Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 288. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 765  —  288. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínu Gunnarsdóttur um jafnréttisáætlun og skipan í stöður.

     1.      Hvað hefur verið skipað í margar stöður á vegum ráðuneytisins frá árinu 1999?
    Alls hafa verið skipaðir 29 einstaklingar í stöður á þessu tímabili.
    Landbúnaðarráðherra hefur skipað í fjórar stöður innan ráðuneytisins og skipað yfirdýralækni, aðstoðaryfirdýralækni og 18 einstaklinga í stöður héraðsdýralækna samkvæmt lögum nr. 66/1998, með gildistöku frá 1. janúar 1999, skipað rektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, skólameistara að Hólum, skólameistara að Garðyrkjuskólanum á Reykjum, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og forstöðumann Aðfangaeftirlitsins.

     2.      Hvað voru skipaðar margar konur og hve margir karlar á umræddu tímabili?

    Skipaðar voru 4 konur og 23 karlar í stöður á þessu tímabili.

     3.      Hvaða nefndir og ráð eru starfandi á vegum ráðuneytisins, hve margir fulltrúar eru í hverri nefnd eða ráði og hvernig skiptast þeir eftir kyni?

    Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.

Starfandi nefndir og ráð á vegum ráðuneytisins 30. nóvember 2004.



Aðalmenn
Varamenn og starfandi með nefnd
Alls Kk. Kvk. Alls Kk. Kvk.
Lögbundnar nefndir:
Háskólaráð Landbúnaðarháskóla Íslands 9 8 1 7 5 2
Skólanefnd Garðyrkjuskólans á Reykjum 5 5 0 3 1 2
Skólanefnd Hólaskóla 5 3 2 5 5 0
Stjórn Austurlandsskóga 4 4 0
Stjórn Fiskræktarsjóðs 6 6 0
Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins 5 4 1 5 2 3
Stjórn Hagþjónustu landbúnaðarins 3 3 0 3 2 1
Stjórn Héraðsskóga 3 3 0
Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins 5 5 0 5 1 4
Stjórn Norðurlandsskóga 3 3 0 3 3 0
Stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 3 3 0
Stjórn Skjólskóga 3 3 0 2 2 0
Stjórn Suðurlandsskóga 3 3 0
Stjórn Tilraunastöðvarinnar að Stóra-Ármóti 3 3 0
Stjórn Veiðimálastofnunar 5 5 0 5 5 0
Stjórn Vesturlandsskóga 4 3 1 1 1 0
Úthlutunarnefnd:
Smáverkefnasjóður 3 2 1
Úrskurðar- og/eða kærunefndir:
Úrskurðarnefnd um greiðslumark o.fl. 3 3 0 2 2 0
Úrskurðarnefnd um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu 3 1 2 2 2 0
Yfirmatsnefnd samkvæmt ábúðarlögum 3 3 0 3 3 0
Yfirmatsnefnd um lax- og silungsveiði 3 3 0 1 1 0
Ráðgjafarnefndir:
Búfræðsluráð 10 9 1 0 0 0
Dýralæknaráð 4 4 0 4 2 2
Fiskeldisnefnd 4 4 0 3 1 2
Ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarafurða 3 2 1 3 1 2
Ráðgjafarnefnd um lífræna landbúnaðarframleiðslu 7 6 1 2 2 0
Ótímabundinar verkefnanefndir:
Erfðanefnd landbúnaðarins 7 5 2 7 7 0
Fisksjúkdómanefnd 3 3 0
Fóðurnefnd 3 3 0
Framkvæmdanefnd búvörusamninga 7 7 0
Kartöfluútsæðisnefnd 3 3 0
Markanefnd um afréttamál, fjallskil o.fl. 3 2 1 3 3 0
Sáðvöru- og áburðarnefnd 3 3 0
Tilraunaráð Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins 15 13 2 5 5 0
Ullarmatsnefnd 3 1 2
Úttektarnefnd samkvæmt ábúðarlögum 2 2 0 1 1 0
Veiðimálanefnd: kostnaður greiddur af Fiskræktarsjóði 6 6 0 6 5 1
Verðlagsnefnd búvara 7 6 1 5 4 1
Tímabundnar verkefnanefndir:
Faghópur sérfræðinga um rannsókn á íslenska kúastofninum 9 7 2
Nefnd til að endurskoða lög um innflutning dýra, nr. 54/1990 4 2 2
Nefnd til að endurskoða rg. 638/1997 um bólusetningu sauðfjár og geitfjár til varnar garnaveiki
3

3

0
Nefnd til að undirbúa innleiðingu ESB 2001/19/EB o.fl. 3 1 2
Nefnd til að yfirfara lög og reglur um varnir gegn dýrasjúkdómum
4

3

1
Nefnd til að yfirfara stöðu og málefni Hólaskóla 6 6 0 1 1 0
Nefnd um endurskoðun laga um gæðamat á æðardún og erindisbréf matsmanna
4

3

1

3

2

1
Nefnd um framtíðarfyrirkomulag markaðssetningar dilkakjöts á erlendum markaði
5

5

0
Nefnd um heimabúsafurðir í ferðaþjónustu o.fl. 5 3 2
Nefnd um hestamennsku á landsbyggðinni 6 5 1
Nefnd um umsjón aðgerða vegna rekstrarvanda loðdýraræktarinnar
3

2

1
Plöntusjúkdómaráð 3 3 0
Starfshópur til að endurskoða lög/reglugerð um loðdýrarækt 4 4 0
Starfshópur um eftirlit með búrekstri og tengdri starfsemi 5 3 2
Starfshópur um jarðahluta Landskrár fasteigna 5 3 2
Verkefnisstjórn átaks um sumarexem í hrossum 5 2 3
Verkefnisstjórn um nýtingu upplýsingasamfélagsins í sveitum landsins
7

5

2
Votlendisnefnd 2 2 0
Nefndarmenn samtals      257 217 40 90 69 21
Nefndir samtals 56


     4.      Gilda sérstakar reglur um hlutföll kynjanna við skipan í stöður á vegum ráðuneytisins og ef svo er, hvaða reglur?
    Ekki gilda ákveðnar reglur um hlutföll kynja við skipan í stöður á vegum ráðuneytisins, en unnið er eftir starfsmannastefnu stjórnarráðsins þar sem kveðið er á um að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum.

     5.      Hefur ráðuneytið gert sérstaka framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og ef svo er, hvað hefur verið gert til að fylgja þeirri áætlun eftir?

    Ekki hefur verið gerð sérstök framkvæmdaáætlun er þetta varðar. Ráðuneytið er hins vegar vel meðvitað um að fleiri karlar en konur skipa nefndir og ráð á vegum þess og ýmsar skýringar á því. Leitast hefur verið við að rétta stöðu kvenna hvað þetta varðar og m.a. þess jafnan gætt að þegar óskað er tilnefninga í nefndir og ráð að tilnefningaraðili gæti jafnræðis í tilnefningum sínum.
    Ráðuneytið vill geta þess að það hefur veitt umtalsverða fjármuni til verkefnisins „Gullið heima“ sem grasrótarhreyfing kvenna í landbúnaði stendur að.
    Sömuleiðis beindi ráðuneytið því til félagsmálanefndar Alþingis að í þingsályktunartillögu um jafnréttismál til fjögurra ára væri tiltekið undir sérstökum lið að kanna skyldi ákvæði um eignaraðild kvenna og karla í landbúnaði og réttindi og skyldur henni samfara.