Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 459. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 929 — 459. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um Lífeyrissjóð bænda.
1. Hve margir sjóðfélagar fá nú greitt úr Lífeyrissjóði bænda?
Árið 2004 fengu að meðaltali 3.668 lífeyrisþegar greiddan lífeyri úr sjóðnum í hverjum mánuði. Þar af fá sumir fleiri en eina tegund lífeyris. Heildarlífeyrisgreiðslur í janúar 2005 námu 57.270.131 kr.
2. Hve margir sjóðfélagar greiða í sjóðinn?
Fjöldi virkra (greiðandi) sjóðfélaga árið 2003 var 3.530 og hafði þeim fækkað úr 4.283 árið 2002. Ástæðu fækkunarinnar má m.a. rekja til laga nr. 140/2002, um breyting á lögum um Lífeyrissjóð bænda. Samkvæmt þeim var hætt að skipta iðgjöldum sjálfkrafa milli hjóna og samþýlisfólks en við það fækkaði greiðandi sjóðfélögum töluvert. Virkum sjóðfélögum hefur hins vegar fækkað jafnt og þétt mörg undanfarin ár, eða um 5–10% á ári. Ekki eru enn forsendur til að telja virka sjóðfélaga á árinu 2004.
3. Hve margir sjóðfélagar, sundurliðað eftir kyni, fá nú mánaðarlega greiddar: 0–10 þús. kr., 10–20 þús. kr., 20–30 þús. kr., 30–40 þús. kr. 40–50 þús. kr., meira en 50 þús. kr.?
4. Eru réttindi sjóðfélaga sambærileg við réttindi hjá hliðstæðum sjóðum?
Möguleikar bænda til að ávinna sér lífeyrisréttindi hafa verið og eru lakari en annarra launþega í landinu og nú aðallega vegna lágra reiknaðra launa í landbúnaði. Réttindi eru hins vegar sambærileg að því leyti að stigaútreikningur er sá sami og hjá almennu lífeyrissjóðunum. Lífeyrissjóður bænda veitir nú lágmarksréttindi samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, þ.e. margföldunarstuðull er 1,4. Fram til 1. júlí 2003 var margföldunarstuðull 1,442 en var lækkaður vegna tryggingafræðilegrar stöðu sjóðsins í árslok 2002.
5. Eru fyrirhugaðar breytingar á réttindaávinnslu hjá sjóðnum eða greiðslum úr honum?
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, skal lágmarkstryggingavernd sem lífeyrissjóður veitir miðað við 40 ára inngreiðslutíma iðgjalds fela í sér 56% af þeim mánaðarlaunum sem greitt er af í mánaðarlegan ellilífeyri. Leiði tryggingafræðileg athugun í ljós meira en 10% mun á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga er lífeyrissjóðum skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins. Sama gildir ef munur á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár.
Eins og fram kemur í svari við 4. lið var margföldunarstuðull hjá Lífeyrissjóði bænda lækkaður niður í 1,4 vegna tryggingafræðilegrar stöðu sjóðsins í árslok 2002. Í árslok 2003 var 7,2% halli á heildarskuldbindingum sjóðsins en vonir standa til að hallinn fari undir 5% á þessu ári. Gangi það eftir munu greiðslur úr sjóðnum væntanlega ekki breytast.
Þess ber að geta að ýmislegt er að breytast í ytra umhverfi lífeyrissjóða sem hefur áhrif á Lífeyrissjóð bænda eins og aðra sjóði. Þannig hafa vextir farið lækkandi, lífslíkur aukist og örorkulíkur vaxið. Allt eru þetta atriði sem kunna að hafa áhrif á stöðu lífeyrissjóða í næstu framtíð. M.a. til að bregðast við nýjum aðstæðum hafa nokkrir lífeyrissjóðir stefnt að því að taka upp aldurstengt réttindakerfi. Engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt varðandi Lífeyrissjóð bænda.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 929 — 459. mál.
Svar

Lífeyrisþegar sem fá eingöngu greiddan lífeyri vegna búskapartíma
(þ.e. greitt að fullu úr ríkissjóði).
Greiðslur í janúar 2005.
| Karlar | Meðalgreiðslur | Konur | Meðalgreiðslur | Samtals | Meðalgreiðslur | |||
| Ellilífeyrir: | ||||||||
| 0–10 þús. kr. | 2 | 3.551 | 1 | 8.200 | 3 | 5.101 | ||
| 10–20 þús. kr. | 9 | 15.682 | 3 | 15.539 | 12 | 15.646 | ||
| 20–30 þús. kr. | 2 | 20.720 | 1 | 20.720 | 3 | 20.720 | ||
| (enginn yfir þessu) | ||||||||
| Samtals | 13 | 14.590 | 5 | 15.108 | 18 | 14.734 | ||
| Makalífeyrir: | ||||||||
| 0–10 þús. kr. | 0 | 29 | 5.484 | 29 | 5.484 | |||
| 10–20 þús. kr. | 0 | 116 | 15.290 | 116 | 15.290 | |||
| (enginn yfir þessu) | ||||||||
| Samtals | 0 | 145 | 13.329 | 145 | 13.329 |
Lífeyrisþegar sem fá greitt vegna áunninna réttinda (uppbót vegna búskapartíma
þeirra sem fæddir eru 1914 og fyrr meðtalin).
Greiðslur í janúar 2005.
| Karlar | Meðalgreiðslur | Konur | Meðalgreiðslur | Samtals | Meðalgreiðslur | |||
| Ellilífeyrir: | ||||||||
| 0–10 þús. kr. | 376 | 6.097 | 578 | 4.833 | 954 | 5.331 | ||
| 10–20 þús. kr. | 595 | 15.068 | 328 | 14.328 | 923 | 14.805 | ||
| 20–30 þús. kr. | 411 | 24.497 | 136 | 23.691 | 547 | 24.255 | ||
| 30–40 þús. kr. | 180 | 34.071 | 23 | 31.954 | 203 | 33.832 | ||
| 40–50 þús. kr. | 30 | 42.504 | 0 | 0 | 30 | 42.504 | ||
| (enginn yfir þessu) | ||||||||
| Samtals: | 1.592 | 18.049 | 1.065 | 10.751 | 2.657 | 15.115 | ||
| Makalífeyrir: | ||||||||
| 0–10 þús. kr. | 33 | 3.847 | 499 | 5.364 | 532 | 5.270 | ||
| 10–20 þús. kr. | 10 | 13.045 | 208 | 15.094 | 218 | 15.000 | ||
| 20–30 þús. kr. | 1 | 24.365 | 11 | 22.564 | 12 | 22.714 | ||
| (enginn yfir þessu) | ||||||||
| Samtals: | 44 | 6.404 | 718 | 8.446 | 762 | 8.328 | ||
| Örorkulífeyrir: | ||||||||
| 0–10 þús. kr. | 44 | 5.871 | 74 | 5.551 | 118 | 5.670 | ||
| 10–20 þús. kr. | 32 | 14.910 | 57 | 14.901 | 89 | 14.904 | ||
| 20–30 þús. kr. | 27 | 24.258 | 55 | 24.619 | 82 | 24.500 | ||
| 30–40 þús. kr. | 29 | 34.801 | 30 | 34.571 | 59 | 34.684 | ||
| 40–50 þús. kr. | 10 | 44.653 | 15 | 43.975 | 25 | 44.246 | ||
| 50–60 þús. kr. | 3 | 52.231 | 4 | 52.294 | 7 | 52.267 | ||
| (enginn yfir þessu) | ||||||||
| Samtals: | 145 | 20.709 | 235 | 19.235 | 380 | 19.797 |