Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 460. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 923  —  460. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um varðveislu sjónvarpsefnis.

     1.      Hvaða reglur gilda um það hvaða sjónvarpsefni er varðveitt?
    Um varðveislu útvarpsefnis gilda:
     a.      10. gr. laga um skylduskil til safna, nr. 20/2002,
     b.      8. gr. reglugerðar um skylduskil til safna, nr. 982/2003,
     c.      25. gr. útvarpslaga, nr. 53/2000,
     d.      5. gr. laga um Ríkisútvarpið, nr. 122/2000,
     e.      26. gr. reglugerðar um Ríkisútvarpið, nr. 357/1986.
    Samkvæmt útvarpslögum, nr. 53/2000, skal hver sá sem heimild hefur til rekstrar útvarps varðveita í a.m.k. 18 mánuði upptöku af öllu frumsömdu útsendu efni. Þó skal heimilt að varðveita fréttir í handriti. Í lögum um Ríkisútvarpið, nr. 122/2000, segir m.a. í 5. gr. að Ríkisútvarpinu beri að stuðla að því að frumflutt dagskrárefni stofnunarinnar verði varðveitt til frambúðar og er það að efni til samhljóða eldri lagagrein. Með lögum um skylduskil til safna, nr. 20/2002, og reglugerð nr. 982/2003 var Ríkisútvarpinu gert skylt að afhenda útsendar dagskrár hljóðvarps og sjónvarps í einu eintaki. Aðrar íslenskar hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvar skulu láta í té eitt eintak af þeim hlutum dagskrár sem móttökusafn kallar eftir og í þessu tilviki er um að ræða Kvikmyndasafn Íslands.
    Ríkisútvarpið hefur um áratuga skeið varðveitt hluta af dagskrárefni sínu. Framan af var unnið eftir viðmiðunarreglum sem framkvæmdastjórar settu hverju sinni. Að öðru leyti tóku dagskrár- og deildarstjórar ákvarðanir um hvaða efni skyldi varðveitt. Með lögum um skylduskil til safna, nr. 20/2002, og reglugerð nr. 982/2003 var Ríkisútvarpinu gert skylt að afhenda útsendar dagskrár hljóðvarps og sjónvarps í einu eintaki til Kvikmyndasafns eins og áður sagði. Ríkisútvarpið hefur haft samráð og samstarf við Þjóðskjalasafn um varðveislu skjala eins og lögbundið er og um varðveislu dagskrárefnis þar til Kvikmyndasafni var falið það verkefni.
    Ráðuneytið leitaði einnig eftir upplýsingum frá Stöð 2 og Skjá 1. Í svari Stöðvar 2 kemur fram að efni sé varðveitt í 18 mánuði samkvæmt útvarpslögum. Auk þess er efni sem Stöð 2 framleiðir í formi þáttaraða varðveitt í filmusafni nema þegar ekki þykir ástæða til að varðveita alla þættina til lengri tíma. Í þeim tilvikum er útbúið sýnishorn af þættinum eða varðveittur a.m.k. einn þáttur. Erlent dagskrárefni sem Stöð 2 sýnir er geymt samkvæmt samningi um sýningarrétt og endursent til framleiðenda þegar samningstíma lýkur.
    Í svari Íslenska sjónvarpsfélagsins sem rekur Skjá 1 var ekki getið um hvernig varðveislu er háttað.

     2.      Hvaða sjónvarpsefni stjórnmálalegs eðlis, sem sýnt var fyrir alþingiskosningar frá 1967– 2003, er til hjá Ríkisútvarpinu?
    Í fylgiskjali I er greint frá því hvaða sjónvarpsefni stjórnmálalegs eðlis, sem tengist alþingiskosningum 1967–2003, er varðveitt hjá Ríkisútvarpinu.

     3.      Hvaða flokkakynningar eru til frá kosningunum 1971, 1974, 1978, 1979, 1983, 1987, 1991, 1995, 1999 og 2003? Óskað er eftir upplýsingum um hvaða stjórnmálaflokkar buðu fram í hverjum kosningum og hvaða efni er til um hvern og einn.
    Í svari frá Ríkisútvarpinu kemur fram að flokkakynningar stjórnmálaflokkanna hafi verið framleiddar af flokkunum sjálfum og séu varðveittar hjá þeim, sjá fylgiskjal II. Í fylgiskjalinu eru tilgreindar þær flokkakynningar sem til eru í safni Ríkisútvarpsins, flokkaðar eftir árum.
    Í fylgiskjali III er tafla yfir þá flokka sem buðu fram í kosningum 1971–2003.
    Í svari Íslenska sjónvarpsfélagsins er greint frá flokkakynningum í þættinum Silfur Egils 2002–2003, sjá fylgiskjal IV.

     4.      Hvaða stjórnmálaumræðuþættir og aðrir stjórnmálaþættir, svo sem umræður kvöldið fyrir kjördag frá þessum kosningum, eru til, flokkaðir eftir árum?
    Hvað varðar Ríkisútvarpið er vísað til svars við 1. lið og fylgiskjals I. Þar er allt sjónvarpsefni sem á við spurninguna tilgreint eftir árum.
    Í svari Stöðvar 2 kemur fram að fyrsta kosningasjónvarpið þar hafi verið 1987. Einnig er til efni frá kosningasjónvarpi 1991, 1995, 1999 og 2003 og að auki eru til þættir sem tengjast kosningum og kallast Lokaslagur. Þeir voru sýndir kvöldið fyrir kjördag og í þeim komu fram fulltrúar flokkanna eða forsvarsmenn þeirra. Fyrir kosningarnar 1995 voru þættir á dagskrá sem heita Sjónarmið. Þetta voru samtals 54 þættir sem byrjuðu í október 1994 og enduðu í maí 1995. Í þeim voru mál tengd stjórnmálum tekin fyrir og stjórnmálamenn sátu fyrir svörum.
    Í svari Íslenska sjónvarpsfélagsins í fylgiskjali IV er greint frá gestum í þættinum Silfur Egils frá september 2002 til maí 2003 og jafnframt hverjir tóku þátt í aukaþætti rétt fyrir kosningar 2003.




Fylgiskjal I.


Ríkisútvarpið:

Sjónvarpsefni stjónmálalegs eðlis sem tengist alþingiskosningum 1967–2003.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal II.


Ríkisútvarpið:

Flokkakynningar.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal III.


Flokkar sem buðu fram
í alþingiskosningum 1971–2003.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal IV.


Íslenska sjónvarpsfélagið:

Silfur Egils 2002–2003.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.