Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 469. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 877 — 469. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Guðjóns A. Kristjánssonar um kjör eldri borgara og öryrkja.
1. Hversu margir ellilífeyrisþegar og hversu margir öryrkjar fengu greiddar óskertar bætur í desember sl.?
Ellilífeyrisþegar með greiðslur 1. desember 2004, að meðtöldum sjómannalífeyrisþegum (21 einstaklingur), voru 26.427 talsins. Af þeim fengu 24.976 óskertan grunnlífeyri, 9.605 óskerta tekjutryggingu, 347 óskertan tekjutryggingarauka og 4.072 óskerta heimilisuppbót.
Örorkulífeyrisþegar með greiðslur 1. desember 2004 voru 12.011 talsins. Af þeim fengu
11.061 óskertan grunnlífeyri, 5.938 óskerta tekjutryggingu, 1.406 óskertan tekjutryggingarauka og 2.477 óskerta heimilisuppbót
2. Hverjar voru raungreiðslur til þeirra eftir álagningu skatta og frádrag persónuafsláttar á sl. ári?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í töflunni.
3. Hversu margir ellilífeyrisþegar fengu í desember sl.:
a. óskertan grunnlífeyri,
b. óskertan grunnlífeyri og tekjutryggingu,
c. óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót,
d. óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstakan tekjutryggingarauka?
Ellilífeyrisþegar með greiðslur 1. desember 2004, án sjómannalífeyrisþega, voru 26.406 talsins. Af þeim fengu 24.962 óskertan grunnlífeyri, 9.600 óskertan grunnlífeyri og tekjutryggingu, 4.071 óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót og 215 óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og tekjutryggingarauka.
4. Hvaða bætur skerðast vegna:
a. atvinnutekna,
b. lífeyristekna,
c. fjármagnstekna?
Bótaflokkarnir sem getið er í 3. lið skerðast allir vegna atvinnutekna og fjármagnstekna og allir flokkarnir að undanskyldum grunnlífeyri skerðast vegna lífeyristekna.
5. Hversu margir fengu skerðingu í desember sl. vegna:
a. atvinnutekna,
b. lífeyristekna,
c. fjármagnstekna,
d. tekjuskatts?
Í desember 2004 fengu 26.406 einstaklingar greiddan ellilífeyri, sjómannalífeyrisþegar (21 einstaklingur) ekki meðtaldir. Þar af voru 6.924 með skerðingu vegna atvinnutekna (lífeyrisþega eða maka), 24.787 með skerðingu vegna lífeyrissjóðstekna (lífeyrisþega eða maka) en 16.496 með skerðingu vegna fjármagnstekna (lífeyrisþega eða maka).
Af fyrrgreindum 26.406 einstaklingum voru 502 þar sem hvorki lífeyrisþegi né maki voru með atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur.
Allir fengu skerðingu í desember vegna tekjuskatts. Lífeyrisbætur eru skattskyldar og samtala þeirra er yfir skattleysismörkum, ef bætur hafa skerst af öðrum orsökum þá er það vegna tekna (sbr. fyrrgreint) og samtala þeirra og bóta er ætíð yfir skattleysismörkum og er því tekjuskattsskyld.
Í desember 2004 fengu 12.011 einstaklingar greiddan örorkulífeyri. Þar af voru 6.183 með skerðingu vegna atvinnutekna (lífeyrisþega eða maka), 6.948 með skerðingu vegna lífeyrissjóðstekna (lífeyrisþega eða maka) en 3.838 með skerðingu vegna fjármagnstekna (lífeyrisþega eða maka).
Af fyrrgreindum 12.011 einstaklingum voru 1.687 þar sem hvorki lífeyrisþegi né maki voru með atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur.

Í svari þessu er miðað við nýjustu tekjuáætlun ársins 2004, en leiðréttingar hafa átt sér stað frá því greiðslur fóru fram 1. desember.
