Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 535. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 809  —  535. mál.




Frumvarp til fjáraukalaga



fyrir árið 2005.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir,
Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.


    1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. fjárlaga fyrir árið 2005, sbr. sundurliðun 2:
     a.
     11-411 Byggðastofnun
M.kr.

         1.11    Atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni          100
        1.12    Til atvinnuþróunarfélaga, styrkir og hlutafjárkaup          400
     b.      11-501 Nýsköpunarsjóður
         1.01     Nýsköpunarsjóður, stofnfjáraukning          1.000
         Greitt úr ríkissjóði          1.000

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi .

Greinargerð.


    Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var settur á fót 1. janúar 1998 um leið og Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður og Fiskveiðilánasjóður voru sameinaðir í Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Stofnframlagið var 4 milljarðar kr. og er hlutverk sjóðsins skilgreint svo í lögum um sjóðinn, nr. 61/1997: „Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingarverkefnum á sviði nýsköpunar og styðja við þróunar- og kynningarverkefni. Í þessu skyni er sjóðnum heimilt að leggja fram hlutafé eða veita lán, ábyrgðir eða styrki. Þá starfrækir sjóðurinn tryggingardeild útflutningslána skv. II. kafla.“
    Ekki er vafi á því að Nýsköpunarsjóður hefur gegnt mikilvægu hlutverki og stutt mörg sprotafyrirtæki yfir erfiðasta hjallann með því að leggja fram nýtt hlutafé. Hjá sjóðnum hefur safnast dýrmæt þekking starfsmanna á ýmsu sem viðkemur rekstri smárra fyrirtækja og hvernig stuðla megi að vexti þeirra, enda hefur Nýsköpunarsjóður einbeitt sér að svokölluðu þróunarstigi sprotafyrirtækja.
    Nýsköpunarsjóður fær hins vegar ekki fé af fjárlögum heldur skal ráðstöfunarfé hans vera arður af eigin fé, afborganir og vextir af útlánum, hlutafjáreign og aðrar tekjur, eins og segir í 8. gr. laganna um hann. Nú er svo komið að allt fé Nýsköpunarsjóðs er bundið í þeim fyrirtækjum sem hann hefur stutt við bakið á og ekkert svigrúm til að liðsinna nýjum aðilum nema með því takmarkaða fé sem eftir atvikum losnar við sölu á eignarhlut sjóðsins í fyrirtækjum sem fjárfest hefur verið í. Þau eru hins vegar flest mjög ung og ótímabært að sjóðurinn hverfi á braut. Almenn fjárfesting er mjög lítil innan lands og flestir stærri fjárfestingaraðilar róa nú fyrst og fremst á erlend mið.
    Afleiðingin er sú að myndast hefur svokallað fjárfestingargat, hlekkur hefur slitnað í þeirri keðju sem sprotafyrirtækin þurfa að fikra sig eftir á leið sinni til vaxtar og fulls þroska. Nýsköpunarsjóður sem áður brúaði bilið á milli upphafsfjár stofnenda, styrkja og minni opinberra sjóða, svo sem Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs, og stærri fjárfesta er ekki lengur í færum til að gegna því hlutverki. Þetta kemur fram í viðvarandi deyfð á sviði nýsköpunar enda bætist sá vandi sem af þessu fjárfestingargati hlýst ofan á afar óhagstæð efnahagsskilyrði fyrir útflutnings- og samkeppnisgreinar og þá ekki síst sprotafyrirtæki og smá og meðalstór fyrirtæki í þeim geira. Í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir því að ráðin verði bót á fjárþurrð til nýsköpunar með framlagi upp á 1 milljarð kr. til auka stofnfé Nýsköpunarsjóðs.
    Jafnframt er brýnt að efla þann hluta nýsköpunar sem fram fer svæðisbundið á vettvangi atvinnuþróunarfélaganna. Ljóst er að það fé sem varið er til atvinnuþróunar og atvinnuráðgjafar, og kemur að stærstum hluta frá Byggðastofnun en er að öðru leyti framlög sveitarfélaga og fleiri aðila í heimabyggð, rétt dugar fyrir rekstri starfseminnar. Ráðgjöfina sjálfa og þróunarstarfið þarf að efla, t.d. eru víða uppi óskir um að ráða viðbótarstarfsmenn til að sinna sérstaklega nýsköpunarstarfi á sviði ferðamála. Til þess að þetta starf nái tilgangi sínum að fullu, þarf að vera mögulegt að veita styrki til fyrirtækja á frumstigi og fylgja þeim eftir með þátttöku í upphafsfjármögnun og hlutafjárkaupum. Þannig mætti hugsa sér að á vegum atvinnuþróunarfélaganna störfuðu svæðisbundnir fjárfestingarsjóðir sem tækju þátt í upphafsfjármögnun smærri fyrirtækja. Atvinnuþróunarfélögin yrðu þannig virkir þátttakendur í því að stofna til atvinnurekstrar í smáum stíl og styðja við fyrirtækin þar til þau eru komin í aðstöðu til að leita hófanna hjá stærri fjárfestingaraðilum, svo sem fjárfestingarsjóðum landshlutanna, Byggðastofnun og Nýsköpunarsjóði. Í þessu skyni er lagt til að veita annars vegar 100 millj. kr. til að efla atvinnuráðgjöf á landsbyggðinni, þ.e. til að efla starfsemi atvinnuþróunarfélaga, en hins vegar 400 millj. kr. til að fjármagna styrki og hlutafjárkaup á vegum atvinnuþróunarfélaga, sbr. það sem að framan greinir.
    Á 130. löggjafarþingi lagði þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til stuðnings atvinnurekstri í smáum og meðalstórum fyrirtækjum, og var hún samþykkt, sbr. þskj. 1135, 33. mál. Samkvæmt þingsályktuninni skal ríkisstjórnin leggja framkvæmdaáætlun fyrir Alþingi næstkomandi haust til staðfestingar. Vonir eru bundnar við að þær aðgerðir sem þingsályktunin felur stjórnvöldum að ráðast í leiði til úrbóta og markvissari vinnubragða af hálfu hins opinbera.
    Þær aðstæður sem nú eru í þessum efnum lýsa sér, eins og áður sagði, einkum og sér í lagi í algerum skorti á fé, nýsköpunarfé til að styðja fyrirtækin yfir erfiðasta hjallann, af þróunarstigi og upp í raunverulegan rekstur og þá stærð að áhugi stærri fjárfesta vakni. Við svo búið má ekki standa og þetta ástand kallar á að gripið verði til aðgerða þegar í stað til að gera Nýsköpunarsjóði kleift að sinna hlutverki sínu og efla atvinnuþróunarstarfsemi á landsbyggðinni. Því er hér lagt fram frumvarp til fjáraukalaga þar sem gert er ráð fyrir 1 milljarði kr. til að auka stofnfé Nýsköpunarsjóðs, 100 millj. kr. til atvinnuráðgjafa og atvinnuþróunarfélaga, og 400 millj. kr. til að efla getu atvinnuþróunarsjóða landshlutanna til hlutafjárkaupa og þátttöku í svæðisbundnum verkefnum. Mat þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er að slíkar fjárveitingar séu nauðsynlegar í a.m.k. þrjú ár til að styrkja nýsköpun, vöxt og viðgang sprotafyrirtækja til framtíðar.

Fylgiskjal.

Nýsköpunarsjóður:

Yfirlit yfir helstu fjármögnunaraðila


sem tengjast nýsköpun og hlutafjárkaupum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.