Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 577. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 865  —  577. mál.




Skýrsla



félagsmálaráðherra, Árna Magnússonar, til Alþingis um 89. , 90., 91. og 92 Alþjóðavinnumálaþingin í Genf 2001–2004.

(Lögð fyrir Alþingi á 131. löggjafarþingi 2004–2005.)



INNGANGUR


    Árið 2004 voru liðin 85 ár frá stofnun Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Grunnur að starfsemi hennar var lagður með friðarsamningunum eftir lok fyrri heimstyrjaldarinnar í nóvember 1918 en viðræður hófust í París í janúar 1919. Nefnd var falið að semja drög að ákvæðum í friðarsamningunum sem fjallaði um atvinnulífið. Meðal þeirra sem sátu í nefndinni voru einlægir stuðningsmenn kapítalisma, t.d. bandaríski verkalýðsleiðtoginn Samuel Gompers, og heitir talsmenn sósíalisma og ríkisafskipta af framleiðslutækjunum eins og Émile Vandervelde og Léon Jouhaux. Eduard Benes sat einnig í nefndinni en hann varð síðar fyrsti forseti Tékkóslóvakíu eftir seinni heimstyrjöldina.
    Það fór ekki fram hjá neinum að skoðanir voru skiptar í nefndinni. Eftir langar og strangar samningaviðræður heppnaðist henni 24. mars 1919 að ná samkomulagi um málamiðlun sem varð 1. og 2. kaflinn í XIII. hluta Versalasamningsins. Þessi hluti varð síðar stofnskrá Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Kjarni stofnunarinnar átti að vera árlegt þing, Alþjóðavinnumálaþingið, og stjórnarnefnd. Ein af skuldbindingum aðildarríkjanna fólst í því að senda fjóra fulltrúa til þingsins: tvo fulltrúa ríkisstjórnarinnar, einn fulltrúa samtaka atvinnurekenda og einn fulltrúa samtaka launafólks. Með nokkrum undantekningum áttu allir fulltrúarnir að hafa jafnan rétt til að hafa áhrif á niðurstöðu mála. Stjórnarnefndin skyldi hafa eftirlit með skrifstofunni, alþjóðavinnumálaskrifstofunni. Lagt var til að nefndina skipuðu 24 fulltrúar: tólf fulltrúar ríkisstjórna, sex fulltrúar atvinnurekenda og sex fulltrúar launafólks. Fulltrúar ríkisstjórna skiptust þannig að átta sæti féllu í skaut fjölmennustu aðildarríkjanna og ríkja þar sem atvinnustarfsemi var umfangsmest. Fjórir fulltrúar skyldu valdir á Alþjóðavinnumálaþinginu. Þetta gekk eftir og friðarráðstefnan samþykkti tillögu nefndarinnar 11. apríl 1919. Í framhaldinu var hafinn undirbúningur að fyrsta Alþjóðavinnumálaþinginu sem haldið var seinni hluta október og fyrri hluta nóvember þetta ár. Stofnunin, sem var falið það hlutverk að koma á félagslegu réttlæti og eyða því ranglæti sem fólst í misskiptingu veraldlegra gæða innan þjóðfélaganna sjálfra, var orðin að veruleika.
    Á þeim 85 árum sem liðin eru frá stofnun ILO hefur margt drifið á dagana. Fyrir 60 árum var t.d. haldið tímamótaþing í Fíladelfiu í Bandaríkjunum. Í yfirlýsingu þingsins er því slegið föstu að launafólk sé ekki eins og hver annar varningur sem lúti lögmálum verslunar og viðskipta. Fyrir 35 árum voru Alþjóðavinnumálastofnuninni veitt friðarverðlaun Nóbels fyrir eflingu samstarfs aðila vinnumarkaðarins og fyrir að stuðla að bættum réttindum launafólks. Í rökstuðningi segir m.a. að þess séu fá dæmi að stofnun hafi tekst jafnvel og ILO að hrinda í framkvæmd þeirri grundvallarhugsjón sem hún sé byggð á.
    Þegar litið er um öxl er ljóst að Alþjóðavinnumálastofnunin hefur staðið undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar. Hún hefur verið vettvangur samstarfs ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins í félagslegu umbótastarfi. Stofnunin hefur verið í fararbroddi við að vinna að heilsusamlegu og öruggu vinnuumhverfi. Hún hefur verið leiðandi í starfi sem hefur að markmiði að draga úr fátækt og stuðla að félagslegu öryggi. En lífið heldur áfram í óendanlegum fjölbreytileika sínum. Af því verða stofnanir eins og Alþjóðavinnumálastofnunin að taka mið. Ný viðfangsefni taka við af þeim gömlu. Á því tímabili sem þessi skýrsla tekur til hefur eitt málefni verið áberandi öðrum fremur. Það eru afleiðingarnar af því sem nefnt er alþjóðavæðing efnahagslífsins á félagslegt öryggi vinnandi fólks.
    Hinn 24. febrúar 2004 birti alþjóðavinnumálaskrifstofan í Genf skýrslu sem ber heitið Sanngjörn alþjóðavæðing – að skapa öllum tækifæri. Skýrslan var samin af nefnd á vegum stofnunarinnar sem naut formennsku Tarju Halonen, forseta Finnlands, og Benjamin William Mkapa, forseta Tansaníu. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að því að mæta vaxandi gagnrýni á þá misskiptingu auðs og lífskjara sem alþjóðavæðing efnahagslífsins hefur skapað. Markmiðið er að beina alþjóðavæðingunni í þann farveg að afraksturinn verði ekki eingöngu fjárhagslegur ávinningur alþjóðafyrirtækja heldur leiði hún jafnframt af sér félagslegar umbætur sem byggist á sameiginlegu gildismati, virðingu fyrir mannréttindum og persónulegri reisn sérhvers einstaklings, menningararfi og sjálfræði. Alþjóðavæðingin verði sanngjörn, taki til allra, lúti lýðræðislegri stjórn og skapi tækifæri og sé áþreifanlega til hagsbóta fyrir öll ríki og þegna þeirra. Í skýrslunni er að finna fjölmargar tillögur sem beinast að þeim aðilum sem hafa mest áhrif á sviði efnahags- og félagsmála í heiminum. Réttlát stjórnskipan og sanngjörn stjórnsýsla sem byggð er á lýðræðislegum stjórnarháttum eru þættir sem sérstaklega eru dregnir fram. Áhersla er lögð á að við hvers kyns stefnumótun sé höfð hliðsjón af tillögum sem settar eru fram í skýrslunni. Hún hefur verið tekin til umfjöllunar á fundi framkvæmdastjóra sérstofnana Sameinuðu þjóðanna, í Alþjóðabankanum, í efnahags- og félagsmálanefnd Sameinuðu þjóðanna, í Evrópusambandinu og OECD o.fl. Hinn 2. desember 2004 var samþykkt tillaga á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem því er beint til allra stofnana Sameinuðu þjóðanna að taka mið af efni skýrslunnar og beita sér í starfi sínu fyrir alþjóðavæðingu sem feli í sér jafnrétti og hlutdeild í afrakstrinum í samræmi við tilmæli sem fram koma í skýrslunni.
    Síðast en ekki síst ber þess að geta að skýrslan var aðalumræðuefnið á allsherjarfundi 92. Alþjóðavinnumálaþingsins sumarið 2004. Segja má að það hafi markað upphaf þeirrar umræðu sem nú á sér stað um heim allan um það hvernig tillögum nefndarinnar um félagslegar hliðar alþjóðavæðingarinnar verði hrundið í framkvæmd. Með skýrslunni hefur Alþjóðavinnumálastofnunin tekið forystu og gengið fram fyrir skjöldu til varnar því að alþjóðavæðingin grafi undan viðurkenndum leikreglum í atvinnulífinu og að svipt verði burtu því félagslega öryggisneti sem riðið hefur verið á undanförnum áratugum.
    Í samræmi við 19. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar er hér með lögð fyrir Alþingi skýrsla um Alþjóðavinnumálaþing sem hafa farið fram á árunum 2001–2004 og birtar samþykktir og tilmæli sem þingin hafa afgreitt. Það skal tekið fram að sú breyting er gerð að í stað orðsins „tillaga“ sem hefur verið notað sem íslensk þýðing á enska orðinu „recommendation“ verður framvegis notað orðið „tilmæli“. Breytingin er gerð til samræmis við þýðingar á gerðum Evrópusambandsins sem teknar hafa verið upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
    Á þeim árum sem þessi skýrsla tekur til hefur Alþjóðavinnumálaþingið afgreitt tvær samþykktir, fern tilmæli og eina bókun. Auk þess samþykkti 92. þingið 2004 að afnema 15 eldri tilmæli sem þykja úrelt og ekki í takt við breyttar aðstæður. Skrá yfir þessi tilmæli er að finna í fylgiskjali VI.
    Á Alþjóðavinnumálaþinginu 2001 var afgreidd samþykkt um öryggi og hollustu í landbúnaði nr. 184. Í samþykktinni er fjallað um skyldur aðildarríkjanna til að gæta þess að daglegur vinnutími og hvíldartími sé í samræmi við ákvæði laga og kjarasamninga. Einnig er að finna í samþykktinni ákvæði um að atvinnurekandi skuli gera áhættumat með tilliti til heilsu og öryggis landbúnaðarstarfsmanna. Einnig er kveðið á um rétt starfsmanna til upplýsinga um öryggis- og heilbrigðismál og samráðs við þá um öryggisráðstafanir á vinnustaðnum.
    Með samþykktinni um öryggi og hollustu í landbúnaði voru afgreidd tilmæli nr. 192. Samkvæmt þeim ber aðildarríkjunum m.a. að stofnsetja kerfi á landsvísu til að hafa eftirlit með öryggi og hollustuháttum í landbúnaði. Kerfið á að taka til bæði eftirlits með heilsu launafólks og aðstæðum í vinnuumhverfi þeirra. Stjórnvöld eiga að stuðla að því að fólk sem vinnur við landbúnað fái eigin öryggis- og heilsuþjónustu og koma á fót kerfi fyrir skráningu og aðvaranir um vinnuskaða og vinnutengda sjúkdóma. Stjórnvaldsaðgerðir eiga jafnframt að stuðla að því að efla öryggi og hollustuhætti í landbúnaði með námi og þjálfun til að mæta þörfum allra sem vinna í þessari atvinnugrein.
    Á 90. Alþjóðavinnumálaþinginu 2002 voru samþykkt tilmæli nr. 193, um eflingu samvinnufélaga. Þau leysa af hólmi eldri tilmæli nr. 127 frá árinu 1966 um „hlutverk samvinnufélaga í efnahags- og félagsþróun þróunarlanda“. Þau tilmæli voru samin með sértækar þarfir þróunarlandanna í huga en hin nýju eru byggð á algildum viðmiðunum sem eiga við öll þjóðfélög.
    Alþjóðavinnumálaþingið 2002 afgreiddi enn fremur bókun við samþykkt nr. 155 frá 1981 um vinnuöryggi og heilsuvernd og tilmæli þar sem 22 ára skrá yfir atvinnusjúkdóma var uppfærð.
    Samþykkt nr. 185, um persónuskírteini sjómanna, var afgreidd á Alþjóðavinnumálaþinginu 2003 og kemur í stað samþykktar ILO nr. 108 frá árinu 1958 um sama málefni. Nýja samþykktin gerir meiri kröfur en áður voru gerðar og henni er ætlað að tryggja sjómönnum nauðsynlegt ferðafrelsi og útgerðum athafnafrelsi á tímum hryðjuverka og ýmissa ferðahindrana.
    Á tímum örra tæknibyltinga og breyttra atvinnuhátta er starfsþjálfun og símenntun lykilatriði. Þau málefni hafa reglulega komið til umfjöllunar á Alþjóðavinnumálaþinginu, síðast á þinginu 2004. Þingið samþykkti þá ný tilmæli um þetta efni nr. 195. Tilgangur tilmælanna er að móta leiðbeinandi viðmið fyrir ríki til að efla þjálfun og færni eftir efnahags- og félagslegum þörfum í hverju landi. Leitast á við að tryggja ævilanga símenntun á öllum þrepum menntakerfisins með fullorðna sem aðalmarkhóp.
    Framangreindar samþykktir eru til umfjöllunar á vettvangi ILO-nefndar félagsmálaráðuneytisins. Þar sem nefndin hefur ekki lokið umfjöllun sinni um þær er ekki lagt til að þær verði fullgiltar að sinni.
    Í viðauka er birt greinargerð sem ríkisstjórn Íslands sendi alþjóðavinnumálaskrifstofunni í Genf í framhaldi af kæru Alþýðusambands Íslands vegna setningar laga nr. 34/2001sem ætlað var að leysa kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna. Einnig er birt í heild niðurstaða nefndar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um félagafrelsi í kærumálinu. Þess skal getið að umrætt kærumál var tekið á dagskrá þingnefndar um framkvæmd alþjóðasamþykkta á 92. Alþjóðavinnumálaþinginu 2004. Þetta var í fyrsta skipti sem framkvæmd Íslands á alþjóðasamþykkt ILO er formlega tekin til umfjöllunar í þingnefndinni.

89. ALÞJÓÐAVINNUMÁLAÞINGIÐ 2001


    89. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar var haldið í Genf dagana 5.–21. júní 2001. Að þessu sinni tóku 2389 fulltrúar frá 158 aðildarríkjum af 175 þátt í starfi þingsins.
    Sto Tomas, vinnumálaráðherra frá Filippseyjum, var kosinn forseti þingsins en varaforsetar voru kosnir Cecilia Bannerman, ríkisstjórnarfulltrúi frá Gana, Arthur João Donato, fulltrúi atvinnurekenda frá Brasilíu og Jean-Claude Parrot frá Kanada úr hópi launafólks.
    Sendinefnd Íslands skipuðu eftirtaldir: Frá félagsmálaráðuneyti: Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir lögfræðingur. Frá utanríkisráðuneyti: Benedikt Jónsson sendiherra og Ingibjörg Davíðsdóttir sendiráðsritari. Fulltrúi atvinnurekenda: Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Varamaður hennar var Jón H. Magnússon, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúi launafólks: Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands.
    Dagskrá þingsins:
     1.      Skýrslur forstjóra, stjórnarnefndar og yfirlitsskýrsla.
     2.      Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
     3.      Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tillagna.
     4.      Aðbúnaður og hollustuhættir í landbúnaði. Seinni umræða.
     5.      Efling samvinnufélaga. Fyrri umræða.
     6.      Félagslegt öryggi. Almenn umræða.
     7.      Kjörbréf.
    Sérstakur boðsgestur þingsins var Benjamin Mkapa forseti Tansaníu. Hann ávarpaði sérstakan fund um áætlun varðandi afnám barnavinnu í sinni verstu mynd í nokkrum löndum. Átakið skyldi byrja í El Salvador, Nepal og Tansaníu.
    Umræða um 1. dagskrárlið fór fram á allsherjarfundi vinnumálaþingsins. Þar var afmörkuðum fundartíma einnig varið í að fjalla um framvindu mála á hernumdu svæðunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hinir dagskrárliðirnir voru unnir í þingnefndum.

Skýrsla framkvæmdastjóra og stjórnarnefndar og yfirlitsskýrsla.
    Þetta var í annað sinn sem yfirlitsskýrsla um grundvallarreglur og réttindi í atvinnulífinu var lögð fyrir þingið til umræðu. Að þessu sinni var yfirlitsskýrslan helguð afnámi nauðungarvinnu. Skýrsla forstjóra hins vegar var helguð baráttumálinu réttinum til mannsæmandi vinnu.

Fjárhagsnefndin.
    Meginhlutverk fjárhagsnefndarinnar var að gera fjárhagsáætlun fyrir tímabilið 2002–2003 og ákveða greiðsluhlutdeild aðildarríkjanna. Fyrir henni lá tillaga sem samþykkt var einróma á stjórnarfundi í mars 2001. Miðað var við raunhækkun fjárhagsáætlunar um fimm milljónir bandaríkjadala. Stjórnarnefndin lagði til að stuðst yrði við sömu kostnaðarskiptingu og samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í desember árið 2000.
    Nokkrar umræður urðu um þennan lið og skiptust aðildarríkin í tvö horn. Fulltrúar vestrænna iðnríkja vildu aðeins hækka fjárframlög í samræmi við verðbólgu en fulltrúar þróunarríkja vildu raunhækkun fjárhagsáætlunar. Niðurstaðan varð að lokum sú að þingið samþykkti fjárhagsáætlun og greiðsluhlutdeildarkerfið með 439 atkvæðum en sjö sátu hjá. Upphafleg tillaga stjórnarnefndarinnar var um fjárhagsáætlun upp á 472.488.505 bandaríkjadali, en niðurstaðan varð 434.040.000 bandaríkjadalir fyrir starfstímabilið 2002–2003.

Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla.
    Að venju var sett á stofn þingnefnd sem fjallaði um framkvæmd aðildarríkjanna á samþykktum og tilmælum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Að þessu sinni var hún skipuð 232 fulltrúum: 125 ríkisstjórnarfulltrúum, 24 fulltrúm atvinnurekenda og 83 fulltrúum launafólks. Í nefndinni sátu að auki 207 varafulltrúar og 36 alþjóðasamtök höfðu áheyrnarfulltrúa í nefndinni.
    Hlutverk nefndarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd aðildarríkjanna á samþykktum sem þau hafa fullgilt. Nefndin byggir starf sitt á skýrslum sérfræðinganefndar ILO. Nokkrar umræður urðu um vinnubrögð nefndarinnar og tóku fulltrúar Norðurlandanna undir sjónarmið um að bæta þyrfti starfshætti hennar svo starfið yrði skipulegra, skilvirkara og gagnsærra. Til þess að ná þessum markmiðum töldu Norðurlöndin nauðsynlegt að endurskoða fundaáætlun með það í huga að draga úr almennum umræðum en leggja áherslu á einstök brýn málefni.
    Nefndin fjallaði um skýrslu sem tekin hafði verið saman af alþjóðavinnumálaskrifstofunni um framkvæmd tilmæla um stöðu kennara. Einnig var fjallað um framkvæmd samþykkta um næturvinnu kvenna.
    Umræður í nefndinni byggjast á skýrslu sérfræðinganefndar stofnunarinnar. Einnig er af og til gerð sérstök úttekt á framkvæmd tiltekinnar eða tiltekinna samþykkta. Að þessu sinni lá fyrir skýrsla vinnumálaskrifstofunnar og sérfræðinganefndarinnar byggð á skýrslum frá aðildarríkjunum er vörðuðu samþykktir nr. 4 frá árinu 1919, nr. 41 frá árinu 1931, nr. 89 frá árinu 1948, og bókun frá 1990 við samþykkt nr. 89.
    Nefndin vakti athygli á að ári áður hefðu orðið umtalsverðar framfarir í að fullgilda samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Fulltrúar 24 aðildarríkja komu fyrir nefndina til að gera grein fyrir afstöðu hlutaðeigandi ríkisstjórna vegna athugasemda við framkvæmd ákvæða stofnskrár ILO og samþykkta sem aðildarríkin hafa fullgilt. Frá Asíu voru það Indland, Íran, Japan, Burma, Pakistan, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Frá Afríku voru það Djíbútí, Eþíópía, Kenía, Súdan og Svasíland. Frá Suður-Ameríku voru það Chile, Kólumbía, Kostaríka, Gvatemala, Panama, Perú og Venesúela. Frá Evrópu voru það Hvíta- Rússland, Portúgal, Spánn, Tyrkland og Úkraína.
    Helst var misbrestur á framkvæmd er varðaði samþykkt nr. 29, um bann við nauðungarvinnu, samþykkt nr. 87, um félagafrelsi, og samþykkt nr. 98, um samningafrelsi, nr. 111, um jafnan rétt til vinnu og bann við misrétti, og nr. 95, um launavernd, og nr. 138, um lágmarksaldur til vinnu, ásamt öðrum samþykktum.
    Sérstök umfjöllun var um ítrekuð brot stjórnvalda í Burma á samþykkt nr. 29, um bann við nauðungarvinnu. Málefni ríkisstjórnar Burma hafa reglulega komið til umfjöllunar í ýmsum stofnunum ILO undanfarna tvo áratugi. Þrátt fyrir samþykktir og áskoranir um umbætur hafa þær látið á sér standa. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar lofa bót og betrun en efndir eru litlar sem engar.
    Á 88. þingi ILO árið 2000 var samþykkt ályktun sem grundvallast á 33. gr. stofnskrár ILO. Var það í fyrsta skipti sem því ákvæði var beitt en þar segir að ef ríki bregst því að fara eftir tilmælum sérstakrar rannsóknarnefndar geti stjórnarnefnd ILO mælt með þeim aðgerðum sem hún telur nauðsynlegar til að tryggja að ríkið fari eftir þeim.
    Því var ákveðið að senda nefnd háttsettra embættismanna til Burma til að rannsaka og safna gögnum um brot á samþykkt ILO um bann við nauðungarvinnu. Ríkisstjórn Burma var hvött til að trufla ekki framgang rannsóknarvinnu sendinefndarinnar með neinum hætti. Sendinefndinni skyldi tryggt fullt ferðafrelsi innan landsins og tryggður hindrunarlaus aðgangur að þeim einstaklingum sem þeir vildu kalla fyrir nefndina og einnig skyldi tryggja þeim einstaklingum fulla vernd. Niðurstaða fundarins var sú að forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf var falið að tilnefna fulltrúa í sendinefndina. Henni var falið að gefa stjórnarnefndinni skýrslu á fundi í nóvember 2001.

Nefnd um öryggi og hollustuhætti í landbúnaði.
    Fyrri umræða um öryggi og hollustuhætti í landbúnaði fór fram á 88. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og var málið tekið til annarrar umræðu á 89. þinginu. Drögum að samþykkt og tilmælum var dreift til aðildarríkja og þeim gefin kostur á að gera athugasemdir eftir samráð við samtök atvinnurekenda og launafólks.
    Þingnefndin hélt alls 19 fundi. Skýrslur alþjóðavinnumálaskrifstofunnar um öryggi og heilbrigði í landbúnaði voru lagðar til grundvallar umræðum í nefndinni. Í annarri er að finna drög að samþykkt og tilmælum um þetta efni. Hin hefur að geyma samantekt á athugasemdum aðildarríkjanna sem hafa verið hafðar til hliðsjónar við endurskoðun á drögum að samþykkt og tillögu.
    Í skýrslu alþjóðavinnumálaskrifstofunnar kemur fram að helmingur vinnuafls í heiminum starfaði við landbúnað árið 2001 en það voru um 1,3 milljarðar manna. Landbúnaður telst ein af þremur hættulegustu atvinnugreinum heims, ásamt námavinnslu og byggingariðnaði. Því var ákveðið á þinginu 1998 að málið skyldi tekið fyrir á þinginu 2000. Um áramótin 1998–1999 voru spurningalistar sendir aðildarríkjum um vandamál, lagasetningu og aðgerðir til að tryggja heilbrigði og öryggi í landbúnaði. Svör bárust frá 85 ríkjum og voru þau lögð til grundvallar þeim tillögum sem síðan voru mótaðar á vinnumálaþinginu árið 2000. Drög að samþykkt og tilmælum voru send aðildarríkjunum til umsagnar sama haust. Endurskoðuð drög voru síðan gefin út í sérstakri skýrslu.
    Samkomulag varð um að aðildarríkjum væri skylt að gæta þess að vinnutími, næturvinna og hvíldartími launafólks í landbúnaði væri í samræmi við landslög og kjarasamninga, auk þess sem launafólk skyldi hafa a.m.k. sömu tryggingar og launafólk í öðrum atvinnugreinum. Ekki tókst samkomulag um sérstakt ákvæði um konur sem starfa við landbúnað. Hins vegar var bætt við tilvísun til sérstakra þarfa starfsmanna vegna meðgöngu og umönnunar barna. Einnig voru samþykktar tillögur um að leiðbeiningar og upplýsingar um notkun landbúnaðarvéla ættu að vera á einhverju opinberu tungumáli viðkomandi ríkis, sen og reglur um meðhöndlun efna og kröfur er gera ætti til útflytjenda áburðar og efna til notkunar í landbúnaði.
    Ákveðið var að hvert ríki setti lög um að atvinnurekendur og einyrkjar á sama vinnusvæði í landbúnaði yrðu að hafa samvinnu um að tryggja öryggi og hollustuhætti. Að tillögu launafólks var einnig samþykktur texti um að atvinnurekendum bæri að hætta þegar í stað heilsuspillandi starfsemi.
    Samþykktin er birt í heild í fylgiskjali I.
    Samkvæmt tilmælunum ber aðildarríkjunum til dæmis að stofnsetja kerfi á landsvísu til að hafa eftirlit með öryggi og hollustuháttum í atvinnulífinu. Kerfið á að taka yfir bæði eftirlit með heilsu launafólks og aðstæðum í vinnuumhverfi þeirra. Yfirvöld eiga að stuðla að því að fólk sem vinnur við landbúnað fái eigin öryggis- og heilsuþjónustu og koma á fót kerfi fyrir skráningu og aðvaranir um vinnuskaða og vinnutengda sjúkdóma. Stjórnvaldsaðgerðir eiga jafnframt að stuðla að því að efla öryggi og hollustuhætti í landbúnaði með námi og þjálfun til að mæta þörfum allra þeirra sem vinna í þessari atvinnugrein.
    Tilmælin eru birt í fylgiskjali II.

Efling samvinnufélaga.
    Ákveðið var að taka tilmæli nr. 127, um hlutverk samvinnufélaga, til endurskoðunar á 89. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Skilningur á þeim stjórnmálalegu og félagslegu breytingum sem hafa haft áhrif á samvinnufélagsformið um heim allan síðan tilmælin voru sett árið 1966 lá til grundvallar hugmyndinni um endurskoðun. Þar sem samvinnufélög hafa nýju hlutverki að gegna, bæði í iðnríkjum og fyrrverandi kommúnistaríkjum, endurspegla gömlu tilmælin nr. 127 þann þróunarvanda sjöunda áratugarins er tengist landbúnaði í þróunarlöndunum. Stjórnarnefndin álítur samvinnuformið halda gildi sínu þrátt fyrir áhrif alþjóðavæðingar efnahagslífsins á vinnuskilyrði í heiminum og henta öllum þjóðfélagsgerðum, þar sem það kunni að skapa möguleika til sjálfshjálpar, ýta undir aukna samvinnu, vera atvinnuskapandi, hindra félagslega einangrun og vera tæki til að keppa á alheimsvinnumarkaði.
    Nefndarstarfið fólst í fyrri umræðu um drög að tilmælum til að efla samvinnufélagsformið. Seinni umræða og afgreiðsla var á þingi ILO 2002. Nefndin hélt 14 fundi Til grundvallar umræðunni lágu frammi tvær skýrslur sem höfðu verið teknar saman af alþjóðavinnumálaskrifstofunni í Genf. Í fyrri skýrslunni er samantekt á lögum, reglugerðum og stjórnvaldsreglum sem í gildi eru um samvinnufélög. Seinni skýrslan er samantekt á svörum aðildarríkjanna við spurningaskrá ILO um stöðu samvinnufélaga í hlutaðeigandi aðildarríki. Samtals bárust svör frá 99 aðildarríkjum við spurningaskránni. Í henni voru spurningar um form, markmið og skilgreiningu, hlutverk ríkisstjórnar, atvinnurekenda og launafólks og samband þeirra innbyrðis. Einnig var fjallað um hinn stjórnmálalega ramma og þær ráðstafanir sem gera þarf til að efla samvinnufélög og alþjóðlegt samstarf.

Félagslegt öryggi og velferð.
    Árið 1999 ákvað stjórnarnefnd ILO að vinnumálaþingið skyldi hrinda af stað umræðu um félagslegt öryggi til grundvallar stefnu ILO á þessu sviði. Ástæður eru hraðar efnahagslegar, tæknilegar og lýðfræðilegar breytingar, sem og afleiðingar alnæmis. Stjórnarnefnd ILO sá fyrir að í framtíðinni gæti verið kjörið að þróa ný tæki og úrræði til að fást við þessi mál eða í það minnsta betrumbæta og endurskoða þau gömlu.
    Meginmarkmið starfs nefndar um félagslegt öryggi og velferð var að móta framtíðarstefnu ILO. Skrifstofa ILO hafði unnið skýrsluna „Social Security: Issues, Challenges and Prospects“ (skýrsla VI) sem var grundvöllur nefndarstarfsins.
    Vinnuhópur var settur á laggirnar og voru frumdrög hans lögð fyrir síðasta nefndarfund en niðurstöður nefndarinnar koma fram í 21 atriði skýrslunnar sem samþykkt var á allsherjarfundi þingsins.

90. ALÞJÓÐAVINNUMÁLAÞINGIÐ 2002


    90. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar var haldið í Genf dagana 3.–20. júní 2002. Forseti þingsins var kosinn Jean-Jacques Elmiger, ríkisstjórnarfulltrúi og sendiherra Sviss en varaforsetar voru kosnir Hussain vinnumálaráðherra frá Pakistan, Arbesser-Rastburg úr hópi atvinnurekenda frá Austurríki og Rampak frá Malasíu úr hópi launafólks.
    Sendinefnd Íslands skipuðu eftirtaldir: Frá félagsmálaráðuneyti: Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir lögfræðingur og Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Frá utanríkisráðuneyti: Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og Ingibjörg Davíðsdóttir sendiráðsritari. Fulltrúi atvinnurekenda: Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Varamaður hennar var Jón H. Magnússon, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúi launafólks: Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands. Varamaður hans var Kristján Bragason, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Islands.
    Dagskrá:
     1.      Skýrslur forstjóra og stjórnarnefndar, og yfirlitsskýrsla um framvindu efnahags- og vinnumála í heiminum.
     2.      Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
     3.      Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tillagna.
     4.      Efling samvinnufélaga. Seinni umræða og afgreiðsla tilmæla.
     5.      Vinnuslys og atvinnusjúkdómar.
     6.      Óformlega hagkerfið. Almenn umræða.
     7.      Afnám 20 tilmæla.
    Sérstakir heiðursgestir þingsins voru forsætisráðherra Malasíu, Dr. Mahathir Bin Mohamad og forsætisráðherra Barbados, Owen Arthur, sem tóku þátt í umræðum um afleiðingar hnattvæðingar á allsherjarfundi þingsins.
    Kosin var ný stjórnarnefnd Alþjóðavinnumálastofnunarinnar fyrir tímabilið frá júní 2002 til júní 2005.

Skýrsla framkvæmdastjóra og stjórnarnefndar og yfirlitsskýrsla.
    Fyrir þingið var lögð ítarleg skýrsla forstjóra ILO, Juan Somavia, um áhrif hernaðar og hermdarverka á efnahag einstaklinga og fyrirtækja, heilsugæslu, menntun og fleira í Palestínu og Ísrael. Forstjórinn lagði til að ILO beitti sér fyrir því að stofnaður yrði sjóður til að bæta atvinnuástandið hjá Palestínumönnum. Sjóðurinn skyldi nefnast Hinn Palestínski sjóður fyrir atvinnu og félagslega vernd og skyldi styrktur með rekstrarafgangi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Hann hvatti ríkisstjórnir aðildarríkjanna einnig til að leggja fé í sjóðinn.
    Atvinnuástandið í Palestínu var einnig rætt í hópi fulltrúa launafólks á þinginu sem fékk hóp atvinnurekenda í lið með sér um ályktun sem fól í sér að ILO ætti með virkum hætti að leggja sitt af mörkum til atvinnumála, félagslegs öryggis og félagslegra viðræðna á þessu svæði. Hópar verkafólks og atvinnurekenda hvöttu til að:
     –      stofnunin gripi til ráðstafana og styrkti enn frekar tímabundin verkefni og tæknilega samvinnu;
     –      aðildarríki ILO létu af hendi rakna verulegar fjárhæðir til þess að koma á fót palestínskum sjóði til atvinnuþróunar og félagslegs öryggis;
     –      forstjóri ILO léti verulega fjármuni frá stofnuninni til þess sjóðs og notaði þannig þann rekstrarafgang sem væri til ráðstöfunar.
    Árið 1998 samþykkti ILO að leggja áherslu á grundvallarréttindi í atvinnulífinu þar sem gerð yrði úttekt á ákveðnu efni í aðildarríkjunum og um það gerð yfirlitsskýrsla. Skýrslan fyrir árið 2002 bar heitið „Framtíð án barnavinnu“. Var um það almenn sátt að baráttan gegn barnaþrælkun skyldi hafa algeran forgang á komandi árum. Á þinginu var því ákveðið að einn dagur á ári, 12. júní, skyldi helgaður þessu baráttumáli um heim allan og skyldi hann bera heitið „dagur án barnavinnu“ til að hvetja aðila vinnumarkaðarins til að virða grundvallarsamþykkt ILO nr. 182, um barnavinnu í sinni verstu mynd, og nr. 138, um lágmarksaldur á vinnumarkaði, svo og áætlun ILO um afnám barnavinnu.

Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla.
    Undanfarin ár hafa nokkur ríki ítrekað verið gagnrýnd fyrir slælega framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla. Árið 2001 var ákveðið að senda nefnd háttsettra embættismanna ILO til Burma til að þrýsta á stjórnvöld, sérstaklega þó herinn, til að láta af ítrekuðum brotum á samþykkt um nauðungarvinnu.
    Nefndin ræddi einnig tilfelli í 24 ríkjum þar sem einhverju var ábótavant en beindi kastljósinu sérstaklega að þremur ríkjum: Súdan, Eþíópíu og Venesúela. Súdan var gagnrýnt fyrir brot á samþykkt nr. 29 frá 1930, um nauðungarvinnu, og lýstu menn áhyggjum af mannránum, nauðungarvinnu og verslun með konur og börn, ekki aðeins á stríðshrjáðum svæðum í suðurhluta landsins heldur einnig á yfirráðasvæði stjórnvalda.
    Í tilfelli Eþíópíu var rætt um brot á samþykkt nr. 87, um félagafrelsi. Nefndin fagnaði þó því að ríkisstjórn landsins þáði umtalsverða tæknilega aðstoð ILO við að bæta úr málum. Nefndin lagði á það áherslu að réttur kennara til að stofna stéttarfélög yrði virtur bæði lagalega og í framkvæmd.
    Varðandi Venesúela var félagafrelsi sömuleiðis rætt. Nefndin skoðaði ásakanir um ofbeldisverk framin af stjórnvöldum eða sem þau eru talin standa á bak við sem borist höfðu frá samtökum verkalýðs- og atvinnurekenda. Ríkisstjórn og þing Venesúela lýstu sig þó reiðubúin að lagfæra löggjöf til að gera úrbætur mögulegri. Nefndin krafði stjórnina um ítarlega skýrslu sem skyldi m.a. innihalda öll drög að frumvörpum laga og reglugerðardrög til að bæta ástandið svo sérfræðinganefndin gæti skoðað þau aftur á næsta fundi.

Efling samvinnufélaga.
    Ný tilmæli um eflingu samvinnufélaga voru afgreidd á þinginu. Þau leysa af hólmi eldri tilmæli nr. 127 frá 1966 um „hlutverk samvinnufélaga í efnahags- og félagsþróun þróunarlanda“. Þau tilmæli voru samin með sértækar þarfir þróunarlandanna í huga en hin nýju eru byggð á algildum viðmiðum sem eiga við öll þjóðfélög. Ibrahim Patel frá Suður-Afríku, formaður nefndarinnar, sagði: „Tilmælin eru algild í þrennum skilningi: þau eiga við öll þjóðfélög, þau eiga við öll samvinnufélög og þau eiga við alla sem vinna í samvinnufélögum.“ Formaðurinn taldi að þar sem efnahagsleg landamæri væru nánast horfin með tilkomu hnattvæðingarinnar, þá endurspegluðu tilmælin þann raunveruleika sem kallaði á aukna alþjóðlega samvinnu og á hnattvæðingu hugmyndarinnar um samvinnu.
    Tilmælin um eflingu samvinnufélaga er birt í heild í fylgiskjali III.

Vinnuslys og atvinnusjúkdómar.
    Á sviði heilsu- og öryggismála afgreiddi þingið bókun við samþykkt nr. 155 frá 1981, um vinnuöryggi og heilsuvernd, og tilmæli þar sem 22 ára gamall listi um atvinnusjúkdóma var uppfærður.
    Í bókuninni eru aðildarríkin beðin um að koma á fót og/eða endurskoða kerfi viðmiðunarreglna um tilkynningu og skráningu vinnuslysa og atvinnusjúkdóma. Aðildarríkin skulu einnig ákvarða ábyrgð atvinnurekenda og skráningu upplýsinga, auk þess sem þau eru hvött til að gefa út árlega tölulegar upplýsingar um flokkunarkerfi sem eru sambærileg við nýjustu viðmiðanir ILO og annarra alþjóðasamtaka.
    Í tilmælunum er mælst til að aðildarríkin semji skrá yfir atvinnusjúkdóma til að stemma stigu við þeim, annist skráningu þeirra, tilkynni þegar þeir koma fram og sjái til þess að þolendum séu tryggðar bætur. Þessi nýja skrá er endurskoðun á eldri skrá fyrir atvinnusjúkdóma sem ekki hafði verið endurskoðaðuð frá árinu 1980. Gert er ráð fyrir að skráin í viðauka við tilmælin verði reglulega endurskoðuð á þríhliða fundum sérfræðinga og síðan lögð fyrir fund stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til samþykktar.

Óformlega hagkerfið.
    Á þinginu var kosin nefnd til að ræða almennt um óformlega hagkerfið. Þetta er fyrsta skiptið sem þetta efni er sett á dagskrá þingsins. Áður hafði verið minnst á þetta efni í skýrslu forstjóra ILO til þingsins 1991 undir heitinu „The Dilemma of the Informal Sector“. Í skýrslu sem unnin var fyrir þetta þing kemur fram að flestir fara inn í óformlega hagkerfið af neyð en ekki að eigin vali. Einnig er talið að hvergi tíðkist eins mikil brot á kröfunni um „mannsæmandi vinnu“ eins og þar. Flest launafólk í þessum hluta hagkerfisins hefur litla sem enga félagslega vernd og öryggi og er talið að léleg hagstjórn ríkisstjórna eigi stærstan þátt í að óformlega hagkerfið blómstri. Talið er að helmingur til þrír fjórðu verkafólks vinni svart í þróunarríkjunum: um þrír fjórðu í Afríkuríkjum sunnan Sahara og tveir þriðju í Asíu, helmingur alls verkafólks í rómönsku Ameríku og Norður-Afríku. Í vestrænum iðnríkjum er þetta sömuleiðis algengt vandamál samkvæmt skýrslunni. Í 15 ríkjum Evrópusambandsins er um þriðjungur vinnandi fólks starfandi utan hins löglega vinnumarkaðar. Í Bandaríkjunum er einn af hverjum fjórum í þessari stöðu.
    Á þessu þingi var leitast við að nálgast fyrirbærið með það í huga að það geti átt við mismunandi aðstæður, haft ólíkar orsakir og þar af leiðandi kallað á mismunandi lausnir. Í niðurstöðu þingsins var talið brýnt að hafa þetta í huga í framtíðarstarfi ILO varðandi þetta mál. Einnig var þess krafist að þríhliða samstarf yrði notað til að fjalla um og bæta úr skorti á mannsæmandi vinnu í óformlega hagkerfinu. Verkalýðsmálaskrifstofa ILO og atvinnurekendaskrifstofa ILO skyldu vinna saman að allri áætlanagerð og framkvæmd á þessu sviði í framtíðinni.

Þingsályktanir.
    Tillögur að nokkrum ályktunum lágu fyrir við upphaf þingsins, en einungis eina þeirra tókst að afgreiða. Það var ályktun um þríhliða samstarf og kjarasamninga. Efni ályktunarinnar segir til um mikilvægi þríhliða samstarfs aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda bæði innan ILO og heima fyrir. Þar er einnig lögð áhersla á að ríkisstjórnir tryggi nauðsynleg skilyrði til að auðvelda kjarasamninga, félagafrelsi og samvinnu þessara aðila. Aðilar vinnumarkaðarins skulu einnig reyna að ná til starfsgreina þar sem vitað er að þetta samstarf er ekki virkt og aðstoða menn við að gera þetta þríhliða samstarf virkt.

91. ALÞJÓÐAVINNUMÁLAÞINGIÐ 2003


    91. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Genf var haldið dagana 1.–20. júní 2003. Alls tóku 3.498 fulltrúar, ráðgjafar og áheyrnarfulltrúar þátt í störfum þingsins frá 158 af 177 aðildarríkjum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
    Forseti þingsins var kosinn Michael Christopher Wamalwa, varaforseti Kenía, en varaforsetar voru kosnir Muzahem Al Muhaisin, vinnumálaráðherra frá Jórdaníu, Bryan Noakes frá Ástralíu úr hópi atvinnurekenda og úr röðum launafólks Tomasz Wojcik frá Póllandi.
    Sendinefnd Íslands skipuðu eftirtaldir: Frá félagsmálaráðuneyti: Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir lögfræðingur. Frá utanríkisráðuneyti: Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, Ingibjörg Davíðsdóttir sendiráðsritari, Ásthildur Knutsen ráðgjafi og Hildur Björnsdóttir Vernusdóttir sem var í starfsþjálfun í fastanefnd Íslands í Genf. Fulltrúi atvinnurekenda: Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Varamenn hennar voru Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Jón H. Magnússon, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúi launafólks: Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands. Varamaður hans var Ásdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins Öldunnar.
    Dagskrá þingsins:
     1.      Skýrslur framkvæmdastjóra, stjórnarnefndar og yfirlitsskýrsla.
     2.      Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
     3.      Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tillagna.
     4.      Mannauður og þróun. Endurskoðun tilmæla nr. 150 frá 1975 um þróun mannauðs. Fyrri umræða.
     5.      Ráðningarsamband atvinnurekanda og launamanns. Almenn umræða.
     6.      Aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustöðum. Almenn umræða
     7.      Persónuskilríki sjófarenda.
    Sérstakir heiðurgestir ávörpuðu þingið en það voru Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, og Abdullah II bin al-Hussein Jórdaníukonungur. Á sérstökum fundi um barnavinnu 12. júní, fyrsta alþjóðlega daginn gegn barnavinnu, hélt Raina drotting Jórdaníu ræðu þar sem hún skoraði á ríki heimsins að bindast samtökum gegn verslun með börn. Talið er að um 1,2 milljónir barna gangi kaupum og sölum ár hvert.

