Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 625. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 977  —  625. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur um Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.

     1.      Í hve mörg ár hefur Hegningarhúsið við Skólavörðustíg verið rekið á undanþágum frá heilbrigðisyfirvöldum?
    Samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, er rekstur fangelsa starfsleyfisskyldur og skulu fangelsi m.a. uppfylla kröfur reglugerðar nr. 941/2002, um hollustuhætti. Frá 1998 hefur þrisvar sinnum verið veitt starfsleyfi fyrir Hegningarhúsið til bráðabirgða, í tvö ár í senn, og samkvæmt leyfisveitingu frá 10. febrúar 2004 hefur fangelsið nú starfsleyfi til 10. febrúar 2006.

     2.      Hvaða atriði hafa heilbrigðisyfirvöld gert athugasemdir við og hvað hefur verið gert til að bæta úr þeim?
    Frá 1998 hefur heilbrigðiseftirlit og síðan umhverfis- og heilbrigðissvið Reykjavíkur skoðað Hegningarhúsið reglulega. Bent hefur verið á ýmislegt vegna húsnæðis og aðbúnaðar, misveigamikið, en til eru skráðar athugasemdir um eftirtalin atriði:
    Við eftirlit heilbrigðiseftirlits í desember 1999 kom eftirfarandi í ljós:
     1.      Eldhúsinnréttingar í móttökueldhúsi á 1. hæð voru úr sér gengnar. Einnig var gólfefni lélegt. Eldhúsið stóðst ekki kröfur sem gerðar eru til móttökueldhúss.
     2.      Flísar á gólfi innra baðherbergis voru brotnar og lagnir frá handlaug lekar. Eins voru flísar á veggjum salerna sums staðar illa farnar.
     3.      Þröskuldar voru slitnir.
     4.      Ristar yfir loftræstingum og opnanlegum fögum voru óhreinar.
     5.      Gólf einangrunarklefa voru grómtekin.
    Ráðist var í eftirfarandi umbætur vegna framangreindra athugasemda:
     1.      Gagnger endurnýjun fóru fram á eldhúsi fangelsisins árið 2000. Skipt var um allar innréttingar.
     2.      Flísar voru lagfærðar og pípulagnir endurnýjaðar.
     3.      Endurbætur voru gerðar á þröskuldum þar sem þörf var á. Nokkrir sem voru mjög slitnir voru lagaðir, aðrir sem voru óþarfir fjarlægðir.
     4.      Reglulega er farið yfir ristar og þær hreinsaðar.
     5.      Gólf einangrunarklefa voru lagfærð.
    Skipt var um glugga og gluggabúnað í tveimur fangaklefum árið 2001 að kröfu heilbrigðiseftirlits vegna leka og fúa.
    Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur kom í reglubundið heilbrigðiseftirlit í Hegningarhúsið í október 2002. Eftirfarandi athugasemdir voru gerðar:
     1.      Í aðstöðu fanga á gangi, þar sem voru vaskaborð og skápar, var innréttingin slitin og erfið í þrifum. Fram kom að þetta þyrfti að lagfæra strax.
     2.      Rakaskemmdir í útveggjum læknastofu/skoðunarstofu. Fram kom að komast þyrfti fyrir orsök leka og lagfæra skemmdir, auk þess sem rýmið þarfnaðist málningar.
     3.      Á gestasalerni við klefa 2–3 vantaði fljótandi handsápu og einnota handþurrkur.
    Eftirfarandi umbætur voru gerðar í kjölfarið:
     1.      Ný innrétting var sett upp í aðstöðu fanga á fangagangi.
     2.      Læknastofa var máluð og útveggir lagfærðir. Eftir að breyting var gerð á jarðvegshæð og hellur lagðar á Skólavörðustíg fyrir utan fangelsisbygginguna hefur raki í veggjum minnkað.
     3.      Fljótandi sápa og einnota handþurrkur eru við vaska á öllum salernum og við aðrar handlaugar og sturtur.
    Í framhaldi af reglubundnu eftirliti í ágúst 2004 fundaði forstjóri Fangelsismálastofnunar og forstöðumaður fangelsanna á höfuðborgarsvæðinu með umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur um framtíð fangelsisins og áætlanir um byggingu nýs fangelsis í Reykjavík. Umhverfis- og heilbrigðisstofa óskaði í framhaldinu eftir fundi með dóms- og kirkjumálaráðherra um þessi mál og var hann haldinn í september 2004. Ekki komu fram sérstakar sundurliðaðar ábendingar eða aðfinnslur varðandi Hegningarhúsið á þessum fundum aðrar en þær að aðstæður í fangelsinu bæru þess merki að það hafi verið tekið í notkun árið 1874 og stæðist ekki þær kröfur sem gerðar séu til fangelsa í dag.

