Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 758. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1124  —  758. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um forsjármál.

Frá Helga Hjörvar, Jóhönnu Sigurðardóttur og Katrínu Júlíusdóttur.



    Hefur farið fram úttekt og samanburður á högum barna sem njóta sameiginlegrar forsjár annars vegar og forsjár annars foreldris hins vegar frá því að sameiginleg forsjá var tekin upp í barnalögum? Sé svo ekki, telur ráðherra ástæðu til þess að meta þá reynslu og skapa þannig grundvöll til umræðu um fyrirkomulag forsjármála?