Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 783. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1161  —  783. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um minka- og refaveiðar.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hvenær er að vænta afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á tillögum nefnda sem ráðherra skipaði til að fjalla um minka- og refaveiðar?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að tillögum nefndanna verði hrundið í framkvæmd?
     3.      Ef svo er, hyggst ráðherra beita sér fyrir því að tryggt verði nægilegt fjármagn til aðgerða samkvæmt tillögunum í fjárlögum fyrir árið 2006?
     4.      Telur ráðherra að núverandi skipulag og deilur um greiðslur fyrir veiðar hafi áhrif á stofnstærð refa og minka? Ef svo er, með hvaða hætti?
     5.      Hve lengi telur ráðherra að núverandi ástand geti varað án þess að endurskoða verði þær forsendur sem tillögur nefndanna eru byggðar á?


Skriflegt svar óskast.