Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 640. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1135 — 640. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur og Rannveigar Guðmundsdóttur um kvartanir og kærur sjúklinga.
1. Hversu margar kvartanir hafa borist landlæknisembættinu frá sjúklingum og aðstandendum þeirra frá árinu 1995, skipt eftir árum og tilefni?
Umbeðnar upplýsingar um kvartanir sem bárust landlæknisembættinu koma fram í eftirfarandi töflu.
2. Hversu margar kærur hafa borist úrskurðarnefnd almannatrygginga frá sama tíma, skipt eftir árum og tilefni?
Upplýsingar um kærur til úrskurðarnefndar almannatrygginga á árunum 2000–2004 fylgja hér á eftir, skipt eftir árum og tilefni.
Árið 2000.
Árið 2000 voru skráðar alls 396 kærur hjá úrskurðarnefnd almannatrygginga. Tryggingastofnun breytti afgreiðslu í 59 tilvikum eftir að kæra barst og var ekki úrskurðað í þeim málum þar sem ágreiningur var ekki lengur fyrir hendi. Í átta tilvikum voru kærur afturkallaðar og í 12 málum barst ekki umboð frá hlutaðeigandi. Úrskurðarnefndin skar úr 301 kærumáli árið 2000. Langflest þeirra bárust á árinu en hluti málanna var eldri og eðli máls samkvæmt fluttist hluti af afgreiðslum til næsta árs.
Árið 2001.
Árið 2001 voru skráðar alls 296 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga sem er umtalsverð fækkun mála frá árinu áður. Munar þar langmest um kærur vegna bifreiðakaupastyrkja sem voru 83 árið 2000, en aðeins fjórar árið 2001. Kærufjöldi í öðrum málaflokkum var nokkuð svipaður bæði árin. Af þeim 296 málum sem bárust árið 2001 var afgreiðsla endurskoðuð hjá Tryggingastofnun í 41 máli sem kom því ekki til úrskurðar og 11 mál komu ekki til úrskurðar vegna ástæðna er vörðuðu kæranda, þar af voru átta kærur afturkallaðar. 15 kærumál sem bárust á árinu voru óafgreidd í lok mars 2002. Úrskurðað var í 273 kærumálum árið 2001. Þar af var afgreiðsla staðfest í 174 málum. Afgreiðslu Tryggingastofnunar var breytt í 66 málum, 19 málum var vísað frá og 14 málum var vísað aftur til Tryggingastofnunar. Af þeim 14 málum sem var vísað aftur til Tryggingastofnunar vörðuðu 13 almennt örorkumat.
Árið 2002.
Árið 2002 voru skráðar alls 259 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga. Er það nokkur fækkun mála frá árinu áður.
Af þeim 259 málum sem bárust árið 2002 tóku kærendur kærur sínar aftur í 39 málum, í langflestum tilvikum af því að afgreiðsla var endurskoðuð hjá Tryggingastofnun og henni breytt eftir að kæra barst. Af kærumálum sem bárust á árinu voru 50 óafgreidd 7. janúar 2003 og eitt mál er óafgreitt frá árinu 2001. Hefur afgreiðslu þess verið frestað að beiðni kæranda.
Úrskurðað var í 206 kærumálum árið 2002. Þar af var afgreiðsla Tryggingastofnunar staðfest í 134 málum. Afgreiðslu stofnunar var breytt í 46 málum, 12 málum var vísað frá og 14 málum var vísað aftur til Tryggingastofnunar.
Árið 2003.
Árið 2003 voru skráðar alls 324 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga. Er það fjölgun mála frá árinu áður.
Af þeim 324 kærum sem bárust árið 2003 voru 47 teknar aftur. Í langflestum tilvikum af því að afgreiðsla var endurskoðuð hjá Tryggingastofnun og henni breytt eftir að kæra barst. Af kærum sem bárust á árinu voru 16 óafgreiddar 1. mars 2004.
