kostur er og leggur því til að hollustuháttaráð verði lagt niður án þess að nýrri lögbundinni nefnd verði komið á fót.
    Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Þar er lagt til að 17. gr. laganna verði felld brott en hún fjallar m.a. um skipun hollustuháttaráðs. Til samræmis við það eru lagðar til breytingar á greinum sem vísa í hollustuháttaráð, þ.e. annars vegar 12. gr. laganna og hins vegar 21. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Steinunn K. Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi sat fund nefndarinnar og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 6. des. 2004.



Guðlaugur Þór Þórðarson,


form., frsm.


Hjálmar Árnason.


Arnbjörg Sveinsdóttir.



Gunnar Birgisson.


Kjartan Ólafsson.


Kolbrún Halldórsdóttir.



Mörður Árnason.


Valdimar L. Friðriksson.