Skýrsla framkvæmdastjóra og yfirlitsskýrsla.
    Að venju voru umræður um þessar skýrslur á allsherjarfundi þingsins. Skýrsla Juans Somavia, forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf, var helguð baráttunni við fátækt en um þrír milljarðar manna lifa á tveimur bandaríkjadölum á dag eða minna. Um 300 fulltrúar sem tóku til máls um efni skýrslunnar. Í viðauka skýrslunnar var fjallað um ástandið á hernumdu svæðunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Sérstakur fundur var haldinn til að ræða hlutskipti launafólks á svæðinu, nauðsyn þess að styrkja þríhliða viðræður í baráttunni við fátækt og fyrir friði á þessum slóðum svo og um nýstofnaðan sjóð fyrir palestínska verkamenn. Yfirlitsskýrslan var um jafnréttismál og félagslega mismunun á vinnumarkaði. Umræður um skýrsluna endurspegluðu þá þörf að bæta lagasetningu til að draga úr mismunun þar sem enn væri langt í land að ná jafnréttismarkmiðum fyrir konur og ýmsa minnihlutahópa.

Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla.
    Þingnefnd um framkvæmd alþjóðasamþykkta fjallaði um málefni 25 ríkja að þessu sinni. Hún beindi spjótum sínum sérstaklega að Hvíta-Rússlandi og Burma. Nefndin átaldi bæði ríkin fyrir að virða ekki samþykkt nr. 87 frá 1948, um félagafrelsi. Fjallað var um alvarlegt ástand í Burma á sérstökum fundi. Gefin var skýrsla um framvinduna frá því að málefni ríksins komu til sérstakrar umfjöllunar á fundi stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í desember 2002. Ástandið þykir það alvarlegt að það var sett á dagskrá allsherjarfundar þingsins sem er fátítt. Umræður á allsherjarfundinum hófust á því að forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skoraði á ríkisstjórn Burma að sleppa baráttukonunni Aung San Suu Kyi og stuðningsmönnum hennar úr fangelsi og tryggja fullt öryggi þeirra, svo og að hefja samvinnu við ILO um afnám nauðungarvinnu í landinu.
    Þingnefndin skoraði einnig á ríkisstjórn Kólumbíu að tryggja öryggi launafólks í landinu. Mörg undanfarin ár hafa verið stunduð mannrán á forystumönnum samtaka launafólks þar í landi, þeim hótað lífláti og þeir jafnvel myrtir. Hópur fulltrúa atvinnurekenda og nokkurra ríkja í þingnefndinni sá ástæðu til að taka upp hanskann fyrir ríkisstjórn Kólumbíu og leggjast gegn tillögu um sérstakar aðgerðir ILO gagnvart landinu. Ríkisstjórnir Íslands og hinna ríkjanna á Norðurlöndum lýstu yfir fullum stuðningi við réttindabaráttu launafólks í Kólumbíu og greiddu atkvæði með tillögunni um aðgerðir af hálfu ILO.
    Í skýrslunni nefndarinnar er lýst yfir áhyggjum af ástandinu í Kamerún, Líbíu, Máritaníu og Simbabve, m.a. vegna brota á reglum um félaga- og samningafrelsi, félagslegt öryggi og bann við nauðungarvinnu. Jafnframt vakti nefndin athygli á viðvarandi vanda í mörgum ríkjum þar sem lögverndaður réttur launafólks er ekki virtur og það tapar ítrekað launum vegna gjaldþrota fyrirtækja.

Nefnd um mannauð.
    Á þinginu fór fram fyrri umræða um endurskoðun tilmæla um mannauð. Endurskoðuðum tilmælum er ætlað að leysa af hólmi eldri tilmæli ILO nr. 150 frá 1975 um þróun mannauðs. Hugmyndin að baki endurskoðun tilmælanna er sú að menntun og þjálfun séu lykilatriði í baráttunni gegn fátækt og stuðli að hagsæld þjóðfélaga. Í skýrslu forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar kom m.a. fram að menntunar- og þjálfunarmál í mörgum ríkjum séu í algjörum ólestri, en yfir 860 milljónir manna í heiminum eru ólæsar og óskrifandi – stór hluti er konur.
    Í starfi nefndarinnar var m.a fjallað um skýrsluna „Nám og þjálfun fyrir vinnu í þekkingarsamfélaginu“, en í henni er að finna niðurstöður könnunar sem gerð var meðal aðildarríkjanna um afstöðu þeirra til ýmissa lykilatriða varðandi þetta málefni. Fyrri umræðan lagði línur fyrir þau grundvallarsjónarmið og viðmið sem verða leiðbeinandi fyrir ríki til að efla þjálfun og færni eftir efnahags- og félagslegum þörfum á hverjum stað. Til stuðnings starfi nefndarinnar hefur skrifstofa ILO þróað geisladisk með bakgrunnsskýrslum og yfir 500 dæmum um frumkvæði nokkurra ríkja sem nota má sem fyrirmynd að þjálfunaráætlunum. Ákveðið var að diskurinn yrði endurskoðaður og notaður við samningu nýrra tilmæla um þetta efni sem verði afgreidd á næsta Alþjóðavinnumálaþingi.

Nefnd um ráðningarsamband.
    Stofnuð var nefnd til að fjalla um breytingar sem hafa átt sér stað varðandi ráðningarsamband atvinnurekanda og launamanns. Í nefndinni var fjallað um miklar breytingar á þessu sviði, einkum á allra síðustu árum, m.a. með tilkomu svonefndra starfsmannaleiga. Töluverður tími fór í að skilgreina hvað fælist í hugtakinu „ráðningarsamband“ og greina á milli þess og „viðskiptasambands“.
    Með einkavæðingu og aukinni alþjóðavæðingu er talið að víða hafi réttindi launafólks orðið ótryggari en áður, m.a. vegna svonefndrar einstaklingsverktöku og fjarvinnslu. Var ákveðið á þessum fundi að stefnt skyldi að setningu tilmæla á þessu sviði. Tilmælin skyldu beinast að „gerviráðningarsambandi“ atvinnurekanda og launamanns og miða að því að skýra réttarstöðu launamanns gagnvart atvinnurekanda. Enn fremur skyldi vinna að framgangi slíkra umbóta í aðildarríkjunum. Þingnefndin lagði áherslu á að hin nýju tilmæli mættu ekki grafa undan reglum um raunverulega verktöku eða viðskiptasamband.

Nefnd um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum.
    Í þingnefnd um vinnuvernd náðist samkomulag um að vinna að smíði á nýrri alþjóðlegri áætlun á sviði aðbúnaðar og hollustuhátta í atvinnulífinu í því skyni að draga úr fjölda banaslysa, annarra slysa og vinnusjúdóma. Talið er að tvær milljónir manna láti lífið á ári hverju úr vinnutengdum sjúkdómum og þar af eru 354 þúsund banaslys. Við þetta bætast 270 milljónir annarra vinnuslysa og 160 milljónir atvinnusjúkdóma ár hvert.
    Áætluninni verður hrundið í framkvæmd með upplýsingaherferð til að vekja fólk til meðvitundar um gildi fyrirbyggjandi aðgerða sem miði að því að gera vinnustaði heilsusamlegri og öruggari. Í áætluninni verði hlutverk hvers aðila um sig skilgreint, þ.e. stjórnvalda og samtaka atvinnurekenda og launafólk. Haldið verður áfram umræðum um þetta málefni á Alþjóðavinnumálaþinginu árið 2005.

Nefnd um persónuskírteini sjómanna.
    Ný samþykkt var afgreidd, nr. 185, um persónuskírteini sjómanna. Hún kemur í stað samþykktar ILO nr. 108 frá árinu 1958 um sama málefni. Nýja samþykktin gerir meiri kröfur en áður voru gerðar. Henni er ætlað að tryggja farmönnum nauðsynlegt ferðafrelsi og útgerðum athafnafrelsi á tímum hryðjuverka og ýmissa ferðahindrana. Í samþykktinni eru settar fram meginreglur sem ber að fylgja við gerð og veitingu sjómannaskírteina. Ítarlegar tæknilegar útfærslur eru í viðaukum við samþykktina. Í samþykktinni eru sértök ákvæði sem heimila breytingar á henni með tiltölulega einföldum hætti. Á þann hátt verður í framtíðinni hægt að laga hana að breyttum kröfum og nýrri tækni. Helsta nýmæli þessarar samþykktar er að nýju persónuskírteinin munu geyma fingrafar og lífsýni eiganda. Gert er ráð fyrir að komið verði upp gagnagrunni sem aðildarríkin fái aðgang að, sérstökum tækjabúnaði til þess að lesa skírteinin o.fl., til þess að tryggja að farmenn geti farið frá borði hvar í veröldinni sem er án sérstaks landvistarleyfis og jafnframt að þeim sé heimilt að koma til og ferðast hindrunarlaust um lönd við áhafnaskipti. Allir fulltrúar Íslands, þ.e. frá ríkisstjórn, samtökum atvinnurekenda og launafólks, greiddu samþykktinni atkvæði sitt.
    Samþykktin er birt með skýrslu þessari sem fylgiskjal V.

92. ALÞJÓÐAVINNUMÁLAÞINGIÐ 2004


    92. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar var haldið í Genf dagana 1.–17. júní 2004. Að þessu sinni tóku yfir 3000 fulltrúar frá 177 aðildarríkjum þátt í starfi þingsins.
    Ray Guevara, vinnumálaráðherra frá Dóminíska lýðveldinu var kosinn forseti þingsins en varaforsetar voru kosnir Maatough, ríkisstjórnarfulltrúi frá Líbíu, Wade, fulltrúi atvinnurekenda frá Senegal, og Attigbe frá Benín úr hópi launafólks.
    Sendinefnd Íslands skipuðu eftirtaldir: Frá félagsmálaráðuneyti: Gylfi Kristinsson skrifstofustjóri og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir lögfræðingur. Frá utanríkisráðuneyti: Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og Ingibjörg Davíðsdóttir sendiráðunautur. Frá samgönguráðuneyti: Hlynur Skúli Auðunsson, lögfræðingur Siglingamálastofnunar. Frá sjávarútvegsráðuneytinu: Vilhjálmur Egilsson ráðuneytisstjóri. Fulltrúi atvinnurekenda: Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Varamaður hennar var Jón H. Magnússon, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúi launafólks: Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands. Varamenn hans voru Pálmi Finnbogason, skrifstofustjóri Starfsgreinasambands Íslands, og Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, og Ólöf Lilja Stefánsdóttir, ráðgjafi Alþýðusambands Íslands.
    Dagskrá þingsins:
     1.      Skýrslur forstjóra og stjórnarnefndar, og yfirlitsskýrsla.
     2.      Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
     3.      Framkvæmd alþjóðasamþykkta og tillagna.
     4.      Þróun mannauðs.
     5.      Vinnuskilyrði fiskimanna.
     6.      Flutningur launafólks í atvinnuskyni.
     7.      Afnám 16 tilmæla.
     8.      Ályktanir.
     9.      Kjörbréf.
    José Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, var sérstakur heiðursgestur á þinginu en auk hans sátu þingið eða hluta þess þjóðhöfðingjar nokkurra ríkja, t.d. Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Benjamin William Mkapa, forseti Tansaníu, Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu, og Helen Clark, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.

Skýrsla framkvæmdastjóra og yfirlitsskýrsla.
    Félagslegar afleiðingar alþjóðavæðingar voru í fyrsta sinn aðalumræðuefni á þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Tilefnið var skýrsla sem birt var 24. febrúar 2004 í Genf og ber heitið „Sanngjörn alþjóðavæðing – að skapa öllum tækifæri“. Skýrslan var samin af nefnd á vegum stofnunarinnar sem naut formennsku Tarju Halonen, forseta Finnlands, og Benjamin William Mkapa, forseta Tansaníu. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að því að mæta vaxandi gagnrýni á þá misskiptingu auðs og lífskjara sem alþjóðavæðing efnahagslífsins hefur skapað. Markmiðið er að beina alþjóðavæðingunni í þann farveg að afraksturinn verði ekki eingöngu fjárhagslegur ávinningur alþjóðafyrirtækja heldur leiði hún jafnframt af sér félagslegar umbætur sem byggist á sameiginlegu gildismati, virðingu fyrir mannréttindum og persónulegri reisn sérhvers einstaklings, menningararfi og sjálfræði. Alþjóðavæðingin verði sanngjörn, taki til allra, lúti lýðræðislegri stjórn og skapi tækifæri og sé áþreifanlegan til hagsbóta fyrir öll ríki og þegna þeirra. Í skýrslunni er að finna fjölmargar tillögur sem beinast að þeim sem hafa mest áhrif á sviði efnahags- og félagsmála í heiminum, m.a. tillögur sem beint er til hlutaðeigandi aðila, t.d. staðbundinna stjórnvalda, héraðsstjórna og ríkisstjórna. Réttlát stjórnskipan og sanngjörn stjórnsýsla sem byggð er á lýðræðislegum stjórnarháttum eru þættir sem sérstaklega eru dregnir fram. Áhersla er lögð á að við hvers kyns stefnumótun sé höfð hliðsjón af tillögum sem settar eru fram í skýrslunni.
    Nokkrir þjóðhöfðingjar tóku þátt í umræðunni um skýrsluna. Í þeim hópi voru Tarja Halonen, Finnlandsforseti, og Benjamin William Mkapa, forseti Tansaníu. Halonen greindi frá því að löndin tvö hygðust fylgja skýrslunni eftir, líklega með því að leggja fram sérstaka ályktun á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna haustið 2004.
    Almenn samstaða var um að taka þyrfti á félagslegum afleiðingum alþjóðavæðingar, bæði innan ríkja og með alþjóðlegri samvinnu. Sérstaklega var á það bent að ILO ætti að gegna lykilhlutverki og var forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf, Juan Somavia, falið að leita eftir nánara samstarfi við aðrar alþjóðastofnanir og Sameinuðu þjóðirnar um framkvæmd á tillögum skýrslunnar.
    Í umræðum á allsherjarfundi þingsins var einnig fjallað um yfirlitsskýrslu forstjóra um félagslegt réttlæti.

Fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
    Einungis ríkisstjórnarfulltrúar sitja í fjárhagsnefnd. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um drög að fjárhagsáætlun Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem gerð er til tveggja ára í senn og fylgjast með því hvernig áætluninni er fylgt. Í nefndinni verða oft mikil átök á milli einstakra hópa aðildarríkjanna. Oft eru t.d. skipar skoðanir á milli fulltrúa iðnríkja og þróunarríkja. Þeir síðarnefndu vilja aukin umsvif einkum á sviði þróunaraðstoðar, en hinir síðarnefndu vilja fylgja aðhaldssamari stefnu í fjármálum stofnunarinnar. Að þessu sinni var tiltölulega friðsamt í nefndinni. Meginviðfangsefni hennar var að fjalla um hlutfallslega skiptingu kostnaðar á milli aðildarríkjanna. Samkomulag tókst um að nota sem fyrirmynd nýsamþykkta kostnaðarskiptingu á rekstrargjöldum Sameinuðu þjóðanna.

Þingnefnd um framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla.
    Ein af fastanefndum Alþjóðavinnumálaþingsins fjallar um framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla. Starf nefndarinnar hefur mótast í tímans rás og var með hefðbundnu sniði á þinginu. Nefndarstarfið hefst með almennum umræðum um inngangshluta skýrslu sérfræðinganefndar ILO til vinnumálaþingsins um framkvæmd alþjóðasamþykkta. Oftast fylgir almennum umræðum umfjöllun um skýrslu um framkvæmd á einhverri tiltekinni eða tilteknum alþjóðasamþykktum. Meginstarf nefndarinnar snýst hins vegar fyrst og fremst um að ræða framkvæmd einstakra aðildarríkja á fullgiltum alþjóðasamþykktum. Fulltrúar atvinnurekenda og launafólks koma sér saman um skrá yfir um 25 slík mál sem valin eru úr skýrslu sérfræðinganefndarinnar. Reynslan hefur leitt í ljós að takmarkaður tími leyfir ekki umræðu um fleiri mál. Af þessu leiða oft átök um þau mál sem sett eru á framangreinda skrá. Þau átök eiga sér stað bæði innan hópa samtaka atvinnurekenda og launafólks og á milli þeirra. Í þeim deilum standa fulltrúar ríkisstjórna til hliðar og bíða þess sem verða má.
    Á síðustu árum hefur orðið sú þróun að fulltrúar ríkisstjórna freisti þess að samræma sjónarmið sín og eru þau kynnt í ræðu sem einn fulltrúi flytur í nafni nokkurra ríkja. Þetta er gert í því augnamiði að vinna tíma. Þannig sameinast fulltrúar norrænu ríkisstjórnanna yfirleitt um eina ræðu um hvert mál. Einnig kemur fyrir að fleiri ríki taka sig saman, þannig kemur fyrir að flutt sé ræða í nafni 27 vestrænna ríkja með markaðshagkerfi.
    Miklar breytingar hafa orðið á starfi nefndarinnar. Fyrir fall Berlínarmúrsins voru átök austurs og vesturs áberandi. Hart var deilt um muninn á sósíalískum lýðréttindum og félagafrelsi og þeim skilningi sem Vesturlandabúar hafa lagt í frelsi og lýðræði. Þessar deilur voru einkum harðar og tímafrekar þegar nefndin fjallaði um framkvæmd alþjóðasamþykkta um félagafrelsi og samningafrelsi í ríkjum sem byggðust á kennisetningum sósíalismans. Enn má heyra bergmál af þessum deilum þegar nefndin fjallar um framkvæmd ríkisstjórnar Kúbu á ýmsum grundvallarsamþykktum ILO.
    Á síðustu árum hefur borið á vaxandi spennu milli fulltrúa norðlægra og suðlægra ríkja. Að þessu sinni brá svo við að 18 ríki, aðallega þróunarlönd, kvörtuðu undan því að nefndin væri hlutdræg því að gagnrýni hennar beindist einkum að fátækum löndum. Mörg þessara ríkja hafa ítrekað verið gagnrýnd fyrir alvarleg brot á grundvallarsamþykktum ILO. Áberandi í þessum hópi eru Alsír, Hvíta-Rússland, Búrúndí, Kína, Kúba, Egyptaland, Eþíópía, Indland, Indónesía, Líbía, Malasía, Burma, Pakistan, Sýrland, Súdan, Venesúela, Víetnam og Simbabve.
    Ekki hlaut gagnrýni þessara ríkja undirtektir af hálfu fulltrúa atvinnurekenda, launafólks eða iðnríkja.
     Að þessu sinni var fulltrúum 24 aðildarríkja boðið að koma fyrir nefndina og gera grein fyrir afstöðu ríkisstjórna sinna til gagnrýni sérfræðinganefndar ILO á tiltekin atriði varðandi framkvæmd á fullgiltum alþjóðasamþykktum. Þannig var óskað eftir skýringum frá 19 aðildarríkjum varðandi framkvæmd á grundvallarsamþykktum stofnunarinnar en í fimm tilvikum var um að ræða meint brot á faglegum og tæknilegum samþykktum.
    Ríkisstjórn Íslands varð í fyrsta skipti að svara í þingnefndinni fyrir framkvæmd sína á fullgiltri alþjóðasamþykkt. Tekin var fyrir framkvæmd ríkisstjórnarinnar á alþjóðasamþykkt nr. 98, um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega. Tilefnið var kæra Alþýðusambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands vegna setningu laga til lausnar kjaradeilu útgerðarmanna og sjómanna á árinu 2001. Niðurstaða þingnefndarinnar var eftirfarandi:
    „Nefndin tók mið af upplýsingum sem veittar voru af fulltrúa ríkisstjórnarinnar og umræðum sem á eftir fylgdu. Nefndin tók mið af því að athugasemdir sérfræðinganefndarinnar vísuðu til samþykktar laga sem kom á lögbundnum gerðardómi í sjávarútvegi og greip þannig inn í gerð kjarasamninga sem fram fer af frjálsum og fúsum vilja. Nefndin veitti því athygli að spurning um inngrip stjórnvalda í kjarasamninga í þessari grein, sem og öðrum starfsgreinum, hefur komið upp af ýmsu tilefni. Nefndin veitti einnig athygli þeirri ósk sem fram hefur komið hjá aðilum vinnumarkaðarins á Íslandi að ríkisstjórnin haldi að sér höndum í framtíðinni hvað varðar hvers kyns inngrip í ferli kjarasamninga. Nefndin veitti sérstaka athygli þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að hún væri reiðubúin til samráðs við aðila vinnumarkaðarins til að fara yfir þau vandamál sem væru til staðar í sjávarútvegi, sem er mjög mikilvæg atvinnugrein fyrir landið. Nefndin lét í ljósi þá von að ríkisstjórnin mundi endurskoða umgjörð og tilhögun kjarasamningaviðræðna og framkvæmd þeirra í sjávarútvegi í nánu samráði við hlutaðeigandi samtök aðila vinnumarkaðarins með það að markmiði að bæta umgjörð frjálsra samningaviðræðna í samræmi við 4. grein samþykktarinnar, með aðstoð ILO eins og þörf væri á. Nefndin óskaði eftir því að ríkisstjórnin sendi ítarlegar upplýsingar um ráðstafanir hvað þetta varðar í næstu skýrslu sinni til sérfræðinganefndarinnar.“
    Hér verða ekki talin upp öll ríki sem fjallað var um í nefndinni. Helst ber að nefna sex ríki sem voru beðin um að svara m.a. spurningum um nauðungarvinnu, mismunun og félagafrelsi en þau eru Burma, Kólumbía, Gvatemala, Súdan, Venesúela og Simbabve. Þau voru sérstaklega gagnrýnd fyrir gróf brot á grundvallarsamþykktum. Að þessu sinni var Burma eitt ríkja tekið út úr vegna einstaklegra grófra brota af þessu tagi og nefnt í svonefndum sérstökum hluta skýrslu nefndarinnar til allsherjarfundar vinnumálaþingsins. Þetta er einungis gert í undantekningartilvikum til að draga athygli umheimsins að verstu mannréttindabrotunum.

Þróun mannauðs.
    Afgreidd voru ný tilmæli um þróun mannauðs á þinginu. Nefnd hafði verið falið að móta nýjar reglur til að leysa af hólmi eldri tilmæli ILO nr. 150 frá 1975 um þróun mannauðs. Fyrri umræða og umfjöllun hófst á þinginu 2003 og voru ný tilmæli samþykkt en fulltrúar atvinnurekenda, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Sviss voru á móti. Þykir það draga úr gildi tilmælanna að ekki náðist breið samstaða um þau.
    Tilgangur tilmælanna er að móta leiðbeinandi viðmið fyrir ríki til að efla þjálfun og færni starfsmanna eftir efnahags- og félagslegum þörfum á hverjum stað. Leitast á við að tryggja ævilanga símenntun á öllum þrepum menntakerfisins, en með fullorðna sem aðalmarkhóp. Markmiðið er að að tryggja fulla atvinnu, félagslega aðlögun og hagvöxt. Ríkjum er ætlað að auka útgjöld til menntamála og aðilar vinnumarkaðarins eiga að vinna saman að því að nýta sér þá möguleika sem skapast til menntunar og þjálfunar, sérstaklega fyrir hópa sem minna mega sín.
    Tilmælin eru birt sem fylgiskjal VII.

Vinnuskilyrði fiskimanna.
    Stjórnarnefnd ILO ákvað árið 2002 að endurskoða þyrfti fimm samþykktir og tvenn tilmæli um vinnuskilyrði fiskimanna. Stefnt er að því að ein samþykkt og ein tilmæli komi í þeirra stað. Samþykktirnar fimm eru: nr. 112 frá 1959, um lágmarksaldur fiskimanna, nr. 113 frá 1959, um læknisskoðanir, nr. 114 frá 1959, um einstök ákvæði ráðningarsamninga fiskimanna, nr. 125, um hæfnisskírteini fiskimanna og nr. 126 frá 1966, um aðbúnað fiskimanna. Tilmælin eru nr. 7 frá 1929, um vinnutíma fiskimanna og nr. 126 frá 1966, um starfsþjálfun fiskimanna. Á þinginu var kosin nefnd til að endurskoða og taka til fyrri umræðu þær niðurstöður sem komu fram í skýrslu um um vinnuskilyrði í sjávarútvegi.
    Fulltrúar atvinnurekenda lögðu áherslu á að samþykktin ætti fyrst og fremst að gilda um vinnuskilyrði fiskimanna. Þar af leiðandi ætti að stefna að sjálfstæðri gerð án tilvísana í samþykktir og samninga sem fjalla um farmenn. Þessu voru fulltrúar launafólks ekki alls kostar sammála og vildu að í væntanlegri samþykkt og tilmælum yrði kveðið á um gildissvið og tengsl við aðra alþjóðasamninga á þessu sviði. Í þessu sambandi má geta þess að oftast er greint á milli farmanna og fiskimanna í samþykktum ILO og gildissvið þeirra takmarkað við annan hvorn hópinn. Dæmi um þetta er samþykkt nr. 164, um heilsuvernd og læknishjálp við skipverja. Gildissvið þessarar samþykktar tekur til farmanna á hafskipum en ekki fiskimanna. Talsmenn launfólks í nefndinni vildu því að nefndin tæki afstöðu til þessa álitaefnis. Í nefndinni komu fram hugleiðingar um það með hvaða hætti fiskimenn gætu notið hliðstæðrar vinnuverndar og launafólk í landi, t.d. á grundvelli ákvæða í samþykkt nr. 155 um vinnuumhverfi, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Einnig var rætt um heilusgæslu og vinnuumhverfi, kæru- og áfrýjunarrétt, hvíldartíma, stærð áhafna, tryggingar og fleira. Fulltrúar atvinnurekenda vildu takmarka íhlutunarrétt og kærurétt sjómanna á skipum sem hafa verið flutt af landsskrám yfir á alþjóðlegar skipaskrár.
    Talsverðar umræður fóru fram um reglur varðandi stærð fiskiskipa og hvert skyldi vera svigrúm ríkisstjórnanna til frávika frá reglum sem gilda skyldu um einstaka flokka skipa. Má þar nefna hvort samþykktin ætti að taka jafnt til smærri fiskiskipa og stærri úthafsveiðiskipa.
    Af 137 breytingartillögum sem fjallað var um voru 25 samþykktar án frekari breytinga, 14 voru samþykktar með breytingum, 65 voru dregnar til baka, 25 var hafnað og 8 breytingartillögum var vísað til næsta þings. Fyrir næsta þing mun alþjóðavinnumálaskrifstofan semja tillögu að nýrri samþykkt þar sem byggt verður á þeim umræðum sem fóru fram á þessu þingi og umsögnum aðildarríkjanna um tillögudrögin.

Flutningur launafólks í atvinnuskyni.
    Á þinginu var sett á stofn nefnd til að ræða flutning launafólks á milli landa í atvinnuskyni. Stjórnarnefnd ILO telur mikilvægt að þessi málaflokkur fái meiri umfjöllun í framtíðinni þar sem hann hefur verið talsvert vanræktur hin síðari ár. Talið er að að um tíu milljónir manna vinni í öðru landi en sínu eigin án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Alþjóðavinnumálaskrifstofan hafði tekið saman skýrsluna „Towards a fair deal for migrant workers in the global economy“ til undirbúnings umræðum á þinginu. Í umræðunum um niðurstöður skýrslunnar kom fram að víða sé misbrestur á að grundvallarréttur launafólks sé virtur, mismunun sé algengt vandamál þar sem farandverkafólk verði oft að sætta sig við lægri laun en heimamenn. Útlendingar sem starfa í gistiríki séu einnig oft misnotaðir, fái ómanneskjulega meðferð og þeim sé ókunnugt um réttindi sín.
    Niðurstöður fundarins urðu þær að aðgerða væri þörf. Alþjóðavinnumálastofnunin væri vel í stakk búin til að takast á við verkefni af þessu tagi þar sem stofnunin byggist á þríhliða samstarfi þeirra aðila sem eiga hlut að máli. Til að byrja með þyrftu aðgerðirnar að felast í upplýsingaherferð sem fæli í sér þróun gagnagrunns sem hefði að geyma upplýsingar um alþjóðlegan flutning fólks í atvinnuskyni. Stofnunin eigi að taka frumkvæði að samvinnu við aðrar alþjóðastofnanir eins og OECD um þetta málefni. Hún eigi enn fremur að hvetja aðildarríkin til að fullgilda og hrinda í framkvæmd ákvæðum í samþykktum og tilmælum ILO á þessu sviði. Sérstaklega var bent á samþykktir nr. 97 og nr. 143, um réttindi farandverkafólks. Stuðningur við þessar tillögur komu einkum frá hópum atvinnurekenda og launafólks, en fulltrúar ríkisstjórnanna héldu sig nokkuð til hlés við umræðurnar.

Afnám 16 tilmæla.
    Alþjóðavinnumálaþingið samþykkti að fella úr gildi 16 tilmæli sem samþykkt höfðu verið á árabilinu 1919–1953. Alþjóðavinnumálastofnunin hafði komist að þeirri niðurstöðu að tilmælin væru orðin úrelt og þjónuðu ekki lengur markmiðum stofnunarinnar.
    Skrá yfir tilmælin sem voru afnumin er birt í fylgiskjali VII.

Ályktanir.
    Nefnd um þingsályktanir starfar annað hvert ár. Að þessu sinni lágu fyrir nefndinni 15 tillögur til þingsályktana. Nefndarstarfið hefst venjulega á því að gerð er tilraun til að sameina efnislega hliðstæðar tillögur. Það bar nokkurn árangur. Oft eru flokkadrættir áberandi í nefndinni og vill tími glatast við málþóf um fundarsköp. Árangur af nefndarstarfinu er því nokkuð misjafn. Á þessu þingi tókst samstaða um eina tillögu. Hún var lögð fram að frumkvæði fulltrúa ríkisstjórna Norðurlanda og fjallaði um jafnréttismál. Efni tillögunnar snýr jafnt að Alþjóðavinnumálastofnuninni sem og aðildarríkjunum og snýst um aðgerðir til að koma á jafnrétti kvenna og karla.



Fylgiskjal I.


Samþykkt nr. 184, um
öryggi og hollustu í landbúnaði.


    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
    sem kom saman til 89. þingsetu sinnar í Genf 5. júní 2001 eftir kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    með hliðsjón af meginreglum viðeigandi samþykkta og tilmæla Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, einkum samþykkt og tilmælum um vinnu verkamanna á plantekrum, 1958, samþykkt og tilmælum um bætur vegna slysa við vinnu, 1964, samþykkt og tilmælum um vinnueftirlit á sviði landbúnaðar, 1969, samþykkt og tilmælum um öryggi og starfsumhverfi, 1981, samþykkt og tilmælum um heilsugæslu á vinnustöðum, 1985 og samþykkt og tilmælum um öryggi við notkun efna við vinnu, 1990,
    að teknu tilliti til mikilvægi heildarnálgunar í landbúnaði og víðara samhengis meginreglna annarra samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar er gilda á því sviði, einkum samþykkt um félagafrelsi og verndun þess, 1948, samþykkt um beitingu grundvallarreglna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega, 1949, samþykkt um lágmarksaldur við vinnu, 1973 og samþykkt um afnám barnavinnu í sinni verstu mynd, 1999, og
    með hliðsjón af þríhliða yfirlýsingu um meginreglur varðandi fjölþjóðleg fyrirtæki og félagsmálastefnu jafnt sem viðeigandi leiðbeiningarreglum, einkum leiðbeiningarreglum um skráningu og tilkynninga vinnuslysa og atvinnusjúkdóma, 1996, og leiðbeiningarreglum um öryggi og heilbrigði í skógarvinnu, 1998,
    að teknum ákvörðunum um að samþykkja tilteknar tillögur sem varða öryggi og heilbrigði í landbúnaði, sem er fjórða mál á dagskrá þessa þings, og
    að teknum ákvörðunum um að þessar tillögur skuli gerðar í formi alþjóðasamþykktar,
    gerir þingið í dag, 21. júní 2001, eftirfarandi samþykkt, sem nefna má samþykkt um öryggi og heilbrigði í landbúnaði, 2001.

I. Gildissvið.


1. gr.

    Í samþykkt þessari nær hugtakið „landbúnaður“ yfir landbúnað og nýtingu skóga í landbúnaðarfyrirtækjum, þar á meðal jarðrækt, nýtingu skóga, kvikfjárrækt og skordýrarækt, frumvinnslu jarðræktar- og dýraafurða, rekstraraðila eða í þágu rekstraraðila fyrirtækis, sem og notkun og viðhald á vélum, búnaði, tækjum, verkfærum og mannvirkjum í landbúnaði, að meðtalinni allri vinnslu, geymslu, rekstri og flutningum innan fyrirtækis sem beinlínis tengjast landbúnaðarframleiðslu.

2. gr.

    Í samþykkt þessi nær hugtakið „landbúnaður“ ekki til:
     a.      sjálfsþurftabúskapar,
     b.      iðnaðar sem nýtir landbúnaðarafurðir sem hráefni og þjónustu sem þeim iðnaði tengist, eða
     c.      nýtingar skóga til iðnaðar.

3. gr.

    1. Hlutaðeigandi stjórnvald aðildarríkis sem fullgildir samþykkt þessa að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks:
     a.      getur skilið ákveðin landbúnaðarfyrirtæki eða afmarkaða hópa launafólks undan gildissviði samþykktar þessarar eða ákveðnum ákvæðum hennar þegar sérstök og veruleg vandamál rísa, og
     b.      skal, ef slíkar undanþágur eru veittar, gera áætlun um útfærslu gildissviðs samþykktarinnar til allra fyrirtækja og hópa starfsmanna stig af stigi.
    2. Sérhverju aðildarríki skal í fyrstu skýrslu sinni um framkvæmd samþykktarinnar skv. 22. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar tilgreina allar undanþágur samkvæmt a-lið 1. mgr. þessa ákvæðis og skýra frá ástæðum þeirra. Í síðari skýrslum skal aðildarríkið lýsa þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið í því skyni að láta ákvæði samþykktarinnar með tímanum ná smám saman til slíkra hópa.

II. Almenn ákvæði.


4. gr.

    1. Með tilliti til innlendra aðstæðna og venju og að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks skal sérhvert aðildarríki móta, framkvæma og endurskoða reglulega innlenda heildarstefnu um öryggi og heilbrigði í landbúnaði. Markmið slíkrar stefnu skal vera að koma í veg fyrir slys og heilsutjón við eða í tengslum við landbúnaðarstörf með því að uppræta, draga úr eða hafa stjórn á hættum í vinnuumhverfi í landbúnaði.
    2. Í þessu skyni skal í landslögum og reglugerðum:
     a.      tilgreina það stjórnvald sem ber ábyrgð á framkvæmd stefnunnar og framfylgir landslögum og reglugerðum um öryggi og heilbrigði í landbúnaði,
     b.      tilgreina réttindi og skyldur atvinnurekenda og starfsmanna er lúta að öryggi og heilbrigði í landbúnaði, og
     c.      kveða á um samræmingu starfa hlutaðeigandi stjórnvalda og stofnana á sviði landbúnaðar og skilgreina hlutverk þeirra og ábyrgð, að teknu tilliti til sérfræðiþekkingar þeirra og innlendra aðstæðna og venju.
    3. Hlutaðeigandi stjórnvald skal kveða á um úrbætur og hæfileg refsiviðurlög í samræmi við landslög og reglugerðir, þar á meðal um stöðvun eða takmörkun á starfsemi í landbúnaði, eftir því sem við á, ef starfsemin hefur í för með sér yfirvofandi hættu fyrir öryggi og heilsu starfsmanna, uns bætt hefur verið úr þeim aðstæðum sem leiddu til bannsins eða takmörkunar.

5. gr.

    1. Aðildarríki skulu sjá til þess að fullnægjandi og viðeigandi eftirlitskerfi með vinnustöðum í landbúnaði sé fyrir hendi og að nægilegu fjármagni sé veitt til þess.
    2. Í samræmi við landslög er hlutaðeigandi stjórnvaldi heimilt að fela í sínu umboði opinberum þjónustuaðilum eða einkastofnunum sem eru undir ríkiseftirliti sérstakt svæðis- eða staðbundið eftirlit, eða eiga í samvinnu við þessa aðila um þetta hlutverk.

III. Forvarnir og varúðarráðstafanir.


Almennt.


6. gr.

    1. Atvinnurekandi skal, að því marki sem samræmist landslögum og reglugerðum, tryggja að öryggi og heilsu starfsmanna sé engin hætta búin af öllum þáttum sem starfinu tengjast.
    2. Landslög og reglugerðir eða fyrirmæli hlutaðeigandi stjórnvalds skulu kveða á um að þegar tveir eða fleiri atvinnurekendur eiga aðild að starfsemi á sama vinnustað í landbúnaði, eða þar sem einn eða fleiri atvinnurekendur og einn eða fleiri einyrkjar eiga aðild að starfseminni, skuli þeir starfa saman við að fullnægja skilyrðum um öryggi og heilbrigði. Þar sem við á skal stjórnvald kveða almennt á um framkvæmd samvinnunnar.

7. gr.

    Í því skyni að fylgja innanlandsstefnu skv. 4. gr. samþykktar þessarar, skulu landslög og reglugerðir eða fyrirmæli viðeigandi stjórnvalds, að teknu tilliti til stærðar fyrirtækis og starfsemi þess, kveða á um að atvinnurekandi skuli:
     a.      gera viðeigandi áhættumat með tilliti til öryggis og heilsu launafólks, og grípa á grundvelli þess til forvarna og varúðarráðstafana til að tryggja að við allar fyrirhugaðar aðstæður sé öll landbúnaðarstarfsemi, vinnustaðir, vélar, tæki, efni, verkfæri og vinnsluferli undir stjórn atvinnurekanda örugg og fullnægi þeim öryggis- og heilbrigðiskröfum sem gerðar eru,
     b.      tryggja að launafólki við landbúnað sé veitt fullnægjandi og viðeigandi þjálfun og skiljanleg fyrirmæli um öryggi og heilbrigði ásamt nauðsynlegri leiðsögn og yfirumsjón, þar á meðal upplýsingum um hættur sem tengjast starfi þess og varúðarráðstafanir, að teknu tilliti til mismunandi menntunarstigs og ólíkra tungumála, og
     c.      gera þegar í stað ráðstafanir til að stöðva hverja þá starfsemi þar sem bein og alvarleg hætta steðjar að öryggi og heilbrigði, og flytja starfsmenn á brott eftir því sem við á.

8. gr.

    1. Launafólk í landbúnaði skal eiga rétt á:
     a.      að fá upplýsingar og að samráð sé við það haft um öryggi og heilbrigði, þar á meðal um hættur af nýrri tækni;
     b.      að taka þátt í framkvæmd og endurskoðun öryggis- og heilbrigðisráðstafana, og að velja sér í samræmi við landslög og venju öryggis- og heilbrigðistrúnaðarmenn og fulltrúa í öryggis- og heilbrigðisnefndir; og
     c.      að geta sjálft, ef það hefur rökstudda ástæðu til þess að ætla að öryggi þess og heilbrigði sé stefnt í alvarlega og bráða hættu, komið sér undan afleiðingum hættunnar og skýrt yfirmanni sínum frá því þegar í stað. Óheimilt er að láta það gjalda fyrir ákvörðun sína á nokkurn hátt.
    2. Launafólk í landbúnaði og fulltrúar þess skulu fylgja gildandi öryggis- og heilbrigðisráðstöfunum og eiga samvinnu við atvinnurekendur svo að þeim síðarnefndu sé gert kleift að sinna eigin skyldum og ábyrgð.
    3. Kveða skal á um réttindi og skyldur skv. 1. og 2. mgr. í landslögum eða reglugerðum, fyrirmælum hlutaðeigandi stjórnvalds, kjarasamningum eða með öðrum viðeigandi hætti.
    4. Áður en ákvæði samþykktar þessarar eru innleidd skv. 3. mgr. skal hafa samráð við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks.

Öryggi véla og vinnuvistfræði.


9. gr.

    1. Landslög og reglugerðir eða fyrirmæli viðeigandi stjórnvalds skulu kveða á um að vélar, tæki, þar á meðal persónuhlífar, áhöld og handverkfæri sem notuð eru við landbúnað skuli fullnægja innlendum eða öðrum viðurkenndum skilyrðum um öryggi og heilbrigði, og uppsetning, viðhald og varðveisla sé með viðeigandi hætti.
    2. Hlutaðeigandi stjórnvald skal gera ráðstafanir til að tryggja að framleiðendur, innflytjendur og birgðasalar hlíti skilyrðum skv. 1. mgr. og veiti notendum, svo og viðeigandi stjórnvaldi, krefjist það þess, fullnægjandi og viðeigandi upplýsingar, þar á meðal viðvörunarmerki, á opinberu tungumáli eða opinberum tungumálum þess ríkis þar sem tækin eru notuð.
    3. Atvinnurekendur skulu tryggja að launafólk fái og skilji þær upplýsingar um öryggi og heilbrigði sem framleiðendur, innflytjendur og birgðasalar láta í té.

10. gr.

    Landslög og reglugerðir skulu kveða á um að vélar og tæki í landbúnaði skuli:
     a.      einungis vera notuð við vinnu sem þau eru hönnuð fyrir, nema í tilvikum þar sem annars konar notkun hefur verið metin örugg í samræmi við landslög og venju og sérstaklega ekki vera notuð fyrir fólksflutninga nema þau séu hönnuð eða breytt til að flytja fólk; og
     b.      stjórnað af þjálfuðu og hæfu fólki í samræmi við landslög og venju.

Meðhöndlun og flutningur á hráefni og vöru.


11. gr.

    1. Til þess bært stjórnvald skal, að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks, kveða á um öryggis- og heilbrigðisskilyrði fyrir meðhöndlun og flutning á hráefni og vöru, sérstaklega um burð. Slík skilyrði skulu byggjast á áhættumati, tæknilegum stöðlum og læknisfræðilegu áliti, að teknu tilliti til allra viðeigandi aðstæðna sem starfið er unnið við í samræmi við landslög og venju.
    2. Óheimilt er að krefja launafólk eða heimila því að bera eða flytja hráefni og vöru sem vegna þunga síns eða eðlis er líkleg til að stofna öryggi þess eða heilsu í hættu.

Örugg meðferð efna.


12. gr.

