Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 457. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 706  —  457. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um heildarstefnumótun í málefnum barna og unglinga.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvenær má vænta þess að lögð verði fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun um opinbera stefnumótun í málefnum barna og unglinga í samræmi við ályktun sem Alþingi samþykkti 11. maí 2001 en samkvæmt henni átti að leggja áætlunina fyrir Alþingi til staðfestingar á haustþingi árið 2002?
     2.      Hvernig skýrir ráðherra þann drátt sem orðið hefur á mótun heildstæðrar og samræmdrar stefnumótunar í málefnum barna og unglinga í samræmi við framangreinda ályktun Alþingis?
     3.      Hvar telur ráðherra mest úrbóta þörf í málefnum barna og unglinga og hverjar verða helstu tillögur í þeirri fimm ára framkvæmdaáætlun sem í undirbúningi hefur verið um málefnið frá árinu 2001?