     4.      Hefur ríkið þurft að greiða dagsektir vegna þeirra tímamarka sem undanþágur heilbrigðisyfirvalda hafa kveðið á um í þeim tilvikum þegar ekki hefur verið ráðist í úrbætur? Ef svo er, hversu háar fjárhæðir er um að ræða?
    Engar upplýsingar eru fyrirliggjandi um þetta hjá forstöðumanni fangelsanna á höfuðborgarsvæðinu eða Fangelsismálastofnun ríkisins.

     5.      Eru lagaheimildir fyrir því að undanþiggja ríkið dagsektum í þeim tilvikum þegar ekki er farið að kröfum opinberra eftirlitsaðila um úrbætur á húsnæði og/eða aðbúnaði í fangelsum og sett tímamörk eftirlitsaðila ekki virt?
    Dómsmálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um þetta atriði.

     6.      Á hvern hátt er réttur fanga sem dvelja í Hegningarhúsinu til vinnu, náms og líkamsþjálfunar tryggður samkvæmt ákvæðum laga?
    Fangelsið er aðallega notað sem móttökufangelsi og dvelja flestir fangar þar í stuttan tíma. Ekki er sérstök aðstaða til skólahalds fyrir fanga og ekki er aðstaða til sérstakrar fangavinnu á verkstæði eða í vinnusal. Í fangelsinu er unnt að vista 14 afplánunarfanga og af þeim hafa jafnan tveir fasta vinnu við ræstingar, þrif, umhirðu og eftirlit með eldhúsi og matarbökkum og þess háttar. Þess utan sjá fangar einnig um alla vinnu sem til fellur í fangahluta og útivistaraðstöðu vegna viðhalds og umhirðu, svo sem smálagfæringar, málningarvinnu, slátt, lóðarhirðingu og þessháttar. Þetta teljast hins vegna ígrip en ekki föst verkefni. Einn klefi fangelsisins er notaður til líkamsræktar. Þar er pláss fyrir þrekhjól og handlóð. Útivistargarður er mikið notaður, bæði sumar og vetur. Þar er hægt að spila knattspyrnu á litlum velli og skjóta á körfu. Fangar fá rúman tíma til útivistar, sérstaklega þegar vel viðrar.

     7.      Hefur Evrópunefnd um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (CPT-nefndin) gert athugasemdir við aðbúnað fanga í Hegningarhúsinu? Ef svo er, hve oft og hvað fólst í þeim athugasemdum og hvað hefur verið gert til úrbóta?
    Eftir heimsókn CPT-nefndarinnar 1993 var gerð athugasemd vegna lítils birtuflæðis inn um fimm glugga á fangaklefum í austurálmu Hegningarhússins. Skipt var um þá glugga og sett í staðinn hert öryggisgler sem hleypir inn meiri birtu, ásamt opnanlegu fagi. Í þeirri heimsókn var einnig bent á að taka ætti klefa 13 og 14 úr notkun til vistunar fanga og var það gert og þeim breytt í sjónvarpsherbergi og æfingaherbergi. Hvað varðar athugasemd nefndarinnar um verkefnaskort fanga í Hegningarhúsinu vísast til svars við 6. lið, en eins og þar kemur fram er hvorki aðstaða í húsinu fyrir skólahald eða reglulega vinnu fanga.
    Í heimsókn CPT-nefndarinnar 1998 var lýst ánægju með að föngum hefði fækkað í Hegningarhúsinu og að farið hefði verið að ábendingum vegna slæmrar birtu í sumum klefum og að klefar 13 og 14 hefðu verið teknir úr notkun. Áfram var gerð athugasemd við slakan aðbúnað fanga varðandi vinnu, nám og tómstundir. Í heimsókn CPT-nefndarinnar 2004 var sérstaklega tekið fram að þrátt fyrir aldur og aðstöðuskort í Hegningarhúsinu ynnu starfsmenn þar gott og faglegt starf, vinnuandi væri góður og þægilegt andrúmsloft milli starfsmanna og fanga. Enn var bent á skort á aðstöðu til mismunandi verkefna fyrir fanga.
    Eins og rakið er í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn um breytingar í fangelsismálum fyrr á þessu þingi er það mat Fangelsismálastofnunar að leggja þurfi niður fangelsisrekstur í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á næstu árum. Gert er ráð fyrir að í stað Hegningarhússins og fangelsisins í Kópavogi verði horft til frekari uppbyggingar og umbóta á núverandi fangelsum á Litla-Hrauni, Kvíabryggju og Akureyri auk nýbyggingar á Hólmsheiði. Ekki er á þessari stundu unnt að tímasetja einstakar framkvæmdir eða hvenær Hegningarhúsinu verður lokað.