    Hlutaðeigandi stjórnvald skal gera ráðstafanir í samræmi við landslög og venju í því skyni að tryggja að:
     a.      fyrir hendi sé viðeigandi innlent kerfi eða annað kerfi sem stjórnvaldið viðurkennir sem kveður á um sérstök skilyrði fyrir innflutning, flokkun, pökkun og merkingu efna sem notuð eru í landbúnaði og fyrir bann eða takmörkun á notkun þeirra,
     b.      þeir sem framleiða, flytja inn, útvega, selja, flytja, geyma eða farga efni sem notað er í landbúnaði, hlíti innlendum eða öðrum viðurkenndum skilyrðum um öryggi og heilbrigði og veiti notendum, og stjórnvaldinu sjálfu, krefjist það þess, fullnægjandi og viðeigandi upplýsingar á viðeigandi opinberu tungumáli eða opinberum tungumálum ríkisins; og
     c.      fyrir hendi sé kerfi til að með öruggum hætti megi safna saman, endurvinna og farga efnaúrgangi, úreltum efnum og tómum efnaílátum til að þau verði ekki notuð í öðru skyni og til að koma í veg fyrir eða draga, eins og kostur er, úr hættu fyrir öryggi og heilsu og fyrir umhverfið.

13. gr.

    1. Landslög og reglugerðir eða fyrirmæli hlutaðeigandi stjórnvalds skulu tryggja að fyrir hendi séu forvarnir og varúðarráðstafanir fyrir efnanotkun og meðhöndlun efnaúrgangs hjá fyrirtækjum.
    2. Þessar ráðstafanir skulu meðal annars gilda um:
     a.      undirbúning, meðhöndlun, notkun, geymslu og flutning efna,
     b.      landbúnaðarstörf sem leiða til dreifingar efna,
     c.      viðhald, viðgerðir og hreinsun á tækjum og ílátum fyrir efni, og
     d.      förgun á tómum ílátum og meðferð og förgun á efnaúrgangi og úreltum efnum.

Meðferð dýra og vernd gegn líffræðilegum skaðvöldum.


14. gr.

    Landslög og reglugerðir skulu tryggja að komið sé í veg fyrir eða að dregið sé svo sem kostur er úr hættum, svo sem vegna sýkingar, ofnæmis eða eitrunar vegna meðhöndlunar á líffræðilegum skaðvöldum, og að starfsemi sem viðkemur dýrum, búfénaði og peningshúsum fari fram í samræmi við innlend eða önnur viðurkennd öryggis- og heilbrigðisskilyrði.

Landbúnaðarmannvirki.
15. gr.

    Bygging, viðhald og viðgerð landbúnaðarmannvirkja skal fara fram í samræmi við landslög, reglugerðir og öryggis- og heilbrigðiskröfur

IV. Ýmis ákvæði.
Ungt launafólk og hættuleg störf.
16. gr.

    1. Lágmarksaldur við störf í landbúnaði sem vegna eðlis síns eða vinnuskilyrða er líkleg til að stofna öryggi eða heilsu ungmenna í hættu skal eigi vera lægri en 18 ár.
    2. Lög og reglugerðir eða fyrirmæli viðeigandi stjórnvalds skulu, að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekanda og launafólks, kveða á um hvers konar störf eða vinna falla undir 1. mgr.
    3. Þrátt fyrir 1. mgr. geta landslög eða reglugerðir eða til þess bært stjórnvald, að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekanda og launafólks, heimilað 16 ára aldurstakmark við störf skv. 1. mgr. að því gefnu að viðeigandi þjálfun sé veitt og að öryggi og heilbrigði ungmennanna sé að fullu tryggt.

Launafólk í tímabundnum og árstíðabundnum störfum.


17. gr.

    Ráðstafanir skulu gerðar til að tryggja að launafólk í tímabundnum og árstíðabundnum störfum njóti sama öryggis og heilsuverndar og fastráðið launafólk í landbúnaði.

Konur í landbúnaðarstörfum.
18. gr.

    Ráðstafanir skulu gerðar til að tryggja að tekið sé tillit til sérstakra þarfa kvenna sem starfa við landbúnað í sambandi við þungun, brjóstagjöf og mæðravernd.

Félagsleg aðstaða og húsnæði.
19. gr.

    Landslög og reglugerðir eða fyrirmæli til þess bærs stjórnvalds skulu, að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks, kveða á um:
     a.      fullnægjandi velferðarþjónusta sé fyrir hendi, launafólki að kostnaðarlausu, og
     b.      lágmarkskröfur um húsnæði fyrir launafólk sem eðlis starfsins vegna þarf að búa tímabundið eða varanlega innan fyrirtækisins.

Skipulag vinnutíma.


20. gr.

    Fjöldi vinnustunda, næturvinna og hvíldartími launafólks í landbúnaði skal vera í samræmi við landslög og reglugerðir eða kjarasamninga.

Sjúkra- og slysatryggingar.
21. gr.

    1. Launafólk í landbúnaði skal í samræmi við landslög og venju vera tryggt með almennum tryggingum eða almannatryggingum gegn vinnuslysum og sjúkdómum, hvort sem þau eru banvæn eða ekki, svo og gegn örorku og öðrum vinnutengdum áhættuþáttum fyrir heilsuna, og skal sú vernd vera að minnsta kosti sambærileg þeirri vernd sem launafólk úr öðrum atvinnugreinum nýtur.
    2. Slík kerfi geta verið hluti af innlendu tryggingakerfi eða verið með öðrum hætti í samræmi við landslög og venju.

Lokaákvæði.
22. gr.

    Formlegar fullgildingar samþykktar þessarar skulu sendar forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skrásetningar.

23. gr.

    1. Samþykkt þessi skal einungis vera bindandi fyrir þau aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem hafa látið forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skrá fullgildingar sínar.
    2. Samþykktin gengur í gildi 12 mánuðum eftir að fullgildingar tveggja aðildarríkja hafa verið skráðar hjá forstjóranum.
    3. Síðan gengur samþykktin í gildi fyrir hvert aðildarríki 12 mánuðum eftir að fullgilding þess hefur verið skráð.

24. gr.

    1. Aðildarríki sem fullgilt hefur samþykkt þessa getur sagt henni upp að tíu árum liðnum frá fyrstu gildistöku hennar. Tilkynningu um uppsögn skal senda forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skrásetningar. Slík uppsögn öðlast ekki gildi fyrr en ár er liðið frá skrásetningardegi hennar.
    2. Sérhvert aðildarríki sem fullgilt hefur samþykkt þessa en notfærir sér ekki innan árs frá lokum tíu ára tímabilsins sem um getur í 1. mgr. rétt þann til uppsagnar sem þar er kveðið á um skal bundið af henni í annað tíu ára tímabil en er síðan heimilt að segja henni upp að loknu hverju tíu ára tímabili í samræmi við ákvæði þessarar greinar.

25. gr.

    1. Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal tilkynna öllum aðildarríkjum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um skráningu allra fullgildinga og uppsagna sem aðildarríki stofnunarinnar hafa sent honum.
    2. Þegar forstjórinn tilkynnir aðildarríkjum stofnunarinnar skrásetningu annarrar fullgildingarinnar, sem honum berst, skal hann vekja athygli þeirra á því hvaða dag samþykktin gengur í gildi.

26. gr.

    Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal senda aðalritara Sameinuðu þjóðanna til skrásetningar skv. 102. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna allar upplýsingar um fullgildingar og uppsagnir sem hann hefur skrásett í samræmi við ákvæði undanfarandi greina.

27. gr.

    Þegar stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar kann að álíta það nauðsynlegt skal hún leggja fyrir allsherjarþingið skýrslu um framkvæmd samþykktar þessarar og athuga jafnframt hvort æskilegt sé að setja á dagskrá þingsins endurskoðun hennar eða hluta hennar.

28. gr.

    1. Ef þingið gerir nýja samþykkt sem breytir samþykkt þessari að nokkru eða öllu leyti, og sú samþykkt mælir ekki fyrir um á annan veg, skal:
     a.      fullgilding aðildarríkis á hinni nýju endurskoðuðu samþykkt lögum samkvæmt hafa í för með sér tafarlausa uppsögn samþykktar þessarar, þrátt fyrir ákvæði 24. gr. hér að framan, ef hin nýja endurskoðaða samþykkt öðlast gildi og þá frá þeim tíma þegar það gerist,
     b.      aðildarríkjum ekki heimilt að fullgilda samþykkt þessa eftir að hin nýja endurskoðaða samþykkt hefur öðlast gildi.
    2. Samþykkt þessi skal, hvað sem öðru líður, halda gildi sínu hvað varðar form og efni í þeim aðildarríkjum sem hafa fullgilt hana en ekki hina endurskoðuðu samþykkt.

29. gr.

    Enskur og franskur texti samþykktar þessarar er jafngildur.



Fylgiskjal II.


Tilmæli nr. 192, um
öryggi og hollustu í landbúnaði.


    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
    sem kom saman til 89. þingsetu sinnar í Genf 5. júní 2001 að kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    sem hefur ákveðið að samþykkja tilteknar tillögur varðandi öryggi og heilbrigði í landbúnaði, sem er fjórða mál á dagskrá þingsins, og
    sem hefur ákveðið að tillögur þessar skuli gerðar í formi tilmæla til fyllingar samþykktar um öryggi og heilbrigði í landbúnaði, 2001 (hér eftir nefnd „samþykktin“);
    samþykkir hinn 21. júní 2001 eftirfarandi tilmæli, sem vísa má til sem tilmæla um öryggi og heilbrigði í landbúnaði, 2001.

I. Almenn ákvæði.


    1. Við framkvæmd á 5. gr. samþykktarinnar skal grípa til ráðstafana í tengslum við vinnueftirlit í landbúnaði í ljósi meginreglunnar sem er að finna í samþykkt og tilmælum um vinnueftirlit (í landbúnaði),1969.
    2. Fjölþjóða fyrirtæki skulu veita starfsmönnum sínum í landbúnaði fullnægjandi öryggi og heilsuvernd á öllum vinnustöðum sínum, án mismununar og án tillits til þess á hvaða stað eða í hvaða landi þeir eru, í samræmi við landslög og venju og þríhliða yfirlýsinguna um meginreglur varðandi fjölþjóða fyrirtæki og félagsmálastefnu.

II. Vinnuöryggi og eftirlit með heilsu launafólks.


    3. (1) Stjórnvaldi því, sem tilgreint er til að framkvæma innlenda stefnu sem vísað er til í 4. gr. samþykktarinnar, ber að höfðu samráði við hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og launafólks, að
     a.      bera kennsl á helstu vandamál, forgangsraða verkefnum, finna áhrifaríkar aðferðir til að fást við þau og meta árangurinn reglulega,
     b.      mæla fyrir um aðgerðir til að koma í veg fyrir og hafa stjórn á starfstengdum hættum í landbúnaði,
                  (i)      að teknu tilliti til tækniframfara og þekkingar á sviði öryggis og heilbrigðis sem og viðeigandi staðla, leiðbeininga og leiðbeiningarreglna sem viðurkenndar innlendar stofnanir eða alþjóðastofnanir hafa samþykkt,
                  (ii)      að teknu tilliti til þarfarinnar á að vernda umhverfið gegn áhrifum frá landbúnaðarstörfum,
                  (iii)      með því að tilgreina þær ráðstafanir sem grípa þarf til í því skyni að koma í veg fyrir eða hafa stjórn á áhættunni á landlægum atvinnutengdum sjúkdómum meðal launafólks í landbúnaði, og
                  (iv)      með því að tilgreina að engum launamanni beri að framkvæma hættulega vinnu í einangruðu eða lokuðu rými án þess að nægilegir möguleikar séu á samskiptum og aðstoð,
     c.      semja leiðbeiningar fyrir atvinnurekendur og verkafólk.
    (2)     Í því skyni að 4. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda ber hlutaðeigandi stjórnvaldi að:
     a.      samþykkja ákvæði um að auka stig af stigi viðeigandi starfstengda heilsuvernd fyrir launafólk í landbúnaði,
     b.      koma á tilhögun að skráningu og tilkynningu á vinnuslysum og atvinnusjúkdómum í landbúnaði, einkum til að taka megi saman tölfræðilegar upplýsingar, til að framkvæma hina innlenda stefnu og til að koma á fyrirbyggjandi ráðstöfunum á fyrirtækjastigi, og
     c.      stuðla að öryggi og heilbrigði í landbúnaði með kennsluáætlunum og námsefni til að mæta þörfum atvinnurekenda og launafólks í landbúnaði.
    4. (1) Í því skyni að 7. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda ber hlutaðeigandi stjórnvaldi að koma á innlendu eftirlitskerfi með öryggi og heilbrigði á vinnustöðum sem bæði fæli í sér heilsuvernd starfsmanna og eftirlit með vinnuumhverfinu.
    (2)     Kerfið skal fela í sér nauðsynlegt áhættumat og, þar sem við á, forvarnir og verndarráðstafanir varðandi meðal annars:
     a.      hættuleg efni og úrgang,
     b.      eitraða, smitandi eða ofnæmisvaldandi líffræðilega skaðvalda,
     c.      ertandi eða eitraðar gufur,
     d.      hættulegt ryk,
     e.      krabbameinsvaldandi efni eða skaðvalda,
     f.      hávaða og titring,
     g.      of mikinn kulda og hita,
     h.      útfjólubláa sólargeislun,
     i.      sjúkdóma sem borist geta með dýrum,
     j.      snertingu við villt eða eitruð dýr,
     k.      notkun véla og búnaðar, þ.m.t. persónuhlífar,
     l.      meðhöndlun eða burð á varningi,
     m.      mikla eða langvarandi líkamlega eða andlega áreynslu, vinnutengda streitu og ófullnægjandi líkamsstöðu við vinnu, og
     n.      hættu af nýrri tækni.
    (3) Heilsuvernd skal vera fyrir ungt launafólk, þungaðar konur og konur með börn á brjósti og eldra launafólk, þar sem við á.

III. Forvarnir og verndarráðstafanir.


Áhættumat og áhættustjórnun.


    5.     Í því skyni að 7. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skulu aðgerðir á sviði öryggis og heilbrigðis á fyrirtækjastigi fela í sér:
     a.      þjónustu á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum,
     b.      áhættumat og áhættustjórnun í eftirfarandi forgangsröð,
                  (i)      að koma í veg fyrir áhættu,
                  (ii)      að hafa stjórn á áhættunni við upptök hennar,
                  (iii)      að draga úr áhættunni með aðgerðum eins og hönnun öryggiskerfa við vinnu, koma á ráðstöfunum er lúta að tækni og skipulagi og öryggisráðstöfunum og þjálfun, og
                  (iv)      að því marki sem áhætta er enn fyrir hendi, að útvega persónuhlífar og hlífðarfatnað, launafólki að kostnaðarlausu, og sjá til þess að þetta sé notað;
     c.      aðgerðir til að bregðast við slysum og neyðarástandi, þar á meðal fyrstu hjálp og viðeigandi flutning til heilbrigðisstarfsmanna,
     d.      tilhögun á skráningu og tilkynningum á slysum og sjúkdómum,
     e.      viðeigandi ráðstafanir til verndar fólki sem er á landbúnaðarvinnustað, íbúum í grenndinni og umhverfinu almennt, gegn hættu sem komið gæti upp vegna þeirra landbúnaðarstarfa sem unnin eru, svo sem vegna áburðarúrgangs, úrgangs frá búpeningi, mengun jarðvegs og vatns, jarðvegsrýrnunar og útlitsbreytinga á jarðvegi, og
     f.      ráðstafanir til að tryggja að sú tækni sem notuð er sé aðlöguð að loftslagi, vinnuskipulagi og vinnuháttum.

Öryggi við meðferð véla og verklag.


    6.     Í því skyni að 9. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skal gera ráðstafanir til að tryggja rétt val eða rétta aðlögun á tækni, vélum og búnaði, þar á meðal persónuhlífum, að teknu tilliti til staðbundinna aðstæðna í notkunarlandinu, einkum áhrifa á verklag og áhrifa loftslags.

Rétt meðferð efna.


    7. (1) Þær ráðstafanir, sem lýst er í sambandi við rétta meðferð efna í landbúnaði, skulu ákveðnar með hliðsjón af meginreglum samþykktar og tilmæla um efni, 1990, og annarra viðeigandi alþjóðlegra, tæknilegra staðla.
    (2) Sérstaklega skulu forvarnir og vernarráðstafanir sem gripið er til á fyrirtækjastigi fela í sér:
     a.      fullnægjandi persónuhlífar og hlífðarfatnað, og þvottaaðstöðu fyrir launafólk sem vinnur með efni og til viðhalds og hreinsunar á persónuhlífum og tækjum til notkunar efnanna, launafólki að kostnaðarlausu,
     b.      varúðarráðstafanir við úðun og eftir úðun á svæðum þar sem efnum hefur verið beitt, þ.m.t. ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun matvæla og vatns til drykkjar, þvotta og áveitu,
     c.      meðhöndlun og förgun á hættulegum efnum sem ekki er lengur þörf fyrir og á ílátum sem hafa verið tæmd en kunna að innihalda leifar af hættulegum efnum, þannig að komið sé í veg fyrir eða dregið sem mest úr hættu hvað snertir öryggi og heilbrigði og umhverfið, í samræmi við landslög og venju,
     d.      að haldin sé skrá um notkun skordýraeiturs í landbúnaði, og
     e.      áframhaldandi þjálfun launafólks í landbúnaði sem felur í sér, eftir því sem við á, þjálfun í verklagi og aðferðum eða fræðslu um hættur og þær forvarnir sem gera ber í tengslum við notkun efna við vinnu.

Meðhöndlun dýra og vernd gegn hættum af líffræðilegum toga.


    8. Í því skyni að 14. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skulu ráðstafanir við meðhöndlun líffræðilegra skaðvalda sem valdið geta hættu á smitun, ofnæmi eða eitrun, og við meðhöndlun dýra fela í sér eftirfarandi:
     a.      áhættumat samkvæmt 5. gr. til að eyða líffræðilegri hættu, koma í veg fyrir hana eða draga úr henni,
     b.      eftirlit með dýrum og prófanir á þeim í samræmi við dýralæknisfræðilega staðla og landslög og venju, með tilliti til sjúkdóma sem borist geta í menn,
     c.      verndarráðstafanir við meðhöndlun dýra, og að séð sé fyrir persónuhlífum og hlífðarfatnaði þar sem við á,
     d.      verndarráðstafanir við meðhöndlun líffræðilegra skaðvalda og að séð sé fyrir viðeigandi persónuhlífum og hlífðarfatnaði eftir því sem nauðsyn krefur,
     e.      ónæmisaðgerðir fyrir launafólk sem meðhöndlar dýr, eftir því sem við á,
     f.      að séð sé fyrir sótthreinsandi efnum og þvottaaðstöðu, og viðhaldi og hreinsun á persónuhlífum og hlífðarfatnaði,
     g.      að fyrsta hjálp sé veitt, mótefni gefin eða gerðar séu aðrar neyðarráðstafanir vegna snertingar við eitruð dýr, skordýr eða plöntur,
     h.      öryggisráðstafanir við meðhöndlun, söfnun, geymslu og förgun mykju og úrgangs,
     i.      öryggisráðstafanir við meðhöndlun og förgun á hræjum sýktra dýra, þ.m.t. hreinsun og sótthreinsun mengaðra svæða, og
     j.      öryggisleiðbeiningar, þ.m.t. viðvörunarskilti og þjálfun fyrir launafólk sem meðhöndlar dýr.

Landbúnaðarmannvirki.


    9. Í því skyni að 15. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skulu skilyrði á sviði öryggis og heilbrigðis í tengslum við landbúnaðarmannvirki tilgreina tæknilega staðla fyrir byggingar, önnur mannvirki, handrið, girðingar og lokuð rými.

Félagsleg aðstaða og húsnæði.


    10. Í því skyni að 19. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skulu atvinnurekendur eftir því sem við á og í samræmi við landslög og venju sjá launafólki í landbúnaði fyrir:
     a.      nægilegum aðgangi að drykkjarhæfu vatni,
     b.      aðstöðu til að geyma og þvo hlífðarföt,
     c.      aðstöðu til að matast, og til að gefa börnum brjóst á vinnustað þar sem því verður við komið,
     d.      aðskilinni salernis- og þvottaaðstöðu, eða aðskildum afnotum á slíkri aðstöðu, fyrir karla og konur, og
     e.      flutningum í tengslum við vinnu.

IV. Önnur ákvæði.
Konur í landbúnaðarstörfum.

    11. Í því skyni að 18. gr. samþykktarinnar komi til framkvæmda skal gera ráðstafanir til að tryggja að áhættumat verði gert á vinnustöðum í tengslum við öryggi og heilbrigði þungaðra kvenna og kvenna með börn á brjósti, og að því er varðar mæðravernd.

Einyrkjar.


    12.(1) Að teknu tilliti til sjónarmiða sjálfstætt starfandi bænda, einyrkja, skulu aðildarríki gera áætlanir um að sú vernd sem felst í samþykktinni nái smám saman einnig til einyrkja eftir því sem við á;
    (2) Í þessu skulu landslög og reglugerðir tilgreina réttindi og skyldur einyrkja hvað snertir öryggi og heilbrigði í landbúnaði.
    (3) Í ljósi innlendra aðstæðna og venju skal eftir því sem við á taka til athugunar sjónarmið einyrkja við mótun, framkvæmd og reglulega endurskoðun á þeirri innlendri stefnu sem fjallað er um í 4. gr. samþykktarinnar.
    13.(1) Í samræmi við landslög og venju skal hlutaðeigandi stjórnvald grípa til ráðstafana í því skyni að tryggja að einyrkjar njóti þess öryggis og þeirrar heilsuverndar sem samþykktin veitir.
    (2)     Þessar ráðstafanir skulu fela í sér:
     a.      ákvæði um að viðeigandi starfstengd heilsuvernd nái smám saman til einyrkja,
     b.      að smám saman verði þróuð aðferð til að fella einyrkja undir skráningu og tilkynningu á vinnuslysum og atvinnusjúkdómum, og
     c.      að mótaðar séu leiðbeiningar, kennsluáætlanir, námsefni og viðeigandi ráðgjöf og þjálfun fyrir einyrkja, sem meðal annars taki til:
                  (i)      öryggis og heilbrigði þeirra sjálfra og þeirra sem með þeim starfa að því er varðar starfstengdar hættur, þ.m.t. hættu á vöðva- og stoðkerfissjúkdómum, val og notkun efna og líffræðilegra skaðvalda, hönnun öruggra vinnukerfa og val, notkun og viðhald á persónuhlífum, vélum, verkfærum og tækjum; og
                  (ii)      að komið sé í veg fyrir að börn vinni hættuleg störf.
    14. Þar sem efnahagsleg, félagsleg eða stjórnsýsluleg skilyrði leyfa ekki að einyrkjar og fjölskyldur þeirra falli undir opinbert eða frjálst tryggingakerfi, skulu aðildarríki grípa til aðgerða í því skyni að þeir falli smám saman undir kerfi sem kveðið er á um í 21. gr. samþykktarinnar. Þessu mætti ná með:
     a.      þróun á sérstöku tryggingakerfi eða tryggingasjóði,
     b.      aðlögun á því almannatryggingakerfi sem þegar er fyrir hendi.
    15. Við framkvæmd framangreindra ráðstafana varðandi einyrkja ber að taka tillit til sérstöðu:
     a.      leiguliða með smábúskap og launafólks sem fær greitt í hluta af uppskeru;
     b.      sjálfseignarbænda á smájörðum;
     c.      þátttakenda í samyrkjubúrekstri, svo sem búrekstri í samvinnufélagsformi;
     d.      fjölskyldumeðlima, samkvæmt skilgreiningu landslaga og venju;
     e.      sjálfsþurftabænda; og
     f.      annarra þeirra sem starfa við landbúnað á eigin vegum í samræmi við landslög og venju.



Fylgiskjal III.


Tilmæli nr. 193, um eflingu samvinnufélaga.



    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
    samankomið samkvæmt kvaðningu stjórnarnefndar Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til 90. þingsetu sinnar í Genf hinn 3. júní 2002,
    sem er ljóst mikilvægi samvinnufélaga til atvinnusköpunar og nýtingar auðlinda og fjármagns, og framlag þeirra til efnahagslífsins, og
    sem er ljóst að samvinnufélög í sínum ýmsu myndum stuðla að sem mestri þátttöku í efnahagslegri og félagslegri þróun allra samfélaga, og
    sem er ljóst að alþjóðavæðing hefur hvað samvinnufélög snertir gert nýjar og áður óþekktar kröfur og leitt til nýrra vandamála, verkefna og tækifæra, og að aukin þörf er fyrir eflda félagslega samstöðu bæði innan einstakra landa og á alþjóðavettvangi til að ná fram sanngjarnari dreifingu þess ávinnings sem alþjóðavæðing leiðir til,
    sem minnist yfirlýsingar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grundvallarréttindi í atvinnulífinu, sem samþykktar voru af 86. Alþjóðavinnumálaþinginu árið 1998, réttinda þeirra og meginreglna sem kveðið er á um í alþjóðlegum samþykktum og tilmælum, einkum samþykkt um nauðungarvinnu frá 1930, samþykkt um félagafrelsi og verndun þess frá 1948, samþykkt um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega frá 1949, samþykkt um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf frá 1951, samþykkt um lágmark félagslegs öryggis frá 1952, samþykkt um afnám nauðungarvinnu frá 1957, samþykkt um misrétti með tilliti til atvinnu eða starfs frá 1958, samþykkt um stefnu í atvinnumálum frá 1964, samþykkt um lágmarksaldur við vinnu frá 1973, samþykkt og tilmælum um félagafrelsi landbúnaðarverkafólks frá 1975, samþykkt og tilmælum um uppbyggingu mannauðs frá 1975, tilmælum um stefnu í atvinnumálum (viðbótarákvæði) frá 1984, tilmælum um atvinnusköpun í litlum og meðalstórum fyrirtækjum frá 1998, og samþykkt um bann við barnavinnu í sinni verstu mynd frá 1999, og
    sem minnist þeirrar grundvallarreglu sem fram kemur í Fíladelfíuyfirlýsingunni, að „vinna er ekki verslunarvara“, og
    sem minnist þess að mannsæmandi starf til handa verkafólki alls staðar er meginmarkmið Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, og
    sem hefur ákveðið að samþykkja tilteknar ábendingar varðandi eflingu samvinnufélaga, sem er fjórða mál á dagskrá þingsins, og
    sem hefur ákveðið að þær ábendingar skuli gerðar í formi tilmæla,
    samþykkir í dag, hinn 20. júní árið 2002, eftirfarandi tilmæli, sem vísa má til sem „tilmæla frá 2002 um eflingu samvinnufélaga“.

I. GILDISSVIÐ, SKILGREINING OG MARKMIÐ


    1. Viðurkennt er að samvinnufélög starfa á öllum sviðum efnahagslífsins. Tilmæli þessi gilda um allar gerðir og form samvinnufélaga.
    2. Í tilmælum þessum merkir orðið „samvinnufélag“ sjálfstætt félag sem fólk myndar af frjálsum vilja til að þjóna efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum þörfum og markmiðum með starfi fyrirtækis sem það á sameiginlega og stjórnað er með lýðræðislegum hætti.
    3. Stuðla ber að því að samvinnufélög, sem sérstakt form fyrirtækja, verði efld og styrkt á grundvelli:
     a.      samvinnuhugsjóna um sjálfshjálp, sjálfsábyrgð, lýðræði, jafnrétti, sanngirni og samstöðu, jafnt sem siðferðilegra gilda um heiðarleika, opna starfshætti, félagslega ábyrgð og umhyggju fyrir öðrum, og
     b.      meginreglna um samvinnu eins og þær hafa byggst upp innan hinnar alþjóðlegu samvinnuhreyfingar og vísað er til í viðauka við tilmæli þessi. Þær meginreglur eru: að aðild að samvinnufélögum sé frjáls og opin, að þau lúti lýðræðislegri stjórn félagsmanna, að félagsmenn taki efnahagslegan þátt í þeim, að þau séu sjálfstæð og óháð, að þau veiti fræðslu, menntun og upplýsingar, að þau stundi samvinnu sín á milli, og að umhyggja sé borin fyrir samfélaginu.
    4. Gera ber ráðstafanir til eflingar á möguleikum samvinnufélaga í öllum löndum, á hvaða stigi þróunar sem þau kunna að vera, við að aðstoða þau og félagsmenn í þeim til að:
     a.      skapa og byggja upp starfsemi þar sem tekna er aflað, og varanlega og mannsæmandi sjálfbæra atvinnu,
     b.      byggja upp mannauð og þekkingu á gildum, kostum og gæðum samvinnuhreyfingarinnar með fræðslu og menntun,
     c.      byggja upp rekstrarhæfni þeirra, þar á meðal frumkvæðis- og stjórnunarhæfni,
     d.      styrkja samkeppnishæfni þeirra og afla aðgangs að mörkuðum og stofnanafjárfestingum,
     e.      auka sparnað og fjárfestingu,
     f.      bæta félagslega og efnahagslega velferð um leið og komið er í veg fyrir mismunun af öllu tagi,
     g.      stuðla að stöðugri þróun mannauðs, og
     h.      stofna og útfæra sérstakan, traustan og þróttmikinn geira innan efnahagslífsins þar sem meðal annars eru samvinnufélög, og sem svarar félagslegum og efnahagslegum þörfum samfélagsins.
    5. Hvetja ber til sérstakra ráðstafana til að gera samvinnufélögum, sem fyrirtækjum og stofnunum er byggjast á samstöðu, kleift að bregðast við þörfum félagsmanna og samfélagsins, meðal annars þeirra sem tilheyra hópum er búa við erfiðleika, svo að þeir falli inn í samfélagið.

II. STEFNA OG HLUTVERK RÍKISVALDS


    6. Í samfélagi sem er í jafnvægi verða að vera til þróttmikil svið opinberrar starfsemi og starfsemi einkaaðila, jafnt sem öflugt svið samvinnu og gagnkvæmni, félagssvið sem ekki heyrir undir hið opinbera. Það er á því sviði sem ríkisvaldinu ber að veita stuðning og sjá fyrir lagalegum ramma sem samræmist eðli og starfsemi samvinnufélaga, er stjórnast af þeim samvinnugildum og meginreglum sem kveðið er á um í 3. tölulið, og sem:
     a.      setur á fót stofnanaramma í því skyni að unnt sé að skrásetja samvinnufélög með eins skjótum, einföldum, ódýrum og skilvirkum hætti og unnt er,
     b.      stuðlar að stefnumörkun sem miðar að því að byggja upp viðeigandi varasjóði, sem að minnsta kosti að hluta skulu vera óskiptanlegir, og samstöðusjóði innan samvinnufélaga,
     c.      kveður á um ráðstafanir til umsjónar með samvinnufélögum sem hæfa eðli þeirra og starfsemi, virða sjálfstæði þeirra og samræmast lögum og framkvæmd innanlands, og sem eru samvinnufélögum ekki síður hagkvæmar en þær sem gilda um fyrirtæki og félagslegar stofnanir í öðru formi,
     d.      auðvelda aðild samvinnufélaga að samvinnusamböndum sem svara þörfum félagsmanna, og
     e.      hvetur til uppbyggingar samvinnufélaga sem sjálfstæðra og sjálfráða fyrirtækja, einkum þar sem samvinnufélög hafa mikilvægu hlutverki að gegna eða veita þjónustu sem annars yrði ekki veitt.
    7. (1) Líta ber á það sem eina af undirstöðum innlendrar og alþjóðlegrar efnahagslegrar og félagslegrar uppbyggingar að hvatt sé til samvinnurekstrar með þær hugsjónir og meginreglur að leiðarljósi sem kveðið er á um í 3. tölulið.
    (2) Fara ber með samvinnufélög í samræmi við lög og framkvæmd innanlands og búa þeim skilyrði sem ekki eru síður hagkvæm en þau sem gilda um fyrirtæki og félagslegar stofnanir í öðru formi. Ríkisvaldinu ber þar sem við á að koma á ráðstöfunum til að styðja starfsemi samvinnufélaga sem þjónar tilgreindum félagslegum og opinberum stefnumiðum, svo sem að auka atvinnu og byggja upp starfsemi til gagns hópum eða svæðum sem eiga við erfiðleika að etja. Meðal annars og að því marki sem unnt er geta slíkar ráðstafanir falið í sér skattahagræði, lán, styrki, aðgang að framkvæmdum á vegum hins opinbera, og sérstakar reglur um útboð.
    (3) Huga ber sérstaklega að því að auka þátttöku kvenna á öllum stigum innan samvinnuhreyfingarinnar, einkum við stjórnun og forystu.
    8. (1) Í stefnumörkun hvers lands ber einkum:
     a.      að stuðla að framgangi grundvallarsamþykkta og tilmæla Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnu og yfirlýsingar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grundvallarréttindi í atvinnulífinu hvað snertir alla starfsmenn innan samvinnufélaga án nokkurs greinarmunar,
     b.      að tryggja að samvinnufélög séu ekki stofnuð eða notuð til að fara í bág við vinnulöggjöf eða nýtt til að dylja eðli starfssambands sem stofnað er til, og berjast gegn fyrirtækjum sem eru samvinnufélög aðeins í orði og brjóta gegn réttindum verkafólks, með því að tryggja að vinnulöggjöf sé framfylgt innan allra fyrirtækja,
     c.      að stuðla að jafnrétti kynjanna innan samvinnufélaga og í starfsemi þeirra,
     d.      að stuðla að ráðstöfunum til að tryggja að bestu starfsháttum sé fylgt innan samvinnufélaga, þar á meðal að aðgangur sé tryggður að viðeigandi upplýsingum,
     e.      að byggja upp tæknilega getu og verkhæfni, frumkvæði og stjórnunarhæfileika, þekkingu á rekstrarmöguleikum og almenna efnahagslega og félagslega hæfni meðal félagsmanna, starfsmanna og stjórnenda, og bæta aðgang þeirra að upplýsinga- og samskiptatækni,
     f.      að stuðla að kennslu og menntun hvað varðar meginreglur og framkvæmd í samvinnustarfi á öllum viðeigandi stigum hins innlenda mennta- og starfsþjálfunarkerfis og í samfélaginu almennt,
     g.      að stuðla að ráðstöfunum er efla öryggi og heilsuvernd á vinnustað,
     h.      að kveða á um menntun og aðstoð í öðru formi til að efla framleiðni og samkeppnishæfni samvinnufélaga og gæði þeirrar vöru og þjónustu sem þau láta í té,
     i.      að auðvelda aðgang samvinnufélaga að lánsfé,
     j.      að auðvelda aðgang samvinnufélaga að mörkuðum,
     k.      að stuðla að kynningu á samvinnufélögum, og
     l.      að leitast við að bæta hagtölur um samvinnufélög innanlands með tilliti til þess að þróunarstefna sé mörkuð og framkvæmd.
    (2) Í slíkri stefnu ber að:
     a.      láta einstökum svæðum og stöðum eftir, þar sem við á, að sjá um mörkun og framkvæmd stefnu og setningu og framkvæmd reglna um samvinnufélög,
     b.      skilgreina lagalegar skyldur samvinnufélaga í atriðum svo sem skrásetningu, fjárhagslegri endurskoðun, félagslegri úttekt og öflun á leyfum, og
     c.      stuðla innan samvinnufélaga að bestu starfsháttum við fyrirtækjastjórnun.
    9. Ríkisvaldinu ber að efla hið mikilvæga hlutverk samvinnufélaga við að umbreyta því sem tíðum verður að telja jaðarstarfsemi til sjálfsþurfta og oft er nefnt „hið óformlega hagkerfi“, í lögverndaða atvinnu, sem fellur að öllu leyti að efnahagslífinu í heild.

III. FRAMKVÆMD OPINBERRAR STEFNU
TIL EFLINGAR SAMVINNUFÉLÖGUM

    10. (1) Aðildarríkjum ber að setja löggjöf og stjórnsýslureglur um samvinnufélög með þau gildi og þær meginreglur að leiðarljósi sem kveðið er á um í 3. tölulið, og endurskoða löggjöfina og reglurnar þegar við á.
    (2) Ríkisvaldinu ber að hafa samráð við samvinnusambönd og viðkomandi samtök atvinnurekenda og launafólks við setningu laga og reglna og við mörkun stefnu um samvinnufélög.
    11. (1) Ríkisvaldinu ber að auðvelda aðgang samvinnufélaga að stuðningsþjónustu í því skyni að styrkja þau og efla rekstrarhæfni þeirra og getu þeirra til atvinnusköpunar og tekjuöflunar.
    (2) Til slíkrar þjónustu ber að telja, hvarvetna þar sem unnt er:
     a.      framkvæmd áætlana um uppbyggingu mannauðs,
     b.      rannsóknarstarf og stjórnunarráðgjöf,
     c.      aðgang að fjármagni og fjárfestingu,
     d.      bókhalds- og endurskoðunarþjónustu,
     e.      veitingu stjórnunarupplýsinga,
     f.      upplýsinga- og almannatengslaþjónustu,
     g.      ráðgjafarþjónustu á sviði tækni og nýsköpunar,
     h.      lögfræðiþjónustu og þjónustu á sviði skattamála,
     i.      stuðning við markaðssetningu, og
     j.      aðra stuðningsþjónustu eftir því sem við á.
    (3) Ríkisvaldinu ber að greiða fyrir því að slík stuðningsþjónusta sé fyrir hendi. Hvetja ber samvinnufélög og sambönd þeirra til þátttöku í skipulagningu og rekstri slíkrar þjónustu, og til að kosta hana hvarvetna þar sem framkvæmanlegt er og við á.
    (4) Ríkisvaldinu ber að viðurkenna hlutverk samvinnufélaga og sambanda þeirra með því að byggja upp viðeigandi möguleika til að stofna og styrkja samvinnufélög á landsvísu og staðbundið.
    12. Þar sem við á ber ríkisvaldinu að gera ráðstafanir til að auðvelda samvinnufélögum aðgang að fjárfestingarfé og lánsfé. Með slíkum ráðstöfunum ber einkum að:
     a.      gera mögulegt að lán og önnur fjárhagsleg fyrirgreiðsla sé boðin fram,
     b.      einfalda stjórnsýslumeðferð, bæta úr eiginfjárskorti og draga úr lántökukostnaði,
     c.      greiða fyrir sjálfstæðri fjármögnunartilhögun í þágu samvinnufélaga, þar á meðal samvinnufélaga á sviði inn- og útlána, bankastarfsemi og vátryggingastarfsemi, og
     d.      innifela sérreglur í þágu hópa sem eiga við erfiðleika að etja.
    13. Til eflingar samvinnuhreyfingunni ber ríkisvaldinu að stuðla að því að aðstæður skapist sem hvetja til uppbyggingar tæknilegra, viðskiptalegra og fjárhagslegra tengsla milli samvinnufélaga af öllu tagi, þannig að auðveldara verði að skiptast á reynslu, axla áhættu og njóta hagræðis sameiginlega.

IV. HLUTVERK SAMTAKA ATVINNUREKENDA OG LAUNAFÓLKS
OG SAMVINNUFÉLAGA, OG SAMSKIPTI ÞEIRRA

    14. Um leið og samtök atvinnurekenda og launafólks viðurkenna mikilvægi samvinnufélaga við að ná markmiðum um sjálfbæra þróun ber þeim ásamt samböndum samvinnufélaga að leita leiða til að efla samvinnustarf.
    15. Samtökum atvinnurekenda ber þar sem við á að taka til athugunar að veita aðild samvinnufélögum sem þess óska, og veita þeim viðeigandi stuðning með sömu skilyrðum og gilda um aðra aðila að þeim.
    16. Hvetja ber samtök launafólks til að:
     a.      leggja til við starfsmenn í samvinnufélögum að gerast meðlimir í samtökum launafólks og veita þeim aðstoð til þess,
     b.      aðstoða meðlimi sína við að stofna samvinnufélög, þar á meðal til að greiða fyrir aðgangi að vöru og þjónustu til grundvallarþarfa,
     c.      taka þátt í staðbundnum, landsbundnum og fjölþjóðlegum nefndum og starfshópum sem fjalla um efnahagsleg og félagsleg álitaefni er skipta máli fyrir samvinnufélög,
     d.      aðstoða við og taka þátt í stofnun nýrra samvinnufélaga með tilliti til þess að skapa atvinnu og halda uppi atvinnu, þar á meðal þegar fyrirhugað er að hætta rekstri fyrirtækja,
     e.      aðstoða við og taka þátt í áætlunum um að bæta framleiðni samvinnufélaga,
     f.      stuðla að jöfnum tækifærum innan samvinnufélaga,
     g.      stuðla að því að starfsmenn sem eru félagar í samvinnufélögum nýti réttindi sín, og
     h.      takast á hendur hvað eina annað sem stuðlar að viðgangi samvinnufélaga, þar á meðal fræðslu og þjálfun.
    17. Hvetja ber samvinnufélög og samtök í fyrirsvari fyrir þeim til að:
     a.      koma á virkum tengslum við samtök atvinnurekenda og launafólks og stofnanir innan og utan hins opinbera sem láta sig mál þeirra varða, í því skyni að skapa aðstæður sem eru hagfelldar fyrir þróun samvinnufélaga,
     b.      reka sjálf stuðningsstarfsemi og leggja fram fé til hennar,
     c.      veita tengdum samvinnufélögum viðskiptalega og fjárhagslega þjónustu,
     d.      fjárfesta í mannauði og stuðla að mannauði meðal félagsmanna, starfsfólks og stjórnenda,
     e.      stuðla að uppbyggingu sambanda innlendra og fjölþjóðlegra samvinnufélaga og tengslum við þau,
     f.      vera í fyrirsvari fyrir hina innlendu samvinnuhreyfingu á alþjóðavettvangi, og
     g.      sinna öðrum málefnum til eflingar samvinnufélögum.

