Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 653. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 993  —  653. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um kaupmátt ráðstöfunartekna ellilífeyrisþega.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur og Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hvernig hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna ellilífeyrisþega þróast í samanburði við almenna kaupmáttarþróun á tímabilinu 1988–2005 annars vegar og 1995–2005 hins vegar miðað við áætlað meðalverðlag ársins 2005:
     a.      hjá þeim sem eingöngu hafa greiðslur frá Tryggingastofunun ríkisins sér til framfærslu og búa einir,
     b.      hjá þeim sem búa ekki einir, eru því ekki með heimilisuppbót, en hafa
                  1.      47.600 kr.,
                  2.      95.200 kr.,
                  3.      144.000 kr.
             úr lífeyrissjóði árið 2005 auk greiðslna frá almannatryggingum og sömu rauntekjur úr lífeyrissjóði árin á undan?


Skriflegt svar óskast.