Úrskurðað var í 279 kærumálum árið 2003, en í 206 málum árið 2002. Þar af var afgreiðsla Tryggingastofnunar staðfest í 182 málum. Afgreiðslu Tryggingastofnunar var breytt í 58 málum, 18 málum var vísað frá og 21 máli var vísað aftur til Tryggingastofnunar.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1135 — 640. mál.
Svar
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur og Rannveigar Guðmundsdóttur um kvartanir og kærur sjúklinga.
1. Hversu margar kvartanir hafa borist landlæknisembættinu frá sjúklingum og aðstandendum þeirra frá árinu 1995, skipt eftir árum og tilefni?
Umbeðnar upplýsingar um kvartanir sem bárust landlæknisembættinu koma fram í eftirfarandi töflu.
Kvartanir til landlæknis, skipt eftir árum og tilefni, 1995–2004.
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | |
| Ófullnægjandi eða röng greining, meðferð og eftirlit | 130 50% | 119 50% | 96 48,7% | 109 51,4% | 159 55% | 162 43,3% | 172 47,9% | 139 62% |
107 48,6% | 113 46,3% |
| Samskiptavandamál | 27 10% |
25 10,3% |
29 14,7% |
30 14,1% |
47 16,2% |
66 17,6% |
50 13,9% |
9 4% |
18 8,1% |
27 11% |
| Kvartanir vegna sjúkraskráa, einkum aðgengi að þeim | 22 8% |
9 3,7% |
16 8,1% |
16 7,5% |
28 9,6% |
46 12,2% |
37 10,3% |
7 3,1% |
17 7,7% |
20 8,1% |
| Röng eða villandi vottorð eða vottorðatregða | 18 6,9% |
12 4,9% |
18 9,1% |
26 12,2% |
27 9,3% |
26 6,9% |
22 6,1% |
14 6,2% |
16 7,2% |
20 8,1% |
| Aðgengi að heilbrigðisþjónustu | 23 9% |
27 11,6% |
16 8,1% |
25 11,7% |
29 10% |
61 16,3% |
57 15,85% |
17 7,5% |
15 6,8% |
13 5,3% |
| Heilbrigðisstarfsfólk fer út fyrir verksvið sitt/skottulækn. | 6 2,3% |
6 4% |
1 0,5% |
3 1,4% |
2 0,7% |
7 1,8% |
6 1,6% |
9 4% |
6 2,7% |
5 2% |
| Trúnaðarbrot | 5 2,1% |
4 1,6% |
3 1,5% |
4 1,8% |
15 5,1% |
15 4% |
8 2,2% |
1 0,4% |
8 3,6% |
6 2,4% |
| Áfengis- eða lyfjanotkun heilbrigðisstarfsmanns | 0 | 2 0,8% |
1 0,5% |
4 1,8% |
3 1% |
8 2,1% |
7 1,9% |
0 | 0 | 4 1,6% |
| Óljóst tilefni | 9 3,4% |
4 1,6% |
3 1,5% |
1 0,5% |
5 1,7% |
9 2,4% |
7 1,9% |
2 0,9% |
3 1,3% |
4 1,6% |
| Annað | 28 11% |
32 13,2% |
27 13,7% |
16 7,5% |
14 4,8% |
15 4% |
28 7,7% |
27 12% |
44 20% |
32 13,1% |
| Fjöldi kvartana | 260 | 241 | 197 | 212 | 288 | 374 | 359 | 224 | 220 | 244 |
| Á árunum 1995–2003 var hægt að skilgreina fleiri en eitt tilefni. Þess vegna geta tilefni verið fleiri en kvartanirnar. | ||||||||||
2. Hversu margar kærur hafa borist úrskurðarnefnd almannatrygginga frá sama tíma, skipt eftir árum og tilefni?
Upplýsingar um kærur til úrskurðarnefndar almannatrygginga á árunum 2000–2004 fylgja hér á eftir, skipt eftir árum og tilefni.
Árið 2000.
