Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 445. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 694  —  445. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um kynþroska þorsks.

Frá Einari Oddi Kristjánssyni.



     1.      Hvert hefur verið kynþroskahlutfall fjögurra ára þorsks á árunum 1990–2004?
     2.      Hvaða vísbendingar um vöxt og vaxtarhraða þorsksins gefa breytingar á kynþroskahlutfallinu?


Skriflegt svar óskast.