Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 896  —  498. mál.




Svar



ráðherra Hagstofu Íslands við fyrirspurn Helga Hjörvars um skuldir eftir aldri.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hverjar voru meðalskuldir landsmanna árin 1999 og 2003 og hve stór hluti þeirra var vegna húsnæðisöflunar, skipt eftir aldri sem hér segir: 20 ára og yngri, 21–25 ára og áfram í fimm ára aldursbilum upp í 75 ára, og 76 ára og eldri?

    Eftirfarandi tafla sýnir meðalskuldir landsmanna og hversu stór hluti þeirra er vegna íbúðarhúsnæðis í árslok 1999 og 2003 (fjárhæðir eru í millj. kr. á verðlagi hvers árs):
1999 2003
Meðalskuldir Hlutfall skulda vegna húsnæðis Meðalskuldir Hlutfall skulda
vegna húsnæðis
Hjón og sambýlisfólk
16–20 ára 3,1 87,6% 3,9 89,4%
21–25 ára 4,5 80,2% 7,1 83,0%
26–30 ára 6,3 74,5% 9,3 77,5%
31–35 ára 7,5 71,0% 10,8 74,8%
36–40 ára 7,8 69,8% 11,1 71,7%
41–45 ára 7,1 67,2% 10,4 68,0%
46–50 ára 5,9 63,2% 8,8 66,6%
51–55 ára 4,8 58,0% 7,6 61,6%
56–60 ára 3,9 54,5% 5,9 59,6%
61–65 ára 2,9 50,9% 4,7 57,7%
66–70 ára 2,1 55,3% 3,4 60,9%
71–75 ára 1,4 60,2% 2,4 62,9%
76 ára og eldri 0,8 65,1% 1,4 69,9%
Alls 5,2 66,1% 7,6 68,4%
Einhleypir og einstæðir foreldrar
16–20 ára 0,1 47,6% 0,1 67,8%
21–25 ára 1,0 61,2% 1,4 66,5%
26–30 ára 2,5 64,2% 3,4 68,1%
31–35 ára 3,3 65,9% 4,6 68,1%
36–40 ára 3,4 68,4% 5,1 67,1%
41–45 ára 3,2 71,3% 4,7 69,8%
46–50 ára 2,9 71,6% 4,4 70,7%
51–55 ára 2,5 71,8% 3,8 71,5%
56–60 ára 2,1 65,8% 3,2 73,3%
61–65 ára 1,5 75,2% 2,6 68,4%
66–70 ára 1,1 76,8% 1,9 78,7%
71–75 ára 0,8 77,5% 1,3 76,7%
76 ára og eldri 0,4 81,6% 0,7 78,2%
Alls 1,5 67,6% 2,3 69,4%
Skýringar: Hjá hjónum og sambýlisfólki miðast aldur við aldur þess sem er eldra.