Árið 2000 voru skráðar alls 396 kærur hjá úrskurðarnefnd almannatrygginga. Tryggingastofnun breytti afgreiðslu í 59 tilvikum eftir að kæra barst og var ekki úrskurðað í þeim málum þar sem ágreiningur var ekki lengur fyrir hendi. Í átta tilvikum voru kærur afturkallaðar og í 12 málum barst ekki umboð frá hlutaðeigandi. Úrskurðarnefndin skar úr 301 kærumáli árið 2000. Langflest þeirra bárust á árinu en hluti málanna var eldri og eðli máls samkvæmt fluttist hluti af afgreiðslum til næsta árs.
Málaflokkar og felldir úrskurðir 2000.
| Kærur | Alls |
| Slysmál | 63 |
| Bifreiðakaupastyrkir | 61 |
| Örorka | 29 |
| Hjálpartæki | 24 |
| Tannlækniskostnaður | 22 |
| Bensínstyrkur | 18 |
| Ferðakostnaður | 10 |
| Endurkrafa ofgreiddra bóta | 10 |
| Umönnunargreiðslur | 9 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 9 |
| Sjúkradagpeningar | 6 |
| Sjúkrakostnaður erlendis | 5 |
| Skerðing/upphæð bóta | 6 |
| Uppbætur | 5 |
| Siglinganefnd | 6 |
| Fæðingarorlof | 4 |
| Lyfjakostnaður | 4 |
| Barnalífeyrir | 2 |
| Bifreiðakaupalán | 2 |
| Ellilífeyrir | 2 |
| Lýtalækninganefnd | 2 |
| Dánarbætur | 1 |
| Meðlag | 1 |
| Samtals | 301 |
Árið 2001.
Árið 2001 voru skráðar alls 296 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga sem er umtalsverð fækkun mála frá árinu áður. Munar þar langmest um kærur vegna bifreiðakaupastyrkja sem voru 83 árið 2000, en aðeins fjórar árið 2001. Kærufjöldi í öðrum málaflokkum var nokkuð svipaður bæði árin. Af þeim 296 málum sem bárust árið 2001 var afgreiðsla endurskoðuð hjá Tryggingastofnun í 41 máli sem kom því ekki til úrskurðar og 11 mál komu ekki til úrskurðar vegna ástæðna er vörðuðu kæranda, þar af voru átta kærur afturkallaðar. 15 kærumál sem bárust á árinu voru óafgreidd í lok mars 2002. Úrskurðað var í 273 kærumálum árið 2001. Þar af var afgreiðsla staðfest í 174 málum. Afgreiðslu Tryggingastofnunar var breytt í 66 málum, 19 málum var vísað frá og 14 málum var vísað aftur til Tryggingastofnunar. Af þeim 14 málum sem var vísað aftur til Tryggingastofnunar vörðuðu 13 almennt örorkumat.
Málaflokkar þar sem úrskurðir voru 10 eða fleiri árið 2001.
| Fjöldi |
Afgreiðsla staðfest | Afgreiðslu breytt | Vísað frá eða til TR | |
| Slysatrygging | 65 | 38 | 24 | 3 |
| Tannmál | 32 | 23 | 7 | 2 |
| Almennt örorkumat | 28 | 11 | 4 | 13 |
| Bensínstyrkur | 22 | 11 | 9 | 2 |
| Hjálpartæki | 17 | 11 | 4 | 2 |
| Ferðakostnaður | 16 | 9 | 6 | 1 |
| Umönnunarmat | 12 | 11 | 1 | |
| Sjúklingatrygging | 11 | 7 | 3 | 1 |
| Endurkrafa vegna ofgreiddra bóta | 10 | 7 | 2 | 1 |
| Samtals | 213 | 128 | 60 | 25 |
Árið 2002.
Árið 2002 voru skráðar alls 259 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga. Er það nokkur fækkun mála frá árinu áður.