6. Hversu margir eldri borgarar og hversu margir öryrkjar fengu engar greiðslur frá Tryggingastofnun í desember sl.?
Eldri borgarar. Samkvæmt þjóðskrá 1. desember sl. voru búsettir hér á landi 30.844 einstaklingar fæddir fyrir 1. desember 1937. Í þessu svari eru ekki meðtaldir þeir greiðsluþegar sem búsettir eru erlendis. Af fyrrgreindum 30.844 fengu 25.759 greiddan ellilífeyri 1. desember en auk þess fengu 1.742 greidda vasapeninga.
Öryrkjar. Í desember voru 12.692 öryrkjar með 75% örorkumat en endurhæfingarmat er ekki tekið með. Af þessum 12.692 öryrkjum fengu 681 ekki greiddan örorkulífeyri í desember. Hins vegar var í sumum tilfellum um aðrar greiðslur að ræða. Þannig fengu 305 af fyrrgreindum 681 einstaklingum greidda vasapeninga, átta fengu greiddan slysalífeyri og tveir fengu fæðingarorlofsgreiðslur.
7. Hversu margir voru ellilífeyrisþegar og hversu margir voru öryrkjar í desember undanfarin fimm ár?

8. Hve háar voru samsettar hámarksbætur einstaklings, annars vegar ellilífeyrisþega og hins vegar örorkulífeyrisþega eftir aldri í desember sl.?
Greiðslur ellilífeyrisþega eru ekki háðar aldri en eru mismunandi eftir því hvort lífeyrisþeginn býr einn eða á maka.
Með tilkomu aldurstengdrar örorkuuppbótar eru greiðslur til öryrkja mismunandi eftir aldri viðkomandi þegar hann var fyrst metinn til örorku. Í eftirfarandi töflu eru dæmi, eins og í 2. lið, sem sýna óskertar greiðslur til þeirra sem verða öryrkjar annars vegar 18 ára og hins vegar 40 ára.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 877 — 469. mál.
Svar

Óskertar ársgreiðslur 2004 til lífeyrisþega, kr.
| Ellilífeyrisþegi | Örorkulífeyrisþegi | ||||
| Makalaus, býr einn |
Á maka |
Makalaus, býr einn, 75% örorkumat við 18 ár |
Makalaus, býr einn, 75% örorkumat við 40 ár |
Á maka, 75% örorkumat við 40 ár | |
| Grunnlífeyrir | 254.988 | 254.988 | 254.988 | 254.988 | 254.988 |
| Aldurstengd örorkuuppbót | 254.988 | 25.500 | 25.500 | ||
| Tekjutrygging | 499.860 | 499.860 | 512.136 | 512.136 | 512.136 |
| Orlofs-/desemberuppbætur á tekjutryggingu | 20.828 | 20.828 | 21.339 | 21.339 | 21.339 |
| Tekjutryggingarauki | 246.480 | 197.856 | 246.480 | 246.480 | 197.856 |
| Orlofs-/desemberuppbætur á tekjutryggingarauka | 10.270 |
8.244 |
10.270 |
10.270 |
8.244 |
| Heimilisuppbót | 209.628 | 209.628 | 209.628 | ||
| Orlofs-/desemberuppbætur á heimilisuppbót | 8.735 | 8.735 | 8.735 | ||
| Samtals | 1.250.789 | 981.776 | 1.518.564 | 1.289.076 | 1.020.063 |
| Frádreginn skattur 38.58% | -482.554 | -378.769 | -585.862 | -497.325 | -393.540 |
| Persónuafsláttur | 329.952 | 329.952 | 329.952 | 329.952 | 329.952 |
| Afdreginn skattur | -152.602 | -48.817 | -255.910 | -167.373 | -63.588 |
| Samtals eftir skatt | 1.098.187 | 932.959 | 1.262.654 | 1.121.703 | 956.475 |
3. Hversu margir ellilífeyrisþegar fengu í desember sl.:
a. óskertan grunnlífeyri,
b. óskertan grunnlífeyri og tekjutryggingu,
c. óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót,
d. óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstakan tekjutryggingarauka?
