Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 662. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1119 — 662. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um nýjan þjónustusamning við Sólheima og skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi þeirra.
1. Eru stjórnir sjálfseignarstofnana, sem fá framlög úr ríkissjóði til að sinna verkefnum sem ríkið skal samkvæmt lögum sinna eða standa undir, óbundnar af því hvernig þær ráðstafa framlögunum ef ekki er sérstakur samningur þar um milli aðila?
Þar sem fyrirspurnin varðar málefni Sólheima mun ráðuneytið takmarka svar sitt við sjálfseignarstofnanir sem fá framlög úr ríkissjóði skv. XVII. kafla laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum. Önnur sjónarmið kunna að eiga við þar sem ákvæða sérlaga nýtur ekki við.
Fjárframlög ríkisins til sjálfseignarstofnana samkvæmt lögum nr. 59/1992 eiga sér sérstaka stoð í XVII. kafla laganna, er varðar fjármögnun og rekstur. Skilyrði er að sjálfseignarstofnun falli undir ákvæði 9. gr. laganna og hafi leyfi ráðherra skv. 14. gr. þeirra. Í síðarnefnda ákvæðinu er kveðið á um að félagsmálaráðherra hafi heimild til að gera þjónustusamninga við félagasamtök og sjálfseignarstofnanir. Vert er að undirstrika að um er að ræða heimildarákvæði og er því ekki skylt að gera þjónustusamning þótt sjálfseignarstofnun njóti fjárframlaga úr ríkissjóði á grundvelli XVII. kafla laganna, en slíkir aðilar skulu skila ráðuneytinu ársreikningi ásamt skýrslu um starfsemi liðins árs, sbr. 53. gr. laganna.
Ef ekki er í gildi þjónustusamningur við viðkomandi sjálfseignarstofnun má almennt gera ráð fyrir að ákvörðun um fjárveitingu byggist á einhliða vilja löggjafans við samþykkt fjárlaga hverju sinni til að leggja fé til starfsemi sjálfseignarstofnunarinnar. Án nánari tilgreiningar í fjárlögum ber því almennt að líta svo á að forsvarsmenn sjálfseignarstofnunar séu aðeins bundnir af því að verja fjármunum sem veittir eru til starfseminnar í samræmi við skipulagsskrá stofnunarinnar og innan ramma laga, eftir því sem við getur átt í hverju tilviki fyrir sig.
2. Ef þjónustusamningur við Sólheima frá 1997 um framlög vegna þjónustustigs og magns var ekki í gildi gat þá ráðuneytið þrátt fyrir það greitt samkvæmt tilteknu mati og stofnunin ráðið að vild hvernig fjármagni væri varið?
Í svari ríkislögmanns til ráðuneytisins vegna málefna Sólheima í Grímsnesi, dags. 23. september 2003, kemur skýrt fram að ríkislögmaður telur engan vafa leika á því að þjónustusamningur milli ráðuneytisins annars vegar og Sólheima hins vegar á grundvelli 14. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, hafi ekki verið í gildi allt frá ársbyrjun 1997.
Á sama tímabili liggur hins vegar fyrir einhliða vilji Alþingis samkvæmt fjárlögum til að leggja fé til starfseminnar án nánari tilgreiningar. Með vísan til ákvæða laga um málefni fatlaðra lítur ríkislögmaður í svari sínu svo á að forráðamenn Sólheima hafi aðeins verið bundnir við að verja greiðslum ríkisins innan ramma laga nr. 59/1992, fötluðum til handa.
3. Hefur ráðuneytið látið fara fram lögfræðilega athugun á réttarstöðu sinni í málum af þessum toga og hvort ríkið kunni að eiga lögvarin réttindi í skjóli framlaga sinna til Sólheima eins og Ríkisendurskoðun taldi eðlilegt að gera?
