Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 418. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 552  —  418. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um þagnarskyldu um kaup og kjör.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



    Eru starfsmenn stofnana sem heyra undir félagsmálaráðuneytið skyldaðir til að skrifa undir þagnarheit um laun sín? Ef svo er, hjá hvaða stofnunum starfa þeir? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra taka upp slíkt fyrirkomulag?