Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 690. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1048  —  690. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um greiðslur fyrir fjarnám.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvaða reglur gilda um greiðslur nemenda fyrir fjarnám hjá símenntunarmiðstöðvum annars vegar og framhaldsskólum hins vegar stundi nemandi nám sitt í fleiri en einum skóla samtímis?
     2.      Hvernig er fjarnám metið inn í greiðslur fyrir ætlaðan nemendafjölda hvers framhaldsskóla?
     3.      Ef ekki eru til skýrar reglur um greiðslurnar vegna fjarnámsins hjá símenntunarmiðstöðvum eða framhaldsskólum hyggst ráðherra þá beita sér fyrir setningu slíkra reglna?


Skriflegt svar óskast.





















Prentað upp.