V. ALÞJÓÐLEG SAMVINNA


    18. Auðvelda ber alþjóðlega samvinnu með því að:
     a.      skiptast á upplýsingum um stefnu og aðgerðir sem reynst hafa bera árangur við atvinnusköpun og tekjumyndun í þágu félagsmanna í samvinnufélögum,
     b.      hvetja til og stuðla að tengslum meðal innlendra og fjölþjóðlegra aðila og stofnana sem fást við uppbyggingu samvinnufélaga, til að gera þeim kleift að:
                  (i)      skiptast á starfsfólki og hugmyndum, fræðslu- og kennsluefni, aðferðum og gögnum,
                  (ii)      taka saman og nýta rannsóknarefni og annað efni um samvinnufélög og uppbyggingu þeirra,
                  (iii)      stofna til bandalaga og alþjóðlegra samtaka meðal samvinnufélaga,
                  (iv)      efla og vernda hugsjónir og meginreglur samvinnuhreyfingarinnar, og
                  (v)      stofna til viðskiptatengsla meðal samvinnufélaga.
     c.      veita samvinnufélögum aðgang að innlendum og alþjóðlegum upplýsingum, svo sem markaðsupplýsingum, löggjöf, kennsluaðferðum, tækni og framleiðslustöðlum, og
     d.      móta þar sem ástæða er til og við á, og í samvinnu við samvinnufélög og hlutaðeigandi samtök atvinnurekenda og verkafólks, sameiginlegar svæðisbundnar og fjölþjóðlegar leiðbeiningarreglur og löggjöf til stuðnings við samvinnufélög.

VI. LOKAÁKVÆÐI


    19. Tilmæli þessi eru endurskoðun á „tillögum um samvinnufélög í þróunarlöndum“ frá 1966, og koma í stað þeirra.


VIÐAUKI

ÚTDRÁTTUR ÚR YFIRLÝSINGU UM SAMVINNUHUGSJÓNINA,
SAMÞYKKTRI AF ALLSHERJARÞINGI ALÞJÓÐASAMTAKA
SAMVINNUFÉLAGA ÁRIÐ 1995

    Meginreglur um samvinnu fela í sér leiðbeiningar sem samvinnufélög fylgja til að koma hugsjónum sínum í framkvæmd.

Opin og frjáls aðild.


    Samvinnufélög eru félög sem félagsmenn taka þátt í af frjálsum vilja og eru opin öllu fólki sem fært er til að nýta sér þau og vill axla þá ábyrgð sem fylgir aðild að þeim, án greinarmunar hvað snertir kynferði, félagslega stöðu, kynþátt, stjórnmála- eða trúarskoðun.

Lýðræðisleg stjórn félagsmanna.


    Samvinnufélög eru lýðræðislegar stofnanir undir stjórn félagsmanna, sem sjálfir marka stefnu þeirra og taka ákvarðanir. Karlar og konur sem gegna störfum kjörinna fulltrúa svara fyrir gerðir sínar gagnvart félagsmönnum. Í frumsamvinnufélögum er atkvæðisréttur félagsmanna jafn (eitt atkvæði fyrir hvern félaga), og samvinnufélög á öðrum stigum eru einnig skipulögð með lýðræðislegum hætti.

Efnahagsleg þátttaka félagsmanna.


    Félagsmenn leggja með sanngjörnum hætti fram fjármagn til samvinnufélags síns og ráða yfir því lýðræðislega. Venjulega er a.m.k. hluti þess fjár í sameign innan félagsins.
    Félagsmenn njóta yfirleitt takmarkaðs arðs, ef nokkurs, af fé því sem leggja ber fram sem skilyrði fyrir aðild. Félagsmenn verja tekjuafgangi í einhverju eða öllu eftirfarandi skyni: Til uppbyggingar samvinnufélagsins, hugsanlega til myndunar varasjóðs sem a.m.k. að hluta er ekki skiptanlegur, til ágóða fyrir félagsmenn í hlutfalli við viðskipti sín við samvinnufélagið, og til stuðnings við önnur verkefni sem félagsmenn hafa samþykkt.

Sjálfræði og sjálfstæði.


    Samvinnufélög eru sjálfstæðar stofnanir til sjálfshjálpar, sem félagsmenn stjórna. Ef þau gera samninga við aðrar stofnanir, þ.m.t. ríkisvaldið, eða afla fjár frá utanaðkomandi aðilum, gera þau það með skilmálum sem tryggja að þau lúti lýðræðislegri stjórn félagsmanna og haldi sjálfstæði sínu sem samvinnufélög.

Fræðsla, menntun og upplýsingar.


    Samvinnufélög sjá félagsmönnum sínum, kjörnum fulltrúum, stjórnendum og starfsmönnum fyrir fræðslu og menntun svo að þeir geti betur stuðlað að uppbyggingu samvinnufélagsins. Þau veita almenningi, einkum ungu fólki og þeim sem eru leiðandi í skoðanamyndun, upplýsingar um eðli samvinnu og það hagræði sem af henni leiðir.

Samvinna meðal samvinnufélaga.


    Samvinnufélög þjóna best félagsmönnum sínum og styrkja samvinnuhreyfinguna best með því að vinna saman innan staðbundinna, landsbundinna og fjölþjóðlegra stofnana.

Umhyggja fyrir samfélaginu.


    Samvinnufélög starfa að sjálfbærri þróun samfélaga sinna með framkvæmd stefnu sem félagsmenn þeirra hafa samþykkt.



Fylgiskjal IV.


Tilmæli nr. 194, um skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma.


    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, sem kom saman til 90. þingsetu sinnar í Genf 3. júní 2002, eftir kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    minnist ákvæða samþykktarinnar og tilmælanna um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi, 1981, og samþykktarinnar og tilmælanna um heilsugæslu á vinnustöðum, 1985, og
    bendir ennfremur á skrána fyrir atvinnutengda sjúkdóma með áorðnum breytingum 1980, sem látin var fylgja samþykktinni um bætur vegna slysa við vinnu,1964, og
    með vísan til nauðsynjar þess að styrkja skráningar- og tilkynningarferli fyrir atvinnutengd slys og sjúkdóma, með það að markmiði að bera kennsl á orsakir þeirra, koma á fyrirbyggjandi aðferðum, stuðla að samræmingu skráningar- og tilkynningarkerfa, og að bæta bótaferlið að því er varðar atvinnutengd slys og atvinnutengda sjúkdóma, og
    með vísan til nauðsynjarinnar á einfaldara ferli til þess að uppfæra skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma, og
    þar eð þingið hefur ákveðið að samþykkja tilteknar ábendingar er snerta skráningu og tilkynningu atvinnutengdra slysa og sjúkdóma, og reglulega endurskoðun og uppfærslu á skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma, sem er fimmta atriðið á dagskrá þessa þings, og
    þar sem þingið hefur ákveðið að þessar ábendingar skuli gerðar í formi tilmæla samþykkir þingið í dag, 20. júní 2002, eftirfarandi tilmæli sem nefna má tillögu um skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma, 2002,
     1.      Þegar sett eru upp, endurskoðuð og notuð kerfi til skráninga og tilkynningar atvinnutengdra slysa og sjúkdóma, ber til þess bæru stjórnvaldi að taka mið af vinnureglunum frá 1966 varðandi skráningu og tilkynningu atvinnutengdra slysa og sjúkdóma, svo og annarra leiðbeiningarreglna eða viðmiðana varðandi þetta, sem samþykktar verða síðar meir af hálfu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
     2.      Til þess bæru stjórnvaldi ber að koma upp skrá á landsvísu yfir atvinnutengda sjúkdóma, í því skyni að fyrirbyggja þá, skrá, tilkynna og, sé um það að ræða, greiða bætur og ber að hafa um þetta samráð við helstu samtök atvinnurekenda og launafólks, beita þeim aðferðum er best hæfa aðstæðum og venjum í landinu og vinna verkið í áföngum eftir því sem nauðsyn krefur. Þessi skrá ætti:
                  a.      í forvarnar-, skráningar-, tilkynningar og bótagreiðsluskyni að taka til a.m.k. þeirra sjúkdóma sem taldir eru upp í viðauka 1 við samþykktina um bætur vegna slysa við vinnu, 1964, með áorðnum breytingum 1980,
                  b.      taka til, að því marki sem kostur er, annarra sjúkdóma sem eru á skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma sem fylgir tilmælum þessum í viðauka, og
                  c.      taka til, að því marki sem kostur er, kafla er beri heitið „hugsanlegir atvinnusjúkdómar“.
     3.      Skrána sem fylgir þessum tilmælum í viðauka ætti að endurskoða reglulega og uppfæra á fundum með þátttöku fulltrúa atvinnurekenda, launafólks og ríkisstjórna sem stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar boðar til. Allar nýjar skrár sem þannig verða til skal leggja fyrir stjórnarnefndina til samþykktar og þegar þær hafa verið samþykktar skulu þær koma í stað fyrri skráa og þá sendar aðildarríkjum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
     4.      Landsskrár um atvinnutengda sjúkdóma ætti að endurskoða og uppfæra að teknu tilliti til síðustu listauppfærslu samkvæmt 3. grein hér að ofan.
     5.      Aðildarríkin skulu senda landsskrá sína yfir atvinnutengda sjúkdóma til alþjóðavinnumálaskrifstofunnar þegar er hún hefur verið gerð eða endurskoðuð í því skyni að auðvelda reglulega endurskoðun og uppfærslu skrárinnar um atvinnutengda sjúkdóma sem fylgir tilmælum þessum í viðauka.
     6.      Aðildarríkin skulu árlega láta alþjóðavinnumálaskrifstofunni í té hagtölur um atvinnutengd slys og sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik og slys á leið til eða úr vinnu, í því skyni að auðvelda skipti á slíkum upplýsingum og samanburð þeirra á alþjóðavísu.


     VIÐAUKI

Skrá yfir atvinnutengda sjúkdóma.



1. Sjúkdómar sem eiga rætur að rekja til tiltekinna orsakavalda.


1.1.             Sjúkdómar af völdum tiltekinna efna eða efnafræðilegra sambanda.
1.1.1.     Sjúkdómar af völdum beryllíns eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.2.     Sjúkdómar af völdum kadmíums eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.3.     Sjúkdómar af völdum fosfórs eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.4.     Sjúkdómar af völdum króms eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.5.     Sjúkdómar af völdum mangans eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.6.     Sjúkdómar af völdum arsens/arseniks eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.7.     Sjúkdómar af völdum kvikasilfurs eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.8.     Sjúkdómar af völdum blýs eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.9.        Sjúkdómar af völdum flúors eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.10.     Sjúkdómar af völdum koldísúlfíðs.
1.1.11.     Sjúkdómar af völdum eitraðra halógen-afleiða alífatískra eða arómatískra kolvatnsefna.
1.1.12.     Sjúkdómar af völdum bensen eða eitraðra samsvarandi efna.
1.1.13.     Sjúkdómar af völdum eitraðra nítró- og amínó-afleiða benzens eða samsvarandi efna.
1.1.14.     Sjúkdómar af völdum nítróglusseríns eða annarra estera saltpéturssýru.
1.1.15.     Sjúkdómar af völdum alkóhóla, etýlenglýkóla eða ketóna.
1.1.16.     Sjúkdómar af völdum kæfandi efna/köfnunarvalda: kolsýrings/kolmónoxíðs, blásýra eða eitraðra afleiða þess eða brennisteins-vetnis.
1.1.17.     Sjúkdómar af völdum akrílnítríls.
1.1.18.     Sjúkdómar af völdum nituroxíða.
1.1.19.     Sjúkdómar af völdum vanadíns eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.20.    Sjúkdómar af völdum antímóns eða eitraðra efnasambanda þess.
1.1.21.     Sjúkdómar af völdum hexans/hexana.
1.1.22.     Tannsjúkdómar af völdum ólífrænna sýra.
1.1.23.     Sjúkdómar af völdum lyfja.
1.1.24.     Sjúkdómar af völdum þallíns eða efnasambanda þess.
1.1.25.     Sjúkdómar af völdum osmíns eða efnasambanda þess.
1.1.26.     Sjúkdómar af völdum selens eða efnasambanda þess.
1.1.27.     Sjúkdómar af völdum kopars eða efnasambanda hans.
1.1.28.     Sjúkdómar af völdum tins eða efnasambanda þess.
1.1.29.     Sjúkdómar af völdum sinks eða efnasambanda þess.
1.1.30.     Sjúkdómar af völdum ósons eða fosgens.
1.1.31.     Sjúkdómar af völdum ertandi efna: bensókínóns og annarra hornhimnuertiefna.
1.1.32.     Sjúkdómar af völdum hvaða annarra kemískra efna sem vera kann og ekki eru upp talin í greinum 1.1.1 til 1.1.31 hér á undan, þar sem liggja fyrir tengsl milli starfsmanns við þessi efni og sjúkdóma sem hann fær.
1.2.             Sjúkdómar af völdum eðlisfræðilegra orsakavalda.
1.2.1         Heyrnarskerðing af völdum hávaða.
1.2.2.     Sjúkdómar af völdum titrings (truflanir á starfsemi vöðva, sina (tendons), beina, liðamóta, útæða og úttauga, æða og tauga í útlimum og á utanverðum búk, hálsi og höfði.
1.2.3.     Sjúkdómar af völdum vinnu í þrýstilofti.
1.2.4.     Sjúkdómar af völdum jónandi geislunar.
1.2.5         Sjúkdómar af völdum hitageislunar.
1.2.6.     Sjúkdómar af völdum útfjólublárrar geislunar.
1.2.7.     Sjúkdómar af völdum hitaöfga (t.d. sólstings, kals).
1.2.8.     Sjúkdómar af völdum hvaða annarra eðlisfræðilegra orsakavalda sem vera kann og ekki eru upp taldir í greinum 1.2.1 til 1.2.7 hér á undan, þar sem liggja fyrir tengsl milli starfsmanns og eðlisfræðilegs orsakavalds og sjúkdóma sem hann fær.
1.3.             Sjúkdómar af völdum líffræðilegra/lífrænna orsakavalda.
1.3.1         Smitsjúkdómar eða sníklasjúkdómar sem maður fær við starf þar sem veruleg hætta er á smiti.

2. Sjúkdómar í líffærakerfum sem verða fyrir áverkum.


2.1.             Atvinnutengdir öndunarfærasjúkdómar.
2.1.1.     Lungnaryks-/ryklunga-sjúkdómar af völdum herslamyndandi steinryks (kísillunga, kollunga, asbestlunga, steinlunga)og kísilberklar (silicotuberculosis), að því tilskildu að kísillunga sé lykilþáttur í því orkutapi eða dauða sem af hlýst.
2.1.2.     Lungna- og lungnaberkjusjúkdómar af völdum málmryks.
2.1.3         Lungna- og lungnaberkjusjúkdómar af völdum bómullar-, hör-, hamp- eða sísalhampryks.
2.1.4.     Atvinnutengt asma/atvinnutengdur asmi? af völdum viður-kenndra næmisvaka.
2.1.5         Ofsanæmislungnabólga.
2.1.6.     Vefjajárn.
2.1.7.        Lungnaþemba.
2.1.8.        Lungnasjúkdómar af völdum áls.
2.1.9.     Kvillar í efri öndunarvegi af völdum viðurkenndra næmisvaka eða ertandi efna sem eru eðlislægur hluti af vinnuferlinu.
2.1.10.     Hvaða aðrir öndunarfærasjúkdómar sem vera kann og ekki eru upp taldir í greinum 2.1.1. til 2.1.9 hér á undan, af völdum orsakavalds þar sem liggja fyrir bein tengsl milli starfsmanns við orsakavaldinn og sjúkdóms sem hann fær.
2.2.             Húðsjúkdómar af völdum áþreifanlegra efna eða líffræðilegra orsakavalda sem ekki falla undir önnur atriði.
2.2.2.     Atvinnutengdir skjallblettir á húð.
2.3.             Atvinnutengdir stoðkerfiskvillar.
2.3.1         Stoðkerfissjúkdómar af völdum tiltekinna þátta í verkferli eða verksumhverfi þar sem eru sérstakir áhættuhættir
                       Dæmi um slíka verkþætti eða umhverfi eru:
                  a.     hröð eða síendurtekin hreyfing,
                   b.     verulegt átak,
                 c.     of mikið álag á einstaka líkamshluta,
                   d.     óeðlilegar eða óþægilegar stellingar,
                   e.     titringur.
                        Kuldi á (vinnu)stað eða í umhverfinu kann að auka áhættuna.

3. Atvinnutengt krabbamein.


3.1.             Krabbamein af völdum eftirfarandi efna/orsakavalda.
3.1.1.         Asbest.
3.1.2         Bensidíns (benzedine) og salta þess.
3.1.3.     BCME-klórmetýleter.
3.1.4.     Króm og krómsambönd.
3.1.5.     Koltjara, koltjörubik eða sót.
3.1.6.     Betanaptílamín.
3.1.7.     Vinílklóríð.
3.1.8.     Bensen eða eitruð samsvarandi efni.
3.1.9.     Eitraðar nítró- og amínó-afleiður bensóls eða samsvarandi efni.
3.1.10     Jónandi geislun.
3.1.11.     Tjara, bik, jarðbik, jarðolía eða efnasambönd, afurðir eða úrgangur þessara efna.
3.1.12.     Loftmengun frá kox- eða sindurkolaofnum.
3.1.13.     Nikkelsambönd.
3.1.14.     Timburryk.
3.1.15    Krabbamein af völdum hvaða annarra efna/orsakavalda sem vera kann og ekki eru upp taldir í greinum 3.1.1 til 3.1.14 hér á undan, þar sem liggja fyrir tengsl milli starfsmanns við orsakavaldinn og krabbameinið sem hann fær.

4. Aðrir sjúkdómar.


4.1.             Námumannaaugnriða.



Fylgiskjal V.


Samþykkt nr. 185, um persónuskírteini sjómanna.



    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar,
    sem kom saman til 91. þingsetu sinnar í Genf 3. júní 2002 eftir kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    sem hefur í huga að ávallt steðja hættur að skipum, farþegum og áhöfnum, og ógna enn hagsmunum ríkja og einstaklinga, og
    sem hefur einnig í huga grundvallarmarkmið stofnunarinnar, sem er að stuðla að mannsæmandi vinnuskilyrðum, og
    sem telur, með tilliti til þess að sjóflutningar skipa eru alþjóðlegs eðlis, að sjómenn þarfnist sérstakrar verndar, og
    sem viðurkennir þær meginreglur sem felast í samþykkt um persónuskírteini sjómanna frá 1958 um að auðvelda sjómönnum aðgang að landsvæði aðildarríkja með tilliti til landgönguleyfis, yfirferðar, umferðar eða endursendingar til heimalands, og
    sem minnist samnings um að auðvelda alþjóðlega umferð á sjó frá 1965 með áorðnum breytingum, sem gerður var á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, einkum reglna 3.44 og 3.45, og
    sem minnist þess einnig að ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna nr. A/RES/57/219 (Vernd mannréttinda og grundvallarfrelsis í baráttu gegn hryðjuverkum) staðfestir að ríki verða að tryggja að allar ráðstafanir þeirra í baráttu gegn hryðjuverkum samræmist skuldbindingum þeirra að alþjóðalögum, einkum alþjóðlegum mannréttindum, alþjóðalögum um flóttamenn og alþjóðlegum mannúðarreglum, og
    sem gerir sér grein fyrir að sjómenn starfa og búa um borð i skipum í millilandasiglingum, og að aðgangur að aðstöðu í landi og landgönguleyfi eru ómissandi þættir í almennri velferð sjómanna og því nauðsynlegir til að ná markmiðum um öruggari siglingar og hreinni heimshöf, og
    sem gerir sér einnig grein fyrir að möguleiki til landgöngu er nauðsynlegur til að komast um borð í skip og fara úr skipsrúmi eftir umsaminn starfstíma, og
    sem gefur gaum að breytingum á alþjóðasamningi um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974 með breytingum, um sérstakar ráðstafanir til að bæta siglingaöryggi, sem ráðstefna stjórnarerindreka á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar samþykkti hinn 12. desember 2002, og
    að teknum ákvörðunum um að samþykkja tilteknar tillögur um áreiðanlegri persónuskírteini sjómanna, sem er sjöunda mál á dagskrá þessa þings, og
    að teknum ákvörðunum um að þessar tillögur skuli gerðar í formi alþjóðasamþykktar er endurskoðar alþjóðasamning um persónuskírteini sjómanna frá 1958,
    gerir þingið í dag, 19. júní 2003, eftirfarandi samþykkt sem nefna má endurskoðaða samþykkt um perónuskírteini sjómanna, 2003.

    1. gr.
    Gildissvið.

    1. Í samþykkt þessari merkir sjómaður hvern þann sem vinnur, er ráðinn til starfa eða innir af hendi starf af hvaða tagi sem er um borð í skipi sem venjulega er haldið til siglinga á hafi úti, öðru en herskipi.
    2. Ef vafi leikur á því hvort einhverjir hópar manna skuli teljast sjómenn í skilningi samþykktar þessarar skal úr honum skorið samkvæmt ákvæðum hennar af þar til bæru stjórnvaldi þar sem viðkomandi menn eiga ríkisfang eða fasta búsetu, að höfðu samráði við samtök útgerðarmanna og sjómanna, sem hlut eiga að máli.
    3. Að höfðu samráði við samtök útgerða fiskiskipa og sjómanna sem starfa um borð í fiskiskipum getur stjórnvaldið beitt ákvæðum samþykktar þessarar um fiskveiðar í atvinnuskyni á höfum úti.

2. gr.
Útgáfa persónuskírteina sjómanna.

    1. Hvert aðildarríki sem samþykkt þessi tekur til skal veita hverjum ríkisborgara sínum sem er sjómaður persónuskírteini sjómanns í samræmi við 3. gr. samþykktar þessarar ef hann óskar þess.
    2. Sé ekki kveðið á um annað í samþykkt þessari má gera útgáfu persónuskírteina sjómanna háða sömu skilyrðum og þeim sem landslög og reglur setja um útgáfu ferðaskilríkja.
    3. Hvert aðildarríki getur einnig gefið út þau persónuskírteini sjómanna sem um getur í 1. mgr. til sjómanna sem veitt hefur verið leyfi til varanlegrar búsetu á landsvæði þess. Hvernig sem á stendur skulu handhafar slíkra leyfa ferðast í samræmi við ákvæði 7. mgr. 6. gr.
    4. Hvert ríki skal tryggja að persónuskírteini sjómanna séu útgefin án ástæðulausrar tafar.
    5. Sjómenn skulu eiga rétt á áfrýjun til æðra stjórnvalds ef umsókn þeirra er synjað.
    6. Samþykkt þessi skal í engu skerða skuldbindingar hvers aðildarríkis samkvæmt alþjóðlegri tilhögun er varðar flóttamenn og ríkisfangslausa menn.

3. gr.
Innihald og form.

    1. Persónuskírteini sjómanna sem samþykkt þessi fjallar um skal efnislega vera í samræmi við þá fyrirmynd sem lýst er í I. viðauka við samþykkt þessa. Form skjalsins og það efni sem það er gert úr skal vera í samræmi við hina almennu lýsingu sem tilgreind er í fyrirmyndinni, byggt á þeim viðmiðum sem tilgreindar eru hér á eftir. Sé breyting, sem gerð kann að vera, í samræmi við ákvæði eftirfarandi málsgreina, má þar sem nauðsyn krefur breyta I. viðauka í samræmi við 8. gr., einkum í því skyni að taka tillit til tækniþróunar. Í ákvörðun um að samþykkja breytingu skal tilgreina hvenær breytingin öðlast gildi, með hliðsjón af því að aðildarríki fái nægan tíma til að endurskoða innlend persónuskírteini sjómanna og málsmeðferðarreglur eins og nauðsynlegt kann að vera.
    2. Persónuskírteini sjómanna skulu vera einföld að gerð, úr haldgóðu efni með sérstakri hliðsjón af aðstæðum á sjó, og læs með vélrænum hætti. Efni það sem notað er skal:
     a.      vera svo sem unnt er þannig að komið sé í veg fyrir breytingu eða fölsun og þannig að breytingu megi auðveldlega greina, og
     b.      vera almennt tiltækt stjórnvöldum á því lægsta verði sem samræmist með áreiðanlegum hætti þeim tilgangi sem kveðið er á um í a-lið.
    3. Aðildarríki skulu taka tillit til leiðbeiningareglna sem fyrir hendi kunna að vera og Alþjóðavinnumálastofnunin hefur mótað um tæknileg viðmið sem nota skal, sem auðvelda munu að fylgt verði sameiginlegum alþjóðlegum staðli.
    4. Persónuskírteini sjómanna skulu ekki vera stærri en venjulegt vegabréf.
    5. Í persónuskírteinum sjómanna skal tilgreina nafn þess stjórnvalds sem skírteinið gefur út, upplýsingar sem gera kleift að ná sambandi við það stjórnvald með skjótum hætti, dagsetningu og útgáfustað, og eftirfarandi yfirlýsingar:
     a.      skjal þetta er persónuskírteini sjómanns samkvæmt endurskoðaðri samþykkt um persónuskírteini sjómanna frá 2003, gerðri á vegum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, og
     b.      skjal þetta er sérstakt skjal og gegnir ekki hlutverki vegabréfs.
    6. Hámarksgildistími persónuskírteinis sjómanns skal ákvarðaður samkvæmt lögum og reglum útgáfuríkisins, þó aldrei lengri en tíu ár, og háður endurnýjun að liðnum fimm ára gildistíma.
    7. Lýsing á handhafa í persónuskírteini sjómanns skal takmörkuð við eftirfarandi:
     a.      fullt nafn (fyrsta og síðasta nafn þar sem við á),
     b.      kynferði,
     c.      fæðingardag og -stað,
     d.      ríkisfang,
     e.      sérstök líkamseinkenni sem auðveldað geta persónugreiningu, ef við á,
     f.      stafræna mynd eða ljósmynd, og
     g.      undirskrift.
    8. Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. skal einnig krefjast þess að eftirgerð eða önnur eftirmynd lífkennis handhafa, sem samræmist því sem tilgreint er í I. viðauka, sé innfelld í persónuskírteini sjómanns, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
     a.      ná megi fram lífkenninu án þess að skerða á nokkurn hátt friðhelgi einkalífs viðkomandi manna, valda þeim óþægindum eða skerða virðingu þeirra,
     b.      lífkennið sé sýnilegt á skjalinu og ekki sé unnt að endurgera það frá eftirgerðinni eða eftirmyndinni,
     c.      þau tæki sem nauðsynleg eru til að sýna og sannreyna lífkennið séu auðveld í notkun og almennt tiltæk stjórnvöldum við lítinn kostnað,
     d.      tæki til að sannreyna lífkennið megi nota á handhægan og áreiðanlegan hátt í höfnum og annars staðar, þ.m.t. á skipsfjöl, þar sem persónugreining fer venjulega fram á vegum lögbærra yfirvalda, og
     e.      það kerfi sem notað er til að sannreyna lífkennið (þ.m.t. búnaður, tækni og notkunarhættir) veiti svör sem ekki eru háð skekkjum og eru áreiðanleg til persónugreiningar.
    9. Allar upplýsingar um sjómann sem skráðar eru á skjalið skulu vera sýnilegar. Sjómenn skulu eiga auðveldan aðgang að tækjum sem gera þeim kleift að kynna sér allar upplýsingar sem ekki eru læsilegar berum augum. Sá aðgangur skal veittur af því stjórnvaldi sem skjalið gefur út, eða fyrir þess hönd.
    10. Hvað snertir innihald og form persónuskírteina sjómanna skal farið eftir viðeigandi alþjóðlegum stöðlum sem tilgreindir eru í I. viðauka.

4. gr.
Tölvugagnagrunnur innanlands.

    1. Hvert aðildarríki skal tryggja að upplýsingar um hvert persónuskírteini sjómanns sem það gefur út, fellir úr gildi tímabundið eða afturkallar séu skráðar í tölvugagnagrunn. Gera skal nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að upplýsingum þar sé breytt eða að óviðkomandi komst að gagnagrunninum.
    2. Skráðar uppýsingar skulu takmarkaðar við atriði sem nauðsynleg eru til að sannreyna persónuskírteini sjómanns eða stöðu hans, og sem samræmast friðhelgi einkalífs hans og uppfylla allar viðeigandi kröfur um gagnavernd. Þau atriði eru tilgreind í II. viðauka við samþykkt þessa, sem breyta má með þeim hætti sem kveðið er á um í 8. gr. að teknu tilliti til þess að aðildarríkjum veitist nægilegur frestur til nauðsynlegrar endurskoðunar á gagnagrunnum sínum.
    3. Hvert aðildarríki skal koma á tilhögun sem gerir sjómanni kleift að athuga og sannreyna þær upplýsingar sem hafðar eru eða geymdar í gagnagrunninum og hann varða, og veitir auk þess færi á að gera nauðsynlegar leiðréttingar án kostnaðar fyrir viðkomandi sjómann.
    4. Hvert aðildarríki skal tilnefna varanlega miðstöð til að svara fyrirspurnum frá stjórnvöldum er sinna málefnum útlendinga eða öðrum viðeigandi stjórnvöldum allra aðildarríkja að stofnuninni um réttan uppruna og gildi þeirra persónuskírteina sjómanna sem stjórnvald þess gefur út. Tilkynnt skal til alþjóðavinnumálaskrifstofunnar um hina varanlegu miðstöð í nánari atriðum, og skal skrifstofan halda skrá er send skal öllum aðildarríkjum að henni.
    5. Þau atriði sem tilgreind eru í 2. mgr. skulu hvenær sem er vera tiltæk stjórnvöldum sem fjalla um málefni útlendinga eða öðrum lögbærum yfirvöldum í aðildarríkjum stofnunarinnar, annaðhvort rafrænt eða fyrir milligöngu miðstöðvar þeirrar sem kveðið er á um í 4. mgr.
    6. Hvað samþykkt þessa varðar skal koma á viðeigandi takmörkunum til að tryggja að ekki sé skipst á neinum upplýsingum, og þó sérstaklega ekki ljósmyndum, nema tilhögun sé fyrir hendi sem tryggir að fylgt sé viðeigandi kröfum um persónuvernd og friðhelgi einkalífs.
    7. Aðildarríki skulu tryggja að persónuupplýsingar i tölvugagnagrunni séu ekki notaðar í neinu öðru skyni en til að sannreyna persónuskírteini sjómanna.

5. gr.
Gæðaeftirlit og gæðamat.

    1. Kveðið er á um lágmarkskröfur um ferli og verklagsreglur við útgáfu persónuskírteina sjómanna, þ.m.t. gæðaeftirlit, í III. viðauka við samþykkt þessa. Með þeim lágmarkskröfum er kveðið á um þann árangur sem hvert aðildarríki er skuldbundið til að ná við rekstur þess kerfis sem það notar við útgáfu á persónuskírteinum sjómanna.
    2. Fyrir hendi skulu vera ferli og verklagsreglur til að tryggja nauðsynlegt öryggi við:
     a.      framleiðslu og afhendingu á auðum persónuskírteinum sjómanna,
     b.      varðveislu, meðhöndlun og ábyrgð á auðum og fullgerðum persónuskírteinum sjómanna,
     c.      meðferð umsókna, útfyllingu þess stjórnvalds og skrifstofu sem sér um að breyta auðum persónuskírteinum sjómanna í fullgerð og persónubundin skírteini, og afhendingu persónuskírteina sjómanna,
     d.      starfrækslu og viðhald gagnagrunns, og
     e.      eftirlit með ferlum og reglubundið mat.
    3. Með fyrirvara um ákvæði 2. mgr. má breyta III. viðauka með þeim hætti sem kveðið er á um í 8. gr. að teknu tilliti til þess að aðildarríkjum veitist nægilegur frestur til nauðsynlegrar endurskoðunar á ferlum og verklagsreglum sínum.
    4. Hvert aðildarríki skal eigi sjaldnar en á fimm ára fresti framkvæma sjálfstætt mat á rekstri þess kerfis sem það notar við útgáfu á persónuskírteinum sjómanna, þ.m.t. á gæðaeftirliti sínu. Matsskýrslur skulu, að trúnaðarmálum undanskildum, sendar forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar, ásamt afriti til hlutaðeigandi samtaka útgerðarmanna og sjómanna í viðkomandi aðildarríki. Krafa þessi um skýrslugjöf skal í engu draga úr skyldum aðildarríkja samkvæmt 22. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
    5. Alþjóðavinnumálaskrifstofan skal veita aðildarríkjum kost á að fá matsskýrslur afhentar sér. Til allrar dreifingar sem ekki er heimiluð í samþykkt þessari skal afla samþykkis þess aðildarríkis sem skýrslu hefur veitt.
    6. Stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal, á grundvelli allra viðeigandi upplýsinga samkvæmt tilhögun er hún ákveður, samþykkja skrá yfir aðildarríki sem uppfylla að öllu leyti þær kröfur sem kveðið er á um í 1. mgr.
    7. Skráin skal ávallt vera aðgengileg aðildarríkjum að stofnuninni og skal hún uppfærð er nýjar upplýsingar berast sem máli skipta. Sérstaklega skal þegar í stað tjá aðildarríkjum ef tilgreiningu aðildarríkis á skránni er mótmælt með rökum í tengslum við málsmeðferð samkvæmt 8. mgr.
    8. Samkvæmt málsmeðferðarreglum er stjórnarnefnd setur skal gera ráð fyrir að aðildarríki, sem hafa verið eða kunna að verða felld af skránni, og einnig ríkisstjórnir aðildarríkja sem fullgilt hafa samþykkt þessa og telja sig hafa hagsmuna að gæta, svo og hlutaðeigandi samtök útgerðarmanna og sjómanna, skýri stjórnarnefnd frá sjónarmiðum sínum eftir þeirri tilhögun sem kveðið er á um hér að framan, og að deilur sem upp kunna að koma fáist tímanlega leystar af sanngirni og óhlutdrægni.
    9. Viðurkenning á persónuskírteinum sjómanna sem aðildarríki gefur út er háð því að það uppfylli lágmarkskröfur þær sem kveðið er á um í 1. mgr.

6. gr.
Auðveldari veiting landgönguleyfa og yfirferð og umferð sjómanna.

    1. Séu skýrar ástæður ekki fyrir hendi til að draga í efa réttan uppruna persónuskírteinis sjómanns skal hver sá sjómaður, sem ber gilt persónuskírteini sjómanns útgefið samkvæmt ákvæðum samþykktar þessarar af aðildarríki sem hún er í gildi gagnvart, viðurkenndur sem sjómaður í skilningi hennar.
    2. Þegar óskað er landgöngu fyrir sjómenn samkvæmt 3.–6. mgr. eða 7.–9. mgr. hér á eftir skulu sjómenn og útgerðarmenn ekki bera neinn kostnað af því að staðfesta að sjómaður sé handhafi persónuskírteinis sjómanns sem útgefið er samkvæmt ákvæðum samþykktar þessarar, eða af athugunum og formsatriðum sem því tengjast.

Landgönguleyfi.


    3. Staðfestingum, athugunum og formsatriðum samkvæmt 2. mgr. skal lokið eins skjótt og unnt er, enda hafi lögbærum yfirvöldum borist tilkynning um komu handhafans með sanngjörnum fyrirvara. Í tilkynningu um komu handhafans skal taka fram þau atriði sem tilgreind eru í 1. kafla II. viðauka.
    4. Séu ekki skýrar ástæður til að efast um réttan uppruna persónuskírteinis sjómanns skal hvert aðildarríki sem hefur fullgilt samþykkt þessa eins skjótt og unnt er veita sjómanni sem hefur gilt persónuskírteini sjómanns inngöngu á landsvæði sitt þegar óskað er tímabundins landgönguleyfis meðan skip er í höfn.
    5. Landganga skal heimil ef formsatriðum við komu skips hefur verið fullnægt og lögbær yfirvöld hafa enga ástæðu til að synja um landgöngu með tilliti til almenns heilsufars, almannaöryggis, allsherjarreglu eða þjóðaröryggis.
    6. Til landgönguleyfis skal þess ekki krafist að sjómenn hafi vegabréfsáritun. Hvert það aðildarríki sem ekki er í aðstöðu til að hrinda þessu ákvæði í framkvæmd að fullu skal tryggja að lög þess, stjórnvaldsfyrirmæli og framkvæmd sjái fyrir tilhögun sem samsvarar þessu að efni til.

Yfirferð og umferð.


    7. Hvert aðildarríki sem samþykkt þessi er í gildi gagnvart skal eins fljótt og auðið er einnig heimila sjómönnum, sem hafa gild persónuskírteini sjómanna ásamt vegabréfi, inngöngu á landsvæði sitt þegar inngöngu er óskað til:
     a.      að komast til skips síns eða flytjast yfir á annað skip,
     b.      umferðar til að komast til skips síns í öðru landi eða til að komast til heimalands síns, eða í hverjum öðrum tilgangi sem stjórnvöld í viðkomandi aðildarríki samþykkja.
    8. Landganga skal heimil séu ekki skýrar ástæður til að efast um réttan uppruna persónuskírteinis sjómanns, enda hafi lögbær yfirvöld enga ástæðu til að synja um landgöngu með tilliti til almenns heilsufars, almannaöryggis, allsherjarreglu eða þjóðaröryggis.
    9. Áður en aðildarríki heimilar inngöngu á landsvæði sitt í einhverjum þeim tilgangi sem kveðið er á um í 7. mgr. hér að framan getur það krafist fullnægjandi sannana, þar á meðal í formi skjala, um fyrirætlun sjómanns og getu hans til að framkvæma hana. Aðildarríki getur einnig takmarkað dvöl sjómanns við þann tíma sem talinn er sanngjarn í viðkomandi tilgangi.

7. gr.
Varsla og afturköllun.

    1. Persónuskírteini sjómanns skal ávallt vera í vörslu hans, nema þegar það er falið skipstjóra viðkomandi skips til varðveislu með skriflegu samþykki sjómannsins.
    2. Ríki það sem gaf út persónuskírteini sjómanns skal afturkalla það þegar í stað ef í ljós kemur að sjómaður fullnægir ekki lengur þeim skilyrðum sem sett eru til útgáfu þess samkvæmt samþykkt þessari. Málsmeðferðarreglur til tímabundinnar eða endanlegrar afturköllunar á persónuskírteinum sjómanna skulu samdar í samráði við samtök útgerðarmanna og sjómanna, og skal þar einnig kveðið á um stjórnsýslukærur.

8. gr.
Breytingar á viðaukum.

    1. Með fyrirvara um viðeigandi ákvæði samþykktar þessarar getur Alþjóðavinnumálaþingið breytt viðaukum hennar að tillögu lögmætrar stofnunar eða nefndar sem í eiga sæti fulltrúar sjómanna, útgerðarmanna og ríkisstjórna. Til ákvörðunarinnar þarf atkvæði tveggja þriðju hluta þeirra fulltrúa sem þingið sækja og helmings þeirra aðildarríkja sem fullgilt hafa samþykkt þessa.
    2. Hvert aðildarríki sem fullgilt hefur samþykkt þessa getur tilkynnt forstjóra skriflega innan sex mánaða frá samþykktardegi breytingar að hún skuli ekki öðlast gildi gagnvart honum, eða að hún skuli öðlast gildi síðar samkvæmt síðari skriflegri tilkynningu.

9. gr.
Bráðabrigðaákvæði.

    Hvert aðildarríki sem er aðili að samþykkt um persónuskírteini sjómanna frá 1958 og gerir ráðstafanir með tilliti til fullgildingar þessarar samþykktar samkvæmt 19. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar getur tilkynnt forstjóra um þann ásetning sinn að beita samþykkt þessari til bráðabirgða. Hvað samþykkt þessa varðar skal farið með persónuskírteini sjómanns, sem það aðildarríki gefur út eins og persónuskírteini sjómanns sem gefið er út samkvæmt henni, ef kröfur þær sem kveðið er á um í 2.–5. gr. eru uppfylltar og það aðildarríki viðurkennir persónuskírteini sjómanna sem gefin eru út samkvæmt samþykktinni.

Lokaákvæði.

10. gr.

    Samþykkt þessi er endurskoðun á samþykkt um persónuskírteini sjómanna frá 1958.

11. gr.

    Formlegar fullgildingar samþykktar þessarar skulu sendar forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skrásetningar.

12. gr.

    1. Samþykkt þessi skal einungis vera bindandi fyrir þau aðildarríki Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem hafa látið forstjórann skrá fullgildingar sínar.
    2. Samþykktin gengur í gildi 12 mánuðum eftir að fullgildingar tveggja aðildarríkja hafa verið skráðar hjá forstjóranum.
    3. Síðan gengur samþykktin í gildi að því er snertir hvert aðildarríki 12 mánuðum eftir að fullgilding þess hefur verið skráð.

13. gr.

    1. Aðildarríki sem fullgilt hefur samþykkt þessa getur sagt henni upp að liðnum tíu árum frá gildistöku hennar. Tilkynningu um uppsögn skal senda forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skrásetningar. Uppsögn öðlast ekki gildi fyrr en ár er liðið frá skrásetningardegi hennar.
    2. Aðildarríki sem fullgilt hefur samþykkt þessa en notfærir sér ekki innan árs frá lokum tíu ára tímabilsins, sem um getur í 1. mgr., rétt þann til uppsagnar sem kveðið er á um í þessari grein, skal bundið af henni í annað tíu ára tímabil, en er síðan heimilt að segja henni upp að liðnu hverju tíu ára tímabili í samræmi við ákvæði greinarinnar.

14. gr.

    1. Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal tilkynna öllum aðildarríkjum stofnunarinnar skráningu allra fullgildinga og uppsagna sem aðildarríki stofnunarinnar hafa sent honum.
    2. Þegar forstjórinn tilkynnir aðildarríkjum stofnunarinnar skrásetningu annarrar fullgildingarinnar skal hann vekja athygli þeirra á því hvaða dag samþykktin gengur í gildi.
    3. Forstjórinn skal tilkynna öllum aðildarríkjum um skrásetningu breytinga sem kunna að verða gerðar á viðaukum í samræmi við 8. gr., og um tilkynningar sem það varða.

15. gr.

    Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal senda aðalritara Sameinuðu þjóðanna til skrásetningar samkvæmt 102. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna allar upplýsingar um fullgildingar og uppsagnir sem hann hefur skrásett í samræmi við ákvæði undanfarandi greina.

16. gr.

    Þegar stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar kann að álíta það nauðsynlegt skal hún leggja fyrir allsherjarþingið skýrslu um framkvæmd samþykktar þessarar og athuga jafnframt hvort æskilegt sé að setja á dagskrá þingsins endurskoðun hennar allrar eða hluta hennar, um leið og einnig er tekið tillit til ákvæða 8. gr.

17. gr.

