Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 510. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 778 — 510. mál.
um endurskoðun reglna um klæðaburð alþingismanna í þingsal og ávarpsvenjur.
Sigurjón Þórðarson, Magnús Þór Hafsteinsson.
Alþingi ályktar að fela forsætisnefnd að endurskoða reglur um formlegan klæðnað alþingismanna í þingsal og ávarpsvenjur í ræðustól á Alþingi. Forsætisnefnd skili af sér tillögum að nýjum reglum fyrir þinglok vorið 2005.
Markmið tillögunnar er í fyrsta lagi að gera alþingismönnum kleift að klæðast alþýðlega í þingsal og um leið að færa venjur um klæðnað þingmanna til nútímalegra horfs. Í danska þinginu eru venjur og hefðir hvað þetta varðar með nýtískulegra sniði.
Í annan stað snýr markmið tillögunnar að breyttum ávarpsvenjum í ræðustól Alþingis. Flutningsmenn tillögunnar telja að einungis sé þarft að ávarpa forseta sérstaklega, t.a.m. með orðunum „virðulegur forseti“. Orðin „hæstvirtur ráðherra“ og „háttvirtur þingmaður“ muni þá heyra sögunni til. Að mati flutningsmanna eru ávarpsreglurnar í raun barns síns tíma og eðlilegt að taka þær til endurskoðunar. Með því að takmarka notkun orðanna „hæstvirtur“ og „háttvirtur“ mun ræðutími þingmanna í ræðustól Alþingis nýtast til muna betur.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 778 — 510. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um endurskoðun reglna um klæðaburð alþingismanna í þingsal og ávarpsvenjur.
Flm.: Gunnar Örlygsson, Guðjón A. Kristjánsson,
Sigurjón Þórðarson, Magnús Þór Hafsteinsson.
Alþingi ályktar að fela forsætisnefnd að endurskoða reglur um formlegan klæðnað alþingismanna í þingsal og ávarpsvenjur í ræðustól á Alþingi. Forsætisnefnd skili af sér tillögum að nýjum reglum fyrir þinglok vorið 2005.
Greinargerð.