Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 317. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 730 — 317. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Árna Stefánssonar um stóriðju og skatta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve mikla skatta og þjónustugjöld greiddu alþjóðleg stóriðjufyrirtæki hérlendis til íslenska ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar árin 1995–2003, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum?
2. Hvernig er háttað samningum um mismunandi skattlagningu gagnvart nefndum fyrirtækjum?
3. Hverjar hefðu skatttekjur ríkis og sveitarfélaga orðið á árunum 1995–2003 ef viðkomandi fyrirtæki hefðu verið skattlögð að fullu til samræmis við skattlagningu á almenn íslensk atvinnufyrirtæki?
Hvað varðar 1. og 3. lið fyrirspurnarinnar var leitað upplýsinga hjá embætti ríkisskattstjóra en hann lítur svo á, með tilvísun til 117. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, að skattyfirvöldum sé ekki heimilt að veita upplýsingar um fjárhagsleg málefni einstakra skattaðila eins og hér er farið fram á. Þá eru „alþjóðleg stóriðjufyrirtæki“ hér á landi það fá að ekki telst rétt með tilvísun til framangreindrar lagagreinar að birta samtölur fyrir þau.
Um 2. lið fyrirspurnarinnar er það að segja að samningar ríkisstjórnar Íslands við stóriðjufyrirtæki eru birtir í Stjórnartíðindum og má vísa til þeirra. Fyrst er til að nefna lög um lagagildi samnings milli ríkisstjórnar Íslands og Swiss Aluminium Ltd., um álbræðslu við Straumsvík, nr. 76/1966. Vegna viðaukasamninga milli ríkisstjórnar Íslands og Swiss Aluminium Ltd., um álbræðslu við Straumsvík, voru sett lög nr. 19/1970, nr. 42/1976, nr. 104/1984 og nr. 111/1985. Vegna viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Alusuisse- Lonza Holding Ltd. um álbræðslu við Straumsvík voru sett lög nr. 155/1995.
Einnig skal bent á lög nr. 18/1977, um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, lög nr. 62/1997, um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga, og lög nr. 12/2003, um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 730 — 317. mál.
Svar