Ellilífeyrisþegar með greiðslur 1. desember 2004, án sjómannalífeyrisþega, voru 26.406 talsins. Af þeim fengu 24.962 óskertan grunnlífeyri, 9.600 óskertan grunnlífeyri og tekjutryggingu, 4.071 óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót og 215 óskertan grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót og tekjutryggingarauka.
4. Hvaða bætur skerðast vegna:
a. atvinnutekna,
b. lífeyristekna,
c. fjármagnstekna?
Bótaflokkarnir sem getið er í 3. lið skerðast allir vegna atvinnutekna og fjármagnstekna og allir flokkarnir að undanskyldum grunnlífeyri skerðast vegna lífeyristekna.
5. Hversu margir fengu skerðingu í desember sl. vegna:
a. atvinnutekna,
b. lífeyristekna,
c. fjármagnstekna,
d. tekjuskatts?
Í desember 2004 fengu 26.406 einstaklingar greiddan ellilífeyri, sjómannalífeyrisþegar (21 einstaklingur) ekki meðtaldir. Þar af voru 6.924 með skerðingu vegna atvinnutekna (lífeyrisþega eða maka), 24.787 með skerðingu vegna lífeyrissjóðstekna (lífeyrisþega eða maka) en 16.496 með skerðingu vegna fjármagnstekna (lífeyrisþega eða maka).
Af fyrrgreindum 26.406 einstaklingum voru 502 þar sem hvorki lífeyrisþegi né maki voru með atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur.
Allir fengu skerðingu í desember vegna tekjuskatts. Lífeyrisbætur eru skattskyldar og samtala þeirra er yfir skattleysismörkum, ef bætur hafa skerst af öðrum orsökum þá er það vegna tekna (sbr. fyrrgreint) og samtala þeirra og bóta er ætíð yfir skattleysismörkum og er því tekjuskattsskyld.
Í desember 2004 fengu 12.011 einstaklingar greiddan örorkulífeyri. Þar af voru 6.183 með skerðingu vegna atvinnutekna (lífeyrisþega eða maka), 6.948 með skerðingu vegna lífeyrissjóðstekna (lífeyrisþega eða maka) en 3.838 með skerðingu vegna fjármagnstekna (lífeyrisþega eða maka).
Af fyrrgreindum 12.011 einstaklingum voru 1.687 þar sem hvorki lífeyrisþegi né maki voru með atvinnutekjur, lífeyrissjóðstekjur eða fjármagnstekjur.
Allir fengu skerðingu í desember vegna tekjuskatts. Lífeyrisbætur eru skattskyldar og samtala þeirra er yfir skattleysismörkum, ef bætur hafa skerst af öðrum orsökum þá er það vegna tekna (sbr. fyrrgreint) og samtala þeirra og bóta er ætíð yfir skattleysismörkum og er því tekjuskattsskyld.
Í svari þessu er miðað við nýjustu tekjuáætlun ársins 2004, en leiðréttingar hafa átt sér stað frá því greiðslur fóru fram 1. desember.
6. Hversu margir eldri borgarar og hversu margir öryrkjar fengu engar greiðslur frá Tryggingastofnun í desember sl.?
Eldri borgarar. Samkvæmt þjóðskrá 1. desember sl. voru búsettir hér á landi 30.844 einstaklingar fæddir fyrir 1. desember 1937. Í þessu svari eru ekki meðtaldir þeir greiðsluþegar sem búsettir eru erlendis. Af fyrrgreindum 30.844 fengu 25.759 greiddan ellilífeyri 1. desember en auk þess fengu 1.742 greidda vasapeninga.
Öryrkjar. Í desember voru 12.692 öryrkjar með 75% örorkumat en endurhæfingarmat er ekki tekið með. Af þessum 12.692 öryrkjum fengu 681 ekki greiddan örorkulífeyri í desember. Hins vegar var í sumum tilfellum um aðrar greiðslur að ræða. Þannig fengu 305 af fyrrgreindum 681 einstaklingum greidda vasapeninga, átta fengu greiddan slysalífeyri og tveir fengu fæðingarorlofsgreiðslur.
