Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 630. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 953  —  630. mál.




Beiðni um skýrslu



frá samgönguráðherra um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands sem ferðamannalands.

Frá Merði Árnasyni, Ástu R. Jóhannesdóttur, Jóhanni Ársælssyni,
Þórunni Sveinbjarnardóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur, Margréti Frímannsdóttur,
Helga Hjörvar, Önnu Kristínu Gunnarsdóttur og Katrínu Júlíusdóttur.


    Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að samgönguráðherra flytji Alþingi skýrslu um áhrif hvalveiða undanfarið á ímynd Íslands sem ferðamannalands.

Greinargerð.


    Beiðni þessi var lögð fram 16. október 2003 en skýrslan barst ekki á því þingi og er beiðnin því endurflutt.
    Innan ferðaþjónustunnar halda menn því fram að hvalveiðar þær sem sjávarútvegsráðherra hefur gengist fyrir að undanförnu hafi óheppileg áhrif á ímynd Íslands erlendis, og geti þau meðal annars komið illa niður á ferðaþjónustunni til frambúðar. Áður en ákvörðun er tekin um framhald á þessum veiðum er mikilvægt að fyrir liggi athugun um þetta mál til þess að hægt sé að vega og meta sem flest rök fyrir henni. Farið er fram á að í skýrslu ráðherrans verði kynnt sjónarmið sem flestra í ferðaþjónustu og gerð grein fyrir áliti sérfræðinga á þessu sviði. Mikilvægt er að reyna að greina bæði skammtíma- og langtímaáhrif af veiðunum á ímynd landsins sem ferðamannalands. Litið verði á málið með tilliti til helstu markhópa íslenskrar ferðaþjónustu og reynt eftir megni að skoða áhrifin eftir ríkjum og markaðssvæðum, aldri, kyni, menntun og fleiri algengum breytum. Svarað verði eftir mætti hver eru viðhorf ferðamanna í helstu markhópum ferðaþjónustunnar til hvalveiða og við hvaða breytingum megi búast á fjölda ferðamanna til landsins frá hverju markaðssvæði og úr hverjum markhóp miðað við framhald á veiðum. Þá verði gerð grein fyrir líklegum áhrifum hvalveiðanna á ferðaþjónustu eftir einstökum greinum, flugþjónustu, gistihúsarekstri, hvalaskoðun o.s.frv.
    Þess er óskað að skýrslan verði tekin til umræðu á Alþingi fljótlega eftir að henni hefur verið útbýtt til þingmanna.