    1. Ef þingið gerir nýja samþykkt sem breytir samþykkt þessari að nokkru eða öllu leyti og sú samþykkt mælir ekki fyrir á annan veg, skal:
     a.      fullgilding aðildarríkis á hinni nýju endurskoðuðu samþykkt lögum samkvæmt sjálfkrafa hafa í för með sér tafarlausa uppsögn samþykktar þessarar, þrátt fyrir ákvæði 13. gr., ef hin nýja endurskoðaða samþykkt öðlast gildi og frá þeim tíma þegar það gerist,
     b.      aðildarríkjum ekki heimilt að fullgilda samþykkt þessa eftir að hin nýja endurskoðaða samþykkt hefur öðlast gildi.
    2. Samþykkt þessi skal, hvað sem öðru líður, halda gildi sínu hvað varðar form og efni í þeim aðildarríkjum sem hafa fullgilt hana en ekki hina endurskoðuðu samþykkt.

18. gr.

    Enskur og franskur texti samþykktar þessarar er jafngildur.


VIÐAUKI


I. viðauki.


Fyrirmynd að persónuskírteinum sjómanna.


    Persónuskírteini sjómanns, með því formi og innihaldi sem kveðið er á um hér á eftir, skal vera úr góðum efnum, sem að því marki sem raunhæft er með tilliti til atriða svo sem kostnaðar, skulu ekki vera almenningi auðveldlega tiltæk. Skjalið skal ekki vera rýmra en nauðsynlegt er til að koma fyrir þeim upplýsingum sem samþykkt þessi kveður á um.
    Þar skal tilgreint nafn útgáfuríkis, og eftirfarandi yfirlýsing:
    „Skjal þetta er persónuskírteini sjómanns samkvæmt endurskoðaðri samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um persónuskírteini sjómanna frá árinu 2003. Skjal þetta er sérstakt skjal, en ekki vegabréf.“
    Upplýsingasíður skjalsins, ein eða fleiri, sem tilgreindar eru með feitletrun hér á eftir, skulu varðar með álímingu eða yfirlagi, eða með því að nota myndunartækni og undirlag sem veita jafn góða vörn gegn því að eitthvað sé sett í stað myndar af handhafa og æviatriða hans.
    Þau efni sem notuð eru og stærðir og staðsetningar á upplýsingum skulu vera samkvæmt því sem tilgreint er í 3. hluta skjals Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) nr. 9303 (2. útgáfa, 2002), eða 1. hluta ICAO-skjals nr. 9303 (5. útgáfa, 2003).
    Önnur öryggisatriði skulu vera að minnsta kosti eitt hinna eftirtöldu:
    Vatnsmerki, útfjólubláir litir, sérstakt blek, sérstök litamynstur, gatamyndir (perforated images), þrívíddarmyndir (holograms), laser-leturgröftur (laser engraving), örprentun (micro- printing) og innbrenndar álímingar (heat-sealed lamination).
    Upplýsingar sem færðar skulu á upplýsingasíðu eða -síður í persónuskírteini sjómanns skulu vera þessar einar:
     I.      Stjórnvald það sem skírteinið gefur út.
     II.      Símanúmer, tölvupóstfang og veffang stjórnvaldsins,
     III.      Útgáfudagur og útgáfustaður.
------ Stafræn mynd eða ljósmynd af sjómanninum ---------
     a.      Fullt nafn sjómanns:
     b.      Kynferði:
     c.      Fæðingardagur og fæðingarstaður:
     d.      Ríkisfang:
     e.      Sérstök líkamseinkenni sjómanns sem auðveldað geta persónugreiningu, ef um þau er að ræða:
     f.      Undirskrift:
     g.      Gildislokadagur:
     h.      Gerð eða heiti skjals:
     i.      Sérnúmer skjals:
     j.      Kennitala (valkvætt):
     k.      Lífkenni byggt á fingrafari sem prentað er í talnaformi með strikamerkingu í samræmi við staðal er komið skal á:
     l.      svæði sem er læsilegt með vélrænum hætti er samsvarar lýsingu ICAO í skjali tilgreindu hér að framan, nr. 9303.
     IV.      Embættisinnsigli eða stimpill útgáfustjórnvalds.
    Útskýringar á upplýsingum:
    Fyrirsagnir viðeigandi svæða á upplýsingasíðu má þýða á tungumál útgáfuríkis. Ef þjóðtunga er önnur en enska, franska eða spænska skulu fyrirsagnir einnig tilgreindar á einhverju þeirra tungumála.
    Nota ber rómverska stafrófið við allar tilgreiningar í skjalinu.
    Þær upplýsingar sem nefndar eru hér að framan skulu settar fram þannig:
     I.      Útgáfustjórnvald: ISO-tilgreining útgáfuríkis og nafn og fullt heimilisfang þess embættis sem gefur út persónuskírteini sjómanns, ásamt nafni og stöðu þess manns sem heimilar útgáfuna.
     II.      Símanúmer, tölvupóstfang og veffang skulu vera þau sem við eiga um þá miðstöð sem kveðið er á um í samþykktinni.
     III.      Útgáfudagur og útgáfustaður: Dagsetning skal rituð með tveimur arabískum tölustöfum í röðinni dagur, mánuður, ár – t.d. 31/12/03, og staður skal ritaður á sama hátt og í vegabréfi ríkisins.
---- Stærð andlitsmyndar: Eins og í ICAO-skjali 9303 sem tilgreint er hér að framan ----
     a.      Fullt nafn sjómanns: Þar sem við á skal ættarnafn ritað fyrst, og síðan önnur nöfn sjómanns,
     b.      Kynferði: Tilgreina skal M fyrir karlmann og F fyrir konu,
     c.      Fæðingardagur og fæðingarstaður: Dagsetning skal rituð með tveimur arabískum tölustöfum í röðinni dagur, mánuður, ár, og staður skal ritaður á sama hátt og í vegabréfi ríkisins,
     d.      Ríkisfang: Tilgreinið ríkisfang,
     e.      Sérstök líkamseinkenni: Tilgreinið, ef við á, augljós líkamseinkenni sem auðvelda persónugreiningu,
     f.      Undirskrift sjómanns:
     g.      Gildislokadagur: Með tveimur arabískum tölustöfum í röðinni dagur, mánuður, ár,
     h.      Gerð eða heiti skjals: Táknsetning með rómverskum hástöfum fyrir gerð skjalsins (S),
     i.      Sérnúmer skjals: Táknsetning ríkis (sjá I hér að framan), á undan lagernúmeri bókar í bókstöfum og tölustöfum (alphanumeric book inventory number), en ekki í fleiri en níu táknum,
     j.      Kennitala: Valkvæð tilgreining á kennitölu sjómanns, sem er sérgreiningarnúmer með ekki fleiri en 14 bókstafa- og talnatáknum,
     k.      Lífkenni: Nákvæm skilgreining sem unnið skal að,
     l.      Svæði læsilegt með vélrænum hætti: Samkvæmt ICAO-skjali nr. 9303, sem tilgreint er hér að framan.

II. viðauki.


Tölvugagnagrunnur.


    Þau atriði sem tilgreind eru fyrir hverja skráningu í tölvugagnagrunn þann sem hvert aðildarríki skal hafa samkvæmt 1., 2., 6. og 7. mgr. 4. gr. samþykktar þessarar skulu takmörkuð við eftirfarandi:

1. kafli,


     1.      Útgáfustjórnvald sem nefnt er í persónuskírteini.
     2.      Fullt nafn sjómanns eins og það er skráð í persónuskírteini.
     3.      Sérnúmer persónuskírteinis.
     4.      Gildislokadagur eða dagsetning tímabundinnar eða endanlegrar afturköllunar skírteinis.

2. kafli.


     5.      Eftirgerð lífkennis á persónuskírteini.
     6.      Ljósmynd.
     7.      Nákvæmar upplýsingar um allar fyrirspurnir sem berast varðandi viðkomandi persónuskírteini.

III. viðauki.


Kröfur og tilmæli um verklagsreglur og framkvæmd
við útgáfu persónuskírteina sjómanna.

    Í viðauka þessum er kveðið á um lágmarkskröfur um verklagsreglur sem hvert aðildarríki skal fylgja samkvæmt 5. gr. samþykktar þessarar hvað snertir útgáfu á persónuskírteinum sjómanna (hér á eftir nefnd skírteini), þar á meðal um gæðaeftirlit.
    Í A-hluta eru skráð þau árangursatriði sem hvert aðildarríki verður að lágmarki að ná fram við að framkvæma þá tilhögun sem það notar við útgáfu á persónuskírteinum sjómanna.
    Í B-hluta eru tilmæli um verklagsreglur og framkvæmd við að ná þeim árangursatriðum. Aðildarríki skulu hafa fulla hliðsjón af reglum B-hluta, en er ekki skylt að fylgja þeim.

A-hluti. Árangursatriði sem skylt er að ná fram.
1. Gerð og afhending auðra skírteina.

    Fyrir hendi skulu vera ferli og verklagsreglur er tryggja nauðsynlegt öryggi við framleiðslu og afhendingu auðra skírteina, þar á meðal að:
     a.      öll auð skírteini séu af sömu gæðum og fullnægi þeim kröfum um innihald og form sem tilgreindar eru í I. viðauka,
     b.      efna þeirra sem notuð eru til framleiðslunnar sé gætt og að þau séu undir eftirliti,
     c.      auðra skírteina sé gætt og að þau séu undir eftirliti, og að þau séu sérgreind og með þeim fylgst meðan á framleiðslu og afhendingu stendur,
     d.      framleiðendum sé fært að uppfylla skuldbindingar sínar hvað snertir framleiðslu og afhendingu á auðum skírteinum,
     e.      auð skírteini séu á öruggan hátt flutt frá framleiðanda útgáfustjórnvalds.

2. Varsla, meðferð og ábyrgð á auðum og fullgerðum skírteinum


    Fyrir hendi skulu vera ferli og verklagsreglur til að tryggja nauðsynlegt öryggi við vörslu og meðferð auðra og fullgerðra skírteina og hvað snertir ábyrgð á þeim, þar á meðal að:
     a.      útgáfustjórnvald hafi eftirlit með vörslu og meðferð auðra og fullgerðra skírteina,
     b.      auðra, fullgerðra og ógiltra skírteina, einnig þeirra sem notuð eru sem sýniseintök, sé gætt, og þau höfð undir eftirliti, sérgreind og með þeim fylgst,
     c.      starfsfólk sem tengist verkinu uppfylli þær kröfur um áreiðanleika, traust og tryggð sem staða þess útheimtir, og að það hafi viðeigandi kunnáttu,
     d.      skipting á ábyrgð meðal opinberra starfsmanna sem bærir eru til útgáfu skírteina miðist við að koma í veg fyrir óheimila útgáfu.

3. Úrvinnsla umsókna, tímabundin eða endanleg afturköllun skírteina, og kærureglur.


    Fyrir hendi skulu vera ferli og verklagsreglur til að tryggja nauðsynlegt öryggi þegar unnið er úr umsóknum, þegar útgáfustjórnvald og útgáfuskrifstofa breytir auðum skírteinum í persónubundin skírteini og þegar skírteini eru afhent, þar á meðal
     a.      ferli við að sannreyna og samþykkja, sem tryggir að skírteini séu, þegar fyrst er sótt um þau og þegar þau eru endurnýjuð, einungis útgefin á grundvelli:
                  i)      umsókna sem fullgerðar hafa verið með öllum þeim upplýsingum sem krafist er í I. viðauka,
                  ii)      sönnunar, í samræmi við lög og framkvæmd útgáfuríkisins, á að umsækjandi sé rétt tilgreindur,
                  iii)      sönnunar á ríkisfangi eða varanlegri búsetu,
                  iv)      sönnunar á að umsækjandi sé sjómaður í skilningi 1. gr.,
                  v)      vissu fyrir því að ekki séu útgefin tvö eða fleiri skírteini til umsækjenda, sérstaklega þeirra sem hafa ríkisfang eða njóta stöðu fast búsettra manna í fleiri en einu ríki,
                  vi)      vissu fyrir að af umsækjanda stafi ekki hætta, um leið og virt eru þau grundvallarréttindi og það frelsi sem kveðið er á um í alþjóðlegum samningum.
     b.      að tryggt sé með meðferðinni að:
                  i)      öll atriði sem kveðið er á um í II. viðauka séu innfærð í gagnagrunn um leið og skírteini er útgefið,
                  ii)      upplýsingar, ljósmynd, undirskrift og lífkenni sem fengist hafa frá umsækjanda samræmist honum, og
                  iii)      upplýsingar, ljósmynd, undirskrift og lífkenni sem fengin hafa verið frá umsækjanda tengist ávallt umsókninni meðan hún er til meðferðar og þegar skírteinið er gefið út og afhent.
     c.      að gagnagrunnur sé strax uppfærður þegar ákvörðun er tekin um að fella skírteini úr gildi tímabundið eða endanlega,
     d.      að komið hafi verið á tilhögun til að mæta aðstæðum þegar sjómaður þarfnast framlengingar eða endurnýjunar skírteinis síns og þegar skírteini hefur glatast,
     e.      að kveðið sé á um aðstæður þegar fella má skírteini úr gildi tímabundið eða afturkalla það í samráði við samtök útgerðarmanna og sjómanna,
     f.      að fyrir hendi sé virkar og gegnsæjar verklagsreglur um áfrýjun.

4. Rekstur, öryggi og viðhald gagnagrunns.


    Fyrir hendi skulu vera ferli og verklagsreglur til að tryggja nauðsynlegt öryggi við starfrækslu og viðhald gagnagrunnsins, þar á meðal að:
     a.      gagnagrunnurinn sé öruggur fyrir inngripum og óheimilum aðgangi,
     b.      upplýsingar séu í gildi, varðar gegn því að tapast, og ávallt aðgengilegar fyrir milligöngu miðstöðvar,
     c.      gögnum sé ekki bætt við aðra gagnagrunna, afrituð til þeirra, tengd þeim eða skráð í þá, og að upplýsingar úr gagnagrunninum séu ekki notaðar í öðrum tilgangi en til að sannreyna deili á sjómanni,
     d.      réttindi einstaklinga séu virt, þar á meðal:
                  i)      friðhelgi einkalífs við söfnun, geymslu, meðferð og sendingu persónuupplýsinga, og
                  ii)      réttur sjómanns til aðgangs að upplýsingum varðandi sig sjálfan, og til að fá skekkjur leiðréttar tímanlega.

5. Eftirlit með verklagsreglum og reglubundnar kannanir.


     a.      Fyrir hendi sé ferli og verklagsreglur til að tryggja nauðsynlegt öryggi með eftirliti með starfsháttum og reglubundnum könnunum, þar á meðal þannig að fylgst sé með starfsháttum til að tryggja að viðeigandi árangurskröfum sé náð við:
                  i)      gerð og afhendingu auðra skírteina,
                  ii)      vörslu, meðhöndlun og ábyrgð fyrir auðum, ógiltum og útfylltum skírteinum,
                  iii)      meðferð umsókna og breytingu auðra skírteina í persónubundin skírteini á vegum þess stjórnvalds og þeirrar skrifstofu sem falin er útgáfa og afhending skírteina,
                  iv)      starfrækslu, öryggi og viðhald á gagnagrunni.
     b.      Gerðar séu reglubundnar kannanir til að tryggja að útgáfutilhögun og verklagsreglur séu áreiðanlegar og í samræmi við kröfur samþykktar þessarar.
     c.      Fyrir hendi séu verklagsreglur til að gæta leyndar um upplýsingar um reglubundnar kannanir í skýrslum annarra aðildarríkja sem fullgilt hafa samþykktina.

B-hluti. Tilmæli um verklagsreglur og framkvæmd.
1. Framleiðsla og afhending auðra skírteina.

    1.1. Í þágu öryggis og til að koma í veg fyrir að munur sé á skírteinum ber viðeigandi stjórnvaldi að velja skilvirkan framleiðanda til að framleiða þau auðu skírteini sem aðildarríkið gefur síðan út.
    1.2. Ef framleiða skal auð skilríki í húsnæði þess stjórnvalds sem annast skal útgáfu þeirra (útgáfustjórnvalds) gildir liður 2.2. hér á eftir.
    1.3. Sé utanaðkomandi fyrirtæki valið ber hinu viðeigandi stjórnvaldi að:
1.3.1.     ganga úr skugga um að ekki verði efast um heiðarleika þess, fjárhagslegan stöðugleika og áreiðanleika,
1.3.2.         krefjast þess að fyrirtækið tilgreini alla starfsmenn sem fást munu við framleiðslu á auðum skírteinum,
1.3.3.     krefjast þess að fyrirtækið sanni fyrir stjórnvaldinu að fyrir hendi sé fullnægjandi tilhögun er tryggir að hinir tilgreindu starfsmenn séu áreiðanlegir, traustverðir og trúir, og sýni því fram á að starf þeirra þar veiti þeim fullnægjandi lífsviðurværi og atvinnuöryggi,
1.3.4.     geri við fyrirtækið skriflegan samning, sem án þess að hafa áhrif á ábyrgð stjórnvaldsins sjálfs tilgreini einkum þær kröfur og leiðbeiningar sem fjallað er um í lið 1.5 hér á eftir, og gera fyrirtækinu að:
1.3.4.1.    tryggja að einungis hinir tilgreindu starfsmenn, sem skulu hafa undirgengist ríka trúnaðarskyldu, fáist við framleiðslu á auðum skírteinum,
1.3.4.2.    gera allar nauðsynlegar öryggisráðstafanir við flutning á auðum skírteinum frá húsnæði sínu til húsnæðis útgáfustjórnvaldsins. Útgefandi verður ekki leystur undan ábyrgð sinni á þeirri forsendu að honum hafi ekki orðið á vanræksla í þessu efni,
1.3.4.3.    láta nákvæma innihaldstilgreiningu fylgja hverri sendingu, og ber þar meðal annars að tilgreina tilvísunarnúmer skírteina í hverri sendingareiningu.
1.3.5.     tryggja að í samningnum sé ákvæði um hvernig verki skal lokið ef upphaflegur verktaki nær ekki að ljúka því,
1.3.6.     ganga úr skugga um, áður en samningurinn er undirritaður, að fyrirtækinu sé unnt að uppfylla allar ofangreindar skyldur á fullnægjandi hátt.
    1.4. Eigi stjórnvald eða fyrirtæki utan landsvæðis aðildarríkisins að útvega auð skírteini getur lögbært yfirvald aðildarríkisins veitt viðeigandi stjórnvaldi í hinu erlenda ríki umboð til að tryggja að þær kröfur, sem hér er mælst til að gerðar verði, séu uppfylltar.
    1.5. Lögbæru yfirvaldi ber meðal annars að:
1.5.1.     setja fram nákvæma lýsingu á öllum efnum sem nota skal við framleiðslu auðra skírteina, sem samræmast skyldu þeim almennu lýsingum sem tilgreindar eru í I. viðauka við samþykkt þessa,
1.5.2.     setja fram nákvæma lýsingu á formi og innihaldi auðra skírteina eins og kveðið er á um í I. viðauka,
1.5.3.     tryggja að lýsingin geri kleift að prenta auð skírteini á einsleitan hátt þó að prentun þeirra sé síðar falin öðrum,
1.5.4.     veita skýrar leiðbeiningar um gerð sérnúmer skjals er prenta skal á hvert autt skírteini eins og kveðið er á um í I. viðauka, og
1.5.5.     setja fram nákvæma lýsingu á hvernig haga skuli vörslum allra efna sem nota skal við framleiðsluna.

2. Varsla, meðferð og ábyrgð á auðum og fullgerðum skírteinum.


    2.1. Allar aðgerðir í sambandi við útgáfu (þ.m.t. við vörslu auðra, ógiltra og fullgerðra skírteina og tækja og efna til að fullgera þau, svo og við meðferð umsókna, útgáfuna sjálfa og viðhald og öryggisráðstafanir varðandi gagnagrunn) ber að framkvæma undir beinni stjórn útgáfustjórnvalds.
    2.2. Útgáfustjórnvaldi ber að framkvæma mat á öllum opinberum starfsmönnum sínum sem tengjast útgáfustarfinu, þar sem sýnt er fram á að ferill þeirra beri vitni um að þeir séu áreiðanlegir, traustverðir og trúir.
    2.3. Útgáfustjórnvaldi ber að tryggja að engir opinberir starfsmenn sem tengjast útgáfustarfinu séu tengdir hver öðrum nánum fjölskylduböndum.
    2.4. Útgáfustjórnvaldi ber að skilgreina með fullnægjandi hætti verksvið hvers opinbers starfsmanns sem tengist útgáfustarfinu.
    2.5. Ekki ber að fela neinum einum opinberum starfsmanni öll verk sem vinna þarf við meðferð umsóknar um skírteini og gerð skírteina samkvæmt þeim. Opinberum starfsmanni sem felur öðrum opinberum starfsmanni umsóknir til útgáfu á skírteinum ber ekki að fela störf tengd útgáfunni. Láta ber opinbera starfsmenn sem falin eru hin ýmsu störf við meðferð umsókna og útgáfu skírteina skiptast á um þau störf.
    2.6. Útgáfustjórnvaldi ber að setja innanhússreglur sem tryggja að:
2.6.1.     auð skírteini séu í öruggri geymslu og aðeins tekin þaðan að því marki sem búist er við að fullnægi fyrirsjáanlegri daglegri þörf, að þau séu aðeins afhent þeim opinberu starfsmönnum sem falið er að gera þau endanlega að persónubundnum skírteinum eða sérstaklega tilgreindum opinberum starfsmanni, og að ónotuð auð skírteini séu endursend í lok hvers dags, enda ber að skilja ráðstafanir til að gæta skírteinanna þannig að þeirra á meðal séu ráðstafanir til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að þeim og til að óheimill aðgangur uppgötvist,
2.6.2.     auð skírteini notuð sem sýniseintök séu með útstrikun og merkt sem sýniseintök,
2.6.3.     á hverjum degi sé færð skrá, sem geymd skal á öruggum stað, um hvar hvert autt skírteini og hvert persónubundið skírteini sem enn hefur ekki verið útgefið er niðurkomið og einnig tilgreinir þau skírteini sem geymd eru í öruggri geymslu og þau sem eru í vörslu tilgreinds opinbers starfsmanns eða starfsmanna, og ber að fela færslu hennar opinberum starfsmanni sem ekki tengist meðferð auðra skírteina og skírteina sem ekki hafa enn verið útgefin,
2.6.4.     aðeins hafi aðgang að auðum skírteinum og tækjum og efnum til að fullgera þau þeir opinberu starfsmenn sem falið er að fullgera þau, eða einhver sérstaklega tilgreindur opinber starfsmaður,
2.6.5.     hvert persónubundið skírteini sé geymt í öruggri geymslu og aðeins afhent þaðan þeim opinbera starfsmanni sem falið er að gefa það út eða einhverjum sérstaklega tilgreindum opinberum starfsmanni,
2.6.5.1.    takmarka ber hina sérstaklega tilgreindu opinberu starfsmenn við:
                  a.    menn sem starfa samkvæmt skriflegri heimild framkvæmdastjóra viðkomandi embættis eða þess sem fer með embættisumboð hans, og
                   b.     eftirlitsmann þann sem fjallað er um í 5. lið hér á eftir og aðra sem falin er endurskoðun eða annað eftirlit,
2.6.6.     opinberum starfsmönnum sé beinlínis bannað að taka nokkurn þátt í útgáfu skírteinis samkvæmt umsókn fjölskyldumeðlims eða náins vinar,
2.6.7.     þjófnaður eða tilraun til þjófnaðar á skírteinum eða tækjum eða efnum til að persónubinda þau sé þegar tilkynntur lögreglu til rannsóknar.
    2.7. Mistök við útgáfustarf skulu ógilda viðkomandi skírteini í stað útgáfu í kjölfar leiðréttingar.

3. Meðferð umsókna og tímabundin eða endanleg afturköllun skírteina, og kærumeðferð.


    3.1. Útgáfustjórnvaldi ber að tryggja að allir opinberir starfsmenn sem falið er að athuga umsóknir um skírteini hafi fengið viðeigandi þjálfun við að greina falsanir og í tölvunotkun.
    3.2. Útgáfustjórnvaldi ber að gefa út reglur sem tryggja að skírteini séu aðeins gefin út á grundvelli umsókna sem viðkomandi sjómaður hefur sjálfur fullgert og undirskrifað, sönnunar á að umsækjandi sé sá sem hann segist vera, sönnunar á ríkisfangi eða varanlegri búsetu, og sönnunar á að umsækjandi sé sjómaður.
    3.3. Í umsókn ber að láta koma fram allar þær upplýsingar sem þar er skylt að tilgreina samkvæmt I. viðauka við samþykkt þessa. Á umsóknareyðublaði ber að vekja athygli umsækjanda á að hann kunni að verða sóttur til saka og geti sætt refsingu ef þar eru vísvitandi tilgreindar rangar upplýsingar.
    3.4. Þegar sótt er um skírteini í fyrsta sinn, og í hvert sinn sem það er síðar talið nauðsynlegt í tilefni af endurnýjun:
3.4.1.     ber að láta umsækjanda sjálfan afhenda umsókn sína fullgerða, að undanskilinni undirskrift, til þess opinbera starfsmanns sem útgáfustjórnvald hefur tilgreint,
3.4.2.     ber að taka stafræna mynd eða ljósmynd af umsækjanda, svo og lífkenni hans, undir eftirliti hins tilgreinda opinbera starfsmanns,
3.4.3.     ber að láta umsækjanda undirskrifa umsókn sína í viðurvist hins tilgreinda opinbera starfsmanns,
3.4.4.     ber síðan hinum tilgreinda opinbera starfsmanni að framsenda umsóknina beint til útgáfustjórnvaldsins til meðferðar.
    3.5. Útgáfustjórnvaldi ber að gera fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja öryggi og trúnað um hina stafrænu mynd eða ljósmyndina, og lífkennið.
    3.6. Þá persónusönnun sem umsækjandi skal leggja fram ber að hafa í samræmi við lög og framkvæmd útgáfuríkisins. Getur hún falist í nýlegri ljósmynd, sem útgerðarmaður eða skipstjóri eða annar vinnuveitandi umsækjanda eða þjálfunarstofnunar hans staðfestir að líkist honum í raun.
    3.7. Sönnun á ríkisfangi eða varanlegri búsetu umsækjanda mun venjulega vera vegabréf hans eða vottorð um heimild hans til varanlegrar búsetu.
    3.8. Krefja ber umsækjendur um tilgreiningu á öllum öðrum ríkisborgararétti sem þeir kunna að eiga, og yfirlýsingu um að þeir hafi ekki fengið og ekki sótt um skírteini hjá nokkru öðru aðildarríki.
    3.9. Ekki ber að gefa út skírteini til umsækjanda meðan hann á annað skírteini.
3.9.1.     Hafa ber til reiðu tilhögun til að endurnýja skírteini snemma þegar sjómanni er fyrir fram ljóst að honum verði ekki unnt að leggja fram umsókn sína á gildislokadegi eða það kemur til endurnýjunar.
3.9.2.     Hafa ber til reiðu framlengingartilhögun þegar framlengingar er þörf á skírteini vegna ófyrirséðrar framlengingar á starfstíma,
3.9.3.     Hafa ber til reiðu útskiptingartilhögun þegar skírteini glatast. Gefa má þá út viðeigandi bráðabirgðaskjal.
    3.10. Sönnunar á því að umsækjandi sé sjómaður í skilnigi 1. gr. samþykktar þessarar ber að minnsta kosti að afla með:
3.10.1.     fyrra skírteini, eða sjóferðabók, eða
3.10.2.     vottorði um hæfni, réttindi eða viðeigandi þjálfun, eða
3.10.3.     álíka áreiðanlegum upplýsingum.
    3.11. Viðbótarsannana ber að leita þegar þess er talin þörf.
    3.12. Viðeigandi opinberum starfsmanni útgáfustjórnvalds ber að minnsta kosti að sannreyna allar umsóknir í eftirfarandi atriðum:
3.12.1.     að umsókn sé fullgerð og að ekki gæti þar ósamræmis sem vekur vafa um sannleiksgildi þess sem þar kemur fram,
3.12.2.    að einstök fram komin atriði og undirskrift samræmist því sem fram kemur á vegabréfi eða öðru áreiðanlegu skilríki umsækjanda,
3.12.3.    að stjórnvald sem sér um útgáfu vegabréfa eða annað lögbært yfirvald staðfesti vegabréfið eða það skjal annað sem fram er lagt, og sé ástæða til að vefengja vegabréf ber að senda lögbæru yfirvaldi frumrit þess, en annars má senda eftirrit af viðeigandi síðum þess,
3.12.4.    að ljósmynd sú sem afhent er sé þegar við á borin saman við þá stafrænu mynd sem fjallað er um í lið 3.4.2 hér að framan,
3.12.5.    að ekkert bendi til þess að gögn þau til persónusönnunar sem fjallað er um í lið 3.6 hér að framan séu vefengjanleg,
3.12.6.    að upplýsingar þær sem fjallað er um í lið 3.10 renni stoðum undir að umsækjandi sé sjómaður,
3.12.7.    að tryggt sé með gagnagrunni þeim sem kveðið er á um í 4. gr. samningsins að skírteini hafi ekki þegar verið útgefið til karls eða konu sem samsvarar umsækjanda, og ef umsækjandi hefur eða kann að hafa fleira en eitt ríkisfang eða fasta búsetu utan heimaríkis síns ber einnig að gera um það nauðsynlegar fyrirspurnir hjá viðeigandi stjórnvöldum þess eða þeirra ríkja sem í hlut eiga,
3.12.8.    að gengið sé úr skugga um það í þeim viðeigandi gagnagrunnum innanlands eða á alþjóðavettvangi sem útgáfustjórnvald kann að hafa aðgang að, að ekki geti stafað hætta af einhverjum sem samsvarar umsækjanda.
    3.13. Hinum opinbera starfsmanni sem fjallað er um í lið 3.12 hér að framan ber að rita stuttar athugasemdir er gefa til kynna árangur á könnunum um hvert einstakt ofangreindra atriða og vekja athygli á því sem réttlætir þá niðurstöðu að umsækjandi sé sjómaður.
    3.14. Þegar umsókn hefur verið yfirfarin til hlítar ber að framsenda hana þeim opinbera starfsmanni sem falið er að ljúka við það skírteini sem útgefið skal til umsækjanda, ásamt stuðningsgögnum og athugasemdum til varðveislu.
    3.15. Að þessu loknu ber að senda hið fullgerða skírteini ásamt tilheyrandi gögnum útgáfustjórnvaldsins yfirmanni þar til samþykktar.
    3.16. Yfirmanninum ber aðeins að samþykkja skírteini ef hann telur, að aflokinni athugun á að minnsta kosti þeim athugasemdum sem gögnunum fylgja, að starfsháttum hafi verið réttilega fylgt og að útgáfa á skírteini til umsækjanda sé réttlætt.
    3.17. Samþykkið ber að veita skriflega og láta því fylgja skýringar varðandi þau atriði umsóknarinnar sem kunna að krefjast sérstakrar umfjöllunar.
    3.18. Afhenda ber umsækjanda skírteini, ásamt vegabréfi eða svipuðu skjali sem hann kann að hafa látið í té, milliliðalaust gegn kvittun, eða senda það til umsækjanda, eða, hafi umsækjandi óskað þess, senda það skipstjóra hans eða atvinnurekenda, og skal sendingin fara fram í áreiðanlegum pósti þar sem krafist er staðfestingar á móttöku.
    3.19. Þegar skírteini er útgefið til umsækjanda ber að færa þau atriði sem tilgreind eru í II. viðauka við samþykkt þessa í gagnagrunn þann sem kveðið er á um í 4. gr. hennar.
    3.20. Í reglum útgáfustjórnvaldsins ber að tilgreina hámarksfrest til móttöku eftir sendingu. Hafi móttökustaðfesting ekki borist að þeim fresti liðnum og eftir að sjómanninum hefur verið gert viðvart ber að færa í gagnagrunninn viðeigandi athugasemd, tilkynna opinberlega að skírteinið sé glatað, og tjá það sjómanninum.
    3.21. Allar athugasemdir sem gerðar skulu, svo sem hinar stuttu athugasemdir til varðveislu samkvæmt lið 3.13 hér að framan og skýringar samkvæmt lið 3.17, ber að geyma á öruggum stað á gildistíma skírteinisins og í þrjú ár þar á eftir. Athugasemdir og skýringar samkvæmt lið 3.17 ber að færa í sérstakan gagnagrunn innan embættis og gera þær aðgengilegar:
     a.      starfsmönnum sem falið er að fylgast með verkefnum,
     b.      opinberum starfsmönnum sem fást við störf tengd athugun á umsóknum, og
     c.      í þjálfunarskyni.
    3.22. Ef upplýsingar berast sem benda til að skírteini hafi verið ranglega útgefið eða að skilyrði útgáfu þess séu ekki lengur fyrir hendi ber þegar að tilkynna það útgáfustjórnvaldinu með tilliti til skjótrar afturköllunar.
    3.23. Sé skírteini afturkallað tímabundið eða endanlega ber útgáfustjórnvaldinu þegar að uppfæra gagnagrunn sinn þannig að þar komi fram að viðkomandi skírteini sé nú ekki viðurkennt.
    3.24. Sé umsókn um skírteini hafnað eða ákvörðun tekin um að afturkalla það tímabundið eða endanlega ber stjórnvaldi að tilkynna umsækjanda um kærurétt hans og skýra honum til hlítar frá ástæðum ákvörðunarinnar.
    3.25. Kærumeðferð skal vera eins skjót og kostur er og í samræmi við nauðsyn þess að fjallað sé um málið af sanngirni og til hlítar.

4. Rekstur, öryggi og viðhald gagnagrunns.


    4.1. Útgáfustjórnvaldi ber að eftir þörfum að gera ráðstafanir og kveða á um reglur til að koma í framkvæmd 4. gr. samþykktar þessarar, þar sem einkum sé tryggt:
    4.1.1. að miðstöð sé opinn eða aðgangur um tölvu sé tryggður allan sólarhringinn alla daga vikunnar, eins og krafist er í 4., 5. og 6. mgr. 4. gr.,
4.1.2.     öryggi gagnagrunnsins,
4.1.3.     að réttindi einstaklinga séu virt við geymslu, meðhöndlun og sendingu upplýsinga,
4.1.4.     að virt séu réttindi sjómanns til að sannreyna að upplýsingar um hann séu réttar, og til að fá tímanlega fram leiðréttingu á atriðum sem þurfa leiðréttingar við.
    4.2. Útgáfustjórnvaldi ber að kveða á um fullnægjandi starfshætti til verndar gagnagrunninum, þar á meðal með því að:
4.2.1.     krefjast þess að gagnagrunnurinn sé reglulega afritaður á geymslumiðill sem hafður skal á öruggum stað utan húsnæðis útgáfustjórnvaldsins,
4.2.2.     takmarka við sérstaklega tilnefnda opinbera starfsmenn heimildir til að gera breytingar á færslum í gagnagrunninn og til aðgangs að honum eftir að færsla hefur verið staðfest af þeim opinbera starfsmanni sem gerði hana.

5. Gæðaeftirlit með verklagsreglum og reglubundið mat.


    5.1. Útgáfustjórnvaldi ber að skipa háttsettan opinberan starfsmann, sem viðurkennt er að sé heiðarlegur, traustverður og áreiðanlegur, og sem ekki fæst við vörslu og meðferð skírteina, til eftirlitsstarfs með því að:
5.1.1.     fylgjast stöðugt með framkvæmd þessara lágmarkskrafna,
5.1.2.     vekja þegar í stað athygli á hnökrum við framkvæmdina,
5.1.3.     veita framkvæmdastjóra og viðkomandi opinberum starfsmönnum ráð um umbætur á starfsháttum við útgáfu skírteina, og
5.1.4.     leggja gæðaeftirlitsskýrslu um ofangreint fyrir stjórnendur. Eftirlitsmanni ber ef unnt er að vera kunnugur öllum störfum sem fylgjast skal með.
    5.2. Eftirlitsmaður skal vera ábyrgur milliliðalaust gagnvart framkvæmdastjóra útgáfustjórnvalds.
    5.3. Gera ber öllum starfsmönnum útgáfustjórnvalds, að meðtöldum framkvæmdastjóra, skylt að veita eftirlitsmanni öll gögn og upplýsingar sem eftirlitsmaður telur skipta máli við störf sín.
    5.4. Útgáfustjórnvaldi ber að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að opinberir starfsmenn geti frjálslega tjáð sig við eftirlitsmann án þess að eiga á hættu að þeir verði látnir gjalda þess.
    5.5. Starfsumboð eftirlitsmanns skal krefjast þess að hann sinni sérstaklega eftirfarandi verkefnum:
5.5.1.     sannreyna að fé, húsnæði, tækjabúnaður og starfslið sé fullnægjandi til að starfi útgáfustjórnvalds sé sinnt á skilvirkan hátt,
5.5.2.     tryggja að auð og fullgerð skírteini séu í öruggri vörslu,
5.5.3.     að tryggja að komið hafi verið á fullnægjandi reglum, tilhögun og verklagsreglum í samræmi við liði 2.6, 3.2, 4 og 5.4 hér að framan,
5.5.4.     tryggja að hinir viðkomandi opinberu starfsmenn séu vel kunnir þeim reglum og verklagsreglum, svo og tilhöguninni, og skilji þá þætti til hlítar,
5.5.5.     fylgjast náið á grundvelli úrtaksathugana með hverju verki sem unnið er við meðferð einstakra mála, þar á meðal með athugasemdum sem hvert verk varða og öðrum færslum, frá því er umsókn um skírteini er móttekin og þar til lokið er útgáfumeðferð þess,
5.5.6.     sannreyna að öryggisráðstafanir sem gerðar eru um vörslu auðra skírteina, tækja og efna beri árangur,
5.5.7.     sannreyna, með aðstoð trúnaðarsérfræðings ef nauðsyn krefur, öryggi og sannleika þeirra upplýsinga sem geymdar eru í tölvu, og að krafan um aðgang allan sólarhringinn alla daga vikunnar sé uppfyllt,
5.5.8.     rannsaka allar áreiðanlegar upplýsingar um hugsanlega ranga útgáfu skírteinis, hugsanlega fölsun eða sviksamlega öflun skírteinis í því skyni að komast að raun um hvort misferli hafi átt sér stað innanhúss eða hvort misbrestur hafi orðið er gæti hafa stuðlað að eða valdið því,
5.5.9.     rannsaka kvartanir um meintan ófullnægjandi aðgang að upplýsingum í gagnagrunni með tilliti til þeirra krafna sem kveðið er á um í 2., 3, og 5. mgr. 4. gr. samþykktarinnar, eða um skekkjur í þeim upplýsingum,
5.5.10.    tryggja að framkvæmdastjóri útgáfustjórnvalds hafi tímanlega og á skilvirkan hátt brugðist við skýrslum um umbætur á verklagsreglum og hugsanlega misbresti,
5.5.11.     færa skýrslur um gæðaeftirlit sem fram hefur farið,
5.5.12.     tryggja að stjórnendur hafi yfirfarið það sem komið hefur í ljós við gæðaeftirlit og að skýrslur séu færðar um þá yfirferð.
    5.6. Framkvæmdastjóra útgáfustjórnvalds ber að tryggja að reglulegt mat fari fram á áreiðanleika útgáfutilhögunar og útgáfumeðferðar, og að þeir þættir séu í samræmi við þær kröfur sem samþykkt þessi gerir. Við það mat ber að hafa hliðsjón af eftirfarandi:
5.6.1.     niðurstöðum endurskoðunar sem fram kann að hafa farið á útgáfutilhögun og verklagsreglum,
5.6.2.     skýrslum og niðurstöðum rannsókna og öðrum vísbendingum um hvort úrbætur í kjölfar tilkynninga um misbresti eða skort á öryggi hafi borið árangur,
5.6.3.     skýrslum um skírteini sem hafa verið útgefin, glatast, verið ógilt eða skemmst,
5.6.4.     skýrslum um hvernig gæðaeftirlit verkar,
5.6.5.     skýrslum um vandkvæði varðandi áreiðanleika eða öryggi tölvugagnagrunns, þar á meðal um gerðar fyrirspurnir,
5.6.6.     áhrifum breytinga á útgáfutilhögun og verklagsreglum vegna tæknilegra umbóta eða nýmæla við útgáfu á skírteinum,
5.6.7.     niðurstöðum á endurskoðunum á stjórnunarháttum,
5.6.8.     endurskoðun á verklagsreglum til að tryggja að þeim sé beitt þannig að virtar séu grundvallarreglur og réttindi við vinnu eins og mælt er fyrir um í viðeigandi gerðum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
    5.7. Koma ber á ferlum og verklagsreglum til að hindra að skýrslur annarra aðildarríkja séu gerðar kunnar án heimildar.
    5.8. Með öllum ferlum og verklagsreglum við endurskoðun ber að tryggja að framleiðsluaðferðir og öryggistilhögun, þ.m.t. eftirlit með birgðum, nægi til að fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru í viðauka þessum.



Fylgiskjal VI.


Bókun við samþykkt nr. 155, um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi.



    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem kom saman til 90. þingsetu sinnar í Genf 3. júní 2002 eftir kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    minnist ákvæða 11. greinar samþykktarinnar um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi, 1981 (hér á eftir kölluð „samþykktin“), þar sem tekið er sérstaklega fram að:
    „í því skyni að hrinda í framkvæmd stefnu þeirri sem lýst er í 4. grein þessarar samþykktar, skal til þess bært stjórnvald eða til þess bær stjórnvöld sjá til þess að eftirfarandi sé framkvæmt stig af stigi:
    .....
    c. að komið verði á og beitt vinnureglum um tilkynningu atvinnutengdra slysa og sjúkdóma af hálfu atvinnurekenda og, þar sem við á, tryggingastofnana og annarra sem mál varða beint svo og samantekt og útgáfu árlegra hagtalna um atvinnutengd slys og sjúkdóma,
    .....
    e. að árlega verði birtar upplýsingar um ráðstafanir gerðar til að framfylgja stefnu þeirri sem vísað er til í 4. grein samþykktarinnar og stefnunnar varðandi atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og annað heilsutjón sem upp koma við eða í sambandi við störf“,
    og
    með tilliti til þess að nauðsyn ber til að efla skráningar- og tilkynningarferli fyrir atvinnutengd slys og sjúkdóma og til að stuðla að samræmingu skráningar- og tilkynningarkerfa í því skyni að bera kennsl á orsakir slíks og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða, og
    þar sem ákveðið hefur verið að samþykkja tilteknar tillögur varðandi skráningu og tilkynningu atvinnutengdra slysa og sjúkdóma, sem er fimmta málefnið á dagskrá þings og
    þar sem ákveðið hefur verið að tillögur þessar skuli settar fram sem bókun við samþykktina um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi, 1981, gerir þingið í dag 20. júní 2002 eftirfarandi bókun, sem vísa má til sem bókunar árið 2002 við samþykktina um um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi frá 1981.