Í álitsgerð, sem unnin var á árinu 2002 að beiðni Sólheima af þeim Karli Axelssyni hrl. og Heimi Erni Herbertssyni hdl., er komist að þeirri niðurstöðu að bréf Sólheima til ráðuneytisins hafi ekki falið í sér afturköllun á uppsögn á þágildandi þjónustusamningi og að því hafi enginn þjónustusamningur verið í gildi eftir 30. janúar 1998. Í skýrslum Ríkisendurskoðunar um málið er komist að þeirri niðurstöðu að hvorki sú staðhæfing að Sólheimum sé óskylt að leggja forsendur þjónustusamningsins til grundvallar við meðferð fjárframlaga á liðnum árum, né sú staðhæfing að samningurinn sé ekki lengur í gildi, séu hafnar yfir allan vafa.
Í því skyni að eyða réttaróvissu varðandi fyrrgreind atriði taldi félagsmálaráðuneytið nauðsynlegt að afla álits ríkislögmanns á eftirfarandi atriðum:
Hvort bréf Sólheima til ráðuneytisins frá 30. janúar 1997 hafi falið í sér afturköllun á fyrri uppsögn þjónustusamnings við ráðuneytið. Niðurstaða ríkislögmanns var sú að svara bæri spurningunni neitandi. Hvort nýr samningur, sama efnis og hinn fyrri, hafi stofnast fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. desember 1997 og jafnvel síðari tíma sé á hinn bóginn sérstakt álitamál.
Hvort samskipti ráðuneytisins og Sólheima frá og með febrúar 1997 og önnur atvik málsins gefi til kynna að þjónustusamningurinn hafi verið áfram í gildi og að honum hafi þurft að segja sérstaklega upp af hálfu annars samningsaðila. Niðurstaða ríkislögmanns var sú að þjónustusamningur á grundvelli 14. gr. laga nr. 59/1992 hafi ekki verið í gildi allt frá ársbyrjun 1997 og þar sem samningurinn hafi ekki verið í gildi sé sjálfgefið að álitamál um uppsögn hafi enga raunhæfa þýðingu.
Hvort ákvæði þjónustusamningsins eða þær forsendur sem að baki honum lágu hafi bundið hendur stjórnenda Sólheima, þannig að þeim hafi einungis verið heimilt að ráðstafa framlagi ríkisins á árunum 1998–2003 í samræmi við ákvæði samningsins, en ekki til annarra verkefna. Niðurstaða ríkislögmanns var sú að forráðamenn Sólheima hafi ekki verið bundnir við forsendur samningsins frá 1996 vegna áranna 1998–2003. Hafi fjárveitingum á hinn bóginn verið veitt til verkefna sem með engu móti hefðu getað talist falla undir lögin um málefni fatlaðra sé þó hugsanlegt að unnt væri að líta á slíka ráðstöfun sem ólögmæta. Ekki væri þó þar með sagt að það leiddi til þess að ríkið ætti kröfu á hendur stofnuninni.
Hvort ráðuneytið eigi fjárkröfu á hendur Sólheimum vegna meintra óheimilla ráðstafana á framlögum ríkissjóðs á fyrrgreindu tímabili sem gefi tilefni til þess að höfða dómsmál á hendur sjálfseignarstofnuninni. Niðurstaða ríkislögmanns var sú að vægar kröfur yrðu gerðar til þess hvort stjórnendur Sólheima teldust vera í góðri trú um það á hverju fjárveitingar væru reistar. Orðrétt segir um það atriði: „ … enda lágu þeim hvorki til grundvallar gildur þjónustusamningur eða fjárlagatillögur í samræmi við lögin um málefni fatlaðra. Sanngirnissjónarmið sem viðurkennt er í almennum reglum um endurgreiðslu ofgreidds fjár myndu styðja það að Sólheimar hefðu töluvert svigrúm til að ráðstafa fjárveitingu samkvæmt lögum á þann hátt sem þeir teldu best í samræmi við lög um málefni fatlaðra. Í skýrslu ríkisendurskoðunar frá maí 2002 er rakið hversu sérstök starfsemin á Sólheimum er og hugmyndafræðin henni að baki. Það gæti einnig haft áhrif á möguleika til endurkröfu að hve miklu leyti Sólheimar hafi fengið aukafjárveitingu á þessum tíma.
