Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 660. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1004  —  660. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um starfsemi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hve löng bið er eftir greiningu vegna alvarlegra þroskafrávika
              a.      barna yngri en 3 ára,
              b.      3–5 ára barna,
              c.      grunnskólabarna?
     2.      Hefur tilvísunum til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins fjölgað á síðustu fimm árum? Ef svo er, hverjar eru taldar helstu ástæðurnar?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við fjölgun frumgreininga á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og tilvísana þangað?
     4.      Hve langan telur ráðherra ásættanlegan biðtíma fyrir ofangreinda aldursflokka?
     5.      Hvenær telur ráðherra að markmiðum um ásættanlegan biðtíma verði náð?