I. Skilgreiningar.


1. gr.

    Að því er bókun þessa varðar:
     a.      tekur hugtakið atvinnutengt slys til atviks sem á sér stað vegna eða við starf og leiðir til tjóns er kann að hafa í för með sér dauða,
     b.      tekur hugtakið atvinnutengdur sjúkdómur til hvaða sjúkdóms sem er, sem einstaklingur fær vegna nálægðar við áhættuþætti sem leiða af starfi hans,
     c.      tekur hugtakið hættulegt atvik til atviks sem auðvelt er að greina eins og það er skilgreint í landslögum og reglugerðum, sem kann að valda fólki við vinnu sína eða almenningi tjóni eða sjúkdómi,
     d.      tekur hugtakið slys á leið í eða úr vinnu til slyss sem hefur í för með sér dauða eða persónutjón og á sér stað á beinni leið milli atvinnustaðar og:
                  i)      aðalheimilis eða aukabústaðar starfsmanns, eða
                  ii)      þess staðar þar sem starfsmaður er vanur að matast, eða
                  iii)      þess staðar þar sem starfsmaður er vanur að fá greidd laun sín.

II. Skráningar- og tilkynningarkerfi.


2. gr.

    Til þess bært yfirvald skal, með lögum eða reglugerðum eða á hvaða annan hátt sem samrýmist skilyrðum í landinu og landsvenjum, og í samráði við helstu samtök atvinnurekenda og launafólks, koma á og endurskoða reglulega kröfur og vinnureglur um:
     a.      skráningu atvinnutengdra slysa, atvinnutengdra sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik, slys á leið til eða frá vinnu og atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengda sjúkdóma sé að ræða, og
     b.      tilkynningu um atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik, slys á leið til eða frá vinnu og atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengda sjúkdóma sé að ræða.

3. gr.

    Kröfur og vinnureglur um skráningu skulu kveða á um:
     a.      að atvinnurekendum sé skylt:
                  i)      að skrá atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik, slys á leið í eða úr vinnu og og atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengda sjúkdóma sé að ræða,
                  ii)      að veita starfsmönnum og fulltrúum þeirra viðeigandi upplýsingar varðandi skráningarkerfið,
                  iii)      að tryggja viðeigandi viðhald þessara skráa og notkun þeirra við fyrirbyggjandi ráðstafanir, og
                  iv)      að láta ógert að beita hefndaraðgerðum eða agaviðurlögum gegn starfsmanni fyrir að tilkynna um atvinnutengt slys, atvinnutengdan sjúkdóm og, eftir því sem við á, hættulegt atvik, slys á leið í eða úr vinnu eða atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengdan sjúkdóm sé að ræða.
     b.      upplýsingar sem skuli skráðar,
     c.      hversu lengi geyma skuli þessar upplýsingar á skrá; og
     d.      ráðstafanir til að tryggja trúnað slíkra persónu- og læknisfræðilegra upplýsinga í vörslu atvinnurekanda, í samræmi við landslög og reglur, skilyrði og venjur.

4. gr.

    Kröfur og vinnureglur um tilkynningu skulu kveða á um:
     a.      að atvinnurekendum sé skylt:
                  i)      að tilkynna til þess bærum yfirvöldum eða öðrum tilnefndum stofnunum um atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik, slys á leið í eða úr vinnu og og atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengda sjúkdóma sé að ræða, og
                  ii)      að veita starfsmönnum og fulltrúum þeirra viðeigandi upplýsingar varðandi tilkynnt tilvik,
     b.      þar sem það á við, hvernig skuli standa að tilkynningum um atvinnutengd slys og atvinnutengda sjúkdóma af hálfu tryggingastofnana, vinnuverndarstofnana, lækna og annarra aðila sem málið beinlínis varðar,
     c.      þau viðmið sem ráða því hvort tilkynna ber atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik, slys á leið í eða úr vinnu og atvik þar sem grunur leikur á að um atvinnutengda sjúkdóma sé að ræða, og
     d.      tímamörk tilkynninga.

5. gr.

    Tilkynningin skal taka til upplýsinga um:
     a.      fyrirtækið, stofnunina og atvinnurekandann,
     b.      þar sem það á við, hina slösuðu og eðli áverka eða sjúkdóms, og
     c.      vinnustaðinn, kringumstæður slyssins eða hins hættulega atviks, og hinar heilsuspillandi aðstæður þegar um er að ræða atvinnutengdan sjúkdóm.

III. Hagtölur á landsvísu.


6. gr.

    Sérhvert aðildarríki sem fullgildir bókun þessa skal, á grundvelli tilkynninganna og annarra tiltækra upplýsinga, gefa árlega út hagtölur sem er þannig safnað að þær gefi gott yfirlit yfir landið í heild og greiningu, að því er varðar atvinnutengd slys, atvinnutengda sjúkdóma og, eftir því sem við á, hættuleg atvik og slys á leið í og úr vinnu.

7. gr.

    Hagtölurnar skal taka saman samkvæmt flokkunarkerfum sem samrýmast nýjustu alþjóðlegum kerfum sem við eiga, sem komið hefur verið upp á vegum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar eða annarra til þess bærra alþjóðastofnana.

IV. Lokaákvæði.


8. gr.

    1. Aðildarríki getur fullgilt bókun þessa um leið eða hvenær sem er eftir að það fullgildir
samþykktina, með því að senda formlega fullgildingu sína til forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skráningar.
    2. Bókunin tekur gildi 12 mánuðum eftir dag þann sem forstjórinn hefur skráð fullgildingar tveggja aðildarríkja. Eftir það skal bókunin taka gildi að því er aðildarríki varðar 12 mánuðum eftir dag þann sem forstjórinn hefur skráð fullgildingu þess og skal samþykktin vera bindandi fyrir aðildarríkið sem í hlut á að viðbættum ákvæðum 1. til 7. greina þessarar bókunar.

9. gr.

    1. Aðildarríki sem fullgilt hefur bókun þessa getur formlega sagt henni upp hvenær sem segja má samþykktinni upp í samræmi við 25. grein sína, með gerningi sem sendur er forstjóra alþjóðavinnumálaskrifstofunnar til skráningar.
    2. Uppsögn samþykktarinnar í samræmi við 25. grein hennar af hálfu aðildarríkis sem fullgilt hefur bókun þessa skal ipso jure einnig fela í sér uppsögn hennar.
    3. Uppsögn bókunar þessarar í samræmi við 1. eða 2. mgr. greinar þessarar tekur ekki gildi fyrr en einu ári eftir dag þann er hún var skráð.

10. gr.

    1. Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal tilkynna öllum aðildarríkjum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um skráningu allra fullgildinga og uppsagna sem aðildarríki stofnunarinnar hafa sent honum.
    2. Þegar forstjórinn tilkynnir aðildarríkjum stofnunarinnar skrásetningu annarrar fullgildingarinnar, sem honum berst, skal hann vekja athygli þeirra á hvaða dag samþykktin gangi í gildi.

11. gr.

    Forstjóri alþjóðavinnumálaskrifstofunnar skal senda aðalritara Sameinuðu þjóðanna til skrásetningar samkvæmt 102. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna allar upplýsingar um fullgildingar og uppsagnir sem hann hefur skrásett í samræmi við ákvæði undanfarandi greina.

12. gr.

    Hinn enski og franski texti þessarar bókunar eru jafngildir.



Fylgiskjal VII.


Tilmæli nr. 195, um þróun mannauðs: Menntun, þjálfun og símenntun.



    Allsherjarþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
    sem kom saman til 92. þingsetu sinnar í Genf 1. júní 2004 eftir kvaðningu stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar,
    viðurkennir að menntun, þjálfun og símenntun stuðlar verulega að eflingu hagsmuna einstaklinga, fyrirtækja, efnahagslífsins og samfélagsins í heild, einkum með það í huga hve mikilvægt er að halda uppi fullri atvinnu, útrýma fátækt, efla félagslega þátttöku og sjálfbæra efnahagsþróun í alþjóðahagkerfinu, og
    hvetur ríkisstjórnir, atvinnurekendur og launafólk til að endurvekja skuldbindingar sínar við símenntun; ríkisstjórnir með fjárfestingum og sköpun aðstæðna til að efla menntun og þjálfun á öllum stigum; fyrirtæki með þjálfun starfsfólks; og einstaklinga með nýtingu menntunar, þjálfunar og tækifæra til náms alla ævi, og
    viðurkennir að menntun, þjálfun og símenntun eru grundvallaratriði og ættu að vera óaðskiljanlegur þáttur í og í samræmi við heildarstefnur og verkefni í efnahagsmálum, fjármálum, félagsmálum og vinnumarkaðsmálum sem eru mikilvæg fyrir sjálfbæra efnahagsþróun og atvinnusköpun og samfélagsþróun, og
    viðurkennir að mörg þróunarlönd þurfa stuðning við skipulag, kostun og framkvæmd viðeigandi menntunar og starfsþjálfunar við eflingu manngildis, efnahagsþróunar og atvinnuþróunar og útrýmingu fátæktar, og
    viðurkennir að menntun, þjálfun og símenntun stuðla að einstaklingsþroska, aðgengi að menningu og virkri samfélagsþátttöku, og
    minnist þess að mannsæmandi vinna fyrir alla er meginmarkmið Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, og
    tekur mið af réttindum og meginreglum sem felast í viðkomandi gerningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og þá einkum í:
     a.      samþykkt og tilmælum um starfsfræðslu og starfsþjálfun frá árinu 1975; samþykkt og tilmælum um stefnu í vinnumálum frá árinu 1964; tilmælum um stefnu í vinnumálum frá árinu 1984; og samþykkt og tilmælum um námsleyfi á launum frá árinu 1974,
     b.      yfirlýsingu ILO um grundvallarréttindi í atvinnulífinu,
     c.      þríhliða yfirlýsingu um meginreglur hvað varðar fjölþjóðleg fyrirtæki og félagsmálastefnu,
     d.      niðurstöðum um starfsmenntun sem afgreiddar voru á 88. Alþjóðavinnumálaþinginu árið 2000, og
    eftir að hafa ákveðið að leggja fram ákveðnar ábendingar um þróun mannauðs og þjálfun sem er fjórða mál á skrá þingsins, og
    eftir að hafa ákveðið að þessar ábendingar skuli gerðar í formi tilmæla,
    gerir þingið í dag 17. júní 2004, eftirfarandi tilmæli sem nefna má tilmæli um þróun mannauðs 2004.

I. Markmið, gildissvið og skilgreiningar.


    1. Aðildarríkin skulu með viðræðum við aðila vinnumarkaðarins, móta, framfylgja og endurskoða stefnur í þróun mannauðs, menntun, þjálfun og símenntun sem eru í samræmi við stefnur í efnahags-, fjár- og félagsmálum.
    2. Í þessum tilmælum:
     a.      táknar „símenntun“ allt nám á lífsleiðinni sem eflir getu og hæfni,
     b.      táknar „geta“ alla kunnáttu, leikni og verkþekkingu sem er beitt í sértæku samhengi,
     c.      táknar „hæfni“ formlega beitingu starfskunnáttu eða fagkunnáttu starfsmanns sem er viðurkennd á alþjóðlega og staðbundna vísu eða innan einstakra starfsgreina,
     d.      táknar „ráðningarhæfi“ þá getu og hæfni einstaklings sem gera honum kleift að nýta menntun sína og þjálfunartækifæri til að tryggja sér og halda mannsæmandi vinnu, vinna sig upp innan fyrirtækisins og milli starfa og ráða við síbreytilega tækni og aðstæður á vinnumarkaði.
    3.     Aðildarríkin skilgreini stefnu í þróun mannauðs, menntun, þjálfun og símenntun sem:
     a.      greiði fyrir símenntun og ráðningarhæfi sem hluta af stefnumarkmiðum sem ætlað er að skapa mannsæmandi störf svo og stuðli að sjálfbærri þróun í efnahags- og félagsmálum,
     b.      leggi jafna rækt við efnahagsleg og félagsleg markmið, legg áherslu á sjálfbæra efnahagsþróun í samhengi við efnahag á heimsvísu og samfélag byggt á þekkingu og leikni, svo og auki hæfni, stuðli að mannsæmandi vinnu, atvinnuöryggi, félagslegri þróun og samfélagsþátttöku og dragi úr fátækt;
     c.      leggi áherslu á mikilvægi nýjunga, samkeppnishæfni, framleiðni, efnahagsvaxtar, sköpun nýrra mannsæmandi starfa og ráðningarhæfi fólks, með það í huga að nýjungar skapa ný atvinnutækifæri og krefjast einnig nýrra leiða í menntun og þjálfun til að uppfylla kröfur um nýja kunnáttu,
     d.      takist það á hendur að breyta starfsemi í óformlega efnahagskerfinu í mannsæmandi vinnu sem er hluti af meginstraumum efnahagslífs samfélagsins; stefna og áætlanir skulu þróaðar með það að markmiði að skapa mannsæmandi störf og tækifæri fyrir menntun og þjálfun, svo og að meta fyrra nám og færni til að hjálpa launafólki og atvinnurekendum að færa sig yfir í formlega efnahagskerfið,
     e.      efli og viðhaldi fjárfestingum opinberra aðila og einkaaðila í þeirri uppbyggingu sem þarf til að nota upplýsingar og samskiptatækni í menntun og þjálfun, svo og í þjálfun kennara og leiðbeinenda og noti til þess staðbundin-, innanlands- og alþjóðleg samstarfsnet,
     f.      dragi úr ójafnrétti í þátttöku í menntun og þjálfun.
    4.     Aðildarríki skulu:
     a.      viðurkenna að allir eiga rétt á menntun og þjálfun og vinna að því í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins að tryggja öllum aðgengi að símenntun,
     b.      viðurkenna að símenntun skal byggjast á beinni skuldbindingu: af hálfu stjórnvalda með fjárfestingum og sköpun aðstæðna til að efla menntun og þjálfun á öllum stigum; af hálfu fyrirtækja með þjálfun starfsmanna sinna; og af hálfu einstaklinga með því að efla hæfileika sína og starfsframa.

II. Þróun og framkvæmd mennta- og þjálfunarstefna.


    5.     Aðildarríkin skulu:
     a.      skilgreina, með þátttöku aðila vinnumarkaðarins, landsáætlun fyrir menntun og þjálfun og koma á leiðbeinandi grundvelli fyrir þjálfunarstefnur á landsvísu, einstökum svæðum, í starfsgreinum og fyrirtækjum;
     b.      efla félagslegan og annan stuðning og skapa efnahagsumhverfi og hvata fyrir fyrirtæki til að fjárfesta í menntun og þjálfun, einstaklinga til að efla hæfni sína og starfsframa og vekja áhuga allra á að menntast og afla sér starfsþjálfunar,
     c.      greiða fyrir þróun menntunar- og þjálfunarkerfis í samræmi við aðstæður og venjur samfélagsins;
     d.      axla höfuðábyrgð á því að fjárfesta í gæðamenntun og grunnmenntun starfsmanna, viðurkenna að hæfir kennarar og leiðbeinendur sem vinna við góðar aðstæður eru afar mikilvægir;
     e.      þróa starfsmat á landsvísu til að greiða fyrir símenntun, aðstoða fyrirtæki og vinnumiðlanir við að láta eftirspurn mæta framboði, leiðbeina einstaklingum við val á þjálfun og starfi og greiða fyrir viðurkenningu á fyrra námi og færni, hæfni og reynslu; þetta mat skal laga að breyttri tækni og sveiflum á vinnumarkaði og það taki tillit til sérstöðu héraða og staða án þess að glata gegnsæi sínu á landsvísu,
     f.      styrkja skoðanaskipti aðila vinnumarkaðsins og kjarasamninga um þjálfun á alþjóðlega, landsbundna, svæðisbundna og staðbundna vísu, og innan greina og fyrirtækja, sem meginreglu fyrir þróun kerfa, áætlanagerðar, gæða og arðsemi,
     g.      stuðla að jöfnum tækifærum fyrir konur og karla í menntun, þjálfun og símenntun,
     h.      stuðla að aðgengi að menntun, þjálfun og símenntun fyrir fólk með viðurkenndar sérþarfir, svo sem ungt fólk, fákunnandi fólk, fatlaða, farandverkafólk, aldrað starfsfólk, frumbyggja, þjóðernishópa og samfélagslega útskúfað fólk; og fyrir starfsfólk í litlum fyrirtækjum og meðalstórum, í óformlega hagkerfinu, í dreifbýlinu og fyrir einyrkja,
     i.      auðvelda aðilum vinnumarkaðarins að taka þátt í skoðanaskiptum aðila vinnumarkaðarins um þjálfun,
     j.      styðja og aðstoða einstaklinga með menntun, þjálfun og símenntun og öðrum stjórnvaldsaðgerðum og áætlunum, efla frumkvöðla í að skapa sér og öðrum mannsæmandi vinnu.
    6.     (1) Aðildarríki skulu koma á, viðhalda og efla samræmt menntunar- og þjálfunarkerfi með símenntun í huga, taka mið af frumábyrgð stjórnvalda á menntun og starfsþjálfun og þjálfun ófaglærðra og viðurkenna hlutverk aðila vinnumarkaðarins í frekari þjálfun, einkum hið mikilvæga hlutverk atvinnurekenda að veita tækifæri til starfsreynslu.
    (2) Menntun og starfsþjálfun fela í sér grunnskyldunám sem byggist á grunnþekkingu, læsi og talnalæsi og viðeigandi notkun upplýsinga- og samskiptatækni.
    7.     Aðildarríkin skulu íhuga viðmið við sambærileg lönd, svæði og geira þegar teknar eru ákvarðanir um fjárfestingu í menntun og þjálfun.

III. Menntun og starfsþjálfun.


    8. Aðildarríkin skulu:
     a.      viðurkenna ábyrgð sína á menntun og starfsþjálfun og í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins bæta aðgengi allra til að efla ráðningarhæfi og greiða fyrir félagslegri þátttöku,
     b.      þróa leiðir fyrir óformlega menntun og þjálfun, einkum fyrir fullorðna sem nutu ekki menntunar og þjálfunartækifæra í æsku,
     c.      hvetja til notkunar nýrra upplýsinga og samskiptatækni í námi og þjálfun eftir fremsta megni;
     d.      tryggja upplýsingar um starfsmenntun, vinnumarkað og störf og leiðsögn og ráðgjöf um ráðningar, ásamt upplýsingum um réttindi og skyldur allra sem lög og reglur um vinnumarkaðinn taka til,
     e.      tryggja að menntunar- og starfsþjálfunarkerfi séu viðeigandi og gæðum þeirra sé viðhaldið,
     f.      tryggja að starfsmenntun og þjálfunarkerfi séu þróuð og efld í því skyni að veita viðeigandi tækifæri fyrir viðurkenningu á starfshæfni.

IV. Þróun hæfni.


    9.     Aðildarríkin skulu:
     a.      stuðla að sífelldri greiningu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins á þeirri hæfni sem þörf er fyrir hjá einstaklingum, fyrirtækjum, hagkerfinu og í samfélaginu í heild sinni,
     b.      viðurkenna hlutverk aðila vinnumarkaðarins, fyrirtækja og starfsfólks í þjálfun,
     c.      styðja frumkvæði aðila vinnumarkaðarins á sviði þjálfunar með skoðanaskiptum, þar á meðal samningaviðræðum,
     d.      örva fjárfestingu og þátttöku í þjálfun með hvetjandi aðferðum,
     e.      viðurkenna nám og starfsmenntun í atvinnulífinu, bæði formlegt og óformlegt nám, og starfsreynslu,
     f.      efla útbreiðslu náms og þjálfunar á vinnustað með:
                  (i)      því að bæta færni með besta tiltæka verkskipulagi,
                  (ii)      skipulagningu á þjálfun í og utan vinnu á vegum einkaaðila og opinberra aðila og nota upplýsinga- og samskiptatækni betur, og
                  (iii)      notkun á nýjum námsaðferðum ásamt viðeigandi félagslegum stefnum og aðferðum til að greiða fyrir þátttöku í þjálfun,
     g.      hvetja opinbera atvinnurekendur og aðra til að beita besta verklagi við þróun mannauðs,
     h.      þróa jafnréttisstefnu, aðferðir og áætlanir til að efla og framkvæma þjálfun fyrir konur sem og afmarkaða hópa og starfsgreinar og fyrir fólk með sérþarfir, með það að markmiði að draga úr misrétti,
     i.      stuðla að jöfnum tækifærum og aðgengi að starfsleiðsögn og hæfnisþjálfun fyrir allt starfsfólk sem og stuðning við endurþjálfun starfsmanna í störfum sem eru í hættu,
     j.      hvetja fjölþjóðafyrirtæki til að veita öllum starfsmönnum sínum þjálfun í heimalandi sínu og gistiríki, uppfylla þarfir fyrirtækja og leggja sitt af mörkum til þróunar landsins,
     k.      stuðla að því að opinberir starfsmenn njóti hliðstæðrar þjálfunar og tækifæra og viðurkenna hlutverk aðila vinnumarkaðarins á þessu sviði,
     l.      styðja stefnu sem gerir til einstaklingum kleift að gæta jafnvægis milli vinnu, fjölskyldu og tækifæra til símenntunar.

V. Þjálfun fyrir mannsæmandi vinnu og félagsleg þátttaka.


    10.     Aðildarríkin skulu viðurkenna:
     a.      frumábyrgð stjórnvalda á þjálfun, hvatningu og aðstoð við atvinnulausa, nýliða á vinnumarkaði eða þá sem fá aftur atvinnu og við fólk með sérþarfir, og á þróun og eflingu ráðningarhæfni þess til að tryggja sér mannsæmandi vinnu, hvort sem er á vegum hins opinbera eða í einkafyrirtækjum,
     b.      það hlutverk aðila vinnumarkaðarins að styðja, með stefnu sinni í þróun mannauðs og öðrum leiðum, ráðningu atvinnulausra og fólks með sérþarfir í vinnu,
     c.      það hlutverk stjórnvalda og sveitarstjórna og annarra hagsmunaaðila að koma á fót áætlun fyrir fólk með sérþarfir.

VI. Viðmiðunarreglur fyrir viðurkenningu og vottun á starfshæfni.


    11.     (1) Í samráði við aðila vinnumarkaðarins skulu gerðar ráðstafanir til að settar verði reglur á landsvísu um mat á hæfni til að efla þróun, framkvæmd og fjármögnun á gegnsæju kerfi til að meta, votta og viðurkenna hæfni, þar á meðal fyrra nám og fyrri reynslu án tillits til í hvaða löndum hennar var aflað og hvort það var með formlegum eða óformlegum hætti.
    (2) Þessar matsaðferðir skulu vera hlutlægar, óhlutdrægar og byggðar á viðmiðum.
    (3) Reglurnar sem ríki nota skulu fela í sér trúverðugt vottunarkerfi sem tryggir að hæfni sé viðurkennd í öllum greinum atvinnulífsins, iðngreinum, fyrirtækjum og menntastofnunum.
    12.     Sérstök ákvæði skal setja til að tryggja viðurkenningu og hæfnisvottun farandverkafólks.

VII. Aðilar sem veita þjálfun og leiðsögn.


    13. Aðildarríkin skulu í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, stuðla að fjölbreyttri þjálfun til að mæta mismunandi þörfum einstaklinga og fyrirtækja og til að tryggja gæði, viðurkenningu og miðla hæfni og kunnáttu á grundvelli gæðastaðla þess ríkis sem á í hlut.
    14. Aðildarríkin skulu:
     a.      setja reglur um vottun á hæfni þeirra sem veita menntun og þjálfun,
     b.      skilgreina hlutverk stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í eflingu og fjölbreytni þjálfunar,
     c.      taka upp opinbert gæðaeftirlit, efla það og láta það taka til einkaaðila og meta árangur menntunar og þjálfunar á þeirra vegum,
     d.      þróa gæðaviðmið fyrir leiðbeinendur og skapa tækifæri fyrir þá til að uppfylla slík viðmið.

VIII. Starfsfræðsla og þjónusta við menntun og þjálfun.


    15. Aðildarríki skulu:
     a.      tryggja og greiða fyrir þátttöku og ævilöngu aðgengi einstaklingsins að upplýsingum og leiðsögn um störf og starfsþjálfun, ráðningarþjónustur og tækni til atvinnuleitar og þjónustu við menntun og þjálfun,
     b.      efla og greiða fyrir notkun upplýsinga- og samskiptatækni sem og bestu hefðbundinna leiða til starfsupplýsinga og leiðsagnar og þjónustu við menntun og þjálfun,
     c.      skilgreina í samráði við aðila vinnumarkaðarins hlutverk og ábyrgð ráðningarþjónusta, þjálfunarveitenda og annarra viðkomandi þjónustuveitenda hvað varðar starfsþjálfun og upplýsingar og leiðsögn um störf,
     d.      veita upplýsingar og leiðsögn um frumkvöðla, efla frumkvæði og auka vitund kennara og leiðbeinenda um mikilvægt hlutverk fyrirtækja, meðal annarra, við að stuðla að vexti og fjölgun mannsæmandi starfa.

IX. Rannsóknir á þróun mannauðs, menntun, þjálfun og símenntun.


    16. Aðildarríki skulu meta áhrif stefnu sinnar í menntun, þjálfun og símenntun á viðleitni sína til að ná víðtækari markmiðum í þróun lífskjara, svo sem sköpun mannsæmandi starfa og útrýmingu fátæktar.
    17. Aðildarríkin skulu efla burði sína á landsvísu og um leið greiða fyrir og aðstoða við þróun þeirra hjá aðilum vinnumarkaðarins, greina þróun á vinnumarkaði og þróun mannauðs og þjálfun.
    18. Aðildarríki skulu:
     a.      safna upplýsingum, flokka þær eftir kyni, aldri og öðrum félagshagfræðilegum þáttum, eftir menntunarstigi, hæfni, þjálfun, atvinnu og tekjum, einkum þegar skipulagðar eru reglulegar kannanir á högum íbúanna, svo að greina megi hvert stefni og bera þær við aðrar rannsóknir til að hafa til hliðsjónar við stefnumótun,
     b.      koma upp gagnagrunnum og megindlegum og eigindlegum vísum, flokkuðum eftir kyni, aldri og öðrum þáttum, um kerfi menntunar og þjálfunar í landinu og safna gögnum um þjálfun á vegum einkaaðila og hvaða áhrif það hefur á fyrirtæki,
     c.      safna upplýsingum, þar á meðal langtímarannsóknum, um hæfni og nýja strauma á vinnumarkaðinum úr ýmsum áttum án þess að binda sig við hefðbundna skiptingu starfsgreina.
    19. Aðildarríkin skulu styðja og greiða fyrir rannsóknum á mannauðsþróun og þjálfun í samráði við aðila vinnumarkaðarins og taka mið af áhrifum gagnasöfnunar á fyrirtæki. Þetta gæti náð til eftirfarandi:
     a.      náms- og þjálfunaraðferða, þar á meðal notkunar upplýsinga- og samskiptatækni við þjálfun,
     b.      viðurkenningar á hæfni og leikni;
     c.      stefnu, áætlana og viðmiðunarreglna fyrir þróun mannauðs og þjálfun,
     d.      fjárfestingar í þjálfun, svo og skilvirkni og áhrif þjálfunar;
     e.      greiningar, mælinga og spáa um horfur í framboði og eftirspurn eftir færni og hæfni á vinnumarkaðnum,
     f.      greiningar og afnáms sem kemur í veg fyrir ölfun menntunar og þjálfunar,
     g.      greiningar og afnáms kynjamunar við hæfnismat,
     h.      undirbúnings, útgáfu og dreifingar á skýrslum og gögnum um stefnu, kannanir og tiltækar upplýsingar.
    20. Aðildarríkin skulu nota upplýsingarnar sem fást með könnununum til hliðsjónar við skipulagningu, framkvæmd og mat á áætlunum.

X. Alþjóðleg og tæknileg samvinna.


    21. Alþjóðleg og tæknileg samvinna við þróun mannauðs, menntun, þjálfun og símenntun skal:
     a.      þróa aðferðir sem milda neikvæð áhrif í þróunarlöndum vegna brottflutnings menntaðs fólks, þar á meðal áætlanir til að styrkja kerfi til þróunar mannauðs í upprunalöndunum, með því að viðurkenna að hagkvæmar aðstæður fyrir efnahagsvöxt, fjárfestingar, sköpun mannsæmandi starfa og þróun lífskjara hafa jákvæð áhrif á að halda sérhæfðu vinnuafli,
     b.      stuðla að betri tækifærum fyrir konur og karla til að fá mannsæmandi vinnu,
     c.      þróa hæfni á landsvísu til að endurskoða og þróa stefnu og áætlanir um þjálfun, þ.m.t. hæfni til að gera kjarasamninga og stuðla að sameiginlegum aðgerðum á sviði menntunar og þjálfunar,
     d.      hvetja til frumkvæðis og sköpunar mannsæmandi starfa og miðla upplýsingum um reynslu af vel heppnuðum verkefnum,
     e.      styrkja burði aðila vinnumarkaðarins til að leggja sitt af mörkum til framsækinnar símenntunar, einkum í tengslum við svæðisbundna efnahagsaðlögun, fólksflutninga og vaxandi fjölmenningarsamfélag,
     f.      stuðla að alþjóðlegri og gagnkvæmri viðurkenningu á hæfni, kunnáttu og menntun,
     g.      auka tæknilega og fjárhagslega aðstoð við þróunarlönd og stuðla að því að stefna og áætlanir alþjóðlegra fjármálastofnana og sjóða hafi menntun, þjálfun og símenntun í fyrirrúmi,
     h.      taka mið af sértækum vandamálum skuldugra þróunarlanda, kanna og beita nýstárlegum aðferðum við að efla þróun mannauðs og beita hugkvæmni við að leysa úr læðingi viðbótarframlag í þessu skyni,
     i.      stuðla að samstarfi milli og innan ríkisstjórna, aðila vinnumarkaðarins, einkafyrirtækja og alþjóðlegra stofnana um öll málefni og áætlanir sem koma fram í þessu skjali.

XI. Lokaákvæði.


    22. Tilmæli þessi eru endurskoðun á og koma í stað tilmæla um þróun mannauðs frá árinu 1975.



Fylgiskjal VIII.


Afnám tilmæla 1 á 90. og 92. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.



    Hér eru birtar skrár yfir tilmæli sem 90. og 92. Alþjóðavinnumálaþingið samþykkti að nema úr gildi. Í flestum tilvikum hafa nýjar samþykktir og tilmæli komið í stað þeirra sem eru afnumin. Í öðrum tilvikum voru tilmælin numin úr gildi þar sem þau þykja ekki lengur í takt við aðstæður í atvinnulífinu.

    90. Alþjóðavinnumálaþingið sem haldið var 2002 samþykkti að fella úr gildi eftirfarandi tilmæli:
    Tilmæli nr.1 frá 1919, um ráðstafanir gegn atvinnuleysi.
    Tilmæli nr. 5 frá 1919, um vinnueftirlit.
    Tilmæli nr. 11 frá 1921, um atvinnuleysi í landbúnaði.
    Tilmæli nr. 15 frá 1921, um verknám í landbúnaði.
    Tilmæli nr. 37 frá 1930, um vinnutíma á hótelum.
    Tilmæli nr. 38 frá 1930, um vinnutíma í leikhúsum.
    Tilmæli nr. 39 frá 1930, um vinnutíma á sjúkrahúsum.
    Tilmæli nr. 42 frá 1933, um vinnumiðlun.
    Tilmæli nr. 45 frá 1935, um atvinnuleysi ungs fólks.
    Tilmæli nr. 50 frá 1937, um störf í alþjóðlegu samstarfi.
    Tilmæli nr. 51 frá 1937, um atvinnubótarvinnu.
    Tilmæli nr. 54 frá 1937, um eftirlit í byggingariðnaði.
    Tilmæli nr. 56 frá 1937, um verknám í byggingariðnaði.
    Tilmæli nr. 59 frá 1939, um störf vinnueftirlitsmanna.
    Tilmæli nr. 63 frá 1939, um eftirlitsbækur við flutninga á landi.
    Tilmæli nr. 64 frá 1939, um næturvinnu við flutninga.
    Tilmæli nr. 65 frá 1939, um samþykkt um eftirlit með vinnutíma við landflutninga.
    Tilmæli nr. 66 frá 1939, um hvíldartíma einkabílstjóra.
    Tilmæli nr. 72 frá 1944, um ráðningarþjónustu.
    Tilmæli nr. 73 frá 1944, um atvinnubótarvinnu.

    92. Alþjóðavinnumálaþingið sem haldið var árið 2004 samþykkti að fella úr gildi eftirfarandi tilmæli:
    Tilmæli nr. 2 frá 1919, um að erlendir verkamenn njóti verndar laga og reglna um aðbúnað og öryggi á vinnustöðum og um félagsfrelsi,
    Tilmæli nr. 12 frá 1921, um mæðravernd.
    Tilmæli nr. 16 frá 1921, um gistiaðstöðu landbúnaðarverkafólks.
    Tilmæli nr. 18 frá 1921, um vikulega hvíldardaga verslunarfólks.
    Tilmæli nr. 21 frá 1921, um notkun frítíma.
    Tilmæli nr. 26 frá 1926, um flutning fólks í atvinnuskyni á sjó (verndun kvenna).
    Tilmæli nr. 32 frá 1929, um vélknúin tæki.
    Tilmæli nr. 33 frá 1929, um slysavernd hafnarverkamanna.
    Tilmæli nr. 34 frá 1929, um slysavernd hafnarverkamanna og ráðgjöf félagasamtaka.
    Tilmæli nr. 36 frá 1930, um nauðungarvinnu eða skylduvinnu.
    Tilmæli nr. 43 frá 1933, um varðveislu réttar til örorkubóta, ellilauna og eftirlifendabóta
    Tilmæli nr. 46 frá 1936, um ráðningarsamninga frumbyggja.
    Tilmæli nr. 58 frá 1939, um skriflega vinnusamninga frumbyggja.
    Tilmæli nr. 70 frá 1944, um stefnu í félagsmálum á sjálfstjórnarsvæðum.
    Tilmæli nr. 74 frá 1945, um stefnu í félagsmálum á sjálfstjórnarsvæðum (viðbótarákvæði).
    Tilmæli nr, 96 frá 1953, um lágmarksaldur við námavinnslu.



Fylgiskjal IX.


    Skýrsla um starf nefndar um málefni Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
og framkvæmd á félagsmálasáttmála Evrópu á árunum 2001–2004.


    Eitt af því sem skapar Alþjóðavinnnumálastofnuninni sérstöðu meðal annarra sérstofnana Sameinuðu þjóðanna er aðild fulltrúa atvinnurekenda og launafólks að stjórnum, nefndum og ráðum stofnunarinnar. Samstarf fulltrúa ríkisstjórna, atvinnurekenda og launafólks á vettvangi alþjóðastofnunar óþekkt árið 1919 þegar ILO hóf starfsemi. Stofnunin hefur með ýmsum hætti reynt að hafa áhrif á ríkisstjórnir svo að þær taki upp hliðstæða samvinnu við samtök atvinnurekenda og launafólks um málefni vinnumarkaðarins. Dæmi um þetta er alþjóðasamþykkt nr. 144, um samstarf ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins um framkvæmd alþjóðlegra reglna á sviði vinnumála, sem Ísland fullgilti árið 1981. Í anda þessarar samþykktar var skipuð 16. apríl 1982 samstarfsnefnd ríkisvalds og aðila vinnumarkaðarins sem fjallar um samskipti Íslands við Alþjóðavinnumálastofnunina, venjulega nefnd ILO-nefndin. Á því tímabili sem þessi skýrsla tekur til hafa eftirtaldir skipað nefndina:
    Fulltrúi samtaka atvinnurekenda: Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins.
    Fulltrúar samtaka launafólks: Magnús Norðdahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands, frá janúar 2001 til september 2004. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, frá september 2004.
    Fulltrúar félagsmálaráðherra og formenn nefndarinnar: Elín Blöndal, lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, til 30. mars 2001. Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, frá 1. apríl 2001 til 30. september 2004. Gylfi Kristinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu frá 1. október 2004.
    Verkefni nefndarinnar beinast fyrst og fremst að málefnum sem tengjast samskiptum Íslands við Alþjóðavinnumálastofnunina og leiða af aðildinni að stofnuninni. Nefndinni var með sérstöku erindisbréfi félagsmálaráðherra, dagsettu 5. maí 1988, falið að fjalla um framkvæmd Íslands á félagsmálasáttmála Evrópu. Ástæðan er meðal annars sú að ýmis ákvæði félagsmálasáttmálans eiga uppruna að rekja til alþjóðasamþykkta ILO. Það hefur því þótt hagkvæmt að nefndin fjalli einnig um framkvæmd á sáttmálanum og skýrslur Íslands um framkvæmd hans.
    Á árunum 2001 til ársloka 2004 hefur nefndin haldið samtals 24 fundi. Sjö fundir voru haldnir á árinu 2001, átta árið 2002, fjórir 2003 og fimm á árinu 2004. Helstu viðfangsefni nefndarinnar voru eftirfarandi:

Málefni Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.
a. Skýrslur um framkvæmd alþjóðasamþykkta á svið félags- og vinnumála.
    Í 22. gr. stofnskrár Alþjóðavinnumálastofnunarinnar er kveðið á um þá skyldu aðildarríkja að gefa stofnuninni skýrslu um framkvæmd alþjóðasamþykkta sem þau hafa fullgilt. Skýrslur skulu teknar saman á tveggja ára fresti um framkvæmd á grundvallarsamþykktunum en yfirleitt eru skýrslutímabilin fjögur ár að því er varðar aðrar samþykktir ILO. Þessu til viðbótar er ákvæði í 19. gr. stofnskrárinnar sem heimilar stjórnarnefnd Alþjóðavinnumálastofnunarinnar að óska eftir því við aðildarríkin að þau gefi skýrslu um framkvæmd á samþykktum sem þau hafa ekki fullgilt. Þessari heimild er beitt reglulega og er tilgangurinn að vekja athygli á umræddri samþykkt og hvetja aðildarríkin til að taka fullgildingu hennar til athugunar. Umfang skýrslnanna er mjög mismunandi. Í sumum tilvikum er nægilegt að vísa til fyrri skýrslna. Í öðrum tilvikum er um að ræða margra síðna skýrslur, einkum ef sérfræðinganefnd Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hefur beint spurningum til stjórnvalda um tiltekin atriði.
    Á skýrslutímabilinu undirbjó ILO-nefndin skýrslu ríkisstjórnarinnar um framkvæmd eftirfarandi alþjóðasamþykkta sem Ísland hefur fullgilt:
     a.      Alþjóðasamþykkt nr. 29, um nauðungarvinnu eða skylduvinnu.
     b.      Alþjóðasamþykkt nr. 105, um afnám nauðungarvinnu.
     c.      Alþjóðasamþykkt nr. 108, um persónuskírteini sjómanna.
     d.      Alþjóðasamþykkt nr. 111, um misrétti með tilliti til atvinnu eða starfs.
     e.      Alþjóðasamþykkt nr. 122, um stefnu í atvinnumálum.
     f.      Alþjóðasamþykkt nr. 138, um lágmarksaldur við vinnu.
     g.      Alþjóðasamþykkt nr. 139, um varnir gegn og eftirlit með krabbameinsvaldandi efnum.
     h.      Alþjóðasamþykkt nr. 144, varðandi samstarf um framkvæmd alþjóðlegra reglna á sviði vinnumála.
     i.      Alþjóðasamþykkt nr. 147, um lágmarkskröfur á kaupskipum.
    Nefndin fjallaði einnig um drög að skýrslu stjórnvalda um framkvæmd á tveimur samþykktum sem ekki hafa verið fullgiltar. Um er að ræða samþykkt nr. 1, um takmörkun á vinnutíma í iðnaði við 8 stundir, og samþykkt nr. 30, um eftirlit með vinnutíma við verzlun og skrifstofustörf.

b. Undirbúningur fyrir þátttöku í Alþjóðavinnumálaþinginu.
    ILO-nefndin fór á fundum sínum yfir helstu dagskrármál Alþjóðavinnumálaþinganna sem haldin voru á tímabilinu. Nefndin fjallaði einnig um spurningaskrár sem alþjóðavinnumálaskrifstofan í Genf sendir út til undirbúnings umræðum á þinginu, einkum um drög að alþjóðasamþykktum og tillögum.
    Nefndin tók til umræðu þátttöku í sjöunda Evrópuþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem boðað var til dagana 14.–18. febrúar 2005 í Búdapest í Ungverjalandi. Niðurstaða nefndarinnar var sú að mæla með því að íslensk sendinefnd yrði send til þingsins. Á dagskrá þess er starfsemi ILO í Evrópu. Enn fremur verður fjallað um afmarkaða þætti alþjóðavæðingarinnar, t.d. starfsemi alþjóðastofnana, gildi stöðugrar endurmenntunar, jafnvægið á milli sveigjanleika, stöðugleika og félagslegs öryggis á evrópskum vinnumarkaði, setningu reglna um réttindi og skyldur innflytjenda, öldrun samfélaga Vesturlanda, þátttöku í atvinnulífinu og endurbætur á lífeyrissjóðakerfum.

c. Fullgilding alþjóðasamþykkta.
    Á seinni hluta árs 2004 fjallaði nefndin um hugsanlega fullgildingu alþjóðasamþykktar nr. 158, um uppsögn starfs af hálfu atvinnurekanda. Nefndin hafði á árinu 1994 tekið til umræðu spurninguna um fullgildingu samþykktarinnar. Við það tækifæri tókst ekki samstaða um að mæla með því að samþykktin yrði fullgilt. Gert er ráð fyrir að niðurstaðan úr umfjöllun nefndarinnar liggi fyrir í ársbyrjun 2005.