Að framan hefur verið lýst sjónarmiðum sem gera það að verkum að ólíklegt er að ráðuneytið eigi endurkröfu á hendur Sólheimum. Skaðabótakrafa, sem raunar fyrnist á 10 árum, stofnaðist ekki nema sýnt væri fram á ólögmæta og saknæma meðferð fjárins sem veitt var með lögum. Kæmi það ekki til álita nema sýnt væri fram á að fjárveitingu úr ríkissjóði hafi ótvírætt verið varið til verkefna sem á engan hátt yrðu réttlætt í þágu fatlaðra samkvæmt lögum nr. 59/1992.“
Hvort miklar líkur séu til þess að slíkt dómsmál ynnist að stærstum eða verulegum hluta. Niðurstaða ríkislögmanns er með vísan til alls sem að framan greinir sú að ólíklegt væri að fjárkröfur á hendur Sólheimum næðu fram að ganga.
4. Hvernig bregst ráðuneytið við því mati Ríkisendurskoðunar að á árunum 2000 og 2001 hafi aðeins 17 stöðugildi verið í umönnun, búsetustuðningi og heimiliseiningum þótt samkvæmt þjónustumati eldri samnings hafi verið reiknað með 34 stöðugildum við þennan þjónustuþátt?
Eins og fram hefur komið var enginn samningur í gildi á milli ráðuneytisins og Sólheima á árunum 2000 og 2001. Ef ekki er í gildi þjónustusamningur við viðkomandi sjálfseignarstofnun má almennt gera ráð fyrir að ákvörðun um fjárveitingu byggist á einhliða vilja löggjafans við samþykkt fjárlaga hverju sinni til að leggja fé til starfsemi sjálfseignarstofnunarinnar. Án nánari tilgreiningar í fjárlögum ber því almennt að líta svo á að forsvarsmenn sjálfseignarstofnunar séu aðeins bundnir af því að verja fjármunum sem veittir eru til starfseminnar í samræmi við skipulagsskrá stofnunarinnar og innan ramma laga, eftir því sem við getur átt í hverju tilviki fyrir sig. Gerð er sama krafa til Sólheima og annara aðila sem starfa að málefnum fatlaðra, þ.e. að þeir leitist við að ráða til starfa starfsfólk með víðtæka reynslu, menntun og þekkingu sem nýtist við störf í þágu fatlaðra, eins og kveðið er á um í gildandi samningi. Með vísan til tilvitnaðs svars ríkislögmanns til ráðuneytisins, sjá svar við 3. lið fyrirspurnarinnar, hefur ráðuneytið ekki talið sig hafa forsendur til þess að „bregðast við“ með tilteknum lögformlegum hætti.
5. Hvað er gert ráð fyrir mörgum stöðugildum í nýjum þjónustusamningi?
Í grein 2.1 í nýjum þjónustusamningi við Sólheima er gert ráð fyrir því að Sólheimar taki að sér að veita 40 fötluðum íbúum á Sólheimum þjónustu í búsetu og atvinnu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992. Fjárveiting ráðuneytisins til Sólheima grundvallast á svokölluðu sjö flokka þjónustumati sem ætlað er að vera viðmið við að meta þörf íbúa fyrir þjónustu. Þörf íbúa fyrir þjónustu er mjög mismunandi, þeir eru allt frá því að vera sjálfbjarga og færir um að búa sjálfstætt með mjög lítilli þjónustu til þess að þurfa stöðugt eftirlit og/eða aðstoð á öllum sviðum daglegs lífs nær allan sólarhringinn. Að baki hverjum þjónustuflokki er áætlað fjármagn sem ætlað er að dugi til að veita þjónustu í samræmi við ákvæði laga um málefni fatlaðra. Svæðisskrifstofa Suðurlands og fulltrúar Sólheima hafa í sameiningu unnið þjónustumat á öllum íbúum Sólheima og var það samþykkt á fundi þann 15. apríl 2004. Ráðuneytið greiðir samkvæmt niðurstöðum þess mats frá og með 1. janúar sl.