Af þeim 259 málum sem bárust árið 2002 tóku kærendur kærur sínar aftur í 39 málum, í langflestum tilvikum af því að afgreiðsla var endurskoðuð hjá Tryggingastofnun og henni breytt eftir að kæra barst. Af kærumálum sem bárust á árinu voru 50 óafgreidd 7. janúar 2003 og eitt mál er óafgreitt frá árinu 2001. Hefur afgreiðslu þess verið frestað að beiðni kæranda.
Úrskurðað var í 206 kærumálum árið 2002. Þar af var afgreiðsla Tryggingastofnunar staðfest í 134 málum. Afgreiðslu stofnunar var breytt í 46 málum, 12 málum var vísað frá og 14 málum var vísað aftur til Tryggingastofnunar.
Málaflokkar þar sem úrskurðir voru fimm eða fleiri árið 2002.
| Fjöldi |
Afgreiðsla staðfest | Afgreiðslu breytt | Vísað frá eða til TR | |
| Slysatrygging | 40 | 24 | 14 | 2 |
| Umönnunarmat | 33 | 26 | 2 | 5 |
| Tannmál | 28 | 21 | 7 | |
| Almennt örorkumat | 14 | 5 | 4 | 5 |
| Ferðakostnaður | 12 | 11 | 1 | |
| Endurkrafa vegna ofgreiddra bóta | 11 | 5 | 5 | 1 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 10 | 8 | 1 | 1 |
| Bensínstyrkur | 10 | 6 | 2 | 2 |
| Sjúklingatrygging | 10 | 6 | 3 | 1 |
| Hjálpartæki | 8 | 3 | 3 | 2 |
| Bifreiðakaupastyrkur | 5 | 4 | 1 | |
| Alls | 181 | 119 | 43 | 19 |
Árið 2003.
Árið 2003 voru skráðar alls 324 kærur hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga. Er það fjölgun mála frá árinu áður.
Af þeim 324 kærum sem bárust árið 2003 voru 47 teknar aftur. Í langflestum tilvikum af því að afgreiðsla var endurskoðuð hjá Tryggingastofnun og henni breytt eftir að kæra barst. Af kærum sem bárust á árinu voru 16 óafgreiddar 1. mars 2004.
Úrskurðað var í 279 kærumálum árið 2003, en í 206 málum árið 2002. Þar af var afgreiðsla Tryggingastofnunar staðfest í 182 málum. Afgreiðslu Tryggingastofnunar var breytt í 58 málum, 18 málum var vísað frá og 21 máli var vísað aftur til Tryggingastofnunar.
Málaflokkar þar sem úrskurðir voru fimm eða fleiri árið 2003.
| Fjöldi alls |
Afgreiðsla staðfest | Afgreiðslu breytt | Vísað frá |
Vísað til TR |
|
| Tannmál | 72 | 57 | 11 | 3 | 1 |
| Slysamál | 57 | 35 | 19 | 2 | 2 |
| Uppbót/styrkur til bifreiðakaupa | 31 | 20 | 6 | 2 | 3 |
| Hjálpartæki | 14 | 11 | 3 | ||
| Sjúklingatrygging | 14 | 8 | 3 | 1 | 2 |
| Uppbót til reksturs bifreiða | 13 | 8 | 3 | 2 | |
| Umönnunarbætur | 12 | 8 | 1 | 2 | 1 |
| Fjárhæð bóta og tímabil | 9 | 6 | 2 | 1 | |
| Slmennt örorkumat | 9 | 3 | 1 | 5 | |
| Ferðakostnaður | 9 | 5 | 2 | 2 | |
| Uppbætur | 8 | 6 | 1 | 1 | |
| Alls | 248 | 167 | 51 | 14 | 17 |
Árið 2004, bráðabirgðatölur, flokkar með 10 mál eða fleiri .
| Mál, þ.e. skráðar kærur, voru 375. | |
| Örorkumat | 54 |
| Mál vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða | 40 |
| Slysatrygging | 39 |
| Tannlæknakostnaður | 35 |
| Sjúklingatrygging | 26 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 12 |
| Ferðakostnaður | 12 |
| Hjálpartæki | 12 |
| Umönnunargreiðslur | 11 |
| Alls | 241 |