Félagsmálasáttmáli Evrópu.
Skýrsla um framkvæmd sáttmálans.
    Félagsmálasáttmáli Evrópu var opnaður til undirritunar árið 1961 í Tórínó á Ítalíu. Ísland fullgilti sáttmálann 15. janúar1976. Í 2. mgr. 20. gr. er heimilað að takmarka skuldbindingu aðildarríkis við tilteknar greinar eða málsgreinar í sáttmálanum. Þessi heimild var nýtt og er Ísland skuldbundið af lágmarksfjölda greina sem taldar eru upp í fullgildingarskjali sem afhent var framkvæmdastjóra Evrópuráðsins til varðveislu.
    Eftirlit Evrópuráðsins með því að ákvæðum sáttmálans sé fylgt felst í eftirfarandi: Nefnd óháðra sérfræðinga, skýrslum aðildarríkjanna, nefnd fulltrúa þeirra ríkja sem hafa fullgilt sáttmálann og ráðherranefnd Evrópuráðsins.
    Samkvæmt reglum, sem hafa lengst af gilt, skulu aðildarríki félagsmálasáttmálans taka saman skýrslur á tveggja ára fresti um framkvæmd á fullgiltum ákvæðum sáttmálans.
    Eftirlit með framkvæmd félagsmálasáttmálans hefur aukist síðustu árin. Nefnd óháðra sérfræðinga hefur farið nákvæmar yfir skýrslur aðildarríkjanna um framkvæmd á ákvæðum sáttmálans og óskað eftir nánari upplýsingum og frekari útskýringum á einstökum ákvæðum. Þetta hefur verulega aukið umfang skýrslugjafar aðildarríkja sáttmálans til Evrópuráðsins.
    Á því tímabili sem þessi skýrsla tekur til hefur ILO-nefndin fjallað um drög að 15. skýrslu um framkvæmd Íslands á þeim ákvæðum sáttmálans sem það er skuldbundið af. Nefndinni voru einnig kynntar niðurstöður af athugun óháðra sérfræðinga Evrópuráðsins á framkvæmd Íslands á ákvæðum sáttmálans. Þær verða birtar í viðauka við næstu skýrslu um Alþjóðavinnumálaþingið í Genf.

Endurskoðun félagsmálasáttmálans.
    Á árunum 1990–1994 var unnið að endurskoðun félagsmálasáttmála Evrópu af sérstakri nefnd á vegum Evrópuráðsins. Nefndin afgreiddi árið 1991 drög að bókun við félagsmálasáttmálann þar sem skýrar er kveðið á um hlutverk sérfræðinganefndar Evrópuráðsins sem fer yfir skýrslur aðildarríkjanna. Í bókuninni er einnig kveðið skýrar á um verkefni nefndar sem í eiga sæti fulltrúar aðildarríkja sáttmálans. Heildarendurskoðun á efnisákvæðum félagsmálasáttmálans lauk árið 1994. Í nýja sáttmálanum er að finna fjölda nýmæla sem m.a. fjalla um rétt launafólks til upplýsinga og að haft sé samráð við það, vernd launa við gjaldþrot atvinnurekanda, aðgerðir til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni á vinnustað eða í tengslum við vinnu, réttindi starfsmanna með fjölskylduábyrgð, rétt til húsnæðis, og aðgerðir til að koma í veg fyrir fátækt og útskúfun úr þjóðfélaginu. ILO-nefndin fjallaði á skýrslutímabilinu um fullgildingu á bókuninni og endurskoðaðri gerð félagsmálasáttmálans.



Viðauki I.


Greinargerð ríkisstjórnar Íslands til Alþjóðavinnumálastofnunar
varðandi kæru Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands (FFSÍ) vegna
setningar laga nr. 8/2001 og 34/2001.


    Með bréfum dagsettum 30. janúar 2002 tilkynnti alþjóðavinnumálaskrifstofan í Genf félagsmálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands að Alþjóðavinnumálastofnuninni hafi borist kærur frá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands (FFSÍ) vegna meintra brota ríkisstjórnarinnar á alþjóðasamþykktum nr. 87, um félagafrelsi og verndun þess, og nr. 98, um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega, vegna setningar laga nr. 8/2001 og 34/2001.
    Hinn 3. september 2002 sendi ríkisstjórn Íslands Alþjóðavinnumálastofnuninni greinargerð vegna kæru ASÍ og FFSÍ. Í henni er fjallað um íslenskt efnahagslíf, einkum þann þátt sem lýtur að útgerð og fiskvinnslu. Í greinargerðinni er farið yfir kjaradeilur sjómanna og útgerðarmanna og árangurslausar samningaviðræður. Fram kemur að eftir að samtök sjómanna og útgerðarmanna hafi gripið til þess að beita verkfalli og verkbanni hafi ríkisstjórnin freistað þess að leita leiða til lausnar þrálátri deilu með skipun sérstaks gerðardóms á grundvelli laga frá Alþingi nr. 34/2001.
    Greinargerðin í heild sinni er svohljóðandi:

1. Inngangur.


    Ríkisstjórn Íslands vísar til tveggja bréfa Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sem bæði eru dagsett 30. janúar 2002. Bréfin tilkynntu ríkisstjórninni um kæru Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fyrir hönd Sjómannasambands Íslands (SSÍ) og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands (FFSÍ), þar sem ríkisstjórnin var sökuð um að fylgja ekki ákvæðum samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 um félagafrelsi og verndun þess, og nr. 98 um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega. Kæran var skráð sem mál nr. 2170. Ísland fullgilti samþykkt nr. 87 árið 1950, og samþykkt nr. 98 árið 1952.
    Í kæru ASÍ er því haldið fram að ríkisvaldið hafi látið undir höfuð leggjast að tryggja að virtar yrðu í reynd samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og 98 að því er varðar rétt íslenskra sjómanna til að efna til verkfalls og semja sameiginlega um vinnuskilmála og kjör. ASÍ telur að í lögum nr. 34/2001 um kjaramál fiskimanna og fleira felist ólögmætt inngrip í starfsemi frjálsra og lögmætra stéttarfélaga, og að með samþykkt þeirra hafi verið brotið gegn 1. og 2. mgr. 3. gr. samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87. Í kæru FFSÍ var því haldið fram að með lögum um kjaramál fiskimanna og fleira, nr. 34/2001, hefði verið brotið gróflega og í grundvallaratriðum gegn samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87.
    Íslenska ríkisstjórnin hafnar þessum ásökunum þar sem umrædd lagasetning var neyðarúrræði sem grípa þurfti til í því skyni að binda endi á sex vikna verkfall sjómanna sem ekki sást fyrir endann á. Þar sem hér er um mjög flókið mál að ræða, sem snertir grundvallarstefnu ríkisstjórnarinnar á sviði launa og efnahagslegs stöðugleika, er rétt að setja hér fram ítarlega lýsingu á baksviði deilunnar og þeim ráðstöfunum sem gerðar voru henni til lausnar. Eftirfarandi greinargerð skiptist í fjóra kafla.
    Rétt er að nefna í fyrsta kafla þau helstu séreinkenni íslensks efnahagslífs að fiskveiðar og útflutningur fiskafurða er sá grundvöllur sem meginhluti íslenskrar atvinnustarfsemi byggist á. Það atriði skiptir höfuðmáli í þeirri umfjöllun sem nú er um að ræða. Svo sem lýst verður síðar í greinargerð þessari hafði hið langvarandi sjómannaverkfall í apríl og maí 2001 alvarleg áhrif og ógnaði verulega efnahagslegum stöðugleika á Íslandi í heild.
    Í öðrum kafla greinargerðarinnar er fjallað um hina langvarandi deilu FFSÍ og Sjómannasambands Íslands (SSÍ) annars vegar og Landssambands íslenzkra útvegsmanna (LÍÚ) hins vegar.
    Þriðji kafli greinargerðarinnar fjallar um löggjöfina og dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-11357/2001 hinn 21.mars 2002. Að síðustu verður fjallað um löggjöfina og samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og 98.

2. Almennar upplýsingar.


2.1. Íslenskt efnahagslíf.
    Legu Íslands og efnahagslegum aðstæðum landsmanna hefur verið lýst í fyrri skýrslum og greinargerðum íslenska ríkisins um svipuð mál. Landið er 103,000 km 2 að flatarmáli og heildaríbúafjöldi er um 285.000. Verslun við önnur lönd er sá grundvöllur sem efnahagsleg velgengni landsmanna byggist á. Flytja verður inn margar nauðsynjavörur, svo sem timbur, ýmsar landbúnaðarafurðir, og olíuvörur. Útflutningur nemur um 40% af landsframleiðslu. Á sviði fiskveiða hafa Íslendingar hafa nýtt sér þá kosti sem hin víðáttumiklu og gjöfulu fiskimið landsins bjóða. Sérhæfing í fiskiðnaði hefur lengi leitt til hagvaxtar, og þáttur fiskveiða og fiskiðnaðar í efnahagskerfi landsins er enn mjög mikill. Yfir 60% af útflutningi landsmanna er í formi sjávarafurða, og sá hluti útflutningsins aflar um 40% gjaldeyristeknanna. Meðal annars útflutnings má telja ál, járnblendi og kísilgúr (15%), ferðaþjónustu (12,5%), og ýmiss konar létta iðnaðarvöru, sem flestar tengjast sjávarútvegi. Framlag sjávarafurða til þáttatekna er verulegt og nemur um 11%. Sjávarútvegur nýtir um 8% vinnuaflsins.
    Þess hefur áður verið getið að fiskistofnar eru endurnýjanleg auðlind, og einnig að þeir eru mjög háðir náttúrulegum sveiflum, sérstaklega í sjávarhita og sjávarseltu. Af þessum sökum er aflamagn óstöðugt. Nefna má að þau verð sem fengist hafa fyrir sjávarafurðir hafa sveiflast mjög, þar sem fiskur er hráefni sem verður að keppa við önnur matvæli, sem oft eru mikið niðurgreidd. Af því leiðir að verslunarkjör Íslendinga hafa einnig sveiflast mikið til, þó að þau hafi batnað verulega þegar til lengri tíma er litið. Þessar sveiflur, bæði í aflamagni og verði, hafa óhjákvæmilega leitt til meiri hagsveiflna á Íslandi en í mörgum öðrum iðnvæddum löndum. Til dæmis hefur það gerst ekki sjaldnar en átta sinnum frá stofnun íslenska lýðveldisins árið 1944 að þjóðarframleiðsla hefur dregist saman. Þó að svo miklar sveiflur hafi orðið sjaldgæfari setja þær samt efnahagsstefnu landsins þröngar skorður.

2.2. Stöðugleiki.
    Á síðasta áratug 20. aldar batnaði hagur Íslendinga hröðum skrefum og nam árlegur hagvöxtur á árunum 1996–2000 4–6%. Þetta var að miklu leyti að þakka efnahagslegum og pólitískum stöðugleika og hinni svonefndu þjóðarsátt, sem nefnd var í greinargerð ríkisins til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í febrúar 2005 varðandi kæru ASÍ í tengslum við setningu laga nr. 15/1993 (mál nr. 1768).
    „Þjóðarsáttin“ var fólgin í sameiginlegri afstöðu, sem aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldið tóku til að vinna bug á verðbólgu, sem hafði verið verulegt efnahagslegt vandamáli í landinu undanfarna áratugi. Minni verðbólga, skynsamleg skipulagning íslensks fjármagnsmarkaðar, skilvirkt fiskveiðistjórnarkerfi og aðild að hinu evrópska efnahagssvæði lögðust á eitt til að leggja grunn að hagvexti á síðasta áratug aldarinnar.
    Við minnkandi afla á tíunda áratugnum, sem stafaði af náttúrulegum sveiflum, var brugðist með vísindalegri uppbyggingu fiskistofna og aukinni skilvirkni í fiskiðnaði. Sett voru markmið um skynsamlega nýtingu og bætta meðferð sjávarafurða. Reyndar óx verðgildi útfluttra sjávarafurða á sama tíma og afli minnkaði. Þegar afli jókst aftur um miðjan tíunda áratuginn fóru hjól efnahagslífsins aftur að snúast.
    Um margra ára skeið hafa íslenskir fiskútflytjendur byggt upp markaði sína á kerfisbundinn hátt. Þeir markaðir eru afar viðkvæmir fyrir framboðssveiflum. Markaður getur auðveldlega tapast ef framboð bregst um einhvern tíma. Ekki verður alveg komist hjá náttúrulegum sveiflum, en sveiflur af öðrum orsökum eru ekki síður skaðlegar, sérstaklega í ljósi þess háa hlutfall gjaldeyris sem sjávarútvegur aflar, sem fer yfir 40%. Þess vegna hefur tap á mörkuðum áhrif á þjóðarhag Íslendinga í heild.
    Langvarandi stöðvun fiskveiða getur því haft áhrif á íslenskt efnahagslíf sem bæði eru langvinn og skammvinn. Þau skammvinnu eru tap á útflutningstekjum, sem auðvitað valda ýmsum efnahagslegum skaða, og hin langvinnu eru tap á mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Þannig er stöðugleiki í íslenskum sjávarútvegi forsenda trausts íslensks efnahagslífs.
    Verkfall FFSÍ og SSÍ hófst 15. mars 2001 og var frestað hinn 19. þess mánaðar með setningu laga um frestun á verkfalli fiskimanna, nr. 8/2001. Verkfall hófst aftur 1. apríl, en hætti 16. maí þegar önnur lög, lög um kjaramál fiskimanna og fleira, nr. 34/2001, voru sett. Verkfallið stóð í sex vikur og var lengsta sjómannaverkfall sem nokkurn tíma hefur verið háð á því sviði íslensks atvinnulífs.
    Á öðrum ársfjórðungi 2001 fékk verðgildi íslenskrar krónu um 8,2%. Síðan 1982 hafði gjaldmiðillinn aldrei fallið jafn mikið á einu ári, hvað þá á einum ársfjórðungi. Verðbólga óx að nýju og íslensku efnahagslífi fór hnignandi. Á þriðja ársfjórðungi 2001, er verkfallinu var lokið, styrktist krónan um 0,5%, en fall gjaldmiðilsins á árinu 2001 olli áhyggjum, því að það nam 12,9% samanborið við 2,9% hækkun á árinu 2000.
    Auðsætt er að í ljósi ríkjandi efnahagsaðstæðna átti ríkisstjórnin ekki annars kost en að grípa inn og binda endi á hið þráláta verkfall, sem þegar hafði haft mikil og eyðileggjandi áhrif. Ríkisstjórninni er ljóst að hingnun af þessu tagi á sér fleiri en eina efnahagslega ástæðu, en langvarandi stöðvun á helsta atvinnuvegi landsmanna er vafalaust mjög mikilvæg orsök.
    Áhrif verkfallsins á efnahagslífið eru því augljós, og þau eru aðeins hin skammvinnu. Markaðssetningarstarf varð einnig fyrir skaða og gat tekið nokkurn tíma að vinna hann upp. Það er með þetta baksvið í huga sem meta verður setningu laga um frestun á verkfalli fiskimanna, nr. 8/2001, og lög um kjaramál fiskimanna og fleira, nr. 34/2001.

3. Kjarasamningaviðræður milli sjómanna annars vegar
og útgerðarmanna hins vegar.

3.1. Íslenskur vinnumarkaður.
    Lög um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 með síðari breytingum, fjalla um stofnun stéttarfélaga og hlutverk þeirra sem samningsaðila í kjarasamningsviðræðum við vinnuveitanda. Þar er gert ráð fyrir að félagssvæði stéttarfélags geti ekki verið minna en eitt sveitarfélag. Undanfarin ár hafa mörg sveitarfélög sameinast í stærri einingar og voru þau 122 talsins í desember 2001. Á sama tíma var meðalíbúafjöldi í sveitarfélögum á Íslandi 2.346 íbúar en einungis fimm sveitarfélög höfðu 5.000 eða fleiri íbúa, þar á meðal Reykjavík með um 112.000 íbúa. Þess má jafnframt geta að 91 sveitarfélag hafði færri en 1000 íbúa á þessum tíma.
    Unnt er að fullyrða að engin stórfyrirtæki sambærileg þeim sem rekin eru í fjölmennari ríkjum Evrópu eru starfrækt hér á landi. Einungis örfá stórfyrirtæki og stofnanir eru með yfir 1000 starfsmenn í þjónustu sinni. Aðstæður í atvinnulífi, þar á meðal í fiskveiðum og fiskvinnslu, eru því sniðnar að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Í fiskvinnslu og útgerð þar sem uppistaða þjóðartekna verður til eru stærstu fyrirtækin einungis með um 300–400 starfsmenn. Í þessari sem og mörgum öðrum starfsgreinum eru fyrirtæki dreifð á ströndina í sveitarfélögum um land allt með mjög fáa starfsmenn. Má geta þess að þegar á heildina er litið eru um 80% íslenskra fyrirtækja með færri en 20 starfsmenn í vinnu á hverjum tíma.
    Af þessum sökum eru flest verkalýðsfélög á Íslandi fámenn en þau hafa myndað stærri heildarsamtök sem þau starfa innan, annaðhvort á landsvísu eða svæðisbundið. Alþýðusamband Íslands er stærstu heildarsamtökin á landsvísu en innan þeirra voru um 114 félög og deildir á árinu 2000. Félögin innan Alþýðusambandsins hafa úrslitavald hvað varðar gerð og samþykkt kjarasamninga. Þegar kemur að samningu heildarkjarasamninga er félagsmönnum í sjálfsvald sett að ákveða hvernig að þeim skuli staðið. Samningsgerðin getur farið fram í stéttarfélögunum sjálfum, í svæðasamböndunum eða heildarsamtökunum. Eftir að hafa afhent svæðasamböndum eða heildarsamtökum samningsumboðið geta einstök félög dregið sig úr samstarfinu hvenær sem er í viðræðunum. Félagsmenn í hverju verkalýðsfélagi innan Alþýðusambandsins hafa ótvírætt vald til að samþykkja eða hafna samningi hverju sinni. Þegar niðurstaða samnings liggur fyrir fer fram atkvæðagreiðsla innan hvers félags fyrir sig sem sker úr um það hvort félagið verði aðili að samningnum.
    Íslensk stjórnvöld hafa lagt á það ríka áherslu að aðilar vinnumarkaðarins semji um kaup og kjör í kjarasamningsviðræðum. Í því skyni að stuðla að árangri slíkra viðræðna hefur verið komið á sérstakri skipan þar sem aðilum gefst kostur á að vísa deilunni til sérstaks ríkissáttasemjara, sbr. lög um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 með síðari breytingum. Er ríkissáttasemjara ætlað að annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar óski aðilar eftir því. Enn fremur er heimild í lögum nr. 80/1938 til handa sáttasemjara um að leggja fram miðlunartillögu til lausnar vinnudeilu þegar samningaumleitanir hans bera ekki árangur. Slík miðlunartillaga verður þó ekki borin fram nema áður hafi reynt á samningsleiðir til þrautar. Sáttasemjari metur hvort og þá hvenær rétt er að setja fram slíka tillögu fyrir þá hópa sem í hlut eiga. Afstaða hans byggist meðal annars á því meginskilyrði að hin sameiginlega miðlunartillaga sé til þess fallin að leiða til friðsamlegrar samtímalausnar kjaramála.

3.2. Yfirlit yfir þróun kjarasamninga sjómanna og útgerðarmanna á liðnum árum.
    Meginágreiningsefni í kjarasamningsviðræðum milli samtaka sjómanna annars vegar og samtaka útgerðarmanna hins vegar hefur í um áratug snúist um hvers konar viðmið skuli viðhafa við ákvörðun fiskverðs. Ástæða þessa er að í eldri kjarasamningum hafa verið ákvæði um hlutfall áhafnar af skiptaverðmæti aflans sem veiðist í hverri veiðiferð. Þar er mælt fyrir um misháan hundraðshluta eftir stærð skipa og veiðarfærum, miðað við tiltekinn fjölda skipverja. Þá er tekið fram að ekki skuli skipt í fleiri staði en menn eru í veiðiferð. Það er hins vegar ákvörðun útgerðarmannsins hversu margir eru á hverju skipi. Því gefur að skilja að verðmyndun á fiskinum er grundvöllur þess hlutaskiptakerfis sem laun sjómanna byggist á enda þótt þeir hafi enn fremur tryggingu fyrir lágmarkslaunum. Kauptryggingin reiknast á mánaðargrundvelli auk þess sem greitt er fyrir ýmis konar verk sem ekki teljast greidd með aflahlut.
    Í byrjun 10. áratugarins var svokallað Verðlagsráð sjávarútvegsins lagt niður en það hafði áður ákvarðað lágmarksverð á fiski. Eftir þann tíma varð fiskverð að mestu frjálst. Eftir hálfsmánaðar verkfall sjómanna árið 1994 voru sett bráðabirgðalög þar sem sjávarútvegsráðherra skipaði þriggja manna nefnd sem var fengið það hlutverk að kanna hvernig unnt væri að koma í veg fyrir að viðskipti með aflaheimildir hefðu óeðlileg áhrif á skiptakjör sjómanna. Í kjarasamningum sjómanna og útgerðarmanna sem undirritaðir voru þann 15. júní 1995 eftir þriggja vikna verkfall sjómanna var meðal annars kveðið á um að útgerðarmaður og áhöfn gerðu sín á milli samninga um fiskverð þegar útgerð seldi afla til eigin vinnslu. Í þeim tilvikum er afli var seldur milli óskyldra aðila gat áhöfnin krafist þess að gerður yrði samningur um uppgjörsverð fyrir þann afla. Þá voru í kjarasamningunum ákvæði um sérstaka úrskurðarnefnd sem ætlað var að taka ákvörðun um fiskverð næðist ekki samkomulag um verð milli útgerðar og áhafnar.
    Í kjölfar kjarasamninganna árið 1995 sigldu lög um úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 84/1995, sem veittu frekari stoð undir þá nefnd sem samið hafði verið um í kjarasamningum. Var það álit samtaka útvegsmanna og sjómanna að nauðsynlegt væri að skjóta lagastoðum undir störf úrskurðarnefndarinnar og fóru þess á leit við sjávarútvegsráðherra að hann flytti frumvarp um það efni ef kjarasamningar tækjust. Var texti frumvarpsins saminn í samráði við heildarsamtök sjómanna og útvegsmanna. Hlutverk úrskurðarnefndarinnar var að vinna úr upplýsingum um fiskverð og ákvarða fiskverð í beinum viðskiptum þegar útgerðarmenn og sjómenn komust ekki að samkomulagi. Þremur árum síðar var Verðlagsstofa skiptaverðs sett á laggirnar með lögum nr. 13/1998. Þau lög fjölluðu einnig um úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna og felldu því lögin frá árinu 1995 úr gildi. Hlutverk Verðlagsstofunnar er að fylgjast með fiskverði og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna.
    Þann 2. febrúar 1998 hófst að nýju verkfall sjómanna. Er ríkisstjórnin hugðist binda enda á verkfallið viku síðar frestuðu samtök sjómanna því til 15. mars sama ár. Ástæða frestunarinnar var að framlagt lagafrumvarp gerði ráð fyrir að sett yrði á laggirnar sérstök nefnd sem ætti að skila skýrslu fyrir 10. mars 1998. Nefndin var sett á laggirnar og fólu niðurstöður hennar meðal annars í sér drög að frumvarpi til laga um Verðlagsstofnun skiptaverðs og úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna, drög að frumvarpi til laga um Kvótaþing ásamt drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum. Allt kom þó fyrir ekki og verkfall hófst að nýju á fiskveiðiskipaflotanum á boðuðum verkfallsdegi. Daginn eftir lagði sáttasemjari ríkisins fram miðlunartillögu sem var felld en hún var síðar lögfest þann 27. mars 1998 með lögum um kjaramál fiskimanna, nr. 10/1998.

3.3. Kjarasamningsdeila árið 2001
    Gildistími laganna frá árinu 1998 var til 15. febrúar 2000. Kjarasamningsviðræður hófust milli aðila í desember 1999 og var meginágreiningsefnið hið sama og endranær. Þegar langar og strangar samningaviðræður höfðu ekki borið árangur sem erfiði í ársbyrjun 2001 boðuðu þrenn samtök sjómanna, þ.e. Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og Vélstjórafélag Íslands verkfall fyrir hönd félagsmanna sinna. Átti fyrirhugað verkfall að hefjast þann 15. mars 2001. Innan Sjómannasambandsins var um að ræða 21 stéttarfélag en það starfar innan Alþýðusambands Íslands. Þau stéttarfélög sjómanna sem höfðu falið Alþýðusambandi Vestfjarða samningsumboð sitt boðuðu hins vegar ekki til verkfalls né heldur fjögur önnur félög sjómanna annars staðar á landinu. Þá höfðu útvegsmenn lagt verkbann um allt land nema á Snæfellsnesi. Því var hvorki í gildi verkfall né verkbann á Snæfellsnesi.
    Verkfallið hófst á tilsettum degi en var frestað með lögum þann 19. mars 2001 fram til loka loðnuvertíðar sem voru 1. apríl 2001. Hófst þá verkfallið að nýju en á þeim tíma sem liðinn hafði verið frá því að deilunni var vísað til ríkissáttasemjara höfðu verið haldnir yfir 70 fundir sáttasemjara með deiluaðilum. Þegar verkfallið hafði staðið yfir óslitið í tæplega sex vikur undirrituðu Vélstjórafélag Íslands og Landssamband íslenskra útvegsmanna kjarasamning þann 9. maí sama ár. Í þeim samningi var meðal annars samið um að aðilar reyndu, með aðstoð Verðlagsstofu skiptaverðs, að stuðla að því að samningar um fiskverð til viðmiðunar í hlutaskiptum á þorski, ýsu og karfa í beinum viðskiptum skyldra aðila hækkaði á tilteknum tíma og að verðið tæki mið af blöndu af vegnu meðaltali viðskipta á fiskmörkuðum og í beinni sölu með umsömdum vikmörkum. Eins og að framan greinir hafa útgerð og áhöfn ávallt gert með sér samning um fiskverð sem síðar hefur verið staðfestur með leynilegri atkvæðagreiðslu áhafnar og að því loknu undirritaður af fulltrúum útgerðar og áhafnar. Enn fremur hefur tíðkast að fiskverð, sama með hvaða hætti það hefur verið ákvarðað, hefur verið hið sama fyrir alla sem taka hlut úr aflanum. Auk þessa gerir eftirlitskerfið með fiskverði og fiskverðssamningum ráð fyrir því að einungis gildi eitt fiskverð um borð í hverju skipi. Vonuðust menn því að áðurgreindur kjarasamningur gæti greitt fyrir samningum annarra aðila.
    Af yfirlýsingum deiluaðila og ríkissáttasemjara mátti engu að síður ráða að svo mikið bæri milli aðila að ekki yrði tækt að leysa deiluna með samningum með atbeina ríkissáttasemjara. Enn fremur var það mat sáttasemjara að ekki væri grundvöllur að gerð sérstakrar miðlunartillögu í deilunni sem gæti leitt til friðsamlegrar lausnar milli aðila. Það var því álit stjórnvalda að fullreynt væri að samningar næðust þrátt fyrir að allra leiða hefði verið leitað við að leysa deiluna. Lausn var því ekki í sjónmáli og óvíst hversu lengi verkfallið myndi dragast á langinn. Af þeim sökum sáu stjórnvöld ekki aðra leið færa en að binda enda á verkfallið með þeirri neyðarráðstöfun sem lagasetning felur í sér.

4. Setning laga nr. 8/2001 og 34/2001.


4.1. Aðdragandi lagasetningarinnar.
    Verkfall FFSÍ og SSÍ og verkbann LÍÚ hófst 15. mars 2001, og bæði verkfallinu og verkbanninu var frestað hinn 19. mars með setningu laga um frestun á verkfalli fiskimanna, nr. 8/2001. Verkfall og verkbann hófst aftur 1. apríl, en taka verður fram að útgerðarmenn á Snæfellsnesi höfðu ekki lagt á verkbann, þar sem ekki hafði verið efnt til verkfalls þar. Verkfalli SSÍ og FFSÍ og verkbanni LÍÚ lauk 16. maí þegar önnur lög, lög nr. 34/2001 um kjaramál fiskimanna og fleira, voru sett. Áður en það varð hafði Vélstjórafélag Íslands, sem einnig hafði verið í verkfalli, gert kjarasamning við LÍÚ.
    Fyrri lögin, nr. 8/2001, höfðu þann tilgang að fresta verkfallinu svo að unnt væri að halda áfram loðnuveiðum. Loðnuveiðar, sem eru afar mikilvægar fyrir íslenskan efnahag, eru takmarkaðar við ákveðinn árstíma. Frestun verkfallsins stóð frá 19. mars 2001, þegar lögin tóku gildi, og til 1. apríl 2001. Eftir það dróst verkfallið á langinn án þess að neitt hillti undir lausn. Að liðnum sex vikum til viðbótar sá ríkisstjórn Íslands enga aðra lausn en að binda endi á verkfallið og verkbannið með því að leggja fram nýtt frumvarp á Alþingi.
    Þær ráðstafanir voru gerðar fyrst og fremst til að takmarka það geysilega tjón sem áframhaldandi stöðvun íslenska fiskveiðiflotans hefði valdið efnahag Íslendinga. Þegar sjávarútvegsráðherra mælti fyrir frumvarpinu um bann við verkfallinu og verkbanninu (lög nr. 34/2001) á þingi hóf hann mál sitt svo:
    „Því miður er nauðsynlegt að mæla fyrir þessu frv. Eftir sex vikna sjómannaverkfall, lengsta verkfall sjómanna í 20 ár og sennilegast, að því er mér er tjáð, lengsta allsherjarverkfall sjómanna í sögunni er engin von um að leysast muni úr verkfallinu. Þrátt fyrir að hluti deiluaðila hafi náð samkomulagi tjá aðrir deiluaðilar mér að engin von sé um að samkomulag náist á þeim tíma sem getur talist ásættanlegur miðað við lengd verkfallsins sem þegar er orðin. Og það er staðfest af orðum sáttasemjara að staðan í deilunni sé nú sú versta sem verið hefur.“
    Á þeim tíma var augljóst að verkfallið og verkbannið hafði þegar haft afar mikil áhrif á íslenskt þjóðlíf. Þau áhrif voru farin að ná til heimilanna og fjárhags hins almenna íslenska borgara. Sérstaklega hafði vinnudeilan mikil áhrif á líf fólks á litlum þéttbýlisstöðum sem í raun byggja afkomu sína á fiskiðnaði. Verkafólk hjá fyrirtækjum sem farið var að vanta hráefni var tekið að missa atvinnu sína. Einnig sáust merki um neikvæð áhrif hins langvarandi verkfalls á markaðssetningu íslenskra sjávarafurða erlendis. Fólk áttaði sig á að hrun útflutningsmarkaða kynni að hafa áhrif til langs tíma, en mikið markaðsstarf hafði verið unnið árum saman. Augljóst var að verkfallið hafði firnamikil áhrif á útflutningstekjur landsmanna, því að 40–50% útflutningstekna koma frá sjávarútvegi. Samdráttur á útflutningstekjum var mikilvægur þáttur í falli íslensku krónunnar, sem aftur fól í sér verulega ógnun við stöðugleika íslensks efnahags, eins og nefnt er í 2. lið 2. kafla greinargerðar þessarar.
    Með allt þetta í huga komst ríkisstjórn Íslands að þeirri niðurstöðu að brýna nauðsyn bæri til að binda enda á verkfallið og verkbannið. Markmiðið var að kveða á um eðlilega og sanngjarna lausn deilunnar. Ekki var hægt að sjá fyrir aðrar leiðir en að leggja fram frumvarp á Alþingi. Að lokinni nokkurri umfjöllun um hugsanlega efnislega valkosti í frumvarpinu var ákveðið að velja gerðardómsleið. Sú ráðstöfun var talin uppfylla meðalhófskröfu, og skipun gerðardómara af Hæstarétti var talin tryggja að gerðardómur yrði óháður.
    Afstaða ríkisstjórnarinnar var þá, og er enn, að ef engar ráðstafanir hefðu verið gerðar hefði verkfallið valdið efnahag landsins óbætanlegu tjóni. Þannig voru miklir almannahagsmunir í húfi og nauðsynlegt var að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir hinn mikla skaða sem áframhaldandi stöðvun fiskiskipaflotans myndi valda í hagkerfinu.
    Ríkisvaldið leit alltaf á þessa ráðstöfun sem neyðarráðstöfun, eins og sjávarútvegsráðherra sagði í lok áðurnefndrar ræðu sinnar: „Ég hefði heldur kosið að það hefði ekki verið gert og að aðilar hefðu náð saman og leyst deiluna í heild. En því miður var verkfallið orðið of langt og það var deiluaðilum ljóst frá upphafi að þeir hefðu ekki óendanlegan tíma til að komast að niðurstöðu í þessu máli.“
    Sú staðreynd að stéttarfélögin sem voru í verkfalli að Sjómannafélagi Eyjafjarðar undanskildu afturkölluðu verkfallið á miðnætti 15. maí 2001 breytti því ekki að útgerðarmenn héldu verkbanninu til streitu og varð því að grípa til umræddra aðgerða.
    Í 2. gr. laga nr. 34/2001 var aðilum veittur frestur til að ná samkomulagi til 1. júní 2001. Hefði ekki náðst samkomulag fyrir þann dag skyldi Hæstiréttur tilnefna þrjá menn í gerðardóm til að kveða á um laun og kjör sjómanna í þeim verkalýsðfélögum sem nefnd voru í 1. grein, þ.e. þeim verkalýðsfélögum sjómanna sem voru í verkfalli og þeim samtökum útgerðarmanna sem héldu fast við verkbann.
    Í 3. gr. var kveðið á um að gerðardómur skyldi við ákvörðun sína taka tillit til kjarasamninga sem gerðir hefðu verið á undanförnum mánuðum að því marki sem við átti og til almennrar launaþróunar, auk þess að hafa hliðsjón af sérstöðu þeirra aðila sem nefndir voru í 1. grein. Í því skyni að tryggja sjálfstæði dómsins var honum falið að ákveða sjálfum að öðru leyti efni og gildistíma ákvörðunar sinnar.
    Þar sem enginn kjarasamningur náðist fyrir 1. júní 2001 var gerðardómur skipaður í samræmi við ákvæði laganna. Í fyrstu reyndi gerðardómurinn að leita sátta í málinu, en án nokkurs árangurs. Veitti hann síðan aðilum kost á að tilgreina sjónarmið sín skriflega. Gerðardómurinn tók síðan ákvörðun sína hinn 30. júní 2001. Í forsendum hennar er að finna afar ítarlega lýsingu á málavöxtum, og leyfir ríkisstjórn Íslands sér að vísa í gerðardóminn hvað varðar frekari upplýsingar um deiluna (kærandi hefur sent nefndinni dóm gerðardómsins í enskri þýðingu).
    Frumvarpið mætti nokkurri andstöðu á þingi, en var samþykkt með 33 atkvæðum gegn 20. 10 sátu hjá. Almennt var sú gagnrýni höfð uppi að löggjafinn hefði engan rétt á að grípa inn í kjaradeilu með lagasetningu og brjóta þannig gegn stjórnskipulega vörðum réttindum deiluaðila og einnig með ákvæðunum um gerðardóm. Þessi voru einnig rök ASÍ þegar þau samtök lögðu málið fyrir íslenska dómstóla.

4.2. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 21. mars 2002.
    Er lög nr. 34/2001 höfðu verið sett höfðaði ASÍ mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu hinn 5. júní 2001. Hélt ASÍ því fram að lög nr. 34/2001 fælu í sér brot gegn 74. og 75. gr. íslensku stjórnarskrárinnar og einnig brot á ýmsum alþjóðasamningum sem Ísland hafði fullgilt, þ.e. 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og 98, og 6. gr. Félagsmálasáttmála Evrópu. Komst héraðsdómurinn að þeirri niðurstöðu að lög nr. 34/2001 brytu ekki gegn íslensku stjórnarskránni. ASÍ áfrýjaði til Hæstaréttar, en Hæstiréttur vísaði málinu frá af formsástæðum. ASÍ fór aftur með málið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, sem kvað upp dóm sinn hinn 21. mars 2002.
    Héraðsdómur var sammála ASÍ um að íslensku stjórnarskrána bæri að túlka með hliðsjón af ofangreindum ákvæðum hennar, Mannréttindasáttmálans, samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og 98, og 6. gr. Félagsmálasáttmála Evrópu. Engu að síður taldi dómurinn að verkfallsréttur væri ekki ótakmarkaður og að takmarka mætti hann með lögum. Sagði í dómnum að löggjafinn yrði að sýna sérstaka varfærni þegar verkfallsréttur væri takmarkaður, og væri einungis unnt að gera það af ástæðum sem líkja mætti við þær sem tilgreindar eru í 2. mgr. 11. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.
    Við mat sitt fjallaði dómurinn um greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 34/2001. Að áliti dómsins voru djúpstæð efnahagsleg rök fyrir því mati ríkisstjórnarinnar að almannahagsmunir hefðu verið í veði þegar hún ákvað þær ráðstafanir sem bundu enda á deiluna. Ákvað dómurinn að hrinda ekki því mati.
    Dómurinn féllst þó á að þau verkalýðsfélög sem ekki voru í verkfalli og þau samtök útgerðarmanna sem ekki höfðu lagt á verkbann væru óbundin af lögum 34/2001. Íslensk stjórnvöld báru ekki á móti þessari kröfu stefnanda, þar sem lögunum var aldrei ætlað að gilda um þá sem hvorki höfðu verið í verkfalli né haldið úti verkbanni.
    ASÍ fullyrti einnig að gerðardómurinn, sem stofnaður var samkvæmt lögum nr. 34/2001, í því skyni að koma á sanngjarnri lausn deilunnar, væri ekki gerðardómur í raun heldur stjórnsýslunefnd. Dómurinn féllst á það og sagði hann ekki gerðardóm í lögfræðilegum skilningi heldur stjórnsýslunefnd sem færi með vald til að ákveða lyktir þessarar tilteknu deilu. Sagði í dóminum að enda þótt hér væri ekki um raunverulegan gerðardóm að ræða væri hann þannig skipaður að deiluaðilar gætu komið að sjónarmiðum sínum og þannig haft áhrif á úrlausn hans.
    Héraðsdómur nefndi einnig að Alþjóðavinnumálastofnunin hefði viðurkennt að þvingandi ákvörðun gerðardóms gæti verið réttmæt til að leysa úr erfiðum vinnudeilum. Í 299. skýslu nefndar um félagafrelsi á vegum stjórnarnefndar alþjóðavinnumálaskrifstofunnar er sagt að þegar nefndin fjallaði í máli nr. 1768 um kæru gegn Íslandi, er ASÍ hafði lagt fram, viðurkenndi hún „…að sú staða getur komið upp í samningaumleitunum að réttlætanlegt sé að hið opinbera grípi inn að undangengnum langvarandi og árangurslausum viðræðum, þegar ljóst er að hnúturinn verður ekki leystur án einhvers frumkvæðis af þeirra hálfu.“
    Með allt ofangreint í huga ákvað héraðsdómur að setning laga nr. 34/2001 hefði ekki brotið gegn neinum ákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar eins og þau eru túlkuð með hliðsjón af ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu, samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og Félagsmálasáttmála Evrópu.
    ASÍ hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms til Hæstaréttar Íslands. Hæstaréttarmálið, nr. 167/ 2002, er nú til meðferðar þar.

5. Ákvæði laga um kjaramál fiskimanna og fleira, nr. 34/2001, og samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 og nr. 98.

    Alþýðusamband Íslands og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands halda því fram að lög um kjaramál fiskimanna og fleira, nr. 34/2001, brjóti gegn samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um félagafrelsi og verndun þess, nr. 87, og samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega, nr. 98. Þessum fullyrðingum er alfarið mótmælt af hálfu íslenska ríkisins. Ítrekað er að umrætt verkfall hafði staðið yfir óslitið í sex vikur án þess að lausn á kjaradeilum sjómanna og viðsemjenda þeirra væri í sjónmáli. Eins og fram kemur í kafla 2.2. og 4.1. í þessari yfirlýsingu, þá hafði verkfallið þegar haft gríðarleg áhrif á afkomu fiskvinnslufólks sem og smærri byggðarlaga á landsbyggðinni sem byggja afkomu sína nær eingöngu á fiskveiðum og -vinnslu. Efnahagsleg áhrif verkfallsins voru einnig farin að koma fram með alvarlegum hætti, svo sem ört lækkandi gengi með tilheyrandi verðhækkunum og verðbólgu.
    Áhersla er lögð á þá skoðun sem ríkt hefur lengi hjá íslenskum stjórnvöldum að mikilvægt sé að aðilar vinnumarkaðarins nái samkomulagi um kaup og kjör í kjarasamningaviðræðum án opinberra afskipta. Hafa þau meðal annars komið á sérstakri skipan þar sem aðilum gefst kostur á að vísa kjaradeilum til ríkissáttasemjara í því skyni að stuðla að frekari árangri í viðræðum milli aðila í samræmi við 3. gr. samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, nr. 98. Var það meðal annars ástæða þess að ríkisstjórnin hélt að sér höndum í svo langan tíma sem raun ber vitni enda þótt ljóst væri hverjar efnahagslegar afleiðingar svo langs verkfalls yrðu.
    Stjórnvöld geta hins vegar ekki réttlætt aðgerðaleysi sitt þegar verkföll eru farin að hafa svo víðtæk neikvæð áhrif á efnahag landsins, þar á meðal á hinar veikustu byggðir landsins, sem umrætt verkfall hafði og ekki sást fyrir endann á. Í þessu efni vísar ríkisstjórnin til ummæla í 258. gr. skýrslu sérfræðinganefndar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar til 81. Alþjóðavinnumálaþingsins árið 1994 um framkvæmd samþykktanna um félagafrelsi og samningafrelsi. Þar segir efnislega að það geti verið réttlætanlegt að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilur með lögskipuðum gerðardómi þegar augljóst er að kjarasamningsviðræður eru í óleysanlegum hnúti. Þessi skilningur kom einnig fram í niðurstöðu nefndar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem hefur mál þetta til umfjöllunar í máli Alþýðusambands Íslands gegn íslenska ríkinu vegna setningar laga nr. 15/1993, um bann við verkfalli og verkbanni á ms. Herjólfi, nr. 1768/1995.
    Eins og ítrekað hefur komið fram var það mat ríkisstjórnarinnar að umrædd deila hafi verið komin í sjálfheldu á þeim tíma þegar tekin var ákvörðun um lagasetningu auk þess sem afleiðingar verkfallsins voru farnar að segja verulega til sín á líf fólks í sveitarfélögum er byggja afkomu sína á sjávarútvegi sem og þjóðarbúskapinn í heild. Þá hafi allar leiðir þegar verið farnar í þeirri viðleitni að ná samningum milli aðila án árangurs.
    Þeirri fullyrðingu kærenda um að íslensk stjórnvöld hafi gerst brotleg gegn 1. og 2. mgr. 3. gr. samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, nr. 87, er með öllu mótmælt enda með engu verið að skerða frelsi sjómanna til að setja félögum sínum lög og reglugerðir eða skipuleggja stjórn þeirra og starfsemi. Íslensk stjórnvöld hafa áður lýst því áliti sínu að framangreind ákvæði tryggi fyrst og fremst almennt félagafrelsi sem varið er í 74. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, sbr. 12. gr. laga nr. 12/1995. Verður að teljast fráleitt að halda því fram að lagasetningin hafi skert félagafrelsi í landinu. Á engan hátt var íhlutast um rétt launafólks og vinnuveitanda til stofnunar og starfsemi félaga þessara aðila.