Á því er byggt að þjónusta við fatlaða einstaklinga sé í samræmi við meginmarkmið laga um málefni fatlaðra og þau markmið sem viðkomandi stofnun hefur sett á grundvelli þeirra. Leitast er við að gera þeim sem veita þjónustu kleift að bjóða á hverjum tíma þjónustu í samræmi við þjónustuþörf. Þess ber einnig að geta að niðurstöður þjónustumats byggjast á mældri meðaltalsþörf á tilteknu viðmiðunartímabili og gerir því ekki sérstaklega ráð fyrir hugsanlegri aukinni tímabundinni þjónustuþörf sem upp kann að koma vegna veikinda eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna.
6. Hvernig er tryggt að menntun starfsmanna og fjöldi þeirra sé í samræmi við þjónustumat?
Gerð er sama krafa til Sólheima og annara aðila sem starfa að málefnum fatlaðra. Samkvæmt gildandi þjónustusamningi skulu Sólheimar leitast við að ráða til starfa starfsfólk með víðtæka reynslu, menntun og þekkingu sem nýtist við störf í þágu fatlaðra. Löggjafinn hefur ekki samþykkt sérstök lagaákvæði sem mæla fyrir um tiltekna menntun þeirra sem veita fötluðum þjónustu á grundvelli laga um málefni fatlaðra.
Sólheimar gefa m.a. út starfsáætlun þar sem helstu verkþættir starfseminnar eru skilgreindir og er því almenningi veitt nokkur innsýn í starfsemi Sólheima. Í gr. 8.4 í gildandi þjónustusamningi ráðuneytisins við Sólheima er kveðið á um að Svæðisráð Suðurlands skuli í samræmi við 6. gr. laga um málefni fatlaðra hafa eftirlit með því að þjónustan, starfsemi og rekstur þeirra starfseininga sem samningurinn nær til sé í samræmi við lögin og 5. gr. reglugerðar um svæðisráð fatlaðra, nr. 606/1998. Svæðisráð hefur rétt til þess að kanna aðstæður þar sem þjónusta er veitt samkvæmt samning(n)um og kalla eftir upplýsingum sem það telur þörf á hverju sinni með vísan til 15. gr. laganna. Svæðisráði er þannig m.a. kleift að meta hvort menntun starfsmanna og fjöldi þeirra sé í samræmi við þau markmið sem Sólheimar hafa sett.
7. Hvernig er tryggt að viðbótarframlög upp á 30 millj. kr. (og framlög alls 173,5 millj. kr.) renni til þeirrar þjónustu við fatlaða sem þeim er ætlað samkvæmt nýjum þjónustusamningi?
Nýr þjónustusamningur félagsmálaráðuneytisins og Sólheima, staðfestur af fjármálaráðuneytinu, byggist á nýju þjónustumati og heildarfjárþörf Sólheima. Skipting einstaklinga í þjónustuflokka sem mestu ræður um samningsupphæðina var unnin af starfsmönnum svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi og fulltrúum Sólheima.
Í samningnum eru ákvæði um hvernig hagað skuli eftirliti með starfseminni. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi skal í samvinnu við greiningar- og ráðgjafaraðila reglulega meta þörf einstaklinga fyrir þjónustu, sbr. 11. gr. og 6. tölul. 12. gr. laga um málefni fatlaðra. Sólheimum ber að skila ráðuneytinu, viðkomandi svæðisráði, Fjársýslu ríkisins og Ríkisendurskoðun ársreikningi undirrituðum af löggiltum endurskoðanda ásamt skýrslu um starfsemi liðins árs.
Um endurskoðun Sólheima eiga við lög um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997. Svæðisráð skal í samræmi við 6. gr. laga um málefni fatlaðra hafa eftirlit með því að þjónusta, starfsemi og rekstur heimila sem samningurinn nær til sé í samræmi við lögin og 5. gr. reglugerðar um svæðisráð málefna fatlaðra, nr. 606/1998.
