Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 517. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 786  —  517. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um hjúkrun á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.

Frá Ástu Möller.



     1.      Hver hefur verið þróun mönnunar í hjúkrun á Landspítala – háskólasjúkrahúsi sl. fjögur ár (frá janúar 2001), mælt annars vegar í fjölda hjúkrunarfræðinga á hvern inniliggjandi sjúkling og hins vegar í fjölda hjúkrunarfræðinga og annars starfsfólks í umönnun á hvern inniliggjandi sjúkling, skipt eftir sviðum?
     2.      Hafa verið gerðar athuganir á tengslum mönnunar innan hjúkrunar og fjölda óhappatilvika, dánartíðni, endurkomu sjúklinga og/eða lengdrar sjúkrahúsdvalar vegna fylgikvilla meðferðar?


Skriflegt svar óskast.
























Prentað upp.