6. Lokaorð.


    Af framansögðu er ljóst að íslenskt efnahagslíf getur verið viðkvæmt fyrir breytingum á þeim efnahagslegum þáttum sem það byggist á sem meðal annars má rekja til smæðar landsins. Einn af þeim þáttum sem geta haft áhrif á sveiflur í þjóðarbúskap Íslendinga eru fiskveiðarnar enda hefur sýnt sig að sveiflur í aflamagni og verði á sjávarafurðum hafa óhjákvæmilega leitt til stærri efnahagslegra sveiflna á Íslandi en í mörgum öðrum löndum.
    Langvarandi stöðvun fiskveiða getur haft í för með sér bæði langvarandi áhrif og skammtímaáhrif fyrir efnahag Íslendinga. Skammtímaáhrifin eru tapaðar útflutningstekjur, sem vitanlega valda ýmsum efnahagslegum vanda, og langtímaáhrifin eru tapaðir markaðir fyrir sjávarútvegsafurðir. Stöðugleiki innan íslensks sjávarútvegs og fiskiðnaðar er því nauðsynlegur fyrir efnahag Íslendinga.
    Í ljósi efnahagsstöðunnar á 2. ársfjórðungi 2001, eins og lýst er í 2. lið 2. kafla greinargerðar þessarar, er ekki vafi á að ríkisstjórnin átti ekki annars völ en að grípa til afskipta og binda endi á hið langvarandi verkfall, sem þegar hafði valdið mikilli eyðileggingu. Ríkisstjórninni er ljóst að slíka efnahagslega afturför verður að rekja til fleiri en einnar orsakar, en langvarandi stöðvun á aðalatvinnuvegi þjóðarinnar hlýtur samt að vega þar mjög þungt.
Meginágreiningsefni í kjarasamningaviðræðum milli samtaka sjómanna annars vegar og samtaka útgerðarmanna hins vegar hefur í um áratug snúist um hvers konar viðmið skuli viðhafa við ákvörðun fiskverðs. Ástæða þessa er að í eldri kjarasamningum hafa verið ákvæði um hlutfall áhafnar af skiptaverðmæti aflans sem veiðist í hverri veiðiferð og því er verðmyndun á fiskinum grundvöllur þess hlutaskiptakerfis sem laun sjómanna byggist á.
    Eftir miklar og strangar samningaviðræður og sex vikna verkfall mátti ráða af yfirlýsingum deiluaðila og sáttasemjara að svo mikið bæri milli aðila að ekki yrði tækt að leysa deiluna með samningum með atbeina ríkissáttasemjara. Enn fremur var það mat sáttasemjara að ekki væri grundvöllur að gerð sérstakrar miðlunartillögu í deilunni sem gæti leitt til friðsamlegrar lausnar milli aðila. Það var því álit stjórnvalda að fullreynt væri að samningar næðust þrátt fyrir að allra leiða hefði verið leitað við að leysa deiluna. Lausn var því ekki í sjónmáli og óvíst hversu lengi verkfallið myndi dragast á langinn. Af þeim sökum sáu stjórnvöld ekki aðra leið færa en að binda enda á verkfallið með þeirri neyðarráðstöfun sem lagasetning felur í sér.
    Er ríkisstjórnin komst að þeirri niðurstöðu að brýna nauðsyn bæri til að binda enda á vinnustöðvunina voru hin geysimiklu áhrif hennar á líf íslensku þjóðarinnar þegar orðin augljós. Einnig voru merki um neikvæð áhrif hins langvarandi verkfalls á markaðssetningu íslenskra sjávarafurða erlendis. Almenningi var ljóst að hrun útflutningsmarkaða gæti haft áhrif um langan tíma, og mikið starf hafði verið unnið á sviði markaðsmála um margra ára skeið.
    Markmiðið var að kveða á um eðlilega og sanngjarna lausn deilunnar. Ekki var unnt að sjá fyrir aðrar leiðir en að leggja frumvarp fyrir Alþingi. Að aflokinni nokkurri umfjöllun um mismunandi valkosti hvað snerti efnisinnihald frumvarpsins var ákveðið að velja gerðardómsleið.
    Íslensk stjórnvöld vilja árétta það að þau líta á setningu laganna sem neyðarráðstöfun sem hafi verið óhjákvæmileg í ljósi aðstæðna. Aðgerðaleysi stjórnvalda hefði engan veginn verið réttlætanlegt eins og málum var komið. Það hefur hins vegar verið talið ásættanlegt að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilur með lögskipuðum gerðadómi þegar augljóst er að kjarasamningsviðræður eru í óleysanlegum hnúti. Engu að síður vilja stjórnvöld leggja á það áherslu að það er einskær vilji þeirra að samtök sjómanna og útgerðarmanna finni árangursríka leið í framtíðinni að samkomulagi um kaup og kjör með gerð kjarasamninga svo unnt sé að komast hjá aðgerðum sem þessum.

F. h. ríkisstjórnar Íslands,


Páll Pétursson félagsmálaráðherra.





Viðauki II.

Niðurstaða nefndar Alþjóðavinnumálastofnunar um félagafrelsi í kærumáli Alþýðusambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands
á hendur ríkisstjórn Íslands.


    Stjórnarnefnd alþjóðavinnumálaskrifstofunnar afgreiddi á 286. fundi sínum í mars 2003 skýrslu nefndar um félagafrelsi. 2 Kæra Alþýðusambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands vegna setningar laga á árinu 2001 til lausnar kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna, er meðal þeirra mála sem fjallað er um í skýrslunni. Hér á eftir er birt orðrétt niðurstaða nefndarinnar í kærumálinu. Þess skal getið að felldar hafa verið brott úr íslensku þýðingunni útskýringar í enska textanum á skammstöfunum þeirra íslensku samtaka sem koma við sögu.

MÁL NR. 2170

LOKASKÝRSLA

Kæra gegn íslenska ríkinu lögð fram af
Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og
Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands (FFSÍ)
með stuðningi
Alþjóðasambands flutningaverkamanna (ITF) og
Alþjóðsambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU).


Kæruefni: Kærendur halda því fram að ríkisvaldið hafi með óréttmætum hætti gripið inn í starfsemi verkalýðsfélaga með setningu laga sem bönnuðu lögmætt verkfall og gerðu aðilum að hagsmunadeilu skylt að hlíta gerðarsómsmeðferð.

855.     Kæruefninu er lýst í erindi ASÍ dagsettu 22. janúar 2002 og í erindi FFSÍ dagsettu 24. janúar 2002. Alþjóðasamband flutningaverkamanna óskaði eftir því að ganga inn í málið í erindi dagsettu dagsettu 20. janúar 2002, og í erindi dagsettu 1. febrúar 2002 var sama ósk borin fram af Alþjóðasambandi frjálsra verkalýðsfélaga.
856.     Íslenska ríkið svaraði kærunni með greinargerðum dagsettum 3. september 2002 og 3. mars 2002.
857.     Ísland hefur fullgilt samþykkt nr. 87, um félagafrelsi og verndun þess, frá árinu 1947 og samþykkt nr. 98, um beitingu grundvallarreglnanna um réttinn til að stofna félög og semja sameiginlega, frá árinu 1949.

A.     Kæruefnið.
858.     Í kæru sinni hinn 22. janúar 2002 heldur ASÍ því fram að samþykkt Alþingis á lögum nr. 34/2001, um kjaramál fiskimanna og fleira, frá 16. maí 2001, sem bönnuðu verkföll og verkbann sem boðað hafði verið til af nokkrum samtökum í sjávarútvegi og settu á stofn gerðardóm sem ákvarða skyldi laun og kjör manna í viðkomandi samtökum, bryti gegn 1. og 2. mgr. 3. gr. samþykktar nr. 87 og samþykkt nr. 98. Í kæru sinni frá 24. janúar 2002 heldur FFSÍ því fram að l. nr. 34/2001 feli í sér stórfellt brot á samþykkt nr. 87 í grundvallaratriðum.
859.     Til stuðnings kæru sinni gerðu kærendur eftirfarandi athugasemdir um aðdraganda setningar laga nr. 34/2001 og framkvæmd þeirra.
860.     Laun sjómanna í samtökum tengdum ASÍ höfðu áður verið ákvörðuð með kjarasamningum sem l. nr. 10/1998 höfðu lýst gilda. Að sögn ASÍ runnu þeir kjarasamningar út 15. febrúar 2001. FFSÍ, ásamt Sjómannasambandi Íslands (SSÍ), sem bæði eru tengd ASÍ, svo og Vélstjórafélag Íslands (VSFÍ), tóku þátt í samningaviðræðum við samband það sem félög útgerðarmanna voru í, sem var Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Að því er FFSÍ gaf til kynna stóðu þær samningaviðræður í 15 mánuði. Í byrjun ársins 2001 hafði komið í ljós að viðræðurnar báru ekki árangur. Nokkur verkalýðsfélög tengd ASÍ, sem Alþýðusamband Vestfjarða hafði veitt samningsumboð, höfðu þó gert sérkjarasamninga við Útgerðarmannafélag Vestfjarða.
861.     Það sem samningaviðræður höfðu strandað á laut að ákvörðun fiskverðs. Laun fiskimanna eru byggð á aflahlut, en verðmæti hans byggist á fiskverði, og þar af leiðir að fiskverð er mikilvægur þáttur í samningaumleitunum um laun og kjör fiskimanna. Samningaviðræðurnar fóru einnig fram um önnur starfskjör, svo sem hærri dánar- og slysabætur, hærri lágmarkslaun og hærri lífeyrissjóðsgreiðslur útgerðarmanna. Að sögn FFSÍ áttu nokkur verkalýðsfélög fund með forsætisráðherra 26. janúar 2001. Lofaði ríkisstjórnin að hún myndi ekki grípa inn í deiluna, eins og hún hafði tvisvar gert í fyrri deilum, þegar hún hafði bannað verkföll í sjávarútvegi.
862.     Hinn 15. mars 2001 hófst verkfall um allt land. Til þess hafði verið boðað af aðildarfélögum FFSÍ, SSÍ og VSFÍ. Aðilar að LÍÚ lýstu yfir verkbanni. Hinn 19. mars 2001 samþykkti Alþingi lög nr. 8/2001, sem frestuðu bæði verkfallinu og verkbanninu til 1. apríl 2001. Þau lög fylgja kæru FFSÍ í þýðingu. Þar sem samningaviðræður reyndust áfram árangurslausar er frestuninni var lokið hófst verkfall aftur hinn 2. apríl 2001.
863.     Hvað snertir aðila að verkfallinu og verkbanninu veitir ASÍ þær upplýsingar að þau verkalýðsfélög sem veitt höfðu Alþýðusambandi Vestfjarða umboð til samninga fyrir sína hönd hafi ekki tekið þátt í verkfallinu. Hvað SSÍ snertir höfðu fimm aðildarfélög þess ekki lýst yfir verkfalli. Hins vegar lagði LÍÚ á verkbann alls staðar nema á Snæfellsnesi, og af verkalýðsfélögum á því svæði var eitt aðildarfélag að SSÍ sem ekki átti í verkfalli.
864.     Hinn 9. maí undirrituðu VSFÍ og LÍÚ kjarasamning. Að sögn FFSÍ var samningurinn samþykktur af litlum meirihluta félagsmanna VSFÍ í atkvæðagreiðslu þar sem þátttaka reyndist aðeins 27%. Hinn 15. maí lýsti SSÍ (að undanteknu einu aðildarfélagi) verkfallinu lokið. Hafði SSÍ fengið nokkra vissu fyrir því frá sjávarútvegsráðherra að ef það hætti verkfallinu myndu hin nýju lög sem Alþingi var í þann veginn að setja ekki vera látin ná til þeirra samtaka og aðila að þeim.
865.     Hinn 16. maí samþykkti Alþingi lög nr. 34/2001, sem öðluðust þegar gildi. Samkvæmt 1. gr. þeirra, sem fylgir kæru FFSÍ í þýðingu, var verkfall það sem FFSÍ og eitt annað verkalýðssamband hafði boðað, lýst ólöglegt. Verkbann það sem aðildarfélög LÍÚ höfðu lagt á gagnvart aðilum að Alþýðusambandi Vestfjarða og SSÍ var einnig lýst ólöglegt. Bannið skyldi koma til framkvæmda er lögin öðluðust gildi og standa á gildistíma ákvörðunar er gerðardómur, sem stofnaður skyldi samkvæmt lögunun, kynni að taka. Ef aðilar að deilunni næðu ekki samkomulagi fyrir 1. júní 2001 yrði gerðardómur stofnaður og skipaður þremur mönnum tilnefndum af Hæstarétti Íslands. Í kæru sinni bendir ASÍ á að 1. gr. laganna hafði í raun þau áhrif að leiða inn í gerðarmeðferðina samtök fiskimanna sem ekki voru í verkfalli, annaðhvort vegna þess að þau höfðu aldrei tekið þátt í verkfallinu, eða höfðu lýst því lokið. VSFÍ var eina félagið sem gerðarmeðferðin hafði engin áhrif á, þar sem það félag hafði gert samning við LÍÚ. FFSÍ staðfestir í kæru sinni að gerðarmeðferðin sem lögin mæltu fyrir um var einnig SSÍ áhyggjuefni.
866.     Hinn 30. júní 2001 tók gerðardómurinn ákvörðun sína. Ákvað hann að færa gildi kjarasamnings þess sem VSFÍ hafði náð út til félagsmanna þeirra félaga sem nefnd voru í 1. gr. laga nr. 34/2001. Átti samingurinn að gilda til 2003 (til 31. mars að sögn ASÍ, en til ársloka 2003 að sögn FFSÍ).
867.     ASÍ fór með málið fyrir dómstóla. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hinn 18. júlí 2001 að lög nr. 34/2001 brytu ekki þau ákvæði stjórnarskrárinnar sem tryggðu félagafrelsi og rétt til að semja sameiginlega. Hinn 25. október 2001 vísaði Hæstiréttur Íslands málinu frá. Höfðaði ASÍ þá annað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
868.     Til stuðnings kæru sinni heldur ASÍ því fram að lög nr. 34/2001 brjóti gegn 1. og 2. mgr. 3. gr. samþykktar nr. 87. Fari svo að inngrip ríkisvaldsins verði talið réttlætanlegt heldur ASÍ því fram að í lögunum sé mælt fyrir um ráðstafanir sem ekki eru aðlagaðar þeim aðstæðum sem um sé að ræða. Þannig telur ASÍ að sú stofnun sem lögin settu á fót hafi ekki verið gerðardómur heldur stjórnsýslunefnd. Enn fremur heldur ASÍ því fram að lögin hafi verið allt of víðtæk. Vísa samtökin einkum til heimildar gerðardómsins til að ákveða gildistíma ákvörðunar sinnar, og þar með hafi honum verið frjálst að ákvarða af handahófi hversu lengi þær hömlur skyldu gilda, sem lögin settu á frjálsa samningsgerð.
869.     FFSÍ vekur athygli á að samþykkt laga nr. 34/2001 hafi falið í sér fjórða inngrip ríkisvaldsins á undanförnum sjö árum í lögmætt verkfall fiskimanna. Í slíkum afskiptum felist gróft inngrip í þann grundvöll sem samþykkt 87 byggir á. Enn fremur heldur FFSÍ því fram að sífelld afskipti ríkisvaldsins hafi dregið úr vilja LÍÚ til að gera samninga í góðri trú, þannig að verkfall yrði langvarandi og fengi ríkisvaldið til afskipta.

B.     Svar ríkisins.
870.     Í greinargerð sinni frá 3. september 2002 skiptir ríkisvaldið svari sínu í fjóra hluta. Í fyrsta hluta er skýrt út hið mikilvæga hlutverk fiskveiða og útflutnings á sjávarafurðum fyrir íslenskan efnahag. Í öðrum hluta setur ríkisvaldið fram skýringar á samningaviðræðum um laun og kjör milli samtaka fiskimanna og útgerðarmanna og því álitaefni sem höfuðmáli skiptir, þ.e. ákvörðun fiskverðs. Ríkisvaldið lýsir síðan setningu og efni laga nr. 8/2001 og 34/2001, og setur fram samantekt á ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur í hinu síðara máli sem ASÍ lagði fyrir dóminn. ASÍ áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Hæstiréttur staðfesti úrlausn héraðsdómsins með dómi upp kveðnum hinn 14. nóvember 2002, og fylgir endurrit hans greinargerð ríkisins frá 3. mars 2003. Að lokum setur ríkisvaldið fram röksemdir sínar fyrir því að lög nr. 34/2001 samræmist samþykktum nr. 87 og 98.

Íslenska hagkerfið.
871.     Hvað snertir hina efnahagslegu hlið málsins leggur ríkisvaldið áherslu á að utanríkisverslun liggi til grundvallar þeim góðu lífskjörum sem þjóðin býr við. Um 40% landsframleiðslu eru flutt út, og sjávarafurðir nema 60% af vöruútflutningi og afla um 40% heildargjaldeyristekna. Um 8% vinnuafls starfa við sjávarútveg. Ríkisvaldið bendir á að hagvöxtur á tíunda áratug stafi af efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, og þó sérstaklega af því ferli sem nefnt er „þjóðarsáttin“ (sem þegar var lýst í svari ríkisvaldsins í máli nr. 1768, er nefndin hafði til meðferðar), þar sem aðilar vinnumarkaðarins ásamt ríkisvaldinu náðu að koma hömlum á verðbólgu, sem verið hafði alvarlegt efnahagslegt vandamál.
872.     Ríkisvaldið leggur áherslu á að fiskveiðar séu háðar sveiflum, bæði í aflamagni og afurðaverði, sem vegna hinnar miklu efnahagslegu þýðingar þess atvinnusviðs valdi því að verslun Íslendinga, og þar með efnahagur landsmanna, sveiflist meira en í nokkru öðru iðnvæddu landi. Íslenskum fiskútflytjendum hafi tekist að byggja upp markaði sína, en þeir markaðir geti auðveldlega tapast ef framboð bregst um skeið. Ríkisvaldið lýsir því að langvarandi stöðvum á fiskveiðum geti bæði haft skammtímaáhrif, þ.e. tap á útflutningstekjum, og langtímaáhrif, svo sem tap á mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Þannig sé stöðugleiki á sviði sjávarútvegs höfuðatriði fyrir íslenskan efnahag.
873.     Ríkisvaldið bendir á að verkfallinu, sem hófst að nýju 1. apríl, hafi lokið 16. maí er það hafði staðið í sex vikur og verið hið lengsta sem fiskimenn hafi staðið í. Var minnst á að á öðrum ársfjórðungi 2001 hefði verðgildi íslenska gjaldmiðilsins rýrnað um 8,2%, og jafnvel þó að slík gengislækkun eigi sér margar orsakir hafi langvarandi stöðvun innan helstu atvinnugreinar landsins vafalaust vegið þar þungt. Verðbólga jókst á ný og efnahag landsins hrakaði. Ríkisvaldið kemst að þeirri niðurstöðu að í ljósi áhrifa verkfallsins á efnahag þjóðarinnar hafi það ekki átt annars kost en að grípa inn og binda enda á verkfallið. Setningu laga nr. 8/2002 og 34/2001 verði að skoða með þetta í huga.

Kjarasamningaviðræður sjómanna og útgerðarmanna.
874.     Varðandi samningaviðræður um laun og kjör sjómanna gerir ríkisvaldið eftirfarandi athugasemdir. Fyrst er nefnt að félagafrelsi og réttur til að semja sameiginlega séu efni laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Flest íslensk stéttarfélög séu afar fámenn, vegna þess að efnahagsleg starfsemi í landinu, þ.m.t. útgerð og vinnsla á sjávarafurðum, byggist á litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þess vegna hafi stéttarfélög hópað sig saman í stærri heildir, ýmist á svæðisbundnum grundvelli eða á landsvísu. ASÍ sé stærstu heildarsamtök landsins. Stéttarfélögum sé í sjálfsvald sett hvort þau taki þátt í gerð heildarkjarasamninga og hvort þau samþykki þá. Þau geti ýmist staðið í samningagerð beint eða falið svæðis- eða landssamtökum að semja fyrir sína hönd. Í öllum tilvikum hafi félagsmenn hvers félags vald til að samþykkja eða hafna kjarasamningum sem gerðir kunna að hafa verið.
875.     Ríkisvaldið telur að ákvörðun á launum og kjörum eigi aðallega að fara fram með heildarsamningum. Til að greiða fyrir þeim hafi lög nr. 80/1938 komið á embætti ríkissáttasemjara. Í byrjun fari ríkissáttasemjari með hlutverk milligöngumanns ef aðilar að kjaradeilu hafa ákveðið að vísa deilu til hans. Ríkissáttasemjari geti einnig gert sáttatillögu í því skyni að leysa deilu ef milliganga hans hefur ekki leitt til árangurs. Slíka tillögu má einungis gera ef allar sáttatilraunir hafa reynst árangurslausar, og er það ríkissáttasemjari sjálfur sem ákveður hvenær rétt er að setja hana fram.
876.     Hvað snertir laun fiskimanna nefnir ríkisvaldið að aðalásteytingarsteinn í kjarasamningaviðræðum hafi verið sú tilhögun sem viðhöfð er við ákvörðun fiskverðs, þar sem fiskverð liggur til grundvallar því hlutakerfi, sem ræður launum fiskimanna. Ríkisvaldið nefnir einnig að fiskimönnum séu líka tryggð ákveðin lágmarkslaun. Á 10. áratug hafi fiskverð að miklu leyti orðið óháð fyrirframákveðnum reglum. Eftir tveggja vikna sjómannaverkfall árið 1994 hafi verið gefin út bráðabirgðalög, og samkvæmt þeim hafi verið sett á fót nefnd á vegum ríkisins til að athuga hvernig mætti koma í veg fyrir að viðskipti með aflaheimildir skekktu laun fiskimanna. Annað verkfall átti sér stað 1995 og stóð í þrjár vikur, en lauk með undirritun kjarasamnings. Í þeim samningi voru ákvæði um samninga milli útgerðarmanna og áhafna um hvernig skiptaverð skyldi ákvarðað. Með öðrum ákvæðum var mælt fyrir um sérstaka úrskurðarnefnd. Tilvist þeirrar nefndar var síðan lögbundin með lögum nr. 84/1995. Hlutverk hennar var að vinna úr gögnum um aflaverð og ákveða það milliliðalaust ef aðilar náðu ekki samkomulagi um það. Þau lög voru afnumin með lögum nr. 13/1998, sem stofnuðu Verðlagsstofu skiptaverðs, sem hafði það hlutverk að fylgjast með fiskverði og stuðla að réttlátu og eðlilegu mati á aflahlut sjómanna. Þriðja verkfallið hófst 1998, en var frestað þegar ríkisvaldið var í þann veginn að skerast í leikinn. Verkfallinu var haldið áfram eftir ýmsar árangurslausar tilraunir til að ná samkomulagi, og var sáttatillögu ríkissáttasemjara þá hafnað. Með lögum nr. 10/1998, um kjaramál fiskimanna, var sú tillaga gerð að nýju.
877.     Lög nr. 10/1998 áttu að gilda fram til 15. febrúar 2000, og hófust samningaviðræður í desember 1999. Blossuðu þá álitaefnin varðandi fiskverð upp að nýju. Í ársbyrjun 2001 höfðu samningaumleitanir lítinn árangur borið, og boðuðu FFSÍ, SSÍ og VSFÍ til verkfalls sem hófst 15. mars. Þau stéttarfélög sem veitt höfðu Alþýðusambandi Vestfjarða samningsumboð tóku ekki þátt í verkfallinu. Útgerðarmenn settu á verkbann um allt land nema á Snæfellsnesi, og var því hvorki verkfall né verkbann í gildi þar.
878.     Með lögum nr. 8/2001 var verkfallinu frestað til 1. apríl 2001 vegna loðnuvertíðar. Hafði ríkissáttasemjari þá haldið yfir 70 fundi með aðilunum, enda höfðu þeir vísað deilunni til hans. Hinn 9. maí 2001 náði VSFÍ samningi við LÍÚ. Í því voru ákvæði um ákvörðun skiptaverðs. Vonaðist ríkisvaldið til þess að sá kjarasamningur myndi ryðja braut öðrum samningum. Með vísan til yfirlýsinga þeirra aðila að deilunni sem eftir voru og ummæla ríkissáttasemjara fullyrðir ríkisvaldið að engin von hafi verið til þess að deilan yrði leyst með milligöngu hans. Enn fremur taldi ríkissáttasemjari engan grundvöll fyrir hendi, sem hann gæti byggt sáttatillögu á. Ríkisvaldið skýrir því málið þannig að það hafi talið alla möguleika til samninga fullreynda án nokkurs árangurs; verkfallið hafi haldið áfram og engar vísbendingar voru fyrir hendi um hversu lengi það myndi dragast. Ríkisvaldið hafi ekki séð neina möguleika á öðru en að gera neyðarráðstafanir til að binda enda á verkfallið með lögum.

Lög nr. 34/2001 og dómur Héraðsdóms Reykjavíkur.
879.     Ríkisvaldið leggur áherslu á að eftir sex vikna verkfall hafi það orðið að takmarka það tjón sem lengra verkfall hefði valdið efnahag landsins. Í því sambandi nefnir ríkisvaldið að verkfallið og verkbannið hafi haft mikil áhrif á líf fólks í litlum byggðarlögum sem byggðu afkomu sína á sjávarútvegi, að atvinnuleysis hefði verið farið að gæta meðal verkafólks í fiskvinnslustöðvum, að merki hefðu verið um neikvæð áhrif verkfallsins á markaðssetningu íslenskra sjávarafurða erlendis, og loksins að verkfallið hefði haft áhrif á útflutningstekjur, sem að sínu leyti hefði verið meðverkandi við að rýra gengi íslensku krónunnar. Að mati ríkisvaldsins hefði því borið brýna nauðsyn til að binda endi á vinnudeiluna og sjá fyrir sanngjarnri lausn hennar. Ríkisvaldið segir það, að félög innan SSÍ að einu undanskildu hefðu hætt verkfalli hinn 15. maí, engu hafa breytt um að verkbanni var haldið áfram. Lagasetningin mætti nokkurri andstöðu á þingi, þar sem sú gagnrýni var höfð uppi að löggjafinn ætti engan rétt á að grípa inn í vinnudeilu og skerða þannig stjórnarskrárvarin réttindi. Gerðardómsmeðferð sú sem kveðið var á um í lögunum sætti einnig gagnrýni.
880.     Varðandi þær ráðstafanir sem lögin kváðu á um telur ríkisvaldið að það hafi tryggt sjálfstæði gerðardómsins að gerðarmenn hafi verið skipaðir af Hæstarétti. Einnig er bent á að deiluaðilar hafi haft frest fram til 1. júní 2001 til að ná samkomulagi. Hæstiréttur átti einungis að tilnefna þrjá menn til gerðar ef ekkert samkomulag hefði þá náðst. Hlutverk gerðardómsins var að ákvarða laun og kjör fiskimanna í stéttarfélögum þeim sem nefnd voru í 1. gr. laganna, þ.e. þeim stéttarfélögum sem voru í verkfalli og þeim samtökum útgerðarmanna sem héldu uppi verkbanni. Samkvæmt 3. gr. átti gerðardómurinn að taka tillit til ákveðinna atriða við úrlausn sína, þ.e. kjarasamninga sem gerðir höfðu verið á undanförnum mánuðum, að því marki sem þeir höfðu þýðingu fyrir það álitaefni sem fyrir lá, almenna launaþróun, og hina sérstöku stöðu þeirra aðila sem nefndir voru í 1. gr. Segir ríkisvaldið að til að tryggja sjálfstæði gerðardómsins hafi honum sjálfum verið látið eftir að ákvarða önnur atriði varðandi úrlausn sína og hversu lengi hún skyldi gilda.
881.     Í raun er það skýring ríkisvaldsins að þar sem samningar höfðu ekki náðst 1. júní hafi gerðardómur verið settur á stofn. Gerði hann í fyrstu lokatilraun til sátta, sem ekki bar neinn árangur. Hann fór síðan að undirbúa ákvörðun sína og gaf aðilum kost á að setja fram sjónarmið sín skriflega. Hann tók síðan ákvörðun sína 30. júlí 2001.
882.     Varðandi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 21. maí 2002 leggur ríkisvaldið áherslu á eftirfarandi atriði. ASÍ hélt því fram að lög nr. 34/2001 brytu gegn 74. og 75. gr. stjórnarskrárinnar og ýmsum alþjóðasamningum sem Ísland hafði fullgilt, og nefndi sérstaklega samþykktir nr. 87 og 98. Dómstóllinn viðurkenndi að veigamikil efnahagsleg rök styddu það mat ríkisins að almannahagsmunir væru í húfi þegar það ákvað að grípa til aðgerða og stöðva verkfallið. Dómstóllinn féllst á að þau verkalýðsfélög sem ekki áttu í verkfalli og þau samtök sem ekki höfðu lagt á verkbann væru óbundin af lögum nr. 34/2001. Ríkisvaldið kvaðst ekki hafa andmælt þeirri kröfu stefnanda sem að þessu laut, þar sem það hefði aldrei verið ætlan þess að beita lögunum gegn þeim. Enn fremur féllst dómstóllinn á það sjónarmið ASÍ að sú stofnun sem sett hefði verið á fót samkvæmt lögunum væri ekki gerðardómur í skilningi laga, heldur stjórnsýslunefnd sem veitt hefði verið vald til að skera úr um laun sjómanna. Dómstóllinn taldi lög nr. 34/2001 þannig að þau takmörkuðu rétt samtaka fiskimanna til að setja sér eigin reglur eða ákveða skipulag samtakanna og starf þeirra.
884.     Í greinargerð sinni frá 3. mars 2003 leggur ríkisvaldið enn áherslu á áhrif verkfallsins og verkbannsins á hag þjóðarinnar. Minnst er á að hin íslenska tilhögun við gerð kjarasamninga hafi verið byggð upp í nánu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, sérstaklega að fengnum athugasemdum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um hvernig sú tilhögun verkaði í raun. Að lokum bendir ríkisvaldið á að þau verkalýðsfélög sem ekki áttu í verkfalli og þau samtök útgerðarmanna sem ekki höfðu lagt á verkbann hafi náð kjarasamningi hinn 26. nóvember 2002 sem endurspeglaði það sem gerðardómurinn kvað á um. Ríkisvaldið staðfestir að ákvörðun dómsins gildi fram til ársloka 2003.

C.     Niðurstöður nefndarinnar.
885.      Í heild eru lýsingar kærenda og ríkisvaldsins á aðdraganda setningar laga nr. 34/2001 ekki ósamrýmanlegar. Nefndin veitir því athygli að kærendur bera ekki brigður á lög nr. 8/2001, sem frestuðu verkfallinu í tvær vikur. Nefndin hefur kynnt sér dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. mars 2002 eins og hann kemur fram í svari ríkisvaldsins, og dóm Hæstaréttar frá 14. nóvember 2002.
886.      Nefndin telur að lög nr. 34/2001 hafi annars vegar haft þau áhrif að verkfall sem átti rætur að rekja til erfiðra kjarasamningaumleitana var bannað, og hins vegar að laun og kjör fiskimanna voru fastákveðin með gerð. Nefndin verður því að taka til athugunar hvort lög nr. 34/2001 samræmist ákvæðum samþykkta nr. 87 og 98.
887.      Það er álit kærenda að lög nr. 34/2001, sem bönnuðu verkfallið um ákveðinn tíma, brjóti gegn samþykkt nr. 87, sérstaklega 3. gr. hennar, og einnig að lagasetningin hafi verið liður í röð af inngripum ríkisvaldsins í réttmætar verkfallsaðgerðir. Fyrir sitt leyti stendur ríkisvaldið fast á því að 1) það hafi beðið lengi áður en það ákvað að grípa inn, og reyndar hafi verkfallið staðið í sex vikur áður en lögin voru sett, 2) hið langdregna verkfall hafi haft alvarleg áhrif á efnahag landsins, 3) allt hefði verið reynt til þrautar að fá laun og kjör fiskimanna ákveðin með kjarasamningi, en sjónarmið deiluaðila hafi ekki verið unnt að sætta. Enn fremur heldur ASÍ því fram að þær ráðstafanir sem lögin kváðu á um hafi ekki verið í samræmi við það sem aðstæður kröfðust. Ríkisvaldið heldur því fram að 1) sú ráðstöfun að skipa gerðardóm hafi verið í samræmi við það sem aðstæður kröfðust, og 2) markmið laganna hafi verið að sjá deiluaðilum fyrir réttlátri og sanngjarnri lausn deilunnar.
888.      Hvað snertir tilvitnun ríkisvaldsins til niðurstöðu nefndarinnar í máli nr. 1768 (29. lið), þá hefur nefndin, líkt og sérfræðinganefndin um framkvæmd samþykkta og tillagna, fallist á að í samningaumleitunum geti að því komið, eftir langvarandi og árangurslausar viðræður, að yfirvöldum sé rétt að grípa inn, þegar engu verður þokað nema þau taki til þess eitthvert frumkvæði [sjá Almennt yfirlit um félagafrelsi og gerð kjarasamninga 1994, 258. lið]. Nefndin telur þó að það eitt, að engu verði um þokað í kjarasamningaumleitunum, sé í sjálfu sér ekki fullnægjandi réttlæting fyrir því að yfirvöld geri aðilum að vinnudeilu skylt að hlíta gerð. Inngrip opinberra aðila í vinnudeilur verða að samræmast meginreglunni um samningaviðræður af frjálsum vilja, en þar af leiðir að stofnanir sem falið er að leysa deilu aðila í kjarasamningaviðræðum þurfa að vera óháðar og til þeirra þurfa aðilar að leita af eigin hvötum [ Samantekt á ákvörðunum og reglum nefndar um félagafrelsi, 4. útg., 1996, 858. liður], nema þegar um er að ræða brátt hættuástand í þjóðfélaginu, en í því máli sem fyrir liggur er nefndinni ekki fært að ákvarða um það.
889.      Nefndin vill í þessu máli gera eftirfarandi athugasemdir. Í fyrsta lagi nefnir hún þá yfirlýsingu ríkisvaldsins að það hafi aldrei fyrirhugað að beita lögum nr. 34/2001 gagnvart verkalýðsfélögum sem ekki áttu í verkfalli. Hún veitir því hins vegar athygli, út frá ábendingum kærenda og dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, að ákvæði laganna undanskildu ekki berum orðum verkalýðsfélög sem ekki áttu í verkfalli. Nefndin minnist þess að í máli nr. 1768 hafði þetta álitaefni þegar komið upp, og að því hafði verið beint til ríkisvaldsins að „forðast í framtíðinni að grípa til ráða af þessu tagi, sem fela í sér inngrip með lagasetningu“ [sjá 111. lið í 299. skýrslu nefndarinnar]. Nefndin tekur einnig fram að þau verkalýðsfélög sem ekki áttu í verkfalli og þeir útgerðarmenn sem ekki höfðu lagt á verkbann náðu kjarasamningi þegar héraðsdómur og Hæstiréttur höfðu skýrt út álitaefnið.
890.      Nefndin telur enn fremur að hin lögbundna tilhögun hafi ekki getað öðlast traust aðilanna og haldið því, vegna þess að eðli gerðarstofnunarinnar var óljóst og endanleg niðurstaða var bundin fyrirframsettum viðmiðum í löggjöf. Hvað hið síðastnefnda snertir veitir nefndin því athygli að samkvæmt 3. gr. laganna bar þeirri stofnun, sem gera skyldi um málið, að hafa hliðsjón af ýmsum þáttum, sérstaklega kjarasamningum sem nýlega hefðu verið gerðir og almennri launaþróun. Nefndin verður enn að taka fram að hún hafði þegar vakið máls á þessu í tengslum við áþekkt lagaákvæði í máli nr. 1768, og vekur athygli ríkisvaldsins á niðurstöðu sinni í 110. lið 299. skýrslu.
891.      Jafnvel þó að nefndin telji að vinnustöðvun í sjávarútvegi gæti haft miklar afleiðingar fyrir þjóðarhag, þá telur hún ekki að slík vinnustöðvun stefni í hættu lífi, öryggi eða heilsu landsmanna, einhverra eða allra. Af öllum þessum ástæðum, og þó að aðilum hafi með lögunum verið veittur tveggja vikna frestur til að ná samningi áður en gerðardómsmeðferðin hófst, telur nefndin að sú tilhögun sem lögin komu á samræmist ekki reglunni um frjálsar samningaumleitanir. Sú niðurstaða er nefndinni áhyggjuefni, því að það var gerðarstofnunin sem átti að ákveða hversu lengi sá kjarasamningur, sem VSFÍ og LÍÚ höfðu gert, skyldi gilda gagnvart aðilum að FFSÍ og SSÍ.
892.      Í víðara samhengi verður því miður að taka fram, að setning laga nr. 34/2001 fól í sér þriðja inngrip hins opinbera á sjö árum í gerð heildarsamninga um laun og kjör fiskimanna. Nefndin veitir því athygli að í þessari grein atvinnulífsins kemur það endurtekið fyrir að samningaumleitanir reynast erfiðar, og að þeir erfiðleikar virðast eiga sér skýringar í grunnskipulagi, þar sem þeir tengjast ákvörðun aflaverðs. Nefndin tekur einnig fram að sú aðstaða sem fyrir hendi var til milligöngu og sátta dugði ekki aðilum til að ná samningi, og að þetta var ekki í fyrsta sinn sem hún nýttist ekki til árangurs. Nefndin veitir því athygli að hið opinbera hefur einnig í nokkur skipti gripið með lagasetningu inn í aðrar innbyrðis tengdar samningaumleitanir á undanförnum tveimur áratugum, og hefur athygli bæði þessarar nefndar og sérfræðinganefndarinnar verið vakin á sumum þeirra. Í þessu sambandi vísar nefndin til niðurstaðna sinna í málum nr. 1458, 1563 og 1768. Í máli nr. 1563, og sérstaklega í 376. lið 279. skýrslu sinnar, hafði nefndin þegar tekið fram að „á undanförnum árum [hafi] ríkisvaldið í allmörg skipti beitt inngripum í kjarasamningaviðræður. Reyndar hafði nefndin, í fyrra máli sem varðar Ísland [sjá 262. skýrslu, mál nr. 1458, 124.–153. lið, einkum 148. lið] tekið fram að almenn inngrip löggjafarvalds í kjarasamningaviðræður hafi átt sér stað ekki sjaldnar en níu sinnum á undanförnum tíu árum. Þetta sýnir greinilega að fyrir hendi eru erfiðleikar í því kerfi sem ræður samskiptum aðila vinnumarkaðarins“.
893.      Að áliti nefndarinnar sýnir ofangreint að ríkisvaldinu ber að gera markvissar ráðstafanir til að forðast inngrip með lagasetningu og til að greiða fyrir algerlega frjálsum sameiginlegum samningaumleitunum. Nefndin telur að slíkar ráðstafanir séu enn nauðsynlegri nú, þar sem gildandi kjarasamningar sem í krafti laga nr. 34/2001 eru látnir gilda um laun og kjör fiskimanna falla senn úr gildi og sömu erfiðleikar eru þá líklegir til að blossa upp aftur. Hún fer þess því á leit við ríkisvaldið að farið verði yfir þá tilhögun og starfshætti sem tíðkast við kjarasamningaumleitanir í landinu. Vekur nefndin athygli ríkisvaldsins á að skrifstofan er reiðubúin til að veita tæknilega aðstoð.

Tilmæli nefndarinnar.
894.      Í ljósi ofangreindra niðurstaðna fer nefndin þess á leit við Stjórnarnefnd að hún samþykki eftirfarandi tilmæli:
              (a)     Nefndin tekur fram, að eins og viðurkennt er í hinum íslensku lögum um stéttarfélög og vinnudeilur eiga launafólk og atvinnurekendur rétt á að grípa til aðgerða á vinnumarkaði til að verja atvinnuhagsmuni sína.
             (b)     Nefndin telur að gerðarmeðferð sú sem kveðið var á um í lögum nr. 34/2001 hafi brotið gegn reglunni um frjálsa gerð kjarasamninga. Í því sambandi tekur hún fram að stofnanir sem falið er að leysa deilu aðila í kjarasamningaviðræðum þurfa að vera óháðar og til þeirra þurfa aðilar að leita af eigin hvötum, nema þegar um er að ræða brátt hættuástand í þjóðfélaginu, en í því máli sem fyrir liggur var nefndinni ekki fært að ákvarða um það.
             (c)     Um leið og nefndin harmar að mörg svipuð tilvik hafa áður átt sér stað þar sem brotið hefur verið gegn ákvæðum samþykkta 87 og 98, fer hún þess á leit við ríkisvaldið að breytt verði þeirri tilhögun og þeim starfsháttum sem tíðkast við kjarasamningaumleitanir í landinu þannig að komast megi hjá því að endurtekin inngrip löggjafarvalds eigi sér stað á því sviði, og vekur nefndin athygli ríkisvaldsins á að alþjóðavinnumálaskrifstofan er reiðubúin til að veita tæknilega aðstoð.

Neðanmálsgrein: 1
    1     Til skýringar skal tekið fram að frá og með þessari skýrslu um Alþjóðavinnumálaþingið er enska orðið „recommendation“ þýtt með íslenska orðinu „tilmæli“. Í fyrri skýrslum var orðið þýtt með íslenska orðinu „tillaga“.
Neðanmálsgrein: 2
    2     Skýrslan heitir á ensku: 286th Report of the Committee on Freedom of Association, ILO Governing Body (GB.286/11 – 286th session).