Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 600. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 894  —  600. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar í vísindaskyni.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hver er áætlaður kostnaður við áframhaldandi vísindaveiðar Hafrannsóknastofnunarinnar á þessu ári (39 hrefnur) og 2006 (100 hrefnur)?
     2.      Hve miklir fjármunir hafa verið settir í vísindaveiðarnar sem hófust sumarið 2003, annars vegar af fjárlagalið Hafrannsóknastofnunar og hins vegar með sérstökum framlögum úr ríkissjóði?
     3.      Hve mikið af hvalkjöti var tekið á land árin 2003 og 2004 og hve mikið af því er enn óselt?
     4.      Hver greiðir kostnaðinn við geymslu á hinu óselda kjöti og hversu hár er sá kostnaðarliður orðinn síðan 2003?