7. Hversu margir voru ellilífeyrisþegar og hversu margir voru öryrkjar í desember undanfarin fimm ár?
Umbeðnar upplýsingar koma fram í töflunni.
Lífeyrisþegar með greiðslur 1. desember undanfarin fimm ár.
| 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | |
| Ellilífeyrisþegar (að meðtöldum sjómannalífeyrisþegum) | 25.175 |
25.669 |
26.054 |
26.644 |
26.427 |
| Örorkulífeyrisþegar | 9.329 | 9.780 | 10.443 | 11.199 | 12.011 |
| Samkvæmt lögum nr. 74/2002, sem tóku gildi 1. jan. 2004, varð breyting á greiðslum til dvalarheimila vegna vistmanna. Fyrir þann tíma var voru vistmenn dvalarheimila taldir með í fjöldatölum ellilífeyrisþega þar sem greiðsla grunnlífeyris, tekjutryggingar og dvalarheimilisuppbótar var skráð á vistmenn en greidd til dvalarheimilis. Í nýju lögunum var tekið upp vistunarframlag sem kom í stað dvalarheimilisuppbótar, ellilífeyris og tekjutryggingar og frá þeim tíma eru vistmenn ekki taldir með í fjöldatölum. | |||||
8. Hve háar voru samsettar hámarksbætur einstaklings, annars vegar ellilífeyrisþega og hins vegar örorkulífeyrisþega eftir aldri í desember sl.?
Greiðslur ellilífeyrisþega eru ekki háðar aldri en eru mismunandi eftir því hvort lífeyrisþeginn býr einn eða á maka.
Með tilkomu aldurstengdrar örorkuuppbótar eru greiðslur til öryrkja mismunandi eftir aldri viðkomandi þegar hann var fyrst metinn til örorku. Í eftirfarandi töflu eru dæmi, eins og í 2. lið, sem sýna óskertar greiðslur til þeirra sem verða öryrkjar annars vegar 18 ára og hins vegar 40 ára.
Óskertar greiðslur til lífeyrisþega í desember 2004, kr.
| Ellilífeyrisþegi | Örorkulífeyrisþegi | ||||
| Makalaus, býr einn |
Á maka |
Makalaus, býr einn, 75% örorkumat við 18 ár |
Makalaus, býr einn, 75% örorkumat við 40 ár |
Á maka, 75% örorkumat við 40 ár | |
| Grunnlífeyrir | 21.249 | 21.249 | 21.249 | 21.249 | 21.249 |
| Aldurstengd örorkuuppbót | 21.249 | 2.125 | 2.125 | ||
| Tekjutrygging | 41.655 | 41.655 | 42.678 | 42.678 | 42.678 |
| Orlofs-/desemberuppbætur á tekjutryggingu | 12.497 | 12.497 | 12.803 | 12.803 | 12.803 |
| Tekjutryggingarauki | 20.540 | 16.488 | 20.540 | 20.540 | 16.488 |
| Orlofs-/desemberuppbætur á tekjutryggingarauka | 6.162 |
4.946 |
6.162 |
6.162 |
4.946 |
| Heimilisuppbót | 17.469 | 17.469 | 17.469 | ||
| Orlofs-/desemberuppbætur á heimilisuppbót | 5.241 | 5.241 | 5.241 | ||
| Samtals | 124.812 | 96.835 | 147.391 | 128.267 | 100.289 |
| Frádreginn skattur 38.58% | -48.153 | -37.359 | -47.525 | -40.147 | -31.844 |
| Persónuafsláttur | 27.496 | 27.496 | 27.496 | 27.496 | 27.496 |
| Afdreginn skattur | -20.657 | -9.863 | -20.290 | -12.651 | -4.348 |
| Samtals eftir skatt | 104.156 | 86.972 | 127.362 | 115.616 | 95.941 |