Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 208. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 561  —  208. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hjalta Zóphóníasson og Rögnu Árnadóttur frá dómsmálaráðuneyti, Nökkva Bragason frá fjármálaráðuneyti, Kristínu Huld Sigurðardóttur og Agnesi Stefánsdóttur frá Fornleifavernd ríkisins. Umsagnir bárust um málið frá ríkisskattstjóra, Prestafélagi Íslands, Hagstofu Íslands, Kirkjugarðasambandi Íslands, Andlegu þjóðarráði Baháía á Íslandi og Fornleifavernd ríkisins.
    Frumvarpið miðar einkum að því að koma á nýskipan kirkjugarðsgjalds. Gert er ráð fyrir að grundvelli útreiknings á kirkjugarðsgjaldi verði gjörbreytt og fjárhæð þess ákvörðuð í reiknilíkani sem tekur mið af raunverulegum tilkostnaði við greftranir og rekstur kirkjugarða í stað þess að vera áfram fast árlegt gjald sem miðast við fjölda sóknarbarna 16 ára og eldri í viðkomandi sókn. Jafnframt er lagt til að lögfest verði heimild kirkjugarðaráðs til að veita á bilinu 8–12% af fjárveitingu til kirkjugarða til Kirkjugarðasjóðs, í stað þess að heimildin verði bundin við 8% eins og núgildandi lög gera ráð fyrir. Þá eru aðrar smávægilegar breytingar einnig lagðar til í frumvarpinu, t.d. varðandi heimildir til sameiningar eða niðurlagningar kirkjugarða og reglur um legstaðaskrá.
    Í 2. gr. frumvarpsins er að finna smávægilega villu, en þar er gert ráð fyrir að 1. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna breytist. Þetta á að vera 2. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna. Nefndin leggur því til breytingu á greininni í samræmi við þetta.
    Við meðferð málsins var athygli nefndarinnar vakin á því að láðst hefði að leggja til breytingu á 26. gr. laganna, en þar er að finna ákvæði sem gerir kirkjugarðsstjórnum skylt að láta smíða hlífðarstokka um þá legsteina er þjóðminjavörður tiltekur. Eins og fram kemur í athugasemdum við frumvarpið lúta störf Fornleifaverndar ríkisins í ríkari mæli að kirkjugörðum en verkefni þjóðminjavarðar. Með hliðsjón af því leggur nefndin til breytingu á frumvarpinu þess efnis að í stað orðsins „þjóðminjavörður“ í 2. málsl. 2. mgr. 26. gr. laganna komi orðin „forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins“.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er grein fyrir hér að framan og gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali .
    Kolbrún Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 7. des. 2004.



Bjarni Benediktsson,


form., frsm.


Jónína Bjartmarz.


Kjartan Ólafsson.



Bryndís Hlöðversdóttir.


Birgir Ármannsson.


Ágúst Ólafur Ágústsson.



Steinunn K. Pétursdóttir.


Sigurður Kári Kristjánsson.