Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 679, 131. löggjafarþing 328. mál: raforkulög (gjaldskrár, tekjumörk o.fl.).
Lög nr. 149 22. desember 2004.
Stjórnarmenn og fastráðnir starfsmenn flutningsfyrirtækis þess sem ráðherra veitir rekstrarleyfi skv. 1. mgr. skulu hafa réttindi og skyldur opinberra sýslunarmanna.
a. (I.)
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 12. gr. skulu tekjumörk flutningsfyrirtækis og dreifiveitna einungis sett til eins árs í upphafi og gilda fyrir árið 2005. Orkustofnun er heimilt að ákveða í samráði við eftirlitsskylda aðila að tekjumörk fyrir árið 2006 skuli einnig ákveðin til eins árs.
b. (II.)
Frá gildistöku laga þessara og fram til 1. janúar 2005 er óheimilt að uppfæra bókfært verð þeirra fastafjármuna sem um er fjallað í 2. tölul. 2. mgr. 12. gr. og 2. tölul. 2. mgr. 17. gr. laganna.
Þingskjal 679, 131. löggjafarþing 328. mál: raforkulög (gjaldskrár, tekjumörk o.fl.).
Lög nr. 149 22. desember 2004.
Lög um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, 6. mgr., svohljóðandi:Stjórnarmenn og fastráðnir starfsmenn flutningsfyrirtækis þess sem ráðherra veitir rekstrarleyfi skv. 1. mgr. skulu hafa réttindi og skyldur opinberra sýslunarmanna.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- 2. tölul. 2. mgr. orðast svo: Arðsemi flutningsfyrirtækisins skal vera sem næst markaðsávöxtun óverðtryggðra ríkisskuldabréfa til fimm ára eða sambærilegra verðbréfa. Arðsemi reiknast sem hlutfall hagnaðar fyrir fjármunatekjur, fjármagnsgjöld og skatta (EBIT) og bókfærðs verðs fastafjármuna sem nauðsynlegir eru til reksturs kerfisins. Fastafjármunir þessir skulu vera þeir sem nýttir eru 31. desember 2004 og miðað við bókfært virði þann dag, ásamt nauðsynlegum nýjum fastafjármunum, sem síðar kunna að koma til. Um heimild til uppfærslna á bókfærðu verði fastafjármuna við útreikning tekjumarka vegna endurmats og breytinga á verðlagi skal kveðið á í reglugerð.
- 3. mgr. orðast svo:
- Við 4. mgr. bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Gjaldtaka fyrir úttekt dreifiveitna frá flutningskerfi skal miðast við heildarmagn raforku sem flutt er til dreifiveitusvæðisins auk þess sem móttekið er beint frá virkjun innan dreifiveitusvæðisins, sbr. þó 5. mgr. Ekki skal greitt af notkun í einangruðum kerfum innan dreifiveitusvæða sem ekki njóta tengingar við flutningskerfið.
- 5. mgr. orðast svo:
- Vegna þeirrar orku sem framleidd er í virkjun sem er undir 1 MW skal ekki greiða úttektargjald til flutningsfyrirtækisins.
- Vegna orku sem framleidd er í virkjunum á stærðarbilinu 1–3,1 MW skal ekki greiða úttektargjald við neðri stærðarmörkin en síðan skal gjaldið fara hlutfallslega hækkandi þar til það nemur 75% fulls úttektargjalds við efri mörkin.
- Vegna orku frá virkjun sem er 3,1–7 MW skal greiða 75% fulls úttektargjalds.
- 1. málsl. 8. mgr. orðast svo: Krefjast skal greiðslu ef tenging nýrra virkjana eða stórnotenda við flutningskerfi veldur auknum tilkostnaði annarra notenda kerfisins.
- 9. mgr. orðast svo:
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:- 2. tölul. 2. mgr. orðast svo: Arðsemi dreifiveitu skal vera sem næst markaðsávöxtun óverðtryggðra ríkisskuldabréfa til fimm ára eða sambærilegra verðbréfa. Arðsemi reiknast sem hlutfall hagnaðar fyrir fjármunatekjur, fjármagnsgjöld og skatta (EBIT) og bókfærðs verðs fastafjármuna sem nauðsynlegir eru til reksturs kerfisins. Fastafjármunir þessir skulu vera þeir sem nýttir eru 31. desember 2004 og miðað við bókfært virði þann dag, ásamt nauðsynlegum nýjum fastafjármunum, sem síðar kunna að koma til. Um heimild til uppfærslna á bókfærðu verði fastafjármuna við útreikning tekjumarka vegna endurmats og breytinga á verðlagi skal kveðið á í reglugerð.
- 3. mgr. orðast svo:
- 7. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein sem verður 9. mgr. og orðast svo:
- Greiða skal virkjun undir 0,3 MW að fullu hreinan ávinning veitunnar af niðurfellingu úttektargjaldsins.
- Fyrir virkjun sem er 0,3–3,1 MW skal minnka greiðsluna hlutfallslega þar til ekkert er greitt sé virkjunin 3,1 MW eða stærri.
4. gr.
Orðin „í samræmi við gjaldskrár sem fengið hafa meðferð“ í 43. gr. laganna falla brott.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum:- Í stað orðanna „Frá 1. janúar 2007“ í 1. mgr. kemur: Frá 1. janúar 2006.
- Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:
6. gr.
Í stað orðanna „sex ára“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IX í lögunum kemur: fimm ára.7. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:a. (I.)
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 12. gr. skulu tekjumörk flutningsfyrirtækis og dreifiveitna einungis sett til eins árs í upphafi og gilda fyrir árið 2005. Orkustofnun er heimilt að ákveða í samráði við eftirlitsskylda aðila að tekjumörk fyrir árið 2006 skuli einnig ákveðin til eins árs.
b. (II.)
Frá gildistöku laga þessara og fram til 1. janúar 2005 er óheimilt að uppfæra bókfært verð þeirra fastafjármuna sem um er fjallað í 2. tölul. 2. mgr. 12. gr. og 2. tölul. 2. mgr. 17. gr. laganna.
8. gr.
Við upptalningu í viðauka með lögunum bætist nýr töluliður sem verður 3. tölul. og orðast svo: Öldugata í Hafnarfirði.9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. desember 2004.