Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 822  —  543. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um rekstrarkostnað Reykjavíkurflugvallar.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Hver er árlegur heildarkostnaður íslenska ríkisins af rekstri flugvallar í Reykjavík?
     2.      Hvað af þessum kostnaði gæti sparast ef allt flug yrði fært til Keflavíkurflugvallar?
     3.      Gerir ráðherra ráð fyrir að íslenska ríkið eigi eftir að taka meiri þátt í rekstrarkostnaði Keflavíkurflugvallar en verið hefur til þessa? Ef svo er, um hvaða upphæðir gæti þar verið að ræða?