Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 557  —  423. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um afréttarmálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, með síðari breytingum.

Flm.: Einar K. Guðfinnsson.



1. gr.

    Í stað orðanna „12 vikna innlausnarfresti“ í 1. málsl. 4. mgr. 59. gr. laganna, kemur: fjögurra vikna innlausnarfresti.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er ætlunin að gera breytingar á reglum um meðferð óskilapenings, hrossa og nautgripa, sem samkvæmt gildandi lögum er heimilt að selja að kröfu hreppstjóra við nauðungarsölu með tólf vikna innlausnarfresti án þess að sérstakrar áskorunar sé þörf til eiganda.
    Með gildistöku reglugerðar nr. 463/2003, um merkingu búfjár, er skylt að einstaklingsmerkja (örmerkja) hross sem fædd eru eftir 1. janúar 2003 og samkvæmt ákvæði til bráðabirgða er skylt að merkja alla nautgripi fædda eftir 1. september 2003 með plötumerki eða rafrænu merki og skulu allir nautgripir merktir í samræmi við reglurnar frá 1. janúar árið 2005. Þá hefur nokkuð verið gert sl. ár í að merkja eldri hross sérstaklega og hefur því tilvikum fækkað þar sem þurft hefur að selja óskilapening á uppboði.
    Tólf vikna innlausnarfrestur fyrir eigandann er því ekki lengur nauðsynlegur og afar langur sé litið til hagsmuna þess er kaupir óskilapeninginn á uppboði og getur átt von á því í tólf vikur að eigandinn komi og nýti sér brigðarétt. Breytingin mun einnig virka hvetjandi á eigendur hrossa og nautgripa til að vera með fullnægjandi merkingar.