Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 679. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1033  —  679. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um lánatryggingasjóð kvenna.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hve margar umsóknir um lán hafa borist lánatryggingasjóði kvenna árlega undanfarin þrjú ár og hvernig skiptast þær eftir kjördæmum?
     2.      Við hve mörgum lánsumsóknum hefur verið orðið á þessum tíma og hvernig skiptast þær eftir kjördæmum?
     3.      Hve miklu hefur verið úthlutað úr sjóðnum á sama tíma?


Skriflegt svar óskast.























Prentað upp.