Svæðisráð um málefni fatlaðra á Suðurlandi hefur rétt til að kanna aðstæður þar sem þjónustan er veitt samkvæmt samningnum og kalla eftir upplýsingum sem hún telur þörf á á hverju sinni. Þá geta fatlaðir íbúar og aðstandendur þeirra leitað til svæðisráðs og trúnaðarmanns fatlaðra með umkvörtunarefni í tengslum við þjónustu Sólheima.
8. Fellst ráðuneytið á það álit Ríkisendurskoðunar að um 73% framlaga ríkisins til Sólheima hafi runnið til fatlaðra og að á árunum 1996–2001 hafi 158 millj. kr. runnið til umfangsmeiri atvinnurekstrar, viðhalds og stofnkostnaðar húsnæðis en samningur var um?
Ráðuneytið undirstrikar að það álit Ríkisendurskoðunar sem getið er í þessum lið fyrirspurnarinnar byggist á því að á árunum 1996–2001 hafi verið í gildi sérstakur þjónustusamningur milli ráðuneytisins og Sólheima byggður á forsendum um tiltekna nýtingu fjármuna. Þar sem þjónustusamningur var ekki í gildi á þessum tíma telur ráðuneytið sig ekki bært til þess að svara þessum lið fyrirspurnarinnar eins og hann er lagður fyrir. Á hinn bóginn undirstrikar ráðuneytið mikilvægi þess að á hverjum tíma séu fjárveitingar til tiltekinnar starfsemi þjónustustofnana annaðhvort grundvallaðar á sérstökum þjónustusamningi eða fjárlagatillögum vegna viðkomandi starfsemi, sbr. núgildandi þjónustusamning við Sólheima.
9. Telur ráðuneytið að því fé sem verja á í varasjóð samkvæmt nýjum samningi (4% af ríkisframlagi, eða 7 millj. kr.) verði einvörðungu varið til uppbyggingar á þjónustu við fatlaða? Fjallar skipulagsskrá Sólheima um einhverjar aðrar framkvæmdir sem þannig yrði unnt að veita fé til úr varasjóði?
Ekki er rétt að tala um „fé sem verja á í varasjóð samkvæmt nýjum samningi (4% af ríkisframlagi, eða 7 millj. kr.)“. Í samningnum er svofellt ákvæði: „Stjórn Sólheima er heimilt að ráðstafa rekstrarafgangi til myndunar varasjóðs. Hlutverk sjóðsins er að mæta óvæntum áföllum í rekstri og leggja fram fé til bættrar þjónustu og framkvæmda í samræmi við skipulagsskrá Sólheima. Árlegt framlag má þó ekki nema hærri upphæð en 4% af upphæð samnings.“ Í þessu ákvæði felst að Sólheimum er einungis heimilt að ráðstafa hugsanlegum rekstrarafgangi í slíkan varasjóð og þá að hámarki sem nemur 4% af samningsfjárhæðinni. Sólheimar starfa samkvæmt lögum um sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri, nr. 33/1999. Tekjuafgangur sem verður af starfsemi stofnunarinnar skal renna til hennar sjálfrar og skal varið til þeirra verkefna sem tilgreind eru í 3. gr. skipulagsskrár Sólheima.
10. Hvað þýðir samþykkt fulltrúaráðs Sólheima um að flestar eignir á svæðinu séu í eigu Styrktarsjóðs Sólheima? Á það bæði við stofnanir fatlaðra og aðra uppbyggingu á svæðinu?
Ráðuneytið telur að það sé ekki bært til að túlka þýðingu samþykkta fulltrúaráðs Sólheima varðandi eignarhald á eigum á starfssvæði Sólheima. Þjónustusamningar ráðuneytisins við Sólheima og fjárveitingar löggjafans til starfseminnar hafa hverju sinni byggst á þeirri forsendu að starfsemi Sólheima og húseignir þjóni fötluðum einstaklingum á svæðinu með einum eða öðrum hætti.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1